Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 53
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
gustu gamanmynd ársins.
BYGGÐ Á ÓTRÚLEGUM SÖNNUM ATBURÐUM
MEIRA EN HETJA. GOÐSÖGN.
FAILURE TO LAUNCH kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
FAILURE TO LAUNCH lúxus VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
FIREWALL kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
V FOR VENDETTA kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
WOLF CREEK kl. 8 - 10:10
BASIC INSTINCT 2 kl. 8:15 - 10:30 B.i. 16.ára.
EIGHT BELOW kl. 3:45 - 6
LASSIE kl. 6
BAMBI 2 M/- Ísl tal kl. 4
FAILURE TO LAUNCH kl. 6 - 8:15 - 10:20
FIREWALL kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 16.ára.
WOLF CREEK kl. 8:15 - 10:30
EIGHT BELOW kl. 6
N I N G
Með hinum eina sanna Harrison Ford.
Mögnuð spennumynd frá byrjun til enda.
eee
- VJV topp5.is
ýta út úr hreiðrinu
ÞITT ERVALIÐ
Ummmm...
BAGUETTE
Nýtt ogbrakandi ferskt!
SMÁRALIND • ESSO ÁRTÚNSHÖFÐA • ESSO FOSSVOGI
N
ÝT
T
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
13
3
5
Hvað segirðu gott?
Ég segi bara allt gott, ekki annað
hægt því sumarið er að koma.
H5N1 eða UB40? (spurt af síðasta
aðalsmanni, Snorra Snorrasyni)
Ég þarf alveg að hugsa mig tvisv-
ar um hvort ég vil fá banvænan
sjúkdóm eins og fuglaflensuna eða
hlusta á UB40. Ef ég hefði verið
spurð hvaða hljómsveit ég hataði
mest hefði ég án efa valið UB40.
Kanntu þjóðsönginn?
Já, ég kann textann en ég myndi
ekki einu sinni syngja hann fyrir
sjálfa mig í sturtu. Á þjóðsöngur
ekki að vera söngur sem öll þjóðin
getur sungið?
Hvenær fórstu síðast til
útlanda og hvert?
Ég fór til New York í janúar að
heimsækja vinkonu mína. Tískuvik-
an var einmitt í gangi meðan ég var
þarna og við gátum fylgst með
henni. Tvímælalaust uppáhalds-
borgin mín.
Uppáhaldsmaturinn?
Ætli það sé ekki flestallt sem
kærastinn minn eldar, og þá að-
allega einn asískur réttur sem hann
eldar stundum fyrir mig. Svo klikk-
ar jólamaturinn hennar mömmu
aldrei.
Bragðbesti skyndibitinn?
Ætli það sé ekki KFC (í hófi).
Besti barinn?
Enginn í sérstöku uppáhaldi eins
og er, ég fer þar sem vinir mínir eru
hverju sinni. En það er svona að-
allega Prikið, Kaffibarinn og Sirkus.
Hvaða bók lastu síðast?
Ég held að síðasta skáldsagan
sem ég las hafi verið The Da Vinci
Code. Ég hef mikinn áhuga á bók-
um og tímaritum um tísku og hönn-
un.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég fer ekki oft í leikhús en þegar
ég fer skemmti ég mér rosalega vel,
síðasta leikrit sem ég sá var Woy-
zeck í Borgarleikhúsinu. Það var
allt skemmtilegt við þessa sýningu.
En kvikmynd?
Síðasta alvöru myndin sem ég sá
var Brokeback Mountain. Ég held
að ég hafi sjaldan grátið eins mikið
yfir einni mynd.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég hlusta á mjög fjölbreytta tón-
list en sú plata sem er vinsælust hjá
mér núna er Playboy með Hot
Chip.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Hlusta ekki mikið á útvarp en
þegar ég hlusta á útvarp er það Rás
2.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Að sjálfsögðu Bak við böndin.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í
raunveruleikaþætti í sjónvarpi?
Nei, aldrei! Konseptið er þreytt.
G-strengur eða venjulegar
nærbuxur?
Það fer algjörlega eftir líðan
hverju sinni og í hverju maður er.
Helstu kostir þínir?
Ákveðin, samkvæm sjálfri mér og
hreinskilin.
En gallar?
Ég held að minn mesti ókostur sé
að ég er mjög, mjög óstundvís, allt-
af svona 15 til 20 mínútum of sein,
og svo hefur skipulagsleysi háð mér
dálítið upp á síðkastið.
Besta líkamsræktin?
Ég er ekki neitt rosalega dugleg í
að stunda líkamsrækt en mér finnst
afar afslappandi að fara í góðan
göngutúr. Helst með einhverjum
skemmtilegum svo maður geti
spjallað á meðan.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Eins og er Gucci Pink.
Ertu með bloggsíðu?
Nei, hef ekki áhuga, það er alveg
fáránlegt hvað sumt fólk setur inn á
þessar bloggsíður sínar.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Já! Ég er eBay-fíkill, maður get-
ur fengið allt þarna sem mann
dreymir um og það besta er að mað-
ur getur verslað allan sólarhringinn.
Flugvöllinn burt?
Já, burt með þennan blessaða
flugvöll og gerum eitthvað mun
merkilegra við þetta landsvæði.
Hvað viltu spyrja næsta
viðmælanda okkar um?
Horfirðu á Bak við böndin og ef
svo er, hvað finnst þér um þáttinn?
Íslenskur aðall | Ellen Loftsdóttir
Óstundvís og hatar UB40
Morgunblaðið/Ómar
„Síðasta alvöru myndin sem ég sá
var Brokeback Mountain. Ég held
að ég hafi sjaldan grátið eins mikið
yfir einni mynd.“
Aðalskona vikunnar er
annar stjórnandi þátt-
arins Bak við böndin á
Sirkus. Hún starfar
einnig sem plötusnúður
og vinnur hjá fatafram-
leiðandanum Nikita.
Útbreiddasta dagblað Bretlands,æsiblaðið The Sun, bað í fyrra-
dag bandarísku leikkonuna Teri
Hatcher afsökunar á að hafa birt
frétt þess efnis að hún hefði haft
mök við menn í bíl fyrir utan heimili
sitt. Segir blaðið ekkert hæft í frétt-
inni. Blaðið biður
Hatcher afsökunar
á „þeim óþægindum
sem fréttin kann að
hafa valdið“. Að
sögn lögmanna
Hatchers hefur
blaðið ennfremur fallist á að greiða
henni skaðabætur og kostnað. Þá
hafi tímaritið Heat einnig fallist á að
biðjast velvirðingar á að hafa birt
þessar sömu aðdróttanir í ágúst.
Fólk folk@mbl.is