Morgunblaðið - 13.05.2006, Page 36
36 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Það var óneitanlega dálítið
spennandi að koma til landsins. Þetta
var eins og gefur að skilja öðruvísi og
utan við minn heim. Ég var forvitin að
vita hvernig væri að búa hérna. Við
Afríkanar viljum komast til lands hvíta
mannsins til að sjá hvernig aðstæður
eru hjá honum og hvort við getum gert
eins. Þetta er hugsunarháttur frá fyrri
tíð en það er hefð fyrir þessu sem ýtir
undir að fólk kynni sér nýjar aðstæður
og fræðist um heiminn,“ sagði Dorcas
Omane frá Ghana sem býr á Stokks-
eyri og rekur Afróbúðina á Selfossi
þar sem hún selur vörur frá heima-
landi sínu.
Dorcas kom til Íslands 19. desember
2002 með eiginmanni sínum sem er ís-
lenskur en þau giftu sig í Ghana. Fyrst
bjuggu þau á Akureyri í tvo mánuði en
fluttu síðan til Stokkseyrar þar sem
þau hafa búið síðan með þremur börn-
um. Henni finnst best að tala ensku en
hefur náð ágætum tökum á íslensku
sem hún leggur metnað sinn í að læra.
Tengt menningu og list
Dorcas er frá borginni Tema sem er
aðalhafnarbærinn í Ghana og á stærð
við Reykjavík en þar búa samt mun fleiri, eða
um 500.000 manns. Hún lauk námi sem ritari
og fór síðan í nám sem miðaði að fram-
kvæmdastjórastörfum og sölustörfum. „Ég er
sölukona í mér og hef gaman af því að standa
að verslunarrekstri,“ sagði Dorcas.
Hún flutti Afróbúðina nýlega um set á Sel-
fossi, úr lítilli skúrviðbyggingu við Eyraveg
þar sem hún hafði verið síðan 8. október 2005,
í rúmgott húsnæði í hótelbyggingunni við
Tryggvatorg. Allt sem er til sölu í búðinni er
handunnið úr tré og afurðum dýra í Ghana.
Framleiðsla varanna byggist á hefðum, list-
sköpun og kunnáttu sem fylgt hefur fjöl-
skyldum í landinu. Vörurnar sækir Dorcas til
margra héraða víða í Ghana. Það má því segja
að hver hlutur í versluninni beri með sér hluta
af landinu og menningu þess. Þar má nefna
Cedie-skeljarnar sem eru ofnar inn í hálsfesti.
Þessar skeljar hafa sögulegt gildi en þær voru
notaðar sem gjaldmiðill á fyrri tíð þegar hvíti
maðurinn kom að Gullnu ströndinni í Ghana og
gaf fólkinu þessar skeljar og fékk gull í stað-
inn. Gjaldmiðill Ghana kallast því Ghana Cedis
Í versluninni ber mikið á handunnum trévör-
um, styttum af dýrum og skúlptúrar af ýmsum
gerðum. Þá eru þar vörur úr antilópu- og
slönguskinni, töskur og skór. „Svo er ég auð-
vitað með trommur,“ segir Dorcas og bætir því
við að Ghanabúar fari allir á ið og dans í takt
við trommuslátt sé hluti af menningu þeirra.
„Reksturinn gengur ágætlega, ég hef flutt
inn 3 gáma af vörum frá því ég byrjaði en ég
fer í innkaupaferðir til Ghana og kaupi vörur
frá ýmsum stöðum og héruðum. Fólkið sem
vinnur þessa hluti hefur numið kunnáttuna í
handverkinu frá foreldrum sínum eða öðrum
ættingjum ásamt því að það hefur listræna
hæfileika til þess að skapa þessar vörur í ýms-
um myndum.
Já, já, fólk spyr oft um það hvaðan ég
sé og þegar ég segist vera frá Ghana þá
er gjarnan spurt um það hvernig sé að
búa þar. Ég reyni að lýsa aðstæðum eins
vel og ég get en borgin Tema er til dæm-
is mikil alþjóðleg viðskiptaborg með ný-
tískulegar aðstæður.“
Menningin er snar þáttur í lífinu
„Það tók mig langan tíma að venjast
veðrinu hér. Ég klæddi mig mikið en
okkur líkar vel hérna. Ég nota frítímann
til þess að kynnast aðstæðum og reyni að
læra eins mikið og ég get til dæmis af því
að horfa á sjónvarpið. Heima er borin
virðing fyrir þeim sem fer til annarra
landa en ættingjarnir minna mann fljótt
á ef þeim finnst maður vera farinn að
taka upp siði annarra þegar maður kem-
ur heim. Þjóðfélagið okkar er fastheldið
á siði og menningu þjóðarinnar. Mér lík-
ar mjög vel hérna og er ánægð með líf-
ið,“ segir Dorcas sem ekki getur leynt
þeim áhuga sínum að kynna Ghana og
langar að standa fyrir ferðum til landsins
fyrir Íslendinga til að þeir geti kynnst
menningunni þar, „Hvernig við lifum á
landinu og komumst af. Við segjum að
Ghana sé hliðið að Afríku,“ segir Dorcas
og bætir stolt við að Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sé
frá Ghana.
Dans og trommusláttur
„Ég er eins og aðrir Ghanabúar alltaf tilbúin
að kynna landið mitt hvar sem er,“ segir Dorc-
as sem verður með landkynningu í verslun
sinni í dag klukkan 15 en þá mun hún og fleiri
landar hennar sem dveljast í Reykjavík gefa
Selfossbúum og öðrum sem vilja innsýn í ghan-
íska menningu með dansi undir trommuslætti.
Hún segist einnig, aðspurð, vera tilbúin að
heimsækja félög og klúbba, vilji þeir kynnast
því sem hún hefur að segja frá Ghana og þeim
vörum sem hún hefur upp á að bjóða. „Vörurn-
ar hjá mér í búðinni eru á vissan hátt hluti af
mér og landinu í gegnum menninguna sem er
mjög sterkur og snar þáttur í öllu okkar lífi og
við erum mjög ströng í því að halda í hefðir frá
fyrri tíð,“ sagði Dorcas Omane verslunarkona
með bros á vör.
Notar hvert tækifæri til
að kynna land sitt og þjóð
Eftir Sigurð Jónsson
Verslunarmaður Dorcas Omane í verslun sinni, Afróbúðinni
við Tryggvatorg á Selfossi. Hún kaupir mikið inn í Ghana.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eyrarbakki | Jón Ingi
Sigurmundsson opn-
aði sína þrítugustu
einkasýningu í Óðins-
húsi á Eyrarbakka. Á
sýningunni eru vatns-
lita- og olíumálverk
myndir frá ströndinni
við Stokkseyri, vestur
í Selvog.
„Þetta eru stemn-
ingsmyndir af húsum og fjörunni en þetta
eru mínir uppáhaldsstaðir til að mála,“
sagði Jóns Ingi við opnun sýningarinnar.
Sýningin verður opin til 28. maí.
Jón Ingi sýnir
í Óðinshúsi
Stokkseyri | Draugasetrið á
Stokkseyri fékk menningarvið-
urkenningu Árborgar sem var af-
hent í Leikhúsinu við Sigtún á Sel-
fossi við upphaf menningarhátíð-
arinnar Vor í Árborg sem stendur
til 14. maí.
Draugasetrið var stofnað 7. nóv.
2003 í Menningarverstöðinni
Hólmaröst á Stokkseyri og hefur
starfsemi þess vaxið mjög. Í sumar
verður bætt við afþreyingu seturs-
ins með álfa- og tröllasetri þar
sem þeim íbúum á mörkum veru-
leika og ímyndunar verða gerð
skil. Þá verða Norðurljósin einnig
í brennidepli í menningarverstöð-
inni í tengslum við álfana og tröll-
in.
Inga Lára Baldvinsdóttir, for-
maður menningarnefndar Árborg-
ar, afhenti menningarviðurkenn-
inguna og sagði meðal annars við
það tækifæri: „Menningararfurinn
nær því aðeins að lifa að hlúð sé
að honum.“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðurkenning Forsvarsmenn Draugasetursins tóku við menningarviður-
kenningunni; Þór Vigfússon, Bjarni Harðarson og Benedikt Guðmundsson
ásamt Ingu Láru Baldvinsdóttur, formanni menningarnefndar Árborgar.
Draugasetrið hlaut
menningarverðlaun
Selfoss | Bifhjólasamtök Suðurlands af-
hentu Ólafi Helga Kjartanssyni, sýslu-
manni á Selfossi, framlag í söfnunarsjóð
vegna kaupa á fíkniefnahundi til lögregl-
unnar í Árnessýslu.
Ólafur lýsti ánægju sinni yfir framtaki
Bifhjólasamtakanna og sagðist nota hvert
tækifæri til þess að lýsa því hversu bif-
hjólamenn á Suðurlandi og reyndar landinu
öllu væru til fyrirmyndar í umferðinni. „Við
þurfum aðstoð ykkar við að halda uppi
góðri umferðarmenningu,“ sagði Ólafur.
Styrkja kaup á
fíkniefnahundi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Styrkur Baldur Róbertsson afhendir Ólafi
Helga Kjartanssyni sýslumanni framlag
Bifhjólasamtaka Suðurlands.
HM-GRILLTILBOÐ
Við höldum með þér!
Char-Broil Seguia gasgrill
+ kassi af Carlsberg léttöli
+ kippa af 2 lítra Coke + kassi af Prins Polo
27.900,-
Verð áður 34.900,-
Char-Broil CB gasgrill
+ kassi af Carlsberg léttöli
12.900,-
Verð áður 16.900,-
Við færum þér grillið samsett heim og losum þig
við gamla grillið. Léttgreiðslur Visa og Euro
í 2 til 6 mánuði.
HM-tilboðið gildir til 9. júní eða á meðan birgðir endast.
Heimsending gildir fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Akureyri.
Permasteel gasgrill
+3 mánaða áskrift að SÝN
79.900,-
4.650
,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i
13.31
7,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i
2.150
,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i