Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UM 200 FÓRUST Í ELDI
Allt að 200 manns brunnu til bana
í eldi sem blossaði upp í olíuleiðslu
nálægt þorpi í Nígeríu í gær eftir að
þorpsbúar höfðu borað göt á leiðsl-
una til að verða sér úti um eldsneyti.
Hornsteinn lagður
Hornsteinn að stöðvarhúsi Kára-
hnjúkavirkjunar í Valþjófsstaðar-
fjalli, Fljótsdalsstöð, var lagður í
gær. Á fimmta hundrað gestir voru
viðstaddir. Á sama tíma komu rúm-
lega 300 manns saman á Austurvelli
og mótmæltu lagningu hornsteins-
ins.
Hvatt til árása á Danmörku
Múslímar eru hvattir til að gera
árásir í Noregi, Danmörku og
Frakklandi á myndbandi sem birt
var á netinu í gær. Tilmælin eru frá
Líbýumanni, sem tengist al-Qaeda-
hryðjuverkanetinu. Hann sagði birt-
ingu skopmynda af Múhameð spá-
manni réttlæta slíkar árásir.
Slæmt ástand á LSH
Aldrei hafa fleiri sjúklingar dvalið
á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
og beðið vistunarúrræða en nú.
Gangalagnir eru viðvarandi og óger-
legt er að veita bráðveikum sjúkling-
um mannsæmandi þjónustu, að því
er segir í ályktun fundar stjórnenda
LSH frá því á fimmtudag.
Y f i r l i t
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
blað Ferðafélags Íslands.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum.
Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða
skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða
önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á
síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og
fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Voltaren Dolo
fljótvirkt, bólgueyðandi verkjalyf
MILLJÓNATJÓN varð þegar eldur
kviknaði í skóglendi við Hvaleyrar-
vatn ofan Hafnarfjarðar í gær.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað út vegna brunans og sendi
fjóra dælubíla á staðinn og barðist
við eldinn í tvær klukkustundir. 3–4
hektarar af skóglendi brunnu og
litlu munaði að eldurinn bærist í
þekktan skógarlund, sem Hákon
Bjarnason, fyrrverandi skógrækt-
arstjóri, ræktaði fyrir um hálfri öld.
Að sögn Árna Þórólfssonar,
stjórnarmanns í Skógræktarfélagi
Hafnarfjarðar, urðu eldinum að bráð
tré sem börn í Lækjarskóla í
Hafnarfirði gróðursettu á þessu
svæði í kringum árið 1980 en trén
voru orðin allt að 4 metra há.
Árni sagði, að eldurinn hefði
skriðið fljótt áfram og verið að stór-
magnast þegar Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins kom á svæðið.
Slökkviliðið var með talsverðan við-
búnað, auk dælubílanna, sjúkrabíla
með reykkafara, en vel gekk að
slökkva eldinn og tókst að koma í
veg fyrir að hann bærist í skógar-
lund með mjög hávöxnum trjám.
Árni sagði að allt benti til þess að
kveikt hefði verið í skóginum en ekki
væri vitað hverjir voru þar að verki.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur
ekki fengið kæru vegna íkveikju og
hafði ekki hafið rannsókn á eldsupp-
tökum í gær.
Morgunblaðið/Júlíus
Milljónatjón í skógarbruna
ÁRNI Stefán Jónsson, formaður
SFR, stéttarfélags í almannaþjón-
ustu, segir að samningaviðræður
milli fulltrúa SFR og svæðisskrif-
stofa fatlaðra gangi vel. Samn-
inganefnd þessara aðila hittist fyrir
hádegi í gær. Árni segir að fundur-
inn hafi verið góður og að stefnt sé
að því að hittast aftur í hádeginu í
dag. „Menn þurftu að reikna aðeins
meira og eru að gera sér góðar von-
ir um að klára þetta mál um
helgina.“
Félagar í SFR sem starfa á sam-
býlum og öðrum starfsstöðvum fyr-
ir fatlaða hafa farið fram á að laun
þeirra verði leiðrétt til samræmis
við laun sambærilegra stétta hjá
sveitarfélögunum. Þeir hafa boðað
til setuverkfalls á miðnætti á mánu-
dag, en Árni segir aðspurður að
miðað við gang viðræðnanna sé
hann bjartsýnn á að ekki verði af
verkfallinu. Aldrei sé þó hægt að
vita það fyrir víst, fyrr en samn-
ingar liggja fyrir.
Reikna meira og
hittast aftur
TVEIR erlendir ferðamenn sluppu
með minniháttar meiðsli er þeir
lentu í bílveltu á Snæfellsnesvegi í
Helgafellssveit í gærkvöldi. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar í
Stykkishólmi varð slysið á malar-
vegi, sem nýbúið var að hefla, og
var fólkið óvant að aka við slíkar að-
stæður. Þá segir lögregla belti hafa
bjargað því að ekki fór verr enda
hafi bíllinn nærri farið heila veltu.
Ferðamenn veltu
bíl á malarvegi
MÖRG sjóræningjaskip, flest skráð í
Georgíu, eru nú við veiðar á Reykja-
neshrygg. Syn, eftirlitsflugvél Land-
helgisgæslunnar, fór í gæsluflug í
gærmorgun m.a. til að kanna ástand-
ið á úthafskarfaslóð á svæðinu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá sjó-
ræningjaskipið Evu, sem skráð er í
Georgíu, með veiðarfærin úti. Einnig
er mynd af olíuskipinu UST IZHMA
sem er að þjónusta flotann á Reykja-
neshrygg. UST IZHMA var ekki
staðið að neinu ólöglegu.
Í eftirlitsfluginu sáust auk sjóræn-
ingjaskipsins Evu fleiri sjóræningja-
skip frá Georgíu en það eru Carmen,
Rosita, Juanita, Pavlovsk, Dolphin,
Ulla og Isabella.
Aflabrögð á svæðinu eru sæmileg
að sögn skipstjóra sem eru þar að
karfaveiðum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Gæslunni.
Landhelgisgæslan getur ekki fært
erlenda togara, sem stunda ólögleg-
ar veiðar á úthafinu, til hafnar en til-
kynnt verður um athafnir þeirra til
Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
ráðsins sem gerir viðeigandi ráðstaf-
anir. Skipin fara á svartan lista og
það verður til þess að þau eiga ekki
að fá neina þjónustu í höfnum aðild-
arríkja ráðsins. Þar er um að ræða
Evrópusambandslöndin öll, Rúss-
land, Eistland, Færeyjar, Grænland
og Noreg auk Íslands.
Sjóræningjaveiðar á
úthafskarfaslóðum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur vísað frá dómi kröfu Öryrkja-
bandalagsins um að viðurkennt verði
með dómi, að samkomulag hafi náðst
árið 2003 milli Öryrkjabandalagsins
og heilbrigðisráðherra um hækkun
lífeyris þeirra sem metnir hafi verið
75% öryrkjar eða meira, og að ráð-
herra verði gert að viðlögðum dag-
sektum að leggja fram frumvarp á
Alþingi sem mæli fyrir um laga-
breytingar þessu tengdu.
Var héraðsdómur að leysa úr frá-
vísunarkröfu ríkisins vegna máls-
höfðunar ÖBÍ og féllst dómurinn á
að vísa aðalkröfu Öryrkjabandalags-
ins frá dómi en ekki varakröfu ÖBÍ.
Segir í úrskurði dómsins að þótt
krafan yrði tekin til greina fælist
ekki í því nein ákvörðun um réttindi
Öryrkjabandalagsins eða fé-
lagsmanna þess. Hvorki félagið né
félagsmenn aðildarfélaga Öryrkja-
bandalagsins hafi því lögvarða hags-
muni af niðurstöðu um þessa kröfu.
Varakröfu ÖBÍ ekki vísað frá
Öryrkjabandalagið gerði vara-
kröfu um að greiðsluskylda hins op-
inbera vegna samkomulagsins yrði
viðurkennd. Ríkið krafðist þess að
þeirri kröfu yrði einnig vísað frá, en
héraðsdómur segir, að þótt Öryrkja-
bandalagið sé samtök félaga verði
talið að því sé heimilt að höfða þetta
mál til viðurkenningar á réttindum
félagsmanna aðildarfélaga sinna. Þá
sé slík hagsmunagæsla í samræmi
við tilgang og verkefni Öryrkja-
bandalagsins samkvæmt lögum
þess.
Fram kom í stefnu Öryrkjabanda-
lagsins, að Tryggingastofnun ríkis-
ins hefði metið það svo í apríl 2003,
að það myndi kosta rúmlega 1,5
milljarða króna að efna samkomulag
bandalagsins við ríkið. Þegar mælt
var fyrir fjárlagafrumvarpi ársins
2004 hefði verið gert ráð fyrir einum
milljarði til efnda samkomulagsins
og ríkið hefði ekki enn hækkað
grunnlífeyri öryrkja þannig að sam-
komulagið hefði verið efnt að fullu.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari
dæmdi málið 10. maí. Sigríður Rut
Júlíusdóttir hdl. flutti málið fyrir
ÖBÍ og Einar K. Hallvarðsson hrl.
fyrir ríkið.
Héraðsdómur vísar frá að hluta kröfum ÖBÍ á hendur ríkinu
Lögvarðir hagsmunir
ÖBÍ ekki fyrir hendi
SIGURSTEINN Másson, formaður
ÖBÍ, fagnar niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur þess efnis að mál
bandalagsins
gegn íslenska rík-
inu skuli tekið til
efnislegrar úr-
lausnar. Í yfirlýs-
ingu Sigursteins
er rakið að dóm-
stóllinn hafi vísað
aðalkröfu ÖBÍ frá
en hún gerði ráð
fyrir að heil-
brigðisráðherra
væri skylt að leggja frumvarp fyrir
Alþingi um fullar greiðslur til handa
öryrkjum í samræmi við samkomu-
lag formanns ÖBÍ og heilbrigðis-
ráðherra frá árinu 2003. Hins vegar
er fallist á að varakrafa bandalags-
ins um viðurkenningu á efni sam-
komulagsins og greiðsluskyldu sam-
kvæmt því sé tæk til úrlausnar.
„Þessi niðurstaða er í sjálfu sér
áfangasigur fyrir ÖBÍ enda er þetta
aðalatriði málsins. Við erum bjart-
sýn á hagstæða niðurstöðu með
efnisdómi,“ segir Sigursteinn.
Fagnar
úrskurði
vegna ÖBÍ
Sigursteinn
Másson
FARÞEGI handleggsbrotnaði í
árekstri tveggja bíla á Reykjanes-
braut til móts við Innri-Njarðvík
um klukkan fimm í gær. Önnur slys
urðu ekki á fólki í árekstrinum, sem
varð til þess að annar bíllinn valt.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
var öðrum bílnum ekið yfir á öfug-
an vegarhelming en frekari upplýs-
ingar um aðdraganda slyssins lágu
ekki fyrir í gærkvöldi.
Handleggsbrotn-
aði í árekstri
FRJÓKORNAHRINAN sem barst
hingað til lands frá Evrópu virðist í
rénun, samkvæmt upplýsingum frá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Frjó-
tala miðvikudags í Reykjavík fór
niður fyrir 100 en fór hæst í 456
daginn áður. Á um það bil fjögurra
vikna birkifrjótímabili vorið 2005
fór frjótala aldrei yfir 60.
Frjókornin frá
Evrópu farin
Í dag
Fréttaskýring 8 Messur 60/62
Úr verinu 16 Minningar 63/68
Viðskipti 18 Skák 71
Erlent 22/26 Brids 71
Landið 29 Dagbók 74
Akureyri 32 Víkverji 74
Suðurnes 32 Velvakandi 75
Árborg 36 Staður og stund 76
Listir 37 Menning 77/85
Daglegt líf 38/42 Bíó 82/85
Forystugrein 44 Ljósvakamiðlar 86
Úr vesturheimi 46 Veður 87
Umræðan 48/58 Staksteinar 87
* * *