Morgunblaðið - 21.04.2006, Side 37

Morgunblaðið - 21.04.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 37 MINNINGAR vöndinn stóra í fánalitunum, sem hann færði mér í minningu bónda míns 27. mars sl. Sigrún Björnsdóttir, fyrrv. skólastjóri Nýja tónlistar- skólans. „Þakka þér fyrir“ er eins og klisja, sjálf- sögð, úr sér gengin. Það sem þú hefur gert fyrir mig verðskuldar annað og meira en þrjú slitin og þreytt orð. En vita máttu að hjálp þín og hamingjan sem þú hefur fært mér hefur rennt styrkum stoðum undir líf mitt. (Helen Tomson.) Sigurður Demetz Franzson kom hingað til lands sem vorboði söng- gyðjunnar frá Tíról í ítölsku Ölp- unum þar sem tónarnir flæða á milli fjallanna. Hann kom með rótgróna menningu í söng og tók að kenna okkur mörlandanum listina að syngja. Við hjónin kynntumst þessum mæta manni, Demma eins og við kölluðum hann stundum, þegar hann kom að kenna söng og radd- þjálfun hjá Karlakór Keflavíkur árið 1959. Allt frá þeim tíma höfum við notið góðs vinskapar við Demetz og Þóreyju konu hans meðan hún lifði. Að heimsækja þau var frábært. Alltaf tekið á móti manni með opn- um örmum og veisluborði, sérstak- lega var lasanjað stórkostlegt. De- metz var þannig gerður að ef eitthvað var gert fyrir hann vildi hann alltaf borga það tvisvar til baka. Það var mikil lyftistöng fyrir Karlakór Keflavíkur að fá notið leið- sagnar Demetzar. Eftir veru á Norðurlandi kom hann aftur til kórsins árið 1980 og þá sem stjórn- andi hans. Í þrjú ár naut Karlakór Keflavíkur krafta hans og náði góð- um árangri og fór Demetz meðal annars með kórinn í frábæra ferð á heimaslóðir sínar í Tíról. Demetz var ákaflega ljúfur, elsku- legur og góður kennari enda hafa margir nemendur hans í karlakórn- um lagt söng fyrir sig með góðum árangri. Sigurður Demetz var heiðurs- félagi Karlakórs Keflavíkur og þakka kórfélagar honum ánægjuleg- ar stundir liðinna ára. Við hjónin og fjölskylda okkar þökkum af alhug góða vináttu og samverustundir til margra ára. Genginn er einstakur maður og góð- ur vinur sem við söknum sárt. Megi heimkoma hans á vald ör- laganna verða eins og ljúfur söngur. Fari hann í friði og með Guðsbless- un. Haukur Þórðarson, fyrrv. form. Karlakórs Keflavíkur. Kveðja frá vinum fyrir norðan „Það kom söngfugl að sunnan“ ár- ið 1955. Hann flaug frá tignarlegu og fögru landsvæði á Ítalíu, þar sem ljós Dolomítafjöllin höfðu löngum bergmálað rödd hans og bar þaðan í brjósti sér blik morgunsins og neista gleðinnar. Neista sem tendr- aði hér loga í brjósti svo margra söngfugla, jafnt ungra sem aldinna, neista sem tendraði logandi tóna í sálarhörpum þeirra. Í hörpum sem lengi munu hljóma enda þótt „söng- fuglinn að sunnan“ tendri nú tóna á nýjum slóðum, þar sem Dolomítarn- ir bergmála að eilífu. Sigurður Demetz tók mér og fjöl- skyldu minni opnum örmum er við flugum heim í hreiðrið okkar á Ak- ureyri haustið 1970. Þar vorum við kollegar í kennslu við Tónlistarskól- ann á Akureyri um árabil. Við urðum mestu mátar og mér fannst sem vinátta hans og innileg glaðværð gæddi oft veturinn rödd vorsins og samverustundirnar birtu sólarupprásarinnar. Vinátta okkar var ósvikin og þessi „söngfugl að sunnan“ var óþreyt- andi í að kenna mér að njóta lands- ins míns og auðlegðar þess, jafnvel betur en nokkur annar. Þetta einstaka við að vera sveita- og heimsmaður var honum svo eðli- legt, það að vera karlsson og kóngs- son í senn. Allir söngfuglarnir sem „maestro“ Demetz hefur kennt að beita vængj- um söngsins, fljúga vítt um geim og sumir í hæstu hæðir. Megi allur hinn mikli fuglaskari syngja Demetz þakkaróð. Við Lalla syngjum hér fyrir norð- an lágum en einlægum rómi kærum Demetz þakklæti fyrir allt og allt. Jón Hlöðver Áskelsson. Fyrir röskum tveimur áratugum hófust kynni mín af Demma og Eyju. Demmi var frá upphafi mikill áhrifavaldur á líf mitt eins og margra annarra sem honum kynnt- ust. Ekki var hann aðeins lærifaðir og fróðleiksbrunnur sem aldrei virt- ist þverra, heldur og góður vinur og ráðgjafi allt til síðasta dags. Um hans farsæla feril sem kenn- ara þarf ekki að fjölyrða enda hefur fjöldi nemenda hans gert garðinn frægan. Söngferill hans varð ekki lengri en á annan áratug en þrátt fyrir það náði hann til æðstu met- orða og söng á nokkrum af virtustu sviðum Evrópu enda var hann gæddur frábærum tónlistarhæfileik- um og vel mælandi á nokkrum tungumálum. Hann kom úr ítölsku söngumhverfi fyrri hluta síðustu aldar þar sem skólun var í hæsta gæðaflokki en þar að auki naut hann hins austurríska aga úr heimahög- unum í Tíról. Grunnur hans sem söngvara var því vel byggður. En líf hans einkenndist af örlagaríkum sveiflum. Hann steig krappan dans við alvarlega sjúkdóma en með þrautseigju sigraðist hann á þeim erfiðleikum. Hann hélt ávallt æðru- leysi sínu og var fullur af þakklæti fyrir það sem Guð lét honum í té. Þegar ferli hans sem söngvara lauk tók við enn farsælli og mun lengri ferill hans sem kennara. Tónlistin var honum sannarlega allt. Hann var líka Guði þakklátur fyrir að hún var aldrei tekin frá honum. Fátt hefur fengið meira á Demma en að missa Eyju og má segja að það hafi dregið úr lífsviljanum en með hjálp góðra vina og ástar á listum náði hann aftur að finna lífsgleðina. Aftur naut hann þess að sækja þá tónlistaratburði sem áður höfðu átt hug hans og hjarta og helst sat hann á fremsta bekk ef því varð komið við enda mátti ekkert fram hjá honum fara. Fáum dögum fyrir þau veikindi sem enduðu hans löngu ferð, brá hann sér í Íslensku óperuna að fylgjast með nýrri kynslóð söngvara reyna sig í alvöru verkefni. Vilji hans var slíkur og ást á tónlistinni svo mikil að það héldu honum engin bönd. Gleðin sem geislaði af þessum 93 ára manni þegar hann fylgdist með sýningunni líður mér örugglega aldrei úr minni. Á eftir rifjaði hann svo upp þá daga þegar hann fyrst kom til landsins og þá ótrúlegu framför sem hann hafði lifað á 50 ár- um. Jávæður og bjartsýnn á glæsta framtíð tónlistarinnar fór hann heim á herbergið sitt í Sóltúni og ég vissi að nú var Demmi sáttur við Guð og menn. Þar má segja að leiðir okkar hafi skilið í síðasta sinn. Óeigin- gjarnt starf Demma í þágu tónlistar hefur skilað okkur listamönnum sem halda áfram að auðga menningarlíf íslensku þjóðarinnar. „Börnin“ hans munu nú miðla af sinni kunnáttu til komandi kynslóða. Þannig mun arf- leifð Demma gamla haldast hjá okk- ur Íslendingum um ókomna tíð. Þessi fátæklegu orð ná ekki að túlka það þakklæti sem ég ber til Demma. Hann kenndi mér svo margt sem ekki er hægt að lýsa í orðum. Sjálfur hitti ég hann of sjald- an síðustu árin en þegar við hitt- umst var bæði slegið á létta strengi og talað um heimspekileg málefni. Þar kom Demmi oft á óvart. Hann benti manni á hluti sem maður hafði aldrei leitt hugann að og eftir góða heimsókn hafði maður um margt að hugsa. Þannig hélt hann áfram að kenna mér þótt við hefðum lagt söngæfingar á hilluna á okkar fund- um fyrir mörgum árum. Gunnar Guðbjörnsson. Það var mikil gæfa fyrir mig sem ungan leikara að kynnast Demma, eins og við kölluðum hann öll. Hann var þá þegar orðinn einn alfremsti söngkennari landsins og allir sem voru að nema söng eða raddbeit- ingu, hvort sem um var að ræða óp- erusöng, ljóðasöng eða túlkun á leik- sviði, vildu komast til Demma. Þegar ég rifja þetta upp núna og minnist allra þeirra góðu stunda sem við áttum saman, bæði í Nýja tónlistarskólanum og meðal vina, verður það ennþá ljósara í huga mér hversu djúp áhrif hann hafði á mig. Í gegnum námið tókst með okkur góð vinátta sem entist alla tíð. Án þess að á nokkurn sé hallað er það ekki ofsögum sagt að Demetz hafi verið einn áhrifamesti söng- og raddþjálfunarkennari okkar Íslend- inga. Sú söngtækni sem hann miðl- aði fyrst og fremst var hinn svokall- aði ítalski skóli og var öll hans kennsla byggð á þeim grunni. Menn hafa löngum deilt um ágæti hinna ýmsu skóla í söngfræðunum en hægt er nánast að fullyrða að ítalski skólinn er sá skóli sem hefur skilað mönnum hvað lengst. Söngferill hans sjálfs var stuttur en glæsilegur. Hann veiktist illilega sem ungur maður og röð atvika varð til þess að hann hætti sjálfur að syngja sem atvinnumaður. Stundum fannst mér ég skynja vissan bitur- leika hjá honum gagnvart örlögun- um, en það stóð stutt því lífsgleðin var honum í blóð borin í svo ríkum mæli að hann smitaði út frá sér í all- ar áttir. Leiklistarhæfileiki hans var líka mjög magnaður og átti hann mjög auðvelt með að setja sig inn í hinar ýmsu persónur og leika þær í botn, hvort sem var um að ræða gaman eða alvöru. Hann var mikill tilfinningamaður og fór ekki dult með hvað honum fannst um lífið og tilveruna, en alltaf setti hann það fram af hlýju og væntumþykju og áhuga fyrir listinni og lífinu. Þetta gerði það að verkum að allir sem kynntust honum tengdust honum vináttuböndum sem héldust alla ævi. Í mörg sumur starfaði Demetz sem leiðsögumaður á Íslandi. Hann fór bæði með landa sína, aðra Evr- ópubúa og Ameríkumenn um Ísland og kynnti fyrir þeim dásemd náttúr- unnar og sögu þjóðarinnar. Hann var mikill tungumálamaður sem nýttist honum vel í því starfi. Á haustin kom hann úthvíldur og hlað- inn orku í skólann, tilbúinn að takast á við það krefjandi starf sem söng- kennsla er. Margar góðar stundir áttum við nemendur hans og vinir heima hjá honum og Eyju konu hans þegar þau efndu til matar- veislu. Það var alltaf mjög spenn- andi viðburður því oft kom frumlegt útspil úr eldhúsinu. Svo var spjallað vítt og breitt og endað á því að syngja. Eyja var yndisleg mann- eskja sem gott var að heimsækja. Það var honum þungt áfall þegar hún féll frá fyrir allmörgum árum. Kæri vinur og lærifaðir, þegar ég sit hér við tölvuna og rifja upp þess- ar ljúfu minningar, langar mig að þakka þér vináttuna og leiðsögnina, þú áttir langa og viðburðaríka ævi, þú miðlaðir öllu því besta sem þú kunnir og það geymi ég. Öllum að- standendum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og bið góðan guð að blessa þig alla tíð. Jóhann Sigurðarson. Haustið 1990 kom þrjóskur sex- tán ára stelpukjáni inn á skrifstofu hjá Ragnari Björnssyni heitnum, skólastjóra í Nýja tónlistarskólan- um, og tilkynnti honum að þangað væri hún mætt í söngnám. „Já,“ svaraði hann, „ég skal athuga hjá hverjum er laust.“ „Nei,“ kom svar- ið, „ég ætla til hans Demetz.“ Nokkrum dögum seinna fór þessi sami kjáni á Ljósvallagötuna að syngja fyrir il maestro. „Þú ert allt of ung!“ sagði gamli maðurinn, „ég skal taka þig en þú færð bara að syngja æfingar fyrsta árið.“ Ekki gekk það nú eftir, en alla tíð var ég í hans augum „litla mín“, sama hvað ég stækkaði og eltist. Svona byrjaði 16 ára yndislegt vinasamband okkar Demma. Hann hugsaði svo vel um mig, passaði röddina mína og kenndi mér svo margt, frá honum hef ég allan grunninn í raddbeitingu og meira til. Hann kenndi mér virðingu fyrir tón- listinni, sjálfri mér og lífinu. Hann var alltaf til staðar fyrir mig, þótt þeir tímar kæmu sem ég var ekki að standa við minn hluta, ég hefði átt að vera miklu duglegri í náminu, miklu virkari og seinna miklu dug- legri við að halda sambandinu. Og ég man svo margt. Óendanleg hlý bros og faðmlög. Spagetti gor- gonzola í hádeginu á Fossagötunni. Langa eftirmiðdaga við spekúl- asjónir um músík og hlustun á gaml- ar plötur og kassettur. Demma á nærri öllum tónleikum hjá mér, sitj- andi á fremsta bekk að hvetja mig áfram og stundum að benda á það sem betur mætti fara því hann var alltaf að kenna, alveg fram á síðustu stund. Og nú síðustu mánuði löng samtöl um lífið og tilveruna á Landakotsspítala og Sóltúni þar sem oft var greinilegt að Demmi var að gera upp ævina og söngferilinn. Farðu í friði, elsku Demmi minn, og takk fyrir allt og allt. Ég á alltaf eftir að sakna þín. Hallveig Rúnarsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Sigurð Vincenzo Demetz Franz- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Hrönn Magnúsdóttir, Ævar Kjartansson og Manlio og Sigríður Candi. Elskulegur sonur minn, SIGURÐUR GEIR ÓLAFSSON, andaðist mánudaginn 17. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Herdís Björnsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og dóttir, KRISTÍN TÓMASDÓTTIR, Borgarhrauni 35, Hveragerði, andaðist að morgni mánudagsins 17. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 25. apríl kl. 14.00. Hallmundur Andrésson, Tómas Rúnar Andrésson, Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, Guðmundur Birgir Smárason, Andrés Heiðar Hallmundsson, og barnabörn. Tómas Jónsson, Sigrún Stefánsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN DAGMAR GUÐJÓNSDÓTTIR, Hjallaseli 55, áður Æsufelli 2, sem lést miðvikudaginn 12. apríl, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. apríl kl. 13.00. Guðjón Þórir Þorvaldsson, Eygló Valdimarsdóttir, Jónas Þorvaldsson, Heiðbjört Guðmundsdóttir, Erla M. Fredriksen, Steingrímur Þorvaldsson, Helga Sigurjónsdóttir, Snorri Þorvaldsson, Gróa Sigurjónsdóttir, Elín Þorvaldsdóttir, Vigfús Helgason, Haukur Þorvaldsson, Björg Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar og dóttir, KRISTÍN ÓLÖF MARINÓSDÓTTIR NORDQUIST, Svíþjóð, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 18. apríl. Jóhanna Clausen, Ragnar Már Knútsson, Gunnar Örn Knútsson, Elsa Björk Knútsdóttir, Rósa Knútsdóttir, Sigríður Knútsdóttir, Kristín Ólöf Knútsdóttir, Knútur Kristján Knútsson, Marinó Knútsson, Elísabet Sigurðardóttir. Lokað Íslenska Ameríska er lokað eftir hádegi í dag, föstudaginn 21. apríl, vegna útfarar GÍSLA SIGURÐSSONAR. Íslenska Ameríska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.