Morgunblaðið - 08.05.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Bologna
á Ítalíu 17. maí. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1.
Gríptu tækifærið og skelltu þér til Ítalíu á einstökum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Ítalíu
17. maí
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v.
2 fyrir 1 tilboð 17. maí. Netverð á mann.
UPPSALIR, innst í Selárdal, þar sem
einbúinn Gísli heitinn Gíslason bjó, Braut-
arholt, sem var fyrrum íbúðarhús Samúels
Jónssonar listamanns, og bærinn Kolbeins-
skeið í Selárdal eru meðal íbúðarhúsa,
mannvirkja og lóða í Selárdal í Vestur-
byggð, sem landbúnaðarráðuneytið aug-
lýsti til leigu í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins.
Einnig auglýsir ráðuneytið til leigu fyrr-
verandi íbúðarhús á Melstað og Selárdal,
sem er íbúðarhús fyrir miðjum dal ásamt
um 1.500 fermetra lóð.
Þarfnast mikilla endurbóta
Tekið er fram að íbúðarhúsin séu flest í
bágu eða mjög bágu ástandi eða þarfnist
mikilla endurbóta. Lóðirnar eru flestar um
1.000 fermetrar að stærð og verða þær
leigðar til 50 ára.
Verður leigugjald 4% af fasteignamati
lóðar sem er í dag um 33 þúsund kr. á ári.
Er gert ráð fyrir að leigjendur taki við
þeim mannvirkjum sem á lóðunum eru að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
„Fyrir tveimur árum var ráðist í það af
hálfu landbúnaðarráðuneytisins að gera
þarna upp hús og mannvirki sem tilheyrðu
Samúel heitnum Jónssyni listamanni og
Félag áhugamanna um uppbyggingu lista-
safnsins tók að sér að gera við listaverkin,“
segir Níels Árni Lund, skrifstofustjóri í
landbúnaðarráðuneytinu.
„Landbúnaðarráðherra vildi að kannað
yrði hvort hægt væri að lífga þennan dal,
koma aftur vori í dal í Selárdal. Nið-
urstaðan var sú að auglýsa núna þessi
fornu hús sem þarna eru í mismunandi
ásigkomulagi,“ segir hann.
Byggt verði upp í þeim
anda sem þarna var
„Ætlun okkar er að vita hvort áhuga-
samir einstaklingar vilja byggja þetta upp
og laga í einhverri breyttri mynd, en samt
innan ákveðins ramma. Við viljum að
byggt verði í þeim anda sem þarna var en
sum húsin þarf að byggja nánast frá
grunni,“ segir Níels Árni. Að sögn hans
hefur, auk endurbótanna að undanförnu,
verið fenginn maður til að hreinsa dalinn.
Einnig var Landbúnaðarháskóla Íslands
falið að vinna hugmyndir að skipulagi í
dalnum.
„Því er ekki að neita að þeir sem hafa
spurst fyrir um þetta eru fyrst og fremst
brottfluttir íbúar og aðrir sem hafa haft
tengsl við Selárdal og þekkja staðhætti,“
segir hann.
Rafmagnslína liggur út í Selárdal en
mannvirkin verða afhent án rafmagns,
vatns og frárennslis og mun ríkið ekki veita
neina sérstaka þjónustu s.s. við lagningu
vega, rafmagns, frárennslis eða vatn.
Þá fylgir sú kvöð að uppbygging húsa sé
í samræmi við fyrra útlit þeirra og nýbygg-
ingar í samræmi við þau hús sem fyrir eru.
Ber leigutökum að leggja fram fram-
kvæmdaáætlanir til fimm ára og hefja
skipulagðar framkvæmdir innan tveggja
ára.
Friðaður fyrir búfjárbeit
Selárdalur er friðaður fyrir búfjárbeit og
er lausaganga búfjár þar bönnuð. Mikið er
af fornleifum í Selárdal og er tekið fram að
ekki megi spilla fornleifum en forn-
leifaskráning hefur ekki verið unnin.
„Hér er um mjög sérstakar lóðir að ræða
og því mikilvægt að leigutakar geri sér
fulla grein fyrir ástandi lóða og mannvirkja,
hafi kynnt sér hugmyndir um endurreisn
Selárdals og sýni fram á getu til fram-
kvæmda,“ segir í auglýsingu landbún-
aðarráðuneytisins.
Landbúnaðarráðuneytið auglýsir eftir leigjendum að íbúðarhúsum og lóðum í Selárdal til 50 ára
Sögufrægu bæirnir Uppsalir
og Brautarholt boðnir til leigu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Listamaðurinn Samúel Jónsson (1884–1969) bjó í Brautarholti í Selárdal í Arnarfirði. Listaverk
hans vekja mikla athygli allra sem í Selárdal koma en árið 1998 var stofnað áhugamannafélag
um endurreisn listaverka Samúels. Íbúðarhúsið er timburklætt og í mjög bágu ástandi.
Hinn þjóðfrægi einsetumaður Gísli heitinn
Gíslason bjó á Uppsölum sem er innst í Sel-
árdal. Íbúðarhúsið sem Gísli bjó í var byggt
1931 og er sagt í mjög bágu ástandi.
Ljósmynd/Árni Johnsen
Á fjórða þúsund
á hverju sumri
TALIÐ er að á fjórða þúsund ferða-
menn komi í Selárdal á hverju sumri,
ekki síst til að skoða listaverk og mann-
virki Samúels Jónssonar.
„Þau voru mjög illa farin en núna er
unnið að viðgerð á listaverkunum, og
mun því væntanlega ljúka í sumar. Hús-
in, bæði kirkjan og listasafnið, eru kom-
in í sína upprunalegu mynd. Enn er þó
íbúðarhús Samúels eftir, sem er mjög
illa farið,“ segir Níels Árni Lund, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
„Þarna er líka hús Gísla heitins á
Uppsölum, þess fræga manns og svo
sjálft Selárdalshúsið, sem er illa farið
en að margra mati má vel gera við
það.“
LÖGREGLUNNI í Hafnarfirði var í gærdag tilkynnt að
skáli skátafélagsins Hraunbúa sem staðsettur er í
Krýsuvík hefði verið brenndur til kaldra kola.
Þar að auki voru unnin skemmdarverk á skýli, sem við
skálann stóð, og það dregið með bifreiðum um svæðið.
Gistiaðstaða var í skálanum, sem var um þrjátíu fermetr-
ar, en hún hafði ekki verið nýtt nýlega að sögn forsvars-
manns Hraunbúa.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið fullvíst
að kveikt hafi verið í og verður málið rannsakað áfram.
Morgunblaðið/Guðvarður Ólafsson
Kveikt í skála skátafélags