Morgunblaðið - 08.05.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Skráningarlýsingin er gefin út vegna tveggja hlutafjárhækkana í Icelandic Group
hf. Hlutafé var hækkað samtals um 720.040.532 hluti.
Fyrri hækkuninni, 585.040.532 hlutum, var ráðstafað sem greiðslu fyrir hluti í
Pickenpack-Hussmann & Hahn Seafood GmbH og var hækkunin skráð í Kauphöll
Íslands hf. 15. mars 2006.
Síðari hækkuninni, 135.000.000 hlutum, var ráðstafað sem greiðslu fyrir hluti í
Saltur Holding APS og var hækkunin skráð í Kauphöll Íslands hf. 27. apríl 2006.
Heildarfjöldi hluta í Icelandic Group hf. er nú 2.888.131.914 hlutir. Allir hlutir í
Icelandic Group eru skráðir á Aðallista Kauphallar Íslands hf. undir auðkenninu IG.
Þar sem hlutafé Icelandic Group hf. hefur verið hækkað um meira en sem nemur
10% af heildarhlutafé ber félaginu að gefa út skráningarlýsingu samkvæmt 1. gr.
A-lið 3. tl. viðauka IV við reglugerð nr. 434/1999 og bráðabirgðaákvæði í reglugerð
nr. 242/5006, um almenn útboð verðbréfa að verðmæti 210 m.kr. eða meira og
skráningu verðbréfa á skipulegan verðbréfamarkað.
Skráningarlýsinguna er hægt að nálgast hjá Icelandic Group hf., Borgartúni 27,
105 Reykjavík, á vefsíðu félagsins www.icelandic.is, hjá umsjónaraðila skráning-
arinnar, Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík og á vef-
síðu Landsbankans, www.landsbanki.is.
Skráningarlýsing
Icelandic Group hf.
– maí 2006 410 4000 | www.landsbanki.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
25
56
04
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
25
56
04
/2
00
6
L
ogos opnaði útibúið í
janúar sl. í samvinnu
við þrjár leiðandi lög-
fræðistofur á Norður-
löndunum; Thommes-
sen Krefting Greve Lund í Noregi,
Kromann Reumert í Danmörku og
Vinge í Svíþjóð.
Þeir Lýður Guðmundsson, for-
stjóri Bakkavarar Group, og Ár-
mann Þorvaldsson, forstjóri Singer
& Friedlander, sem er dótturfélag
KB banka, voru með framsögu á
kynningarfundinum. Alls mættu um
200 manns, og mátti meðal annars
sjá þarna fulltrúa frá öllum helstu
alþjóðlegu lögfræðistofunum og
stærstu bönkum Bretlandseyja.
Elta viðskiptavini
„Við slógumst í hóp með þessum
skandinavísku lögfræðistofum eftir
að hafa unnið náið með þeim í mörg
ár. Við opnuðum skrifstofuna meðal
annars til að elta okkar viðskiptavini
þangað sem þeir hafa verið að kaupa
fyrirtæki. Hugmyndin er í sjálfu sér
mjög einföld, að reyna að fylgja við-
skiptavinunum eftir, frekar en að
vera á sífelldum ferðalögum og
þetta virðist hafa gengið upp því það
hefur nú þegar sýnt sig að mikil þörf
er fyrir þjónustuna,“ segir Guð-
mundur J. Oddsson, einn af eig-
endum Logos og forstöðumaður úti-
búsins í London. Logos er stærsta
lögmannsstofa á Íslandi og sú fyrsta
sem opnar útibú erlendis. Að sögn
Guðmundar var ákveðið að bíða með
kynningu á útibúinu í nýju erlendu
umhverfi þar til að það hefði verið
komin smá reynsla á starfsemina.
„Kauphöllin í London er hjartað
og sálin í öllu fjármálaumhverfinu
hérna. Öll þessi íslensku fyrirtæki
sem staðið hafa að útrásinni hafa
fjármagnað sig í gegnum fólkið sem
kom á kynninguna. Hér eru mik-
ilvægir menn úr bankageiranum og
frá lögfræði- og endurskoðunar-
skrifstofunum.“
Þjálfunarbúðir
Hjá Logos starfa um 50 manns, þar
af tveir lögfræðingar í útibúinu í
London, að sögn Guðmundar.
Útibúið deilir svo aðstoðarfólki með
skandinavísku stofunum.
„Við ætlum að byggja þetta upp í
rólegheitum. Ég kom hérna einn í
upphafi og það varð strax allt of
mikið að gera, þannig að það kom
annar fastur starfsmaður og það
hefur einn annar starfað hér tíma-
bundið. Hugsunin hjá okkur er að
nota útibúið hér einnig sem nokkurs
konar þjálfunarbúðir fyrir yngri lög-
fræðinga. Við ætlum að veita þeim
tækifæri til þess að koma hingað og
vinna í þessu umhverfi. Ísland vant-
ar verulega fólk sem er með sér-
fræðiþekkingu á samruna og yf-
irtökum á erlendum vettvangi og
fjármögnun á erlendum sam-
bankalánum og það erum við að
reyna að byggja upp,“ segir Guð-
mundur.
Útrásin kynnt
Ármann Þorvaldsson fjallaði í sínu
erindi um íslenskt efnahagslíf og út-
rás íslenskra fyrirtækja. Hann
ræddi m.a. um að verg landsfram-
leiðsla á hvern íbúa á Íslandi væri
með því hæsta sem þekktist í heim-
inum í dag og langt yfir meðallagi
ríkja innan Evrópusambandsins.
Ármann sagði einnig að sökum
smæðar Íslands væru meiri líkur á
efnahagslegum sveiflum.
Hans skoðun er sú að það megi í
raun skipta útrásinni í tvennt. Fyrri
hluti hennar hafi hafist eftir að Ís-
land gekk í EES en sú síðari í kring-
um árið 2000, og að kaup íslenskra
fyrirtækja erlendis hafi aukist mikið
frá þeim tíma. Hann tók sem dæmi
að í fyrra hafi verðmæti þeirra
kaupa verið 3,65 milljarðar punda,
hátt í 500 milljarðar króna, sem sé
meira en samanlagt virði allra
kaupa á árunum 2000–2004. Hann
nefndi að nú ynnu um 100 þúsund
manns erlendis fyrir fyrirtæki í ís-
lenskri eign sem væri um 80% af
þeim fjölda sem ynni í einkageir-
anum á Íslandi. Ármann nefndi
einnig að mikið væri um ósanna nei-
kvæða fjölmiðlaumfjöllun um ís-
lenskan efnahag og íslensk fyrirtæki
og tók sem dæmi skrif um það að
íslenska útrásin hafi verið fjár-
mögnuð með peningum frá rúss-
nesku mafíunni. Hann nefndi einnig
að skandinavískir fjölmiðlar hefðu
margir spáð því að þessi útrás væri
einungis bóla sem myndi springa
fljótt og líktu henni stundum við
netbóluna hér á árum áður. Hann
sagði að íslensku fyrirtækin væru
vel rekin, hefðu fjárfest á mismun-
andi sviðum og væru með starfsemi
í mörgum löndum. Því væri ekki um
neina bólu að ræða.
Meiri kaup hjá Bakkavör
Því næst flutti Lýður Guðmundsson
erindi og fjallaði um Bakkavör
Group. Þeir bræður, Lýður og
Ágúst, stofnuðu fyrirtækið árið 1986
og voru starfsmenn þess þá alls þrír,
þ.e. þeir bræður og einn starfs-
maður. Í dag rekur fyrirtækið yfir
43 verksmiðjur, velta þess var 1,2
milljarðar punda á síðasta ári og eru
starfsmenn um 16 þúsund. Bakka-
vör er með starfsemi í sjö löndum;
Íslandi, Bretlandi, Belgíu, Frakk-
landi, Spáni, Suður-Afríku og Kína.
Lýður sagði að stefnt væri að frek-
ari starfsemi á meginlandi Evrópu
og í Asíu. Sem kunnugt er sérhæfir
fyrirtækið sig í tilbúnum ferskum
mat og nefndi Lýður að margir sem
hlýddu á hann hefðu eflaust neytt
vara frá fyrirtækinu án þess að vera
kunnugt um það, en nafn fyrirtæk-
isins kæmi ekki fram á vörunum
heldur nafn seljanda þeirra, t.d.
breskra stórmarkaða eins og Tesco,
en þeir selja allir fjölda vara undir
sínu eigin nafni. Lýður sagði að
breskir bankar hefðu átt stóran þátt
í kaupum Bakkavarar á erlendum
fyrirtækjum og nefndi í lokin að fólk
mætti eiga von á frekari fréttum af
kaupum fyrirtækisins á næstunni.
Að erindum loknum fóru fram
umræður um stöðu íslensks efna-
hagslífs og var m.a. mikið rætt um
neikvæða umfjöllun erlendra fjöl-
miðla. Var spáð í almannatengsl og
hvort þörf væri á meiri samvinnu á
milli fyrirtækja í þeim efnum, og
hvort íslensk stjórnvöld ættu að
taka þátt í því.
Útrás íslenskra lögmanna
Morgunblaðið/Jón Gunnar Ólafsson
Logos Guðmundur J. Oddsson, Logos í London, Ármann Þorvaldsson, for-
stjóri Singer & Friedlander, og Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar.
Í tilefni þess að íslenska lögmannsstofan Logos hefur
hafið starfsemi í Bretlandi var haldinn kynningarfund-
ur um íslenskt efnahagslíf í Kauphöllinni í London fyrir
helgi undir yfirskriftinni „Íslenskar fjárfestingar í Bret-
landi og Skandinavíu“. Jón Gunnar Ólafsson fréttarit-
ari var meðal viðstaddra og hlýddi á það sem fram fór.
jongunnar.olafsson@gmail.com
Fjölmennt Mikill áhugi var fyrir fundi Logos hjá breskum lögmannsstof-
um og fjármálastofnunum, sem fylltu einn sal Kauphallarinnar í London.
TM Software hefur lokið við þróun á
nýju upplýsingakerfi fyrir lífeyris-
tryggingasvið Tryggingastofnunar
ríkisins (TR) sem ber heitið Alma.
Kerfið er eitt af meginhugbúnaðar-
kerfum TR og tengist fjölda ann-
arra kerfa bæði innan og utan stofn-
unarinnar. Verkefnið hefur staðið
yfir síðastliðin þrjú ár og er eitt um-
fangsmesta hugbúnaðarverkefni
sem unnið hefur verið á Íslandi, seg-
ir í tilkynningu frá TM Software.
Heiti hins nýja kerfis, Alma, er
dregið af orðinu almannatrygging-
ar. Hlutverk Ölmu er meðal annars
að ákvarða greiðslur til viðskipta-
vina lífeyristryggingasviðs sam-
kvæmt lögum um almannatrygging-
ar og félagslega aðstoð. Kerfið sér
t.d. um útreikning elli- og örorkulíf-
eyris, barnalífeyris, dánarbóta og
meðlagsgreiðslna. Til marks um
umfang kerfisins má nefna að í
hverjum mánuði eru greiddir 3,5–4
milljarðar króna til viðskiptavina
TR í gegnum Ölmu sem svarar til
30% af útgjöldum heilbrigðiskerfis-
ins.
Markmiðið með þróun Ölmu var
að svara aukinni upplýsingaþörf
vegna breyttra reglna um lífeyris-
tryggingar, að auka skilvirkni við
miðlun upplýsinga til viðskiptavina
TR, lækka kostnað og stuðla að
bættri þjónustu stofnunarinnar. Alls
voru um 56.000 virkir greiðsluþegar
í Ölmu í byrjun árs 2006.
Stórt verkefni
Allt að 50 manns hafa starfað að
smíði kerfisins en auk starfsmanna
TM Software er um að ræða starfs-
fólk TR, verktaka og ýmsa aðila sem
starfa í öðrum stofnunum og fyr-
irtækjum sem tengjast TR.
Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM
Software, segir að forráðamenn fyr-
irtækisins hafi lengi átt sér þann
draum að fá tækifæri til að smíða
nýtt kerfi fyrir TR, enda sé ljóst að
smíði þess yrði eitt stærsta og metn-
aðarfyllsta hugbúnaðarverkefni sem
unnið hafi verið á Íslandi um árabil.
„Verkefnið hefði ekki unnist jafn
vel og raun ber vitni og á tilskildum
tíma nema með öguðum vinnu-
brögðum og góðu samstarfi allra
þeirra aðila sem að því komu,“ segir
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
TR, um samninginn.
Alma Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM Software, og Karl Steinar Guð-
mundsson, forstjóri TR, undirrita samning um upplýsingakerfið Ölmu.
TR með nýtt kerfi
frá TM Software