Morgunblaðið - 13.05.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 55
UMRÆÐAN
YFIR landinu liggur nú hlýr loft-
massi, ættaður frá Evrópu. Þessum
milda loftmassa fylgir hlýtt og gott
loftslag sem við njótum til hins ýtr-
asta í útveru. Þessu fylgir líka mistur,
sem orsakast af mjög fínum svifögn-
um eða svifryk sem ættað er frá kola-
orkuverum og þungaiðnaði Mið-
Evrópu.
Þetta svifryk er af hættulegustu
gerð, þar sem það er mjög fínt og fólk
sem andar því að sér fær það alla leið
út í smæstu lungnaberkjur. Við höf-
um ekki farið varhluta af svifryki hér-
lendis í þurrviðri á veturna, en þetta
fína svifryk er að því leyti verra en
göturykið að agnirnar eru yfirleitt
fínni en vetrarsvifrykið sem svífur
hér yfir götunum. Þetta mistur liggur
einnig jafnt yfir alls staðar. Það er því
ekki hægt að fara upp í Heiðmörk eða
aðra álíka staði til að forða sér frá
svifrykinu. Mistrið er yfir öllu.
Í nýrri stefnumörkun Evrópusam-
bandsins kemur fram að svifryk af
þessari gerð veldur meira heilsutjóni
en nokkuð annað form loftmengunar.
Einnig kemur þar fram að það er
ekkert sérstakt viðmiðunargildi til
fyrir fínt svifryk þannig að ef styrkur
þess er undir því gildi þá sé ástandið
öruggt fyrir alla. Það finnast alltaf
einstaklingar sem eru viðkvæmir fyr-
ir fínasta rykinu. Til þess að bæta
ástandið þarf því að draga úr losun á
fínu ryki og losun lofttegunda sem
geta myndað fínt svifryk í andrúms-
loftinu. Stefnumörkunin miðar að því
að minnka losun þessara efna veru-
lega á næstu árum til þess að tryggja
að loftgæði á næstu árum komi til
með að batna og við getum notið
loftslags af bestu gerð án þess að fá
alla þessa mengun með því.
ÞÓR TÓMASSON,
fagstjóri við Umhverfisstofnun.
Loftslag af
bestu gerð?
– Svifryk af
verstu gerð!
Frá Þór Tómassyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ hafa margir gaman af fjár-
hættuspilum eða öðru slíku. Lang-
flestir sem taka þátt í slíkri skemmt-
un geta hætt eftir t.d eitt skipti í
spilakassa eða einn lottómiða án
vinnings. En því miður er sorgleg
staðreynd að hluti fólks sem prófar
fjárhættuspil einhverntímann á æv-
inni getur bara ekki hætt því. Það
þarf að prófa aftur og aftur og aftur.
Smám saman þróast spilafíkn hjá
viðkomandi. Spilafíkn fer ekki í
manngreinarálit, hún spyr ekki um
aldur eða stöðu í þjóðfélaginu. Spila-
fíkn finnst hjá forstjórum í stórfyr-
irtækjum og íþróttamönnum jafnt
sem þeim tekjulágu.
Skv. skilgreiningu Gam Amon sem
er félag óvirkra spilafíkla er um fjár-
hættuspil að ræða þegar lagt er und-
ir fé uppá ákveðna niðurstöðu eða út-
komu sem ræðst af líkindafræði eða
slembiúrtaki. Þ.e það er ekki ákveðin
niðurstaða. Fjárhættuspil er bannað
með lögum á Íslandi. Samt er úr
nógu að velja fyrir spilafíkla hér á
landi. Menn geta t.d keypt sér lottó-
miða, miða í lengjunni, víkingalottó-
miða, happaþrennu, spilað í gullnám-
unni, spilað í sjoppukössum eða
keypt sér happdrættismiða t.d á veg-
um HHÍ eða SÍBS. Svo er líka hægt
að spila á netinu. Núna nýlega hafa 2
ungir menn í blóma lífsins svipt sig
lífi vegna þess að þeir voru komnir í
ógöngur sökum spilahegðunar sinn-
ar. Það voru öll sund lokuð. Gam
amon skilgreinir spilafíkn sem sjúk-
lega áráttu í að spila. Spilafíkn er við-
urkenndur sjúkdómur sem hægt er
að meðhöndla. Fyrir spilafíkilinn að
spila er alveg nákvæmlega eins og
það er fyrir eiturlyfjaneytandann að
neyta heróíns eða hass. Hefur áhrif á
nákvæmlega sömu stöðvar í heil-
anum sem valda vímu eða vellíðan.
Skv. GA samtökunum eru um 2000
spilafíklar á Íslandi. Og þeim sem
þangað leita vegna spilahegðunar fer
sífellt fjölgandi. Aldur fíklanna fer
líka lækkandi. Dæmi eru um að fólk
tapi milljónum bara á því að spila.
Svo missir það allt. Fjölskyldur leys-
ast upp, bílar fara, íbúðir eru teknar í
nauðungarsölu svo lengi mætti telja.
Þetta eru afleiðingar spilafíknar. En
hverjir græða nú á öllu saman? Nú,
auðvitað þeir sem reka fyrirtækin
sem sjá um fjárhættuspilin. Svo við
tökum nú sem dæmi um spilakass-
anna eru hér á landi 2 fyrirtæki
starfandi sem sjá um rekstur þeirra.
Gullnáman sem er á vegum HÍ og Ís-
landsspil sem er á vegum RKÍ,
Landsbjargar og SÁÁ. Mér skilst að
hagnaður þessara fyrirtækja á síð-
asta ári hafi verið gífurlegur. En
samt er fjárhættuspil bannað á Ís-
landi. Það er þó hægt að veita und-
anþágur á þeim forsendum að um
fjáröflun fyrir líknarfélög sé að ræða.
Það er hrein og klár skömm að í vel-
megunarþjóðfélagi þar sem góðæri
ríkir skuli heiðvirðar stofnanir eins
og Háskóli Íslands og Rauði krossinn
leyfa sér það að byggja afkomu sína á
sjúku fólki sem setur meira og meira
fé í kassana í von um hinn stóra.
Loks þegar sá stóri kemur fær við-
komandi kannski smábrot af þeirri
upphæð sem hann setti í kassann í
upphafi. Spilafíkn er mjög stórt
vandamál hér á landi sem ekki er
hægt að loka augunum fyrir. Ís-
landsspil tala um ábyrgan rekstur
spilakassanna á heimasíðu sinni.
Þeir mega eiga það að þeir eru að
fara rétta leið með því að hækka ald-
urinn í kassanna úr 16 í 18 ár. Gull-
náman og Íslandsspil reka jú einn
vef sem heitir spilafíkn.is. Það er allt
og sumt. Það er gefinn listi með með-
ferðaraðilum og símanúmer hjálp-
arlínu fyrir spilafíkla. Þetta er spor í
rétta átt en til að virkilega sé hægt
að tala um ábyrgan rekstur spila-
kassa þarf að gera meira. Það þarf að
takmarka aðgengi spilakassanna,
helst að forrita þá þannig að fólk geti
einungis spilað fyrir ákveðna há-
marksupphæð á viku og þeir þyrftu
að vera kortavæddir og samtengdir.
Þannig að ef t.d Gunna ætlaði að
spila með Visa kortinu sínu í kassa á
stað þar sem spilakassar væru þyrfti
að skrá niður kortanúmer hennar
rafrænt þannig að hún gæti ekki not-
að kortið sitt í næsta kassa. Há-
marksupphæð þyrfti að vera 4000–
5000 krónur á viku. Ef Íslandsspil og
Gullnáman myndu gera þetta, þá
fyrst gætu þeir talað um ábyrgan
rekstur spilakassanna. Að lokum vil
ég segja að ég er ekki spilafíkill, hef
aldrei verið. Ég er hins vegar áhuga-
maður um spilafíkn og hvernig megi
hjálpa þeim sem hafa ánetjast spila-
kössum.
TRYGGVI RAFN TÓMASSON,
Fannafold 99,
112 Reykjavík.
Spilafíkn
Frá Tryggva Rafni Tómassyni:
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
WWW.EGODEKOR. IS
GLÆSILEG GARÐHÚSGÖGN
ÚR GEGNHEILU TEKKI
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
Marlborosett
Bekkur, borð og 2 stólar
Allt settið án sessu -10%
Tilboðsverð: 76.950,-
Washington sett
Bekkur, borð og 2 stólar
Allt settið án sessu -10%
Tilboðsverð: 76.950,-
Stækkanlegt borð 120(+60)x120 og 6 stk. klappstólar m/arm
*Borð einnig fáanlegt í 180(+60)x120
Allt settið án sessu -10%
Tilboðsverð: 62.100,-
Átthyrnt borð 120cm
Staflanlegur stóll Hjólaborð -10%
Tilboðsverð: 13.950,-