Morgunblaðið - 08.05.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 19
UMRÆÐAN
Háskólinn á Akureyri býður upp á fjarnám um allt land í samstarfi við fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvar. Fjarnámið fer fram í gegnum vefinn og með myndfundum,
auk þess sem aðrir samskiptamiðlar eru nýttir til hins ítrasta.
Miðvikudaginn 10. maí kl. 18.00: Reykjanesbær, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir,
Neskaupsstaður, Höfn, Húsavík, Þórshöfn, Ísafjörður, Patreksfjörður
Fimmtudaginn 11. maí kl. 17.00: Selfoss, Vík, Hvolsvöllur, Akranes, Borganes,
Stykkishólmur, Grundarfjörður, Búðardalur, Hellissandur, Sauðárkrókur, Blöndu-
ós, Siglufjörður, Skagaströnd, Hvammstangi
Grunnskólakennarafræði
Leikskólakennarafræði
Auðlindafræði með áherslu á:
líftækni
sjávarútvegs- og fiskeldisfræði
umhverfis- og orkufræði
Viðskiptafræði með áherslu á:
ferðaþjónustu
fjármál
markaðsfræði
stjórnun
Mikil reynsla og þekking kennara á sviði fjarnáms
Öflugt samstarf við fræðslu- og símenntunar-
miðstöðvar um allt land
Námsárangur fjarnema og staðnema í
Háskólanum á Akureyri er sambærilegur
Fjöldi fjarnema um 700 eða helmingur af heildarfjölda nemenda
FJARNÁM UM ALLT LAND
NÁMSFRAMBOÐ HAUSTIÐ 2006
KYNNINGARFUNDIR
Umsóknarfrestur
er til 5. júní.
Umsóknareyðublöð,
námsskrá og kynn-
ingarefni eru
aðgengileg á
www.unak.is.
spennandi
valkostur
Leiðandi háskóli í miðlun fjarnáms
Háskólinn á Akureyri
Sólborg v/Norðurslóð
600 Akureyri
Sími: 460 8000
www.unak.is
Í GREIN Sveins Andra Sveins-
sonar, hrl., sem birtist í Morgun-
blaðinu 5. maí sl., er gerð tilraun til að
verja fyrri yfirlýsingar lögmannsins
varðandi „Baugsmálið“ svonefnda í
fjölmiðlum. Flestar yf-
irlýsingar Sveins Andra
um þetta mál eru með
sama marki brenndar.
Hvað eftir annað hefur
lögmaðurinn leyft sér
að koma ólesinn í sjón-
varps- og útvarpsþætti
og þusa þar um að-
stæður, sekt eða sak-
leysi fólks, sem hann
þekkir lítið eða ekki
neitt. Ekki vafðist fyrir
lögmanninum að mæta
í „Kastljós“ í Sjónvarp-
inu mánudaginn 27.
febrúar sl. og ræða þar um álitsgerð
danska lögfræðingsins Tyge Trier,
sem kynnt var opinberlega síðdegis
þann sama dag, um hugsanleg mann-
réttindabrot í „Baugsmálinu“, og taka
þar fram í umræðum, að hann hefði
„verið í dómssal“ og því ekki haft tök
á að kynna sér álitsgerðina „í þaula“!
Hann andmælti niðurstöðu hins
danska sérfræðings frammi fyrir al-
þjóð þó að augljóst væri að hann hefði
ekki kynnt sér röksemdir hans að
neinu gagni.
Föstudaginn 28. apríl sl. var Sveinn
Andri enn mættur í kvöldfréttatíma
Sjónvarpsins og nú með getgátur um
hugsanlega niðurstöðu dómstóla
vegna nýju ákærunnar í „Baugsmál-
inu“. Ég vogaði mér að mótmæla
þessum ummælum og samanburði við
„Landssímamálið“ með yfirlýsingu,
sem m.a. birtist orðrétt í Morg-
unblaðinu 1. maí sl. Í grein sinni í
Morgunblaðinu 5. maí fylgir Sveinn
Andri ummælum sínum eftir með
frösum á borð við „hreinn hug-
arburður“ og „hreinn ósómi“. Fyr-
irsögn greinarinnar er „Hreinn
þvættingur“. Í greininni ber Sveinn
Andri mér á brýn að vera með „keypt-
ar“ skoðanir og hafa „leigupenna“ í
þjónustu minni. Yfirlýsing mín hefur
greinilega farið fyrir brjóstið á lög-
manninum úr því hann finnur sér
vörn í því að beita uppnefnum og vega
að heiðri mínum og andlegu ástandi.
Lítum aðeins á „fagleg“ rök Sveins
Andra í Morgunblaðinu 5. maí sl.
(1) Sveinn Andri reynir enn að
halda því fram, að samanburður við
„Landssímamálið“ eigi rétt á sér.
Fjárhæðir séu svipaðar, ásetningsstig
svipað og brotin svipaðs eðlis. En
hann getur þess ekki í þessum sam-
anburði að í „Landssímamálinu“ lá
fyrir játning, rannsóknin tók til-
tölulega skamman tíma og ákæran
sjálf stóðst próf dómskerfisins. Í
„Baugsmálinu“ liggur ekki fyrir játn-
ing. Öðru nær. Sakborningar hafa
staðfastlega haldið fram sakleysi sínu.
Endurskoðendur félagsins hafa fallist
á skýringar sakborninga og óháðir
endurskoðendur hafa rannsakað mál-
ið og komist að sömu niðurstöðu.
Rannsóknaraðferðir RLS hafa verið
harðlega gagnrýndar af innlendum og
erlendum sérfræðingum. Flestum
ákæruliðum hefur verið vísað frá
dómi og sakborningar sýknaðir af
Héraðsdómi Reykjavíkur í þeim
ákæruliðum sem fengið hafa efn-
isdóm. Sjónarmiðum endurskoðenda
lögreglunnar hefur þar verið hafnað.
Helsta vitni ákæruvaldsins er ótrú-
verðugt að mati Héraðsdóms Reykja-
víkur. Það mat sætir naumast endur-
skoðun í Hæstarétti Íslands. Engin
mál eru eins og allur samanburður því
varasamur. Getsakir utanaðkomandi
um hugsanlega lengd fangelsisvistar
á þessu stigi málsins – þegar aðal-
meðferð hefur ekki einu sinni farið
fram – eru tillitslausar og særandi
fyrir þá, sem í hlut eiga.
(2) Sveinn Andri segir það í sam-
ræmi við íslensk lög að ákæruvaldinu
gefist kostur á að endurbæta ákær-
una. Þetta hafi oft gerst. Fráleitt sé
um að ræða brot á reglu 6. gr. Mann-
réttindasáttmála Evrópu um réttláta
málsmeðferð. Sveinn Andri færir
engin rök fyrir þessari skoðun. Hann
fullyrðir aðeins að þetta sé svona. En
það hefur aldrei reynt á þetta áður,
a.m.k. ekki með sama hætti og í
„Baugsmálinu“. Sveinn Andri fullyrti
líka á sínum tíma í fjölmiðlum, þegar
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði
fyrra málinu frá sl. sumar, að Hæsti-
réttur Íslands myndi ekki vísa málinu
frá. Ákæran væri eins
og aðrar ákærur, sem
rétturinn hefði metið
góðar og gildar. Hann
hafði rangt fyrir sér þá
og virðist ekki gera sér
grein fyrir því nú, að
nýleg dómaframkvæmd
Mannréttindadómstóls
Evrópu styður frávísun
málsins. Hæstiréttur
Íslands hefur áður sýnt,
að niðurstöður hans
taka breytingum í ljósi
túlkunar dómstólsins á
ákvæðum Mannrétt-
indasáttmálans. Í réttarríki gengur
einfaldlega ekki, að dómstólar séu
notaðir sem tilraunastofur fyrir
ákæruvaldið. Við samanburð á fyrri
ákæru og þeirri síðari er augljóst, að
reynt hefur verið að sníða verstu gall-
ana af málatilbúnaði ákæruvaldsins,
en það nægir ekki til sakfellingar að
mínu mati jafnvel þó að málið komist
til efnisdóms. Sveinn Andri hefur
ekki forsendur til að meta það því
hann hefur ekki séð gögn málsins.
(3) Sveinn Andri hvetur mig til
þess í greininni að setja öll gögn
málsins á netið og gera þau þannig
aðgengileg almenningi, en auðvitað
hef ég ekkert með birtingu þessara
gagna að segja eða gera. Slíkt er að-
eins á færi sakborninga og þá byggt á
ráðgjöf verjenda þeirra. Um er að
ræða gríðarlegt magn upplýsinga,
marga tugi þúsunda skjala í 85-100
möppum. Sönnunargildi margra
þeirra er vafasamt, ekki síst tölvu-
pósta, sem finnast aðeins í útskrift
eða einni tölvu. Aðeins dómstólar
geta metið gildi þeirra og því fráleitt
að þau verði birt á netinu án skýr-
inga. Komi til efnismeðferðar munu
vitni málsins skipta tugum. Aðal-
meðferð mun sjálfsagt taka nokkrar
vikur. Síðan er það hlutverk dómstóla
að meta gögn og framburði og kveða
upp úr um sekt eða sakleysi. Það er
hvorki hlutverk Sveins Andra Sveins-
sonar né Stak-Steins Morgunblaðs-
ins, sem einnig vill ólmur komast í
gögnin til að túlka þau með sínum
hætti sbr. skrif hans í blaðinu 2. maí
sl.
(4) Sveinn Andri hefur sagt op-
inberlega, að ný ákæra í „Baugsmál-
inu“ sé betur samin en sú fyrri.
Skipta má nýju ákærunni í þrennt. Í
fyrsta lagi eru stórir hlutar hennar
vafasamir vegna efnisdómsins, sem
gengið hefur og snertir meint brot á
hlutafélagalögum og öðrum sérrefsi-
ákvæðum í fyrri ákærunni. Telja
verður líklegt, ef Hæstiréttur Íslands
staðfestir þann dóm, að allir þeir
ákæruliðir nýju ákærunnar falli um
sjálfa sig. Í öðru lagi eru ákæruliðir
er hvíla öðru fremur á framburði að-
alvitnis ákæruvaldsins og gögnum,
sem það vitni hefur lagt fram. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur telur þetta
vitni ótrúverðugt og deilt er um gildi
gagna er frá því stafa. Hið svonefnda
„bátamál“ fellur hér undir og einnig
önnur mál. Í þriðja lagi er veigamesti
ákæruliðurinn og sá viðurhlutamesti.
Hér er átt við ásakanir í garð Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar varðandi
kaupin á 10/11. Brotalýsing í þeim
kafla ákærunnar er verulega flókin
og ótrúverðug. Jón Ásgeir hefur sett
fram einfaldari og skýrari lýsingu á
þeim þætti málsins, en ekkert hefur
verið á hann hlustað. Samkvæmt
brotalýsingu ákæruvaldsins á Jón
Ásgeir að hafa einsett sér í byrjun
september 1998 að svíkja fé út úr
Baugi 7-8 mánuðum síðar eftir að fé-
lagið væri orðið að almenningshluta-
félagi, en það gerðist ekki fyrr en í
apríl 1999. Í þessu skyni á hann að
hafa gert fjöldann allan af löggern-
ingum og fengið verulega stóran hóp
einstaklinga og lögaðila til að taka
þátt í samsærinu eða véla þá til þess.
Sumir þessara einstaklinga og lög-
aðila eiga síðan að hafa verið blekktir
til að leggja verulega mikla fjármuni í
margslungin milliviðskipti. Til þess
að ákæruliður þessi gangi upp og leiði
til sakfellingar verða dómstólar að
viðurkenna nánast ofurmannlegan
hæfileika Jóns Ásgeirs til að sjá fyrir
óorðna hluti og aðstæður í framtíð-
inni. Einnig til að ná stórum hópi
manna undir áhrifavald sitt og gera
þá að viljalausum verkfærum sínum.
Í þessum hópi eru bæði lögmenn og
endurskoðendur, margreyndir kaup-
sýslumenn og fjárfestingafélög,
tryggingafyrirtæki og bankar.
Aðgát skal höfð
Hreinn Loftsson svarar grein
Sveins Andra Sveinssonar ’Hvað eftir annað hefurlögmaðurinn leyft sér að
koma ólesinn í sjónvarps-
og útvarpsþætti og þusa
þar um aðstæður, sekt
eða sakleysi fólks, sem
hann þekkir lítið eða
ekki neitt.‘
Hreinn Loftsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
og stjórnarformaður Baugs Group hf.