Morgunblaðið - 08.05.2006, Page 24
24 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝ Hrefna Magnús-dóttir fæddist í
Reykjavík 3. nóvem-
ber 1917. Hún lést á
Landakotsspítala
27. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar
Hrefnu voru Magn-
ús Gíslason, ljós-
myndari, málari og
ljóðskáld í Reykja-
vík, f. 29. maí 1881,
d. 26. mars 1969, og
Jófríður Guðmunds-
dóttir, húsfreyja, f.
10. okt. 1889, d. 22.
maí 1919. Systkini Hrefnu eru öll
látin. Þau voru: Haukur, f. 1912,
Guðlaug Sigríður, f. 1913, Eva
Kristín, f. 1915, Jósteinn, f. 1919.
Jófríður lést þegar Hrefna var á
öðru ári og ólst Hrefna upp á
Vörðustíg 7 í Hafnarfirði hjá
fósturforeldrum sínum Maríu
Kristjánsdóttur og Andrési Run-
ólfssyni ásamt sonum þeirra
Kristín Ingibjörg og Berglind
Anna. c) Ólafur. 2) Lára Ingibjörg,
f. 28. janúar 1945. Maki I Noël
Burgess. Börn þeirra eru: a) Anna
María Burgess, b) Kristján Guy
Burgess, unnusta Birna Einars-
dóttir, c) Sunnefa Burgess, unnusti
Sebastian Zarzar, og d) Agnar
Burgess, unnusta Sigurbjörg Sæ-
unn Guðmundsdóttir. Maki II
Sveinn Már Gunnarsson, d. 13. júlí
1995. 3) Fríður, f. 9. júní 1946.
Maki I Trausti Valsson. Dóttir
þeirra Hrönn, sonur hennar Krist-
ófer Bruno La Fata. Maki Hrannar
er Tómas Jónsson. Maki II Þórður
Vigfússon, þau skildu. 4) Sigrún, f.
19. maí 1948. Börn hennar eru: a)
Ólafur Hrafn, maki Jóna Sigríður
Einarsdóttir, sonur þeirra Einar,
b) Astrid, maki Hermann Arason,
börn þeirra eru Sigrún Lind, Elma
Rún og Ari, og c) Eva Dögg.
5) Sigríður, f 22. október 1949,
Maki Þórður Jóhannsson, Börn
þeirra eru: a) Hrefna, maki Guðjón
S. Guðjónsson, sonur þeirra Bjarki
Fjalar, og b) Ólafur Þór, unnusta
Sandra Ósk Grímsdóttir.
Útför Hrefnu verður gerð frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Kristjáni og Sumar-
liða.
Hrefna giftist 9.
nóvember 1943 Ólafi
Guðmundssyni frá
Ísafirði, f. 11. febrúar
1918, d. 10. desember
1982. Þau hófu bú-
skap í Hafnarfirði og
síðar á Seltjarnarnesi
en fluttu 1951 í Kópa-
vog og bjuggu lengst
af í Melgerði 16. Síð-
ustu árin bjó Hrefna í
Fannborg 8 í Kópa-
vogi. Börn Hrefnu og
Ólafs eru fimm: 1)Rögnvaldur, f.
10. desember 1943. Maki Sigríður
Júlíusdóttir. Börn þeirra eru: a)
Árni Júlíus. Sonur hans Rögnvald-
ur Skúli. Maki Árna er Ágústa
Jónsdóttir. Börn þeirra eru Anna
Hrafndís, f. 26. mars 1995, d. 11.
ágúst 1995, Einar Hrafn og Jón
Arnar. b) Auður Þórunn. Maki
Magnús Stefánsson. Dætur þeirra
Ertu horfin? Ertu dáin?
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autt er rúm og stofan þín,
elskulega mamma mín.
Gesturinn með grimma ljáinn
glöggt hefur unnið verkin sín.
(Árni Helgason.)
Ástvinir sáran syrgja,
sæmdar konu, trygga móður.
Harm í særðum brjóstum birgja,
bjart er þó um hugans slóðir.
Lifðu sæl í ljóssins heimi,
lifðu sæl um alda aldir.
Því í drottins dýrðar geimi
dagar verða ekki taldir.
Vertu sæl. Þig vinir kveðja
vinsæla og trygga kona.
Endurfundir aftur gleðja,
öll við skulum þrá og vona.
(Valdimar Lárusson.)
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir
svo mæt og góð, svo trygg og trú
svo tállaus, falslaus reyndist þú
ég veit þú látin lifir!
(Steinn Sigurðsson.)
Elsku mamma mín þakka þér fyr-
ir allt.
Þakka þér fyrir það sem þú
kenndir mér og gerðir fyrir mig.
Þakka þér fyrir það sem þú varst
mér og börnunum mínum.
Þú munt alltaf lifa í minningum
mínum.
Sigrún.
Elsku amma mín.
Mikið hefur þú mér gefið,
margt hef ég af þér lært.
Áður en ég tók fyrsta skrefið,
hefur þú mína sálu nært.
Mín minning er af yl ofnheitra
sokka og mýkt bylgjóttra lokka,
röddin þín sefandi þýð og þú ætíð
yndislega blíð. Lundin þín var létt og
glettin og ég vissulega heppin að
kynnast því. Líka lítillát, kát og vit-
ur, minningin situr eftir. Þér féll
sjaldan verk úr hendi, varst ætíð
hagsýn og úrræðagóð og vannst
verkin þín einbeitt og hljóð. Kræs-
ingar þínar settar á fat, báru af öllum
öðrum og við borðuðum oft á okkur
gat, já víst ertu þekkt af þeim gjörð-
um.
Mörg eru verkin eftir þínar lögnu
hendur, fegurðar sem birtist í formi
og litum, munum við njóta sem eftir
sitjum. Þeir eru óteljandi hlutirnir
þínir, þeir eru gulls ígildi, fyrir það
vildi ég þakka.
Þó þú heyrir ei þrastanna söng, né
finnir blómanna angan, mun minn-
ing þín vera löng, mér finnst eins og
þú strjúkir mér blítt um vangann.
Ég trúi að afi Olli hafi beðið þín eftir
gönguferð þína um regnbogann, nú
eruð þið saman í blámanum víða og
þar mun annað Melgerði ykkar bíða.
Heiðra, hugsa og muna vil,
ei ósátt í háttinn, fara að sofa.
Það með þroska betur skil
það ég vil og því þér lofa.
Elsku amma mín!
Þakka þér óendanlega fyrir allt
sem þú hefur gefið mér, alla þína
blíðu og visku. Guð blessi minningu
þína.
Þín að eilífu,
Hrönn.
Elsku amman.
Ég trúi því ekki að þú sért farin
frá mér. Ég passaði mig á því á
hverju kvöldi þegar ég kyssti þig
góða nótt að kveðja þig ekki eins og
ég ætti aldrei eftir að sjá þig aftur
því þannig trúði ég því einhvern veg-
inn að þú myndir aldrei fara frá mér.
Ég ætla því að skrifa mína kveðju
hér til þín eins og ég væri að kveðja
þig í síðasta sinn í lifanda lífi. Ég
myndi liggja við hliðina á þér og
halda í höndina þína og hvísla í eyra
þitt hversu mikið mér þykir vænt um
þig. Ég myndi segja þér hversu
þakklát ég væri fyrir að eiga þig. Ég
myndi segja þér hversu yndisleg
mér finnst þú vera. Ég myndi segja
þér að þú værir besta manneskjan í
heiminum. Svo myndi ég knúsa þig
og þú myndir spyrja mig hvort ég
væri með nóga sæng, hvort ég hefði
nóg pláss. Ég myndi segja að það
færi ofsalega vel um mig og svo
myndi ég hjúfra mig í hálsakotið þitt.
Ég myndi horfa aðeins uppí loftið og
hugsa hvernig ég gæti komið í orð
öllu því sem mig myndi langa til að
segja þér. Svo myndi ég horfa í fal-
legu bláu augun þín og þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig,
allan stuðninginn í gegnum tíðina,
allan skilninginn sem þú hefur alla
tíð sýnt mér, alla ástina sem þú hefur
veitt mér, alla hlýjuna og allt, allt
hitt sem ég get ekki einu sinni komið
í orð. Þá myndir þú taka mig og
knúsa og segja „elsku drottningin
hennar ömmu sinnar“. Svo myndum
við liggja í faðmi hvor annarrar og
rifja upp allar góðu stundirnar okkar
og hlæja saman. Svo kæmi nóttin og
þú værir orðin þreytt. Þá myndi ég
standa upp úr rúminu og hita þér að-
eins á tánum áður en ég færi og
kannski kitla þig smá. Svo myndi ég
kyssa þig á báða vanga og þú mig og
svo á ennið. Ég myndi horfa í augun
á þér og þú myndir brosa og strjúka
á mér vangann. Svo myndi ég ganga
útí dyr og snúa mér við til að senda
þér fingurkoss, þú myndir senda
mér einn til baka og svo myndir þú
vinka mér með báðum með bros á
vör. Þá myndi ég vinka þér á móti og
kalla „amma mín, ég elska þig“ og
leyfa þér að sofna.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Anna María saknar þín sárt. Hún
er búin að tala svo mikið um þig en
við erum búin að segja henni að þú
sért núna hjá Guði og að Guð og afi,
Sveinn Már og Solla séu núna að
passa þig. Hún veit að þú ert í góðum
höndum. Hún teiknaði mynd handa
þér. Það er mynd af þér. Mynd af þér
með krullaða fallega hárið þitt, bros-
andi og vinkandi með annarri hend-
inni en með þumalinn upp á hinni og
það er eins og þessi mynd þýði
„bless, þetta er allt í fína, ég spjara
mig“. Svo skrifar Anna María stórt
H sem er stafurinn þinn. Ég veit
hvað henni þótti ofsalega mikið vænt
um þig og hvað þú varst alltaf góð við
hana. Ég veit að hún sendir þér
kossa á báðar og einn á ennið og
fingurkoss.
Elsku amma. Nú ertu komin til
himna og við erum svo vissar um að
þar beið þín heiðurssæti en við erum
ekkert svo vissar um að þú notir það
mikið því þú hefur örugglega drifið í
því að fá þér bílpróf og ert örugglega
alveg óstöðvandi á rúntinum núna.
Nú geturðu sýnt afa að þetta getir
þú nú alveg og hann verður bara að
gera sér það að góðu að vera farþegi.
Ég og þú getum glaðst yfir því að
þú þarft ekki framar að reyna að
binda mig niður á Íslandi heldur get-
urðu núna komið með mér hvert á
land sem er og við getum blikkað
saman alla sætu strákana útí heimi.
Keyrðu varlega og Guð veri með
þér, elsku amma.
Þínar
Sunnefa og Anna María.
Hún amma mín var alveg frábær.
Dásamleg manneskja sem gaf mér
svo margt, og þá er ég ekki bara að
meina listaverkin sem hafa glatt svo
marga, heldur hjartagæskuna,
HREFNA
MAGNÚSDÓTTIR Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
KRISTMUNDUR B. KARLSSON,
Hraunbæ 64,
Reykjavík,
lést á sjúkrahúsi á Gran Kanari mánudaginn
24. apríl síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug í
okkar garð.
Inga Sólveig Sigurðardóttir,
Erling S. Kristmundsson,
Vignir Kristmundsson, Ólöf Elmarsdóttir,
Ingibjörg Linda Kristmundsdóttir, Gestur Ólafsson,
Ari Kristmundsson, Hanna Vilhjálmsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllu því góða fólki sem
sýndi okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, sonar,
tengdasonar og afa,
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR,
Staðarhrauni 20,
Grindavík.
Alda Bogadóttir,
Kristján Karl Guðmundsson,
Jón Fannar Guðmundsson, Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir,
Guðrún Helga Guðmundsdóttir, Yngvi Páll Gunnlaugsson,
Arnar Freyr Guðmundsson,
Fanney Guðmundsdóttir,
Bogi G. Hallgrímsson,
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
JÓN BERGÞÓR ARNGRÍMSSON,
vélstjóri,
Skarðshlíð 18,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu-
daginn 5. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jónína Axelsdóttir,
Sigurður Bergþórsson, Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Guðrún Bergþórsdóttir, Jón Magnússon,
Þórhallur Bergþórsson, Ásdís Rögnvaldsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA SIGRÍÐUR HANNESDÓTTIR,
síðast til heimilis að
Jöklaseli 23 í Reykjavík,
lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, Fossvogi
aðfararnótt 6. maí sl.
Jarðsett verður frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 13. maí kl. 14.
Sigurður Hauksson, Björk Helgadóttir,
Þorsteinn Hauksson, Birgitta Bjargmundsdóttir,
Hrafnhildur Hauksdóttir, Bolli Valgarðsson,
Vala Hauksdóttir,
Þráinn Jensson
og barnabörn.