Morgunblaðið - 13.05.2006, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.05.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 41 DAGLEGT LÍF Í MAÍ Gönguferðir ÍT-ferða Mánudaginn 22. maí verður haldinn kynningarfundur um gönguferðir ferða- skrifstofunnar ÍT-ferða í Íþrótta- miðstöðinni í Laugardal. Fundurinn er haldinn vegna Íslandsheimsóknar Zor- ans Radetié, samstarfsaðila ÍT-ferða um gönguferðir í Evrópu. Zoran mun kynna gönguferðir í Slóven- íu og Króatíu. Eftir fundinn með Zoran mun Margrét Árnadóttir, fararstjóri í haustferð ÍT-ferða til Búlgaríu, fara yfir þá ferð. Fundurinn hefst kl. 20 og er öll- um opinn. Í haust verða ÍT ferðir tíu ára. Á afmæl- isárinu verður boðið upp á ýmsar nýj- ungar. Þar má nefna aukna áherslu á borgar- og boltaferðir fyrir fyrirtæki og hópa. Einnig eru ÍT-ferðir með marga nýja staði og mót fyrir íþróttaferðir, bæði fullorðinna og yngri flokka í helstu íþróttagreinum. ÍT-ferðir hafa einnig aukið framboð sitt á golfferðum (t.d. til La Manga á Spáni) og gönguferðum er- lendis í samræmi við jákvæð viðbrögð viðskiptavina úr fyrri ferðum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Gönguferð í Dólómíta Úrval-Útsýn og Göngu-Hrólfur standa fyrir gönguferð um fjalllendi Dólómít- anna á Norður-Ítalíu 10.–17. júní nk. Áfangastaður er þorpið Madonna di Campiglio sem fleiri þekkja sem skíða- stað en svæðið hefur líka upp á margt að bjóða að sumri. Dólómítarnir eru rómaðir fyrir náttúrufegurð, m.a. vegna sérstæðra bergmyndana. Gist verður í Madonna allan tímann og gengnar margar gönguleiðir sem tengjast bæn- um. Verð á mann í tvíbýli er 104.500 krónur og innifalið er flug, flugvalla- skattur, gisting á fjögurra stjörnu hóteli, hálft fæði, akstur og fararstjórn. Gengið að Húshólma í Ögmundarhrauni Gönguhópurinn Ferlir og gönguhópur Úrvals-Útsýnar, Göngu-Hrólfur, standa fyrir gönguferð að Húshólma í Ög- mundarhrauni sunnudaginn 14. maí. Mæting er á eigin bílum við Krýsuvík- urkirkju kl. 10.45 á sunnudagsmorgun. Þaðan er ekið að Latsfjalli þar sem gangan hefst. Húshólmi í Ögmund- arhrauni er sagður einstakur í sinni röð og þar má líta fornar tóftir, grafreit og fleira frá upphafi Íslandsbyggðar. Þar er forn skáli sem Ögmundarhraun umlukti eftir mikið gos sem fræðimenn talja að hafi orðið um 1151. Hraunið rann ekki nema að litlu leyti yfir bæinn og sjón er sögu ríkari, eins og bent er á í frétta- tilkynningu. Leiðsögumaður verður Ómar Smári Ár- mannsson, rannsóknarlögreglumaður og nemandi í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Ferlir stóð upphaflega fyrir Ferðahóp rannsóknardeildar Lögregl- unnar í Reykjavík. Áhugasamt fólk um Reykjanesið hefur jafnan verið boðið velkomið í hópinn. Fastur göngutími er á laugardagsmorgnum og liggur jafnan fyrir auglýst dagskrá, sem eftirleiðis mun birtast á vefsíðunni ferlir.is Nánari upplýsingar um ferðir Ít- ferða er á www.itferdir.is Nánari upplýsingar um gönguferð- ina að Húshólma fást á www. ferlir.is steinunnfh@yahoo.uk.com Frekari upplýsingar um gönguferð í Dólómíta www.uu.sérferðir/íþróttir/ gönguferðir www.gonguhrolfur.is_ ókeypis smáauglýsingar mbl.is Hellisvellir ehf. Uppl. í síma 893 6653 Sími 550 3000 Nýtt frístundaþorp rís á Hellnum www.iceland.as Hús til sölu í stórbrotinni náttúru undir Jökli. Húsin eru til sýnis laugardaginn 13. maí kl. 12.00-16.00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.