Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 38
Daglegtlíf
maí
Þeir sem eru á leiðinni ábúðarölt komast ekki hjáþví að sjá að doppótt ogröndótt virðist ætla að
vera allsráðandi í sumartískunni í
ár.
Doppurnar og rendurnar ná
ekki aðeins yfir boli, kjóla og
peysur heldur má líka sjá þær á
nærfötum, sundfötum, töskum,
beltum og skartgripum.
Þó að doppur og rendur séu í
tísku núna skuluð þið í öllum bæn-
um passa ykkur á því að blanda
þessum tveimur mynstrum ekki
saman eða klæðast þeim ein-
göngu, doppur og rendur eru að-
eins góðar í hófi með einlitum
flíkum.
Ömmukjólar í garðveisluna
En fleiri mynstur sjást líka,
mikið er um stórrósóttar flíkur
sem minna oft nokkuð á vegg-
fóður, einnig skal klæðast því
mynstri af hófsemi.
Töff ömmukjólar með blóma-
mynstri eru svo tilvaldir fyrir
garðveisluna eða röltið niðrí bæ.
Köflótt má aðeins sjá innan um
allar rendurnar, blómin og dopp-
urnar og eru það þá helst köfl-
óttar kúrekaskyrtur og skyrtuk-
jólar.
Buxur eiga að vera niðurmjóar,
helst þannig að það sjáist í ökkl-
ann, eða í frönskum sjóliðastíl en
þá eru þær mjög víðar alla leið.
Allar gerðir af stuttbuxum sjást í
búðarhillunum. Vinsælastar eru
þær sem ná að hnjám, hvort sem
þær eru víðar eða þröngar. Mjög
stuttar stuttbuxur sjást enn þá en
eru nú meira úr glansandi efni en
áður.
Ekki fela mittið
Fatatískan í sumar er fyrst og
fremst kvenleg og tekur mið af
tískunni sem var ríkjandi um 1960
til 1970. Kvenlegur vöxtur er
líka í tísku, konur eiga að láta
mittið sjást og ekki fela rass-
inn.
Sumarlitirnir eru marg-
víslegir en ýmsar útgáfur af
grænum og bláum eru ríkjandi
auk þess sem það bregður líka
fyrir mörgum afbrigðum af gulum
ásamt rauðum. Hvítur, perlulitur
og ljósbrúnn ráða líka ferðinni
ásamt svörtum.
Á heitum sólardögum er tilvalið
að klæðast sterkum litum með
hvítu en þegar sól er sest og næt-
urlífið tekur við er fallegt að
klæðast léttum efnum í silfruðum,
gylltum eða djúpbláum litum.
Stórir fylgihlutir
Allir fylgihlutir í sumar eru
stórir. Stór sólgleraugu, stórar
töskur, stórir skartgripir og breið
belti. Fylltir hælar á skóm verða
áfram í sumar og eru nú jafnvel
ýktari en í fyrrasumar. Venjulegir
hælar eiga samt að vera nokkuð
penir. Sandalar sem eru bundnir
með borða nokkra hringi kring-
um ökklann sjást líka. Flatbotna
ballettskór verða áfram ráðandi
út sumarið. Flott stígvél klikka
síðan aldrei við rétta klæðnaðinn
og koma að góðum notum í ís-
lenskri sumarrigningu.
Stórt mynstur á litskrúðugum kjól.
Röndótt er áberandi í sumartísk-
unni. Þessi síði bolur er úr
Dorothy Perkins í Smáralind.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
B
ry
nj
ar
G
au
ti
Flott fyrir Nauthólsvíkina í sumar.
Röndótt bikiní úr Vero Moda Smáralind.
TÍSKA | Sumartískan er kvenleg
Doppur
og rendur
Rauðdoppóttur bolur úr Galla-
buxnabúðinni í Kringlunni.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Þessir eru góðir í
bæjarröltið. Úr
Eik í Kringlunni.
Kúrekastíllinn er ekki úti í kuldanum í
sumar, þessi köflótti skyrtukjóll er úr
Vero Moda í Smáralind.