Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 39

Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 39 DAGLEGT LÍF Í MAÍ STARFSMENN Kennarasambands Íslands ásamt mökum eru nýkomnir úr fimm daga ferð til Barcelona. Hannes Þorsteinsson skrifstofustjóri segir ferðina hafa verið ánægjulega og lætur vel af fjölbreyttum matseðl- um á matsölustöðunum og þá sér- staklega saltfiskréttum. „Við gistum á fínu hóteli í mið- bænum, við Römbluna, og þar af leið- andi vorum við eins og í samkvæmi fram á rauða nótt,“ segir hann. – Hvernig var veðrið? „Hitinn var mátulegur en það hefði mátt vera sólríkara. Ferðin gekk mjög vel enda beint flug. Borgin er falleg og margt að skoða en þetta er í fyrsta sinn sem ég hef orðið fyrir því að gerðar voru margar tilraunir til að ræna mig í útlöndum og konu mína líka, sem og aðra samferðamenn en ég held að þeim hafi ekki tekist að ræna neitt okkar. Vasaþjófarnir eru það eina sem ég set út á Barcelona. Þeir eru hreint ótrúlegir. Ég hefði aldrei trúað þessu. Þetta fór mest í taugarnar á mér og eins verðlagið á Römblunni. Það er algert rán að kaupa þar mat eða drykk. Ef tekin eru 20 skref út frá Römblunni þá lækkar verðið um helming. Það eru skref sem borga sig, fyrir nú utan það að staðirnir eru mun skemmtilegri allt um kring.“ – Á hvaða veitingastaði fóruð þið? „Við borðuðum á „4Gast“, skemmtilegur staður, frægur fyrir að hafa verið samkomustaður bóhem- liðsins og þar á meðal Picassos. Uppá- haldsstaðurinn okkar var annars La Taxidermista á La Placa Reial sem er rétt hjá Römblunni. Ég hef aldrei fengið jafngóðan saltfisk. Ég hrósaði honum svo mikið að flestir sam- ferðamenn okkar fóru þangað. Hann var ólíkur saltfiski sem ég hef áður smakkað. Hann var eiginlega alveg ferskur, hárfínt eldaður og borinn fram með hvítum baunum og ólífuolíu. Svakalega góður, bráðnaði uppi í manni. Ég fékk líka katalónskt salt- fisksalat. Í því var mikið af hráum lauk, tómatar og hrár saltfiskur í litlum bitum. Þetta var skrítinn réttur til að byrja með en hann vann á.“ – Fóruð þið alltaf öll saman út að borða ? „Nei, það var bara einu sinni, þá fórum við á Montjuic El Xalet, sem er í hlíðinni ofan við borgina og útsýnið frábært yfir hana. Þar fengum við franska línu í matargerð en þess á milli borðuðum við á ótal tapas- stöðum.“ – Komstu við á markaðinum á Römblunni? „Jú, við fórum þangað. Það var ótrúlega gaman að sjá allan þennan fisk og mismunandi gerð af saltfiski í bitum. Saltfiskurinn hjá þeim er herramannsmatur og verðið er eftir því, alls ekki ódýr. Við borðuðum reyndar líka kálfakjöt í tvígang en ég hef ekki verið fyrir það svo það var al- veg nýtt fyrir mig. Það var mjög gott.“  HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?| Fimm dagar í Barcelona Voldug stytta af Kristófer Kólumbusi er við neðri hluta Römblunnar í Barcelona, nánar tiltekið á torginu Portal de la Pau. Ljósmynd/ÁSE Hannes Þorsteinsson ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Harðardóttur og hjón- unum Ólafi Loftssyni og Dagnýju Hermannsdóttur. Varasamir vasa- þjófar á Römblunni Morgunblaðið/Ómar Háskólanám í LBHÍ grunnur a› framtí› 7 júní Umsóknafrestur fyrir skólavist 2006 / 07 Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 www.lbhi.is Umhverfisskipulag Búvísindi Náttúru- og umhverfisfræ›i Skógfræ›i og landgræ›sla Kynntu flér námslei›ir vi› LBHÍ, www.lbhi.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.