Morgunblaðið - 08.05.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 9
FRÉTTIR
Mánudagur 8. maí
Sítrónukarrý & Spínatbuff
Þriðjudagur 9. maí
Orkuhleifur m/rótargrænmetismús
Miðvikudagur 10. maí
Burritos m/chillisósu & guacamole
Fimmtudagur 11. maí
Marókkóskur pottur og buff
Föstudagur 12. maí
Spínatlasagne
Helgin 13.-14. maí
Ofnbakað eðalbuff og sæt kartafla
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Hvítar kvartbuxur
og síðbuxur
PERLAN
Ein magnaðasta bygging Reykjavíkur á daginn.
Eitt besta veitingahúsið á kvöldin.
Perlan · Öskjuhlíð · Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 · perlan@perlan.is
H
rin
gb
ro
t
Silfurverðlaun á Matur 2006!
Til hamingju Björn!
Perlan óskar Birni Braga og fjölskyldu
hans innilega til hamingu með silfur-
verðlaunin í keppninni Matreiðslu-
maður Íslands 2006.
1999 - Matreiðslunemi ársins
1999 - Matreiðslumaður ársins (úrslit)
2004 & 2005 - Þjálfari matreiðslunema
fyrir Norrænu matreiðslunemakeppnina
(bæði árin lentu nemendur skólans í 1. sæti).
Valhöll | Háaleitisbraut 1, 3. hæð | 105
Reykjavík | Símar 515 1735 og 898 1720 |
Fax 515 1739 | oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 27. maí er hafin.
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land.
Í Reykjavík er kosið í anddyri Laugardalshallarinnar
alla daga kl. 10 - 22.
Munið að hafa skilríki meðferðis.
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins veitir allar
upplýsingar og aðstoð við kosningu utan kjörfundar.
Sjálfstæðisfólk, látið vita um stuðnings-
menn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Gallar
ný sending
Bómullar og velúr
gallar fyrir konur á
öllum aldri.
Einnig vesti
og buxur
Stærðir 10 - 20
Sími 568 5170
Verið velkomin
Hlíðasmára 11, Kóp. s. 517 6460 • Laugavegi 66, s. 578 6460
Ný sending
af kvartbuxum
ÞÓTT Vetur konungur kúri víða
enn í fjöllunum leysist tak hans á
landinu hratt þessa dagana. Hlý-
indi aukast og landsmenn bjóða
vorið velkomið. Vorlykt liggur í
loftinu, sláttuvélar fara í gang og
gleðihróp barna sem helst vilja
ekki koma inn á kvöldin óma um
hverfin. Náttúran lifnar líka við
og fyrstu fíflar sumarsins skutu
upp kollinum á Seyðisfirði um
helgina.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Vetur konungur sleppir takinu
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
TALSMAÐUR OgVodafone segir
fyrirtækið ekki óttast samkeppnina
við Hive, sem nú er farið að bjóða
upp á heimasíma og þjónustu þeim
tengda, og talsmaður Símans segist
fagna aukinni samkeppni. Hvorugt
fyrirtækjanna ætlar að bregðast sér-
staklega við komu Hive á markaðinn.
Gísli Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi OgVodafone segir ekkert
nýtt í því sem Hive bjóði upp á, og
OgVodafone sjái ekki ástæðu til að
bregðast við innkomu fyrirtækisins á
heimasímamarkaðinn.
Hive býður upp á ókeypis símtöl
milli heimasíma, en þar reið Og-
Vodafone á vaðið fyrir nokkrum
mánuðum með því að bjóða slík sím-
töl endurgjaldslaust, segir Gísli. „Í
raun er þjónusta þeirra afar tak-
mörkuð, því til þess að geta verið
með heimasímann hjá þeim þarf fólk
að vera með ADSL þjónustu hjá
þeim líka.“
Gísli segir að frá því OgVodafone
fór að bjóða upp á ókeypis símtöl
milli heimasíma hafi markaðshlut-
deild fyrirtækisins á heimasíma-
markaði aukist gríðarlega. „Þegar
allt er tekið saman, og fólk er með
ADSL, heimasíma og GSM síma í
Og1, þá er enginn sem getur boðið
jafn góð kjör og OgVodafone.“
Fagna aukinni samkeppni
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir fyrirtækið
fagna aukinni samkeppni á markað-
inum, hún sé af hinu góða fyrir alla
aðila á markaði. „Við munum bara
halda okkar striki og bjóða við-
skiptavinum okkar áfram góð kjör,
og erum alltaf að skoða leiðir til
þess,“ segir Eva.
Hive býður upp á símtöl til flestra
Evrópulanda, Bandaríkjanna og víð-
ar á 4,90 kr. mínútuna, en símtöl til
þessara landa kosta 19,90 kr. mín-
útan hjá bæði OgVodafone og Sím-
anum.
Gísli Þorsteinsson segir að Og-
Vodafone muni ekki bregðast sér-
staklega við þessu, önnur fyrirtæki
hafi reynt að hasla sér völl með sím-
talsþjónustu til útlanda, og þar sé því
ekki heldur neitt nýtt að koma fram
hjá Hive nú.
Eva Magnúsdóttir segir að Hive
noti annað kerfi en Síminn, símtölin
séu flutt um netið, og það sé leið sem
Síminn sé þegar að skoða, þó ekki sé
farið að verðleggja þá þjónustu. Ekki
megi gleyma því að alltaf sé kostn-
aður við ADSL, og reikna verði með
þeim kostnaði þegar allt sé talið sam-
an.
Óttast ekki aukna sam-
keppni á símamarkaði
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is