Morgunblaðið - 08.05.2006, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
2 sæti
NÝ UPPGÖTVUN
Vísindamenn Íslenskrar erfða-
greiningar hafa fundið erfðabreyti-
leika sem tengist auknum líkum á
krabbameini í blöðruhálskirtli. Um
19% karla af evrópskum uppruna
sem greinst hafa með krabbamein í
blöðruhálskirtli eru með breytileik-
ann, sem virðist auka líkurnar á því
að fá þetta krabbamein um 60%.
Rannsaka brunann á Mýrum
Vísindamenn hyggja á viðamiklar
rannsóknir eftir brunann á Mýrum í
vor, og er reiknað með að rann-
sóknir standi í fimm ár. Meiningin er
að rannsaka jurtalíf, fuglalíf og smá-
dýralíf á svæðinu, en talið er að um
einstakt tækifæri sé að ræða til að
rannsaka áhrif sinubruna á lífríkið.
Vilja ályktun gegn Íran
Frakkar og Þjóðverjar vilja að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykki ályktun þar sem Íranar verði
skyldaðir til að hætta auðgun úrans
en óttast er að tilraunirnar hafi að
markmiði smíði kjarnavopna. Stór-
veldin munu reyna að ná fram ein-
ingu um aðgerðir gagnvart Írönum á
fundi í New York í dag. Óttast er að
deilan um kjarnorkutilraunirnar
geti valdið hernaðarátökum í Mið-
Austurlöndum.
Mikill áhugi á jörðum
Tæplega 2.000 landeigendum og
ábúendum á Suðurlandi hefur verið
sent bréf frá fasteigna- og lög-
mannastofu þar sem athygli er vakin
á miklum áhuga á lóðum á Suður-
landi. Eftirspurn er eftir beitar-
löndum, bújörðum og sumarbú-
staðalóðum.
Vilja skýr svör frá Blair
Hópur þingmanna breska Verka-
mannaflokksins krefst þess að Tony
Blair forsætisráðherra skýri frá því
hvenær hann ætli að draga sig í hlé
og telja þeir að með hann við stýrið
eigi flokkurinn sér ekki viðreisnar
von. Gordon Brown fjármálaráð-
herra varði Blair í gær og sagði að
valdaskipti, þegar að þeim kæmi,
yrðu að fara skipulega fram en ekki
með valdaráni.
Mannfall í Írak
Á þriðja tug manna féll í gær í til-
ræðum í Bagdad og Karbala í Írak
og einnig fundust yfir 40 lík fólks
sem tekið hafði verið af lífi. Bresk
þyrla hrapaði á laugardag í Basra og
fimm hermenn létu lífið. Ekki er
ljóst hvort þyrlan var skotin niður.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 22/27
Fréttaskýring 8 Dagbók 28/30
Viðskipti 11 Myndasögur 28
Vesturland 12 Víkverji 28
Erlent 13 Staður og stund 29
Daglegt líf 14/15 Leikhús 32
Menning 16, 32/37 Bíó 34/37
Umræðan 17/19 Ljósvakar 38
Bréf 18 Veður 39
Forystugrein 20 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞETTA er gríðarleg lyftistöng fyrir bæjarfélagið,“
segir Jón Traustason, byggingastjóri hjá Íslenskum að-
alverktökum, en hann stýrir framkvæmdum við nýja
sundlaug á Eskifirði. Fyrir utan laugina sjálfa, sem er
25 metrar á lengd, eru tveir heitir pottar, vaðlaug og
rennibrautalaug en þrjár brautir munu liggja í hana.
Þar að auki verður líkamsræktarsalur opnaður á sama
tíma í húsnæði sundlaugarinnar. Jón segir að farið hafi
verið í verkið í júní á síðasta ári og mun ÍAV skila því af
sér 15. maí nk. Verður sundlaugin að öllum líkindum
opnuð við hátíðlega athöfn laugardaginn 20. maí.
Ein sundlaug er fyrir á Eskifirði en hún er innilaug
og nýtist sem íþróttahús frá september og fram í apríl-
mánuð.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Lokahönd lögð á nýja
sundlaug á Eskifirði
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hefur sýknað karlmann á
sextugsaldri af ákæru um eignar-
spjöll og brot gegn dýraverndunar-
lögum. Var manninum gefið að sök
að hafa hent hvolp af tegundinni
chihahua í gólfið með þeim afleið-
ingum að hundurinn hálsbrotnaði og
drapst nokkru síðar. Var hundurinn
í eigu dóttur vinkonu mannsins.
Fyrir dómi neitaði maðurinn al-
farið sök og sagði hundinn hafa orð-
ið fyrir slysi á meðan hann vísaði
öðrum karlmanni af heimili sínu
snemma morguns. Ákærði gat ekki
lýst slysinu nánar en útilokaði ekki
að hundurinn hefði lent fyrir fótum
hans og mannsins sem vísað var út.
Tók ákærði þó skýrt fram að ekki
hefði komið til átaka á milli hans og
hins mannsins.
Vinkona mannsins og móðir
stúlkunnar sem átti hundinn, sagði
fyrir dómi að hún hefði legið uppi í
rúmi með hvolpinn í fanginu þegar
hún vaknaði við mikil læti. Var þá
ákærði að öskra á annan karlmann
sem sat inni í stofu á heimilinu og
hafði sofnað. Í framhaldi af því hefði
ákærði hent manninum út og eftir
það snúið sér að konunni og sagt
hana ekki hugsa um annað en þenn-
an hvolpfjanda, tekið hundinn úr
fangi hennar og hent honum í vegg.
Þóttist sofa með hundinn
Konan hefði ekki vitað hvað hún
átti að gera, svo hún tók hundinn og
fór upp í rúm og þóttist sofa með
hann í fanginu. Segir konan að lífs-
mark hafi þá verið með hundinum.
Er framburður konunnar fyrir
dómi á nokkuð annan hátt en fyrir
lögreglu þar sem hún sagði m.a. að
maðurinn, sem vísað var út, hefði
verið inni í íbúðinni þegar hund-
inum var hent út í horn. Í niður-
stöðu héraðsdóms kemur fram að
ákærði hafi staðfastlega neitað sök
og lýst atburðum morgunsins nokk-
urn veginn á sama hátt fyrir lög-
reglu og fyrir dómi. Þar segir jafn-
framt að ákæra málsins sé í
samræmi við framburð konunnar en
hann fær ekki stoð í framburði ann-
arra vitna eða ákærða og er hún því
ein um að lýsa atburðum með þess-
um hætti. Þá liggi fyrir vitnisburður
dýralæknis um að þessi tegund
hunda, chihahua, sé lítil og dýrin
séu viðkvæm og þoli lítið hnjask.
Þekkt sé að svona hundar hafi farið
úr hálslið við það að detta fram af
stofuborði.
Héraðsdómarinn Halldór Hall-
dórsson kvað upp dóminn. Birkir
Már Magnússon fulltrúi sýslumanns
sótti málið en Jón Sigfús Sigurjóns-
son hdl. varði manninn.
Maður sýknaður af
ákæru um hundsdráp
Skipulagning
Gustssvæðisins
hafin
GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, segir að þegar sé byrjað
að skipuleggja nýtt atvinnuhverfi á
Gustssvæðinu svonefnda, og segir
stefnt að því að úthlutun lóða hefj-
ist í haust.
Bæjarráð staðfesti undirritun
viljayfirlýsingar sinnar, á fundi sl.
fimmtudag, um að ganga til samn-
inga við viðkomandi eigendur, um
kaup á hesthúsum á svæðinu. Á
fundi Hestamannafélagsins Gusts
var fallist á þetta fyrirkomulag fyr-
ir helgi en gert er ráð fyrir því að
Gustsmenn fái nýtt hesthúsahverfi í
staðinn á Kjóavöllum.
„Það kostar þrjá milljarða að
kaupa þetta upp,“ segir Gunnar um
uppkaup hesthúsa á Gustssvæðinu.
Hann gerir ráð fyrir því að þessir
fjármunir náist til baka með sölu á
lóðum á svæðinu.
Fulltrúi Samfylkingarinnar í
bæjarráði, Flosi Eiríksson, sam-
þykkti viljayfirlýsinguna, fyrir sitt
leyti, á fundinum á fimmtudag og
sagði m.a. í bókun að hann treysti
því að yfirlýsingin yrði hesta-
mennsku í Kópavogi til fram-
dráttar og styrkingar. Fulltrúar
meirihlutans í bæjarráði, þ.e. sjálf-
stæðismenn og framsóknarmenn,
bókuðu m.a. að yfirlýsingin leiddi
til hagstæðrar niðurstöðu fyrir bæj-
arsjóð Kópavogs og Hestamanna-
félagið Gust.
Átak gegn nagla-
dekkjum hefst á
miðvikudag
TALSVERT hefur borið á því að
undanförnu að ökumenn í höfuð-
borginni séu enn með negld vetr-
ardekk undir bifreiðum sínum en
frá 15. apríl til 1. nóvember er
óheimilt að aka um á slíkum dekkj-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá Um-
ferðardeild lögreglunnar í Reykja-
vík hefur það ekki verið áherslu-
atriði að leita uppi ökumenn enn
sem komið er og hefur enginn verið
sektaður það sem af er vori. Á því
verður breyting í vikunni en að sögn
lögreglu hefst átak gegn nagla-
dekkjum nk. miðvikudag og mega
ökumenn búast við því að sektum
verði beitt ásamt því að för bifreiða
á negldum dekkjum verður stöðvuð.
Viðurlög við því að aka um á
negldum dekkjum eru fimm þúsund
krónur. Ef dekkin eru auk þess orð-
in slitin eða skemmd þá er heimilt
að sekta um allt að fimm þúsund
krónur fyrir hvert ónýtt nagladekk
sem undir bílnum er.
LÍKLEGT er að skoðað verði í haust
að nýju sá möguleiki að vera með ís-
lenskan prest á launum á Kanaríeyj-
um yfir vetrarmánuðina, segir Þor-
valdur Karl Helgason, biskupsritari.
„Mér finnst ekki ólíklegt að þetta
komi til rækilegrar skoðunar í haust,
ég get ekki ímyndað mér annað, það
skiptir máli þar sem þörf og áhugi er
á þessu starfi, en það hefur líka alveg
frábær manneskja verið þarna, og
það skiptir öllu,“ segir Þorvaldur.
Síðastliðinn vetur var sr. Jóna
Lísa Þorsteinsdóttir á Kanaríeyjum
í hálfu starfi hjá ferðaskrifstofunni
Sumarferðum, en hún sinnti starfi
prests í sínum frítíma án endur-
gjalds. Mikil ánægja hefur komið
fram með störf Jónu Lísu ytra, nú
síðast í lesendabréfi í Morgun-
blaðinu í gær, sunnudag. Og því
vakna spurningar um hvort ekki sé
rétt að Kirkjan
haldi úti presti á
eyjunum yfir
vetrarmánuðina,
þegar gera má
ráð fyrir 2–4.000
Íslendingum þar
á hverjum tíma.
Þorvaldur seg-
ir að þetta hafi
verið rætt innan
Kirkjunnar á
undanförnum árum, en það hafi
hingað til strandað á kostnaði. Fyrir
nokkrum árum hafi verið rætt við
ferðaskrifstofur um samstarf um
slíkt verkefni, en þar hafi ekki verið
áhugi á slíku á þeim tíma. Kostnaður
geti numið um 6 milljónum króna á
ári, greiða þurfi laun, ferðapeninga,
aðstöðu og mögulega bíl fyrir prest-
inn til að komast á milli staða.
Skoðað í haust að hafa
prest á Kanaríeyjum
Sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir