Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 71
Aðalfundur
Hjartaheill, hjartasamtökin á höfuðborgar-
svæðinu, minnir félagsmenn sína á aðalfund
félagsins sem haldinn verður á Hótel Sögu
laugardaginn 20. maí nk. kl. 14:00.
Venjuleg aðalfundastörf.
Fræðsluerindi.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Það verður best að búa í Kópavogi
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Opið hús
Ágætu Kópavogsbúar, opið hús verður laug-
ardaginn 13. maí 2006 milli kl. 10 og 12 í Hlíða-
smára 19.
Allir velkomnir. Kaffiveitingar.
Dagskrá:
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri,
ræðir málefni Kópavogsbæjar á
komandi kjörtímabili.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Aðalfundur Ísfélags
Vestmannaeyja hf.
Aðalfundur fyrir árið 2005 hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja hf. verður haldinn í húsi Akóges
við Hilmisgötu 15 í Vestmannaeyjum föstudag-
inn 19. maí 2006 og hefst kl. 15.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Félagslíf
14.5. Akrafjall
Brottf. frá BSÍ kl. 10.30.
Fararstj. María Berglind Þráins-
dóttir. V. 2.300/2.700 kr.
25.-28.5. Öræfajökull og
Skaftafell
Brottf. kl. 8:30. 0605HF01
V. 24.100/27.600 kr., 5.000/7.000
án gistingar. Fararstjóri Reynir
Þór Sigurðsson.
Sjá nánar á www.utivist.is
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100
EINS og oft áður hefur
Skákfélag Akureyrar haldið
úti skákstarfi í höfuðstað
Norðurlands og undanfarið
hafa nokkuð mörg mót verið
haldin. Í lok apríl síðastliðnum
var haldið Coca Cola-mót þar
sem þátt tóku ellefu skák-
menn. Stefán Bergsson varð
sigurvegari mótsins en hann
fékk 8½ vinning af 10 mögu-
legum en næstur kom Sigurð-
ur Arnarson með 8 vinninga og
þriðji var Tómas Veigar Sig-
urðsson með 7½ vinning. Um
þetta mót og fleiri viðburði fé-
lagsins er hægt að kynna sér á
heimasíðu félagsins, www.
skakfelag.is. Þar kemur m.a.
fram að fimmtudaginn 4. maí
var haldið 10 mínútna mót í
KEA-salnum í Sunnuhlíð þar
sem að fyrrnefndur Þór Val-
týsson bar sigur úr býtum með
5 vinninga af 6 mögulegum.
Sigurður Arnarson lenti aftur í
öðru sæti með 4½ vinning en
Sigurður Eiríksson fékk
bronsverðlaun með 4 vinninga.
Skákþing Norðlendinga í
yngri flokkum var háð á Ak-
ureyri helgina 6.–7. maí þar
sem keppt var í fjórum flokk-
um, stúlkna-, unglinga-,
drengja- og barnaflokki. Í
unglingaflokki voru keppend-
ur átta og varð lokastaðan
þessi:
1.–2. Gestur Baldursson og Ólafur
Ólafsson 5½ vinning af 7 mögulegum.
3.–4. Einar Þór Axelsson og Unnar
Þór Axelsson 4 v.
5.–6. Aðalsteinn Friðriksson og Dag-
ur Þorgrímsson 3½ v.
7.–8. Brandur Þorgrímsson og Birkir
Ólafsson 1 v.
Gestur varð Skákmeistari
Norðlendinga í flokknum eftir
að hafa lagt Ólaf að velli í ein-
vígi 1½–½. Bæði Gestur og
Ólafur eru í Skákfélagi Akur-
eyrar en næstu keppendur eru
í Taflfélagi Húsavíkur og Tafl-
félaginu Goðanum. Hinir
flokkarnir fóru fram í einu
opnu móti þar sem Mikael Jó-
hann Karlsson og Ulker Gas-
anova urðu hlutskörpust og
unnu sinn hvorn flokkinn.
Mikael varð sigurvegari í
drengjaflokki og lokastaða
hans varð þessi:
1. Mikael Jóhann Karlsson 6 vinn-
inga af 7 mögulegum.
2. Hjörtur Snær Jónsson 5 v.
3.–4. Magnús Víðisson og Birkir
Freyr Hauksson 4 v.
5. Svavar Kári Grétarsson 3½ v.
Alls mættu þrjár stúlkur til
leiks og lokastaða þess flokks
varð þessi:
1. Ulker Gasanova 6 v. af 7 mögu-
legum.
2. Sunna Líf Jóhannesdóttir 3½ v.
3. Halla María Helgadóttir 2 v.
Barnaflokkurinn fyllti 7
keppendur og varð lokastaða
hans þessi:
1.–3. Hersteinn Heiðarsson, Andri
Freyr Björgvinsson og Grétar Þór
Helgason 4 v. af 7 mögulegum.
4. Friðrik Jóhann Baldvinsson 3½ v.
5. Denis Yuranets 3 v.
6. Sigurður Sveinn Jónsson 2 v.
7. Elvar Helgason 1½ v.
Í öllum flokkum var keppt
um farandbikar og Ulker vann
sinn bikar til eignar þar eð
þetta var þriðja árið í röð sem
hún varð Skákmeistari Norð-
lendinga í stúlknaflokki. Mikil
spenna var á hraðskákmóti
keppenda sem endaði að lok-
um með sigri Gests Baldurs-
sonar en Mikael Jóhann fékk
jafn marga vinninga og hann,
en sá eldri bar sigur úr býtum
eftir einvígi. Skákstjórar á
mótinu voru Gylfi Þórhallsson,
formaður SA og Þór Valtýs-
son, gjaldkeri SA, en að öðrum
ólöstuðum hefur starfið fyrir
norðan hvílt á þeim félögum
um langt árabil. Þeir eru einn-
ig öflugir skákmenn og er
sókndirfska Gylfa öllum skák-
mönnum skeinuhætt. Hann
sýndi það og sannaði enn á ný
á öðru minningarmóti Gunn-
laugs Guðmundssonar sem
fram fór miðvikudaginn 10.
maí sl. en lokaúrslit þess urðu
eftirfarandi:
1. Gylfi Þórhallsson 11½ v. af 13
mögulegum.
2. Ólafur Kristjánsson 11 v.
3. Sigurður Eiríksson 9½ v.
4. Tómas Veigar Sigurðarson 9 v.
5. Þór Valtýsson 8½ v.
6. Stefán Bergsson 8 v.
7. Atli Benediktsson 7 v.
8. Sigurður Arnarson 6½ v.
9. Smári Ólafsson 5½ v.
10. Sveinbjörn Sigurðsson 4½ v.
11.–12. Bragi Pálmason og Ari Frið-
finnsson 4 v.
13.–14. Gestur Baldursson og Mikael
Karlsson 1 v.
Ofangreind mót sem og
næsta mót Skákfélags Akur-
eyrar, 15 mínútna mót sem
haldið verður sunnudaginn 21.
maí í Sunnuhlíð, má líta á sem
upphitun fyrir Skákþing
Norðlendinga sem fer fram
helgina 9.–11. júní næstkom-
andi. Um gott og skemmtilegt
helgarmót verður að ræða og
eru skákmenn sem búa utan
Norðlendingafjórðungs hvatt-
ir til að mæta galvaskir til leiks
og glíma við heimamenn.
Róbert sigursæll
í Iðnósyrpu Hróksins
Þriðja mótið í Iðnósyrpu
Hróksins fór fram sl. miðviku-
dag í Iðnó við Tjörnina. 20
skákmenn tóku þátt og tefldar
voru sex umferðir en tíma-
mörkin í hverri skák voru 5
mínútur. Fide-meistarinn Ró-
bert Harðarson vann mótið
með fullu húsi vinninga en á
hæla hans kom Davíð Kjart-
ansson með 5 vinninga. Róbert
og Davíð eru jafnir og efstir í
syrpunni en lokamót þess
verður haldið 17. maí næst-
komandi. Daði Ómarsson fékk
4½ vinning og hreppti brons-
verðlaun á mótinu en því næst
fengu Stefán Már Pétursson,
Elsa María Þorfinnsdóttir og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
4 vinninga og lentu í 4.–6. sæti.
Skákfréttir að norðan
Verðlaunahafar í barna- og unglingaflokkum Skákþings Norðlendinga.
SKÁK
Skákfélag Akureyrar
ÝMIS SKÁKMÓT
Vorið 2006
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Íslandsmót í
paratvímenningi
Hið vinsæla Íslandsmót í
paratvímenningi verður haldið
helgina 13.14. maí í húsnæði
Bridssambands Íslands í Síðu-
múla 37. Keppnisstjóri verður
Sigurbjörn Haraldsson.
Spilaður verður tvímenn-
ingur með barómeterformi, en
nánara form fer eftir þátttöku.
Bikarkeppni Brids-
sambands Íslands
Hin vinsæla bikarkeppni
Bridssambands Íslands fer
fram nú í sumar en dregið
verður í fyrstu umferðina á
kjördæmamótinu sem fram fer
um helgina 20.–21. maí á Ak-
ureyri.
Mikilvægt er því að allar
skráningartilkynningar berist
fyrir þann tíma eða fyrir
klukkan 17 föstudaginn 19.
maí. Þægilegast er að skrá sig
á vefsíðu Bridssambands
Íslands, bridge.is, en einnig er
hægt að skrá sig í síma BSÍ,
587 9360, eða GSM 898 7162.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl, mánud.
8.5. Spilað var á 7 borðum.
Meðalskor 168 stig og árangur
N-S:
Alda Hansen – Jón Lárusson 184
Alfreð Kristjánss. – Friðrik Jónss.
184
Gísli Hafliðas. – Pétur Antonss. 178
Árangur A-V
Ægir Ferdinandss. – Örn Sigfúss. 195
Jón Hallgrímss. – Helgi Hallgrímss. 169
Bragi Björnss. – Albert Þorsteinss. 169
FEBK Gjábakka
Það var spilað á 6 borðum í
Gjábakkanum sl. föstudag og
úrslitin í N/S urðu þessi:
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss.
141
Ragnar Björnss. - Ægir Ferdin-
andss. 132
Júlíus Guðmundss. - Óskar Karlss.
129
A/V:
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss. 136
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ás-
munds. 136
Jakobína Hólm - Hreggviður Jónss.
120
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Línurit vantaði
ELÍAS Jónatansson, formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur, ritaði grein
í Morgunblaðið í gær sem bar titilinn
„Hámörkun lífeyrisréttinda og aukin
áhættudreifing“. Greininni átti að fylgja
línurit, en vegna tæknilegra mistaka féll
það niður. Línuritið er því birt hér auk
kafla úr greininni til útskýringar. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar á mistök-
unum.
Aldurstengd ávinnsla réttinda
Sjóðfélagar í FL ávinna sér aldurstengd
réttindi. Þannig vega innborguð iðgjöld
yngra fólks mun þyngra í ávinnslu rétt-
inda, en fólks sem farið er að nálgast líf-
eyristöku, sökum aldurs.
Meðfylgjandi línurit sýnir þetta
glöggt. En á línuritinu má einnig lesa
hvernig ávinnslu er háttað hjá nokkrum
öðrum lífeyrissjóðum. Í öllum tilfellum
er reiknað með að greidd sé inn jafnhá
upphæð, (samtals framlag launþega og
atvinnurekanda, kr. 10.000). Línuritið
sýnir hvers virði sú innborgun verður í
lífeyrisréttindum á ári, þegar kemur að
töku lífeyris.
Ekki fer á milli mála að Frjálsi lífeyr-
issjóðurinn er mjög góður valkostur, í
samanburði við aðra lífeyrissjóði, ef litið
er til ávinnslu réttinda.
Vegna aldurstengingar réttinda, hafa
margir lífeyrissjóðir farið þá leið að
leyfa „eldri“ sjóðfélögum að halda áfram
jafnri ávinnslu réttinda, en það er yf-
irleitt hagkvæmt fyrir þá sem eru komn-
ir yfir 42 ára aldur. LB gerir þetta með
þeim hætti að „eldri“ sjóðfélagar sækja
um uppfærslu réttinda, þar sem tekið er
tillit til væntanlegrar framtíðarávinnslu
réttinda í samanburði við aldurstengda
ávinnslu. Útreiknaður mismunur er síð-
an notaður til að uppfæra réttindi við-
komandi. Eftir það eru allir sjóðfélagar
LB, sem nú verða félagar í Frjálsa líf-
eyrissjóðnum í aldurstengdri ávinnslu.
Væri ekki um þessa leiðréttingu að
ræða, hefði mátt ætla að „eldri“ sjóð-
félagar bæru skarðan hlut frá borði. Svo
er þó alls ekki, samanber framangreinda
uppfærslu réttinda þeirra. Hagur yngri
sjóðfélaga af aldurstengingu er augljós,
sé línuritið skoðað.“
Forstjóri Alcan
RANNVEIG Rist er forstjóri Alcan og
Cynthia Carroll er yfirmaður álfram-
leiðslusviðs Alcan en ranglega var farið
með starfsheiti þeirra í myndatexta á
baksíðu Morgunblaðsins í gær í
tengslum við frétt um samning Alcan og
Orkuveitu Reykjavíkur um orkusölu
vegna stækkunar í Straumsvík. Beðist
er velvirðingar á þessu.
Greiddur lífeyrir á ári fyrir hverjar 10.000 kr.
sem greiddar eru í iðgjald
0
500
1.000
1.500
2.000
2.500
3.000
3.500
4.000
16 21 26 31 36 41 46 51 56 61 66
Aldur greiðanda
Á
u
n
n
in
r
ét
ti
n
d
i
Frjálsi lífeyrissjóðurinn - aldurstengd ávinnsla
Lsj. verslunarmanna - aldurstengd ávinnsla
Lsj. Gildi - aldurstengd ávinnsla
Lsj. Vestfirðinga - aldurstengd ávinnsla
Lsj. verslunarmanna - jöfn ávinnsla
Lsj. Vestfirðinga - jöfn ávinnsla
Heimild : Heimasíður viðkomandi lífeyrissjóða
LEIÐRÉTT
FRÉTTIR
Dagur
harmónikunnar
DAGUR harmónikunnar verður haldinn
hátíðlegur í Ráðhúsi Reykjavíkur á
morgun, sunnudaginn 14. maí, með tón-
leikum sem hefjast kl. 15 og eru allir
velkomnir.
Fram koma: Úr Harmónikufélagi
Reykjavíkur; Stormurinn, Léttsveitin.
Einnig fimm manna hópur frá Akra-
nesi, Harmónikufélag Selfoss, Harm-
ónikufélag Rangæinga og rússneski
snillingurinn Juri Fjodorof. Juri er
bróðir Vadims Fjodorof sem stjórnað
hefur léttsveitinni í vetur, Vadim kemur
líka með einn nemanda sinn.