Morgunblaðið - 13.05.2006, Page 40
Icelandair hefur um árabilflogið til tveggja borga áBretlandseyjum, London ogGlasgow. Farþegafjöldi Ice-
landair til Bretlands hefur þrefald-
ast á einum áratug og því var farið
að skoða möguleikana á að bæta við
þriðju borginni. Og eftir nákvæma
skoðun varð Manchester fyrir val-
inu enda borgin vel staðsett, svo að
segja miðja vegu milli London og
Glasgow.
„Manchester er miðpunktur í
mjög þéttbýlu svæði í Englandi
með álíka marga íbúa og Danmörk,
Noregur og Svíþjóð samanlagt, og
flugtíminn til Íslands er aðeins
tvær og hálf klukkustund,“ segir
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair.
Þegar Manchester ber á góma
dettur fólki eflaust knattspyrna í
hug fyrst af öllu. Í borginni eru tvö
ensk úrvalsdeildarlið, Manchester
City og Manchester United, en það
síðarnefnda er líklega þekktasta
knattspyrnulið í heimi. Ég átti þess
kost að fara á leik Manchester
United og Arsenal á dögunum og
var sá atburður mikil upplifun eins
og gefur að skilja. Áhorfendur á
leiknum voru rúmlega 70 þúsund
talsins, þar af meira en 100 Íslend-
ingar, sem skemmtu sér frábær-
lega. Enda flestir á bandi Man-
chester United, sem vann leikinn
2:0. Leikvangur United, Old Traf-
ford, er ævintýraheimur sem fólk
ætti að gefa sér góðan tíma til að
skoða.
Og fyrir áhangendur annarra liða
er Manchester heppilegur áfanga-
staður því skammt er til Liverpool,
sem státar af tveimur úrvalsdeild-
arliðum, Liverpool og Everton og
einnig er stutt að fara til Bolton,
Blackburn og Wigan.
En Manchester er ekki bara fót-
bolti. Eftir stutta heimsókn til
borgarinnar hefur maður sannfærst
um að þetta er borg sem býður upp
á allt það sem ferðamenn sækjast
eftir, sögufræga staði í miðborginni,
öflugt menningarlíf, mikið úrval
verslana og matsölustaða og fjörugt
næturlíf fyrir þá sem slíkt kjósa.
Skotinn Ronnie Macaulay hefur
unnið fyrir Icelandair um áratuga
skeið og hann er nú stöðvarstjóri
félagsins á flugvellinum í Manchest-
er. Ronnie var spurður að því hvers
vegna Íslendingar ættu að leggja
leið sína til Manchester.
Öflugt skemmtanalíf
„Ég trúi því að Íslendingar muni
heillast af Manchester,“ segir
Ronnie. „Ekki aðeins vegna þess að
í borginni er besta og frægasta
knattspyrnulið í heimi, heldur einn-
ig vegna þess að þar er að finna
verslanir af öllum stærðum og
gerðum. Öll frægustu versl-
unarhúsin er hér að finna og í Man-
chester er Trafford Centre, stærsta
verslunarmiðstöð Bretlandseyja.
Úrval veitingahúsa er gríðarlegt og
þau bjóða upp á allar tegundir mat-
argerðar. Fyrir áhugamenn um list-
ir er margt hnýsilegt að finna, söfn,
listaverkabúðir og leikhús, sem
bjóða upp á leikrit og söngleiki.
Manchester hefur verið útnefnd
Menningarborg Evrópu árið 2008
og er því margt spennandi fram-
undan í menningarlífinu. Og síðast
en ekki síst er skemmtanalífið mjög
öflugt, ekki síst um helgar. Það er
næstum eins líflegt og í Reykjavík!“
segir Ronnie.
Í ferðinni til Manchester á dög-
unum gafst ekki tækifæri til að
skoða umhverfi borgarinnar, en þar
mun að finna margar náttúruperlur.
Frægast er vatnasvæðið Lake Dist-
rict, sem mun vera ein helsta nátt-
úruperla Bretlandseyja.
Í hnotskurn: Manchester hefur
upp á flest það að bjóða sem ís-
lenskir ferðamenn sækjast eftir. Og
stóri kosturinn er sá, að hún er ekki
jafn yfirþyrmandi stór og höf-
uðborgin London.
FERÐALÖG | Borgin er miðpunktur í mjög þéttbýlu svæði í Englandi
Manchester er ekki bara fótbolti
Reuters
Old Trafford, sem kallað hefur verið leikhús draumanna. Hér er Eiður
Smári Guðjohnsen í baráttu við leikmenn Manchester United.
Ljósmynd/Halldór Kolbeins
Götumynd frá miðborg Manchester. Þar er að finna eitthvað við allra hæfi, verslanir, veitingahús og listasöfn.
ICELANDAIR hóf fyrir skömmu að
fljúga áætlunarflug til Manchester
í Englandi. Til að byrja með verður
flogið tvisvar í viku, á föstudögum
og mánudögum með Boeing 757
þotum félagsins, sem taka 189 far-
þega. Ef viðtökurnar verða góðar
er áformað að fjölga ferðum.
40 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
Áhugaverðir tenglar, þar sem
afla má margvíslegra upplýs-
inga um það sem Manchester
hefur upp á að bjóða:
• www.visitmanchester.com
• www.manchesteronline.co.uk
• www.Manchester.com/
guidebook/tourist.php
Norðmenn fljúga
mest innanlands
Íslendingar nota innanlandsflug að
meðaltali 1,23 sinnum á ári. Norð-
menn nota innanlandsflug mest allra
Evrópuþjóða eða 2,27 sinnum á ári
að meðaltali og er það aukning frá
fyrra ári um 18%. Austurríkismenn
nota frekar annan samgöngumáta því
þar er fjöldinn 0,06 innanlands-
flugferðir á íbúa að meðaltali, að því
er fram kemur í Norway Post.
Sambærilega tölur fyrir önnur Evr-
ópulönd eru eftirfarandi: 0,75 í Sví-
þjóð, 0,74 á Spáni, 0,53 í Portúgal,
0,52 í Finnlandi, 0,48 á Ítalíu, 0,41 í
Frakklandi, 0,4 í Bretlandi, 0,25 í
Þýskalandi og Danmörku, 0,18 í Ír-
landi og 0,11 í Skotlandi.
Á ferð um Ísland
Bókin Á ferð um Ísland er nú komin
út sextánda árið í röð. Ferða-
handbókin hefur aldrei verið stærri
eða 224 bls. Bókin kemur út hjá Út-
gáfufélaginu Heimi og er gefin út á
þremur tungumálum; íslensku, ensku
og þýsku. Ritunum er dreift í 90.000
eintökum á alla helstu ferða-
mannastaði. Í
fréttatilkynn-
ingu frá Heimi
kemur fram
að í bókinni er
umfjöllun um
hvern lands-
hluta, þjón-
ustulistar sem
eru uppfærðir
árlega í samstarfi við heimamenn,
ásamt kortum þar sem gististaðir,
tjaldsvæði og sundlaugar eru núm-
eraðar á svæðum utan þéttbýlis.
Sambærileg kort eru einnig frá helstu
þéttbýlisstöðum. Þá er einnig að
finna hálendiskafla með hálendiskorti
og þjónustulistum í bókinni. Fremst er
síðan að finna ýmsan fróðleik um
land og þjóð, það helsta sem er á
döfinni í sumar, afþreyingu og margt
fleira.
Fjöldi ljósmynda, m.a. eftir Pál Stef-
ánsson ljósmyndara Heims, skreyta
bækurnar og er hægt að kaupa
myndirnar á www.heimur.is Bækurnar
eru einnig birtar í vefútgáfu á
www.heimur.is/world Ritstjóri bók-
anna er Ottó Schopka.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111