Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 16
H
jónin Jóhanna Reyn-
isdóttir og Hallur
Arnarsson nota
hvert tækifæri til að
dansa í hópi
skemmtilegs fólks. Argentínskur
tangó hefur verið í miklu uppáhaldi
upp á síðkastið og hafa þau m.a.
verið í læri hjá Bryndísi og Hany í
Kramhúsinu nokkur undanfarin ár.
„Þau eru einstakir kennarar, já-
kvæð og hvetjandi og hafa verieð
ötul við að fá hingað tl lands gesta-
kennara og hljómsveitir frá Arg-
entínu sem hefur orðið til þess að
auka áhuga okkar enn fremur á
argentínskum tangó. En okkur
finnst orðið alveg ofboðslega gam-
an að dansa tangó og í raun er
þetta áhugamál okkar orðið að
ákveðnum lífsstíl þar sem tangóinn
hefur forgang yfir flest annað,“
segir Jóhanna og bætir við að
börnin fjögur, sem líka eru á for-
gangslistanum, séu yfirleitt komin
á koddann seint á kvöldin þegar
þau hjónin taki upp tangótaktinn
heima í stofu. Barnauppeldið og
tangóinn eigi því einkar vel saman.
„Við reynum að dansa eins oft og
við getum. Það er til dæmis hægt
að dansa tangó öll miðvikudags-
kvöld í Alþjóðahúsinu og annað
hvert laugardagskvöld í Kramhús-
inu. Í Þjóðleikhúskjallaranum hefur
verið ball einu sinni í mánuði og í
Iðnó hefur tangóhljómsveit lýðveld-
isins spilað fyrir dansi fyrsta
þriðjudag í hverjum mánuði. Við
sækjum svo flest námskeið í tangó
sem bjóðast hér á landi. Í Kram-
húsinu eru alltaf námskeið bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Í
lok apríl koma hingað til lands frá-
bærir kennarar frá Argentínu sem
verða með helgarnámskeið og sýna
svo tangó í Þjóðleikhúskjallaranum
29. apríl. Undanfarin ár hefur einn-
ig verið haldin alþjóðleg tangóhátíð
hér á landi með bestu kennurum
frá Argentínu sem völ er á. Þessa
hátíð sækir fólk víðs vegar að úr
heiminum, en hátíðin í ár verður
helgina 31. ágúst til 3. september
og er hugsuð fyrir alla, hvar á vegi
sem þeir eru staddir í tangóinum.“
Hjónin Jóhanna og Hallur eru nú
nýkomin úr sinni annarri ferð til
Argentínu enda segja þau að
hvergi sé betra að dansa argent-
ínskan tangó en í Argentínu. Í höf-
uðborginni Buenos Aires er tangó-
inn stiginn framundir morgun öll
kvöld vikunnar og hægt er að velja
úr fjölda dansstaða út um alla
borg.
Ferðalag alla leið til Argentínu
er talsvert langt, en hægt er að
fljúga þangað beint frá ýmsum
stöðum í Evrópu. Hjónin ákváðu að
fljúga að þessu sinni í gegnum New
York. „Þangað er sex tíma flug. Við
biðum í þrjá tíma og flugum svo í
næturflugi til Buenos Aires í heila
ellefu tíma og lentum að morgni. Í
Buenos Aires dvöldum við í þrettán
daga enda var þar margt að skoða.
Við dvöldum á sérstöku tangó-
hóteli, sem var lítið en skemmtilegt
og á góðum stað í San Telmo, sem
er í hjarta borgarinnar. Á hótelinu
var boðið upp á danstíma á hverj-
um degi og stundum fleiri en einn í
sérstökum danssal á staðnum. Sal-
inn var líka hægt að fá lánaðan til
að æfa nokkur spor. Þegar við
mættum á hótelið tók á móti okkur
bandoneonspilari í anddyrinu og
spilaði fyrir okkur argentínska
tangótónlist, en bandoneon er mik-
ilvægt hljóðfæri í allri tangótónlist.
Öll herbergi hótelsins voru einstök
og nefnd eftir tangótónlist-
armönnum. Þetta var svo sann-
arlega alvöru tangóhótel, sem gerði
ráð fyrir dansandi gestum fram
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Daglegtlíf
apríl
ÁHUGAMÁLIÐ | Stigu argentínskan tangó allar nætur út um alla Buenos Aires
Tangóinn hefur forgang
Mikið er
dansað á
götum úti
í Buenos
Aires.
Hjónin Jóhanna
Reynisdóttir og
Hallur Arnarsson í
tangósveiflu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
GRILLTÍMABILIÐ er á næsta
leiti og ekki úr vegi að búa sig undir
sumarið með nokkrum góðum ráð-
um frá heilsusérfræðingum vefj-
arins Mayoclinic.com. Grillið er
ekki bara fyrir kjöt, pylsur og ham-
borgara heldur er hægt að grilla
margt hollara, t.d. grænmeti,
ávexti, eftirmat og jafnvel pítsur.
Grænmetispítsa er góður matur
og hana er hægt að elda á grillinu:
Skerið uppáhaldsgrænmeti í álegg
og veltið upp úr ólífuolíu. Grillið á
grindinni eða álbakka ef það er
smátt skorið. Setjið til hliðar. Notið
tilbúið pítsudeig eða búið til ykkar
eigið. Fletjið þunnt út og penslið
með ólífuolíu. Grillið á meðalhita í
1–2 mínútur og fylgist vandlega
með svo botninn brenni ekki. Takið
botninn af grillinu með töngum og
leggið á bökunarpappír með grill-
uðu hliðina upp. Setjið pítsusósu og
grænmetið ofan á og takið af bök-
unarpappírnum og setjið á grillið í
2–3 mínútur. Dreifið rifnum osti yf-
ir og grillið í mínútu í viðbót. Egg-
aldin, kúrbít, papriku, lauk, tómata,
sveppi, perur, ananas og ferskjur er
gott að grilla. Gott ráð er að pensla
með olíu áður en það er grillað til að
koma í veg fyrir að maturinn festist
á grillinu. Grillið við vægan hita þar
til þetta er orðið gullinbrúnt. Ávexti
er best að grilla þannig að þeir eru
skornir til helmingja og kjarni fjar-
lægður. Grillið fyrst hliðina með
aldinkjötinu og síðan hýðismegin.
Grilltíminn er 3–5 mínútur eftir því
hversu þunnt er skorið. Ávextir
brenna auðveldlega við vegna
ávaxtasykursins. Grillaða ávexti er
hægt að nota sem meðlæti, eftirrétt
eða t.d. í salat. Perubáta er t.d.
hægt að pensla með sítrónusafa og
grilla þar til þeir byrja að brúnast,
þ.e. í 2–4 mínútur. Þá er síðan hægt
að nota í salat. Hugmynd að eft-
irrétti er t.d. ferskjuhelmingar
MATUR
Grænmetis-
pítsa á grillið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Morgunblaðið/Þorkell