Morgunblaðið - 08.05.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 21
Á nýafstöðnum aðal-fundi Landverndarvoru samþykktarnokkrar ályktanir
sem vert er að fagna. Þær
gefa til kynna afdráttarlausa
stefnu samtakanna og kalla
fram minningar um kraft-
miklar ályktanir Nátt-
úruverndarráðs,
sem starfaði
samkvæmt lög-
um til loka árs
2001 þegar um-
hverfisráðherra
Framsókn-
arflokksins Siv
Friðleifsdóttir
gekk fram fyrir
skjöldu og lagði
það niður. Við þá
gjörð var því
haldið fram að
frjáls fé-
lagasamtök
myndu taka við
hlutverki ráðs-
ins. Ljóst var þá
þegar að þetta
var óraunsætt
enda ekki orðið
raunin hingað
til. Þar kemur
m.a. til sú stað-
reynd að fjár-
hagslegt bol-
magn samtaka áhugafólks
hefur verið afar takmarkað
og ekki gert þeim kleift að
leggjast á árar eins og hugur
stendur til. Á sama tíma hafa
stjórnvöld sett ómælda fjár-
muni í áróður fyrir stór-
iðjustefnu sinni, og ráðist
með því til atlögu við sjón-
armið náttúruverndar og
ekkert til sparað. Þannig
hafa stjórnvöld teflt fram
skrifstofu markaðsmála í iðn-
aðarráðuneytinu (áður MIL
og nú „Invest in Iceland
Agency“) auk verkefnaráð-
inna áróðursskrifstofa á veg-
um Landsvirkjunar. Áhuga-
mannasamtök um náttúru-
vernd hafa ekki haft
forsendur til að hrinda þessu
ofurefli þótt fjölmargir skipi
sér þar í sveit. Félagasam-
tökin eru nú í auknum mæli
að átta sig á nauðsyn þess að
stjórnvöld fái skýr og af-
dráttarlaus merki um vilja
þeirra sem unna náttúru
landsins. Í því umhverfi sem
nú hefur skapast er mik-
ilvægt að áhugamannasamtök
á sviði náttúruvendar fái til
liðs við sig sérfræðinga á
ýmsum sviðum náttúruvís-
inda, sérfræðinga sem skv.
eldri lögum áttu formlega að-
ild að Náttúruverndarráði.
Með slíku samstarfi munu
ályktanir samtaka áhugafólks
fá aukið vægi og stjórnvöld
eiga erfiðara með að hundsa
þær og ýta til hliðar.
Gegn stóriðjustefnu
Ályktanir Landverndar,
sem áður eru nefndar, fjalla
um veigamikil atriði og í
þeim er fólgin afdráttarlaus
krafa til stjórnvalda um að
þau endurskoði stóriðjuáform
sín og önnur áform sem fyr-
irsjáanlega valda röskun á
náttúru og lífríki. Þannig er
kallað eftir stefnumörkun um
hálendisvegi og aðra mann-
virkjagerð á hálendinu. Slík
stefnumörkun tryggi að ekki
verði lagðir fleiri uppbyggðir
vegir í viðkvæmu landslagi
hálendisins né heldur reistar
hálendismiðstöðvar eða hótel.
Slík mannvirki eigi að reisa í
jaðri hálendisins, eins og
gildandi skipulag miðhálend-
isins gerir ráð fyrir. Þá er
hvatt til þess að stjórnvöld
láti af umsátri sínu um há-
lendi Íslands, hálendið eigi að
vera griðasvæði og afar brýn-
ir hagsmunir þurfi að vera til
staðar ef heimila eigi þar
mannvirkjagerð. Rammaáætl-
un um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma er fundinn staður í
ályktunum Landverndar og
hvatt til þess að frekari
áform um virkj-
anir verði lagðar
á hilluna a.m.k.
fram til ársins
2009, þegar gert
er ráð fyrir að
öðrum áfanga
rammaáætlunar
ljúki. Loks má
geta þess að aðal-
fundur Land-
verndar hvetur til
víðtækrar sáttar
um að Reykjanes
verði lýst eld-
fjallagarður og
fólkvangur, en
slíkt stríðir gegn
stórfelldum virkj-
unaráformum
orkufyrirtækja á
svæðinu.
Forgangsraðað
í þágu nátt-
úruverndar
Öllum þessum
ályktunum ber að fagna um
leið og látin er í ljósi sú von
að Landvernd endist kraftur
og fjármagn til að vinna að
framgangi þessara brýnu
verkefna á næstu misserum.
Mínum stuðningi við þá vinnu
er heitið hér með. En þegar
þær kröfur, sem settar eru
fram í ályktunum aðalfund-
arins, eru bornar saman við
stefnu ríkisstjórnarinnar og
stjórnmálaflokkanna almennt
hlýtur að skjóta upp kollinum
spurningin um það með hvaða
hætti fólk sem ber umhverfis-
og náttúruvernd fyrir brjósti
geti tryggt hugsjónum sínum
brautargengi í sveitar-
stjórnum og á Alþingi. Varla
sjá menn bjargvætt í Sjálf-
stæðisflokknum, sem ásamt
Framsókn hefur staðið fyrir
stefnu sem valdið hefur stór-
felldu raski á hálendi Íslands
í tíð samstjórnar þessara
flokka allt frá árinu 1995. Þar
hefur Framsókn dregið vagn-
inn og fáir munu hugsa til
stuðnings við þann flokk og
skilgetið afkvæmi hans í
Reykjavík undir felustöfunum
ex-bé. Mörgum er líka eflaust
ljóst að Samfylkingin og
Frjálslyndi flokkurinn hafa í
reynd stutt við bakið á rík-
isstjórninni í stóriðjuáform-
unum, bæði á Alþingi og í
borgarstjórn Reykjavíkur,
þótt einstakir félagar þessara
flokka hafi andæft. Ég hlýt
að vænta þess að nátt-
úruverndarfólk átti sig á því í
ríkari mæli en áður að það
stendur í pólitískri baráttu.
Stuðningur við náttúruvernd
er pólitík í síst minna mæli
en aðrir hagmunir. Því hljóta
margir að hugleiða vel hvern-
ig atkvæðinu verði best varið
í komandi kosningum. Von-
andi komast sem flestir
þeirra að þeirri niðurstöðu að
nú sé tímabært að forgangs-
raða í þágu náttúruverndar
og styðji í kjörklefanum
Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð, sem teflir fram
hreinum línum í þágu nátt-
úruverndar nú sem fyrr.
Náttúruvernd,
pólitík og
kjörklefinn
Eftir Kolbrúnu
Halldórsdóttur
Kolbrún
Halldórsdóttir
’Stuðningur viðnáttúruvernd er
pólitík í síst
minna mæli en
aðrir hags-
munir.‘
Höfundur er þingmaður
vinstri-grænna í Reykjavík.
fremst
flugvöllur á
ýra lífsgæði
gin mun
ðir munu
þvert yfir
i hávaða.“
irflugið
muni aukinheldur hafa áhrif
á öryggi íbúa og tekur einn-
ig fram að talsverð sjón-
mengun muni hljótast af
flugvelli á Lönguskerjum
fyrir bæjarbúa.
Jónmundur segir að fyrir
utan allt þetta liggi ekki
einu sinni fyrir að Löngu-
skerin séu hentugasta stað-
setningin fyrir nýjan innan-
landsflugvöll verði hann
færður úr Vatnsmýrinni.
„Af þeim ástæðum einum
finnast mér bollaleggingar
Framsóknarflokksins í
Reykjavík um að setja flug-
völlinn á Löngusker, ótíma-
bærar.“
Aðspurður segir Jónmundur að
bæjarfélagið hafi ekki mótað af-
stöðu til staðsetningu innanlands-
flugsins. „Mín skoðun er hins veg-
ar sú að einungis tveir kostir séu í
stöðunni; annars vegar að völlurinn
verði áfram á sínum stað, þá mögu-
lega í smækkaðri mynd, og hins
vegar að hann verði fluttur til
Keflavíkur.
Framsóknarflokkurinn í Reykja-
vík segist í stefnuskrá sinni fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í vor
boða þjóðarsátt um nýjan innan-
landsflugvöll á landfyllingum á
Lönguskerjum. Björn Ingi Hrafns-
son segir, vegna fyrrgreindra um-
mæla Jónmundar, að hinir ýmsu
bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins í
nágrannasveitarfélögum Reykja-
víkur hafi gert tilkall til Löngu-
skerja, að undanförnu.
Umræða verið í 35 ár
„Það vill hins vegar til að umræða
um flugvöll á Lönguskerjum hefur
staðið yfir í 35 ár, og það liggur
fyrir að hann [flugvöllur á Löngu-
skerjum] er annar af tveimur kost-
um sem koma til álita hjá nefnd
borgarstjórnar og samgöngu-
yfirvalda í landinu. Það getur því
ekki komið bæjarstjóranum á Sel-
tjarnarnesi á óvart að verið sé að
ræða þennan möguleika. Fari svo
að þessi möguleiki verði ofaná á
endanum, sem ég tel líklegt, gefur
augaleið að þá fari í hönd samráðs-
ferli við Seltirninga og önnur sveit-
arfélög í kring.“
in tilheyri Seltirningum
rn Ingi
fnsson
!
g blíðu.
a í gær.
Morgunblaðið/Ómar
num og lék Cirese Summerrose,
fiðlu sína fyrir vegfarendur.
Sól og ís fara óneitanlega vel saman eins og flestir vita. Þessar stúlkur virtust í það
minnsta sannfærðar þar sem þær spókuðu sig með ísinn á Ingólfstorgi í blíðunni í gær.
Mikill fjöldi lagði leið sína í sundlaugar borgarinnar, og þessir spræku krakkar léku sér í
sólinni í sundlauginni í Kópavogi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom þar við í gær.
lt land
Í Nauthólsvík var gleði og gaman í gær og þónokkur mannfjöldi saman kominn á sandinum. Það gerði lítið til þótt
ekki tækist alltaf að halda sig á steinunum, enda sjórinn ylvolgur og föt og fólk fljótt að þorna í sól og 18 stiga hita.