Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÖNGKONAN Elín
Ósk Óskarsdóttir mun
syngja margar af sín-
um uppáhaldsaríum á
tónleikum með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í
dag og á morgun.
Stjórnandi verður
Petri Sakari og á efn-
isskránni eru m.a.
verk eftir Wagner,
Ponchielli, Verdi og
Puccini. Til stóð að
Garðar Cortes stjórn-
aði hljómsveitinni
ásamt Óperukórnum í
Reykjavík á þessum
tónleikum en af því
gat ekki orðið og því
var Elín Ósk fengin til
að gleðja áheyrendur í
staðinn. „Þótt ég hafi
þurft að stökkva inn í
tónleikana með stutt-
um fyrirvara þá á ég
tuttugu ára söng-
afmæli í ár og finnst
svolítið skemmtilegt
að þetta skuli banka
upp á hjá mér á þeim
tímapunkti. Ég er
innilega glöð og þakk-
lát fyrir að fá þetta
tækifæri með Sinfóní-
unni, þetta var eig-
inlega óvænt afmæl-
isgjöf,“ segir Elín
Ósk.
Hún ætlar bæði að syngja uppá-
haldsaríurnar sínar og aríur sem
hún hefur ekki sungið áður en allt-
af langað til að syngja með hljóm-
sveit.
„Þar á meðal er stór og mikla
aría, Turandot: In questa Reggia,
sem dramatískir sópranar ráðast
oft í á seinni hluta söngævinnar.
Svo eru líka aríuperlur sem ég hef
aldrei sungið áður, þetta verða
bæði þekktar og ekki eins þekktar
aríur, dramatískar og hugljúfar.
Það er ekkert þema gegnumgang-
andi í tónlistarvalinu en Verdi er
líklega í meirihluta, hann hefur
alltaf verið mitt uppáhald.“
Elín segir það mikið tilhlökk-
unarefni að fá að vinna með Petri
Sakari aftur enda sé hann stórkost-
legur listamaður. Leiðir Elínar og
Petri lágu síðast saman í Íslensku
óperunni í uppfærslu á Macbeth
svo það er óhætt að búast við mik-
illi flugeldasýningu þegar þau tvö
leiða saman hesta sína að nýju.
„Hljómsveitin spilar inn á milli
þess sem ég syng og verður með
forleiki úr hinum ýmsu óperum,
svolítið tengda óperunum sem ég
er að syngja úr. Ég hef ekki sungið
heila tónleika áður með Sinfóníu-
hljómsveitinni þar sem kastljósið
er algjörlega á mér en ég er nátt-
úrulega búin að syngja mikið með
henni í gegnum árin,“ segir Elín og
bætir við að sér finnist þetta af-
skaplega spennandi verkefni.
Tónleikarnir eru í Háskólabíói og
hefjast í kvöld kl. 20.00 og á laugar-
daginn kl. 17.00.
Tónlist | Elín Ósk Óskarsdóttir syngur
með Sinfóníuhljómsveitinni
Þekktar og
ekki eins þekktar
aríuperlur
Morgunblaðið/Eyþór
„Ég er innilega glöð og þakklát fyrir að fá þetta
tækifæri með Sinfóníunni, þetta var eiginlega
óvænt afmælisgjöf,“ segir Elín Ósk um tónleikana.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
TENGLAR
..............................................
www.sinfonia.is
AFsprengi HUGsunar eða EXplod-
ing MEaning er titillinn á sýningu
Guðjóns Bjarnasonar í Listasafni
Reykjavíkur, titill sem gefur kynna
að ákveðin samsvörun felist í að-
ferðafræðinni við gerð verkanna,
þar sem notast er við sprengingar,
og því hvernig hugurinn og ímynd-
unaraflið starfar. Orðaleikur er
byggður inn í titilinn, og einnig titla
einstakra verka þar sem hástafirnir
mynda oft aukamerkingu ef þeir eru
lesnir sér.
Sýningin samanstendur af tveim-
ur stórum innsetningum í sitthvor-
um salnum, myndbandsverki í fjöl-
notasal og kynningarmyndbandi í
anddyri safnsins. Þótt tölvuprentað-
ar afstrakt myndir á plaststriga séu
aðaluppistaða annarrar innsetning-
arinnar þá eru það upphafnir
sprengdir járnskúlptúrar og dram-
atíseruð skrásetning á því hvernig
verkin verða til það meginstef sem
sýningin hverfist um. Myndbandið í
fjölnotasalnum sýnir á ljóðrænan og
svolítið ógnvekjandi hátt þegar
margir samansoðnir málmferningar
eru sprengdir upp hver á eftir öðr-
um úti í náttúrunni. Einnig sjást
kyrrmyndir af skúlptúrunum þar
sem þeir virðast hafa sameinast
vetrarnáttúrunni í svarthvítri mynd-
inni. Í viðtali við listamanninn í
Morgunblaðinu 19. mars sl. segir
hann að þetta hafi verið gert í grjót-
námu í Geldinganesi, og eftir viðtal-
inu að dæma var endursviðsetning
atburðarins til sýnis í porti Hafnar-
hússins fyrstu daga sýningarinnar
þar sem nú eru verk eftir Joseph
Kosuth. Hins vegar er engin vöntun
á sprengdum járnverkum á efri hæð
safnsins, þau eru reyndar svo mörg
að jaðrar við yfirflæði í sýningar-
rýminu. Hvert verk samanstendur
oft af röð járnstrendinga eða ann-
arra forma, t.d. krossa, sem eru mis-
munandi mikið umbreytt með
sprengiefni. Í nokkrum tilfellum eru
raðað saman mörgum eins formum
sem breytast frá því að vera heil og
heilleg yfir í sundurtættar agnir.
Þetta minnir á framsetningu sumra
fyrstu tölvulistaverka áttunda ára-
tugarins sem byggðust á forritun
sem braut kerfisbundið niður hrein
(geld) form í lífrænar einingar, en
hugmyndin um að sprengja upp
formið á sér þó miklu lengri sögu.
Sýningin ber í sér sterkar tilvísanir
til orðræðu rómantíkurinnar um
karlmannlega listsköpun þar sem
fallustáknið, sprengingin, og sköp-
unarmáttur hugans mynda samfellt
hugmyndakerfi. Expressjónisminn
sótti kraft sinn í þetta hugmynda-
kerfi sem upphóf hina karllegu lík-
amlegu tjáningu við gerð listaverka.
Verk þar sem vilji mannsins og dío-
nýsísk frumorka hans er sterkari en
hið reglubundna skynsama og apoll-
óníska stýrikerfi feðraveldisins.
Guðjón gerir sums staðar smágrín
að þessari hugmyndafræði um leið
og hann sækir styrk sinn til hennar.
Á neðri hæðinni er titillinn á eina
sprengjuverkinu sem þar er að
finna: Flat tWINs – not True or
heroic resistance. Titill tölvuprent-
myndanna á plaststrigann, abstr-
ACT colOUR Feelings er líka svolít-
ið írónískur ásamt fleirum. Þó eru
sumir titlarnir á annarri hæðinni
mistækari og stundum ekki lausir
við stafsetningarvillur. Orðaleikur-
inn í sýningunni gefur henni þó auk-
ið gildi og getur orðið áhorfandanum
hvatning til að leggja út af eða snúa
út úr sjálfri orðræðu sýningarinnar.
Þannig finnst mér að það hljóti að
vera merkingarbært að hin ofur-
karlmannlega leikgleði sem birtist
við að sprengja verkin skuli hafa far-
ið fram á stað sem ber nafnið Geld-
inganes. Því ekki er bara verið að
sprengja upp hin sterílu form heldur
verður umhverfið fyrir barðinu á
gjörningnum á táknrænan hátt. Þar
sem hin hin rómantíska og enn
sprellifandi orðræða listrænnar
sköpunar byggist á táknmynd fall-
ussins og orðaforða tímgunar þá er
ekki laust við að hugtakið geldingar-
ótti komi upp í hugann. Í hinu stór-
skemmtilega auglýsingamyndbandi
um listamanninn og hinu mynd-
bandinu eftir listamanninn er
(skiljanlega) lögð áhersla á aðeins
þennan þátt sköpunarferils verk-
anna, sprenginganna.
Ekkert er sýnt frá þeirri augljós-
lega miklu og seinlegu vinnu sem
hefur farið í að smíða verkin í byrjun
og að fínisera og dedúa við þau í lok-
in. Það er helst þetta síðara sem mér
þykir mest óspennandi við verkin,
þessi lokafrágangur sem felst í að
króma hina sprengdu járnbúta eða
mála þau svört og raða upp eins og
útstillingu í ofhlaðinni listmuna-
verslun. Þetta breytir þó ekki því
hvað sprengingarnar eru heillandi
og einnig hve áhugaverð útkoman
getur orðið í mörgum tilvikanna. Þá
er ég ekki frá því að endursviðsetn-
ing „atburðanna“ í Geldinganesi eins
og hún var sett upp í portinu (sbr.
mynd með viðtalinu) sé áhugaverð-
ari lokaframsetning verka af þessu
tagi en sú útgáfa sem sjá má í Hafn-
arhúsinu. Von er á, í safninu, viða-
mikilli bók um sýninguna og verk
Guðjóns með fjölda texta á næstu
dögum. Það afsakar ekki það að sýn-
ingunni fylgja engar upplýsingar um
listamanninn né verkin, hvorki á
snepli né vefsíðu safnsins sem hlýtur
að teljast óviðunandi hjá stofnun á
borð við Listasafn Reykjavíkur.
Óður til karlmennskunnar
MYNDLIST
Listasafn Reykjarvíkur
Hafnarhús
Sýningin stendur til 23. apríl.
Opið daglega frá kl. 10-17, (einnig alla
páskana).
Guðjón Bjarnason
Morgunblaðið/Ómar
„Orðaleikurinn [...] gefur [...] aukið gildi og getur orðið áhorfandanum
hvatning til að leggja út af eða snúa út úr sjálfri orðræðu sýningarinnar.“
Þóra Þórisdóttir
HUGMYNDIN að sýningunni Bein í
skriðu, sem myndlistarmaðurinn
Steingrímur Eyfjörð opnar í dag í
Galleríi 101, kviknaði þegar lista-
maðurinn kom auga á blaðaljósmynd
af stórum steinum sem lent höfðu á
einhverjum vegi landsins í kjölfar
leysinga síðastliðið vor. Hvar þetta
ákveðna grjónhrun varð eða hvenær
eru ekki lykilatriði í þessu samhengi
heldur er það fyrirbærið sjálft sem
vakti áhuga listamannsins. „Mér
finnst vera ákveðin tilhneiging hjá
Íslendingum til að líta á fyrirbæri
eins og grjótskriðu sem verknað lif-
andi vera og gjarnan í tengslum við
hugmyndir um náttúruvætti, tröll og
svo framvegis. Í þessari sýningu er
ég að vinna með þessa ákveðnu þjóð-
legu tilfinningu sem er ennþá svo rík
í nútímamanneskjunni,“ segir Stein-
grímur. Skömmu eftir að hugmynd-
in kviknaði hóf Steingrímur að
teikna ýmiskonar myndir af trölls-
legum fígurum sem hann vann ein-
ungis út frá eigin tilfinningum til við-
fangsefnisins og urðu teikningarnar
á endanum hundrað talsins.
Kynjadýr
Fígúrur þessar eru ófríðar og
nokkuð kómískar í útliti, af báðum
kynjum og allar eru þær að burðast
með grjót. Á endanum valdi hann úr
sextán fígúrur sem hann teiknaði
inn á tölvu og gerði því næst skúlp-
túr eftir þeim úr útskornum rauð-
lökkuðum álplötum. Til þess að
skera í álplöturnar notaðist hann við
vatnskurð með granítflögum en slík
tækni er mikið notuð við ýmiskonar
iðnað. Myndirnar af fígúrunum
hanga svo innrammaðar í galleríinu
og skúlptúrarnir standa uppraðaðir í
hillum. Einungis sjö eintök eru gerð
af hverjum skúlptúr í þessu formi en
síðan mun vera hægt að sérpanta
eintak í öllum stærðum og úr ýmis
konar efni. Á miðju sýningargólfinu
er búið að koma fyrir nokkrum
grjóthnullungum en þeir kallast á
við tvö viðvörunarskilti sem vara við
grjótskriðu og standa til sýnis við
einn vegginn.
Að sögn listamannsins er sýningin
ákveðinn virðingavottur við þann
hluta þjóðarsálarinnar sem fær Ís-
lendinginn til að sjá fyrir sér furðu-
legustu kynjaverur í náttúrunni.
„Það er að mínu mati afar dýrmætur
hlutur og það þarf að passa vel upp á
hann,“ segir Steingrímur og bætir
við að sýningin sé að sama skapi til-
einkuð listmálaranum Ásgrími Jóns-
syni en eftir hann liggja einmitt
margar þjóðþekktar myndir af
kynjaverum íslenskrar náttúru.
Sýningin verður sem fyrr segir
opnuð í dag klukkan 17.00 og stend-
ur til 3. júní. Þess má geta að 12. júní
verður opnuð yfirlitssýning á verk-
um Steingríms og Birgis Andrés-
sonar í Listasafni Íslands.
Myndlist | Steingrímur Eyfjörð opnar sýninguna Bein í skriðu í Galleríi 101 í dag kl. 17
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndlistarmaðurinn Steingrímur Eyfjörð og hluti sýningarinnar.
Varúð – Grjótskriða
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is