Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 88

Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 88
HORNSTEINN að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Valþjófs- staðarfjalli, Fljótsdalsstöð var lagð- ur í gær. Á fimmta hundrað gesta voru viðstaddir, þ.á m. forseti Ís- lands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem lagði hornsteininn ásamt sex grunnskólabörnum, ráðherrar, þingmenn, yfirmenn Landsvirkjun- ar og verktaka hennar og sveitar- stjórnarmenn af Austurlandi. Á sama tíma komu rúmlega 300 manns saman á Austurvelli til þess að mótmæla lagningu hornsteinsins. 180 manns á vegum Landsvirkj- unar flugu til Egilsstaða með Flug- leiðaþotu í bítið í gærmorgun og héldu ásamt fleirum í skoðunarferð um framkvæmdasvæði Kárahnjúka- virkjunar í nokkuð kalsasömu élja- veðri. Eftir athöfnina í stöðvarhúss- hvelfingunni var boðið til móttöku á Egilsstöðum. „Fáar framkvæmdir síðari ára hafa verið meira í umræðunni en þessi virkjun“ sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar í ræðu sinni. „Vissulega er framkvæmdin um- deild, en það verður hins vegar sag- an ein sem fellir hinn endanlega dóm.“ Hann fullyrti að miðað við aurburð og lónfyllingu í Hálslóni væri virkjunin byggð til 200 ára. „Virkjunin getur framleitt rafmagn á arðbæran hátt hið minnsta í þann tíma“ sagði hann. Landsvirkjun reiknar með að Kárahnjúkavirkjun geti skilað raf- orku 1. apríl á næsta ári, en ekki er ólíklegt að það tefjist um fáeinar vikur vegna erfiðleika í borun að- rennslisganganna undir Fljótsdals- heiði. Fyrirtækið leitar leiða til að afla raforku af orkunetinu til að keyra fyrstu kerin í álveri Alcoa Fjarðaáls ef um tafir verður að ræða. Mikill hugur var í fólki sem safn- aðist saman á Austurvelli í gær til að mótmæla lagningu hornsteinsins. Báru fjölmargir viðstaddir skilti þar sem beðist var undan frekari upp- byggingu stóriðju. Meðal slagorða á skiltum viðstaddra voru „Dam Nat- ion“ og „Íslands Ósómi, skömm- smán“. Flutt voru ljóð um náttúru landsins og lesin upp yfirlýsing náttúruunnenda. Hornsteinn var lagður að Fljótsdalsstöð eystra í gær 300 manns mót- mæltu athöfninni á Austurvelli Morgunblaðið/RAX Mikill hugur var í fólki sem safnaðist saman á Austur- velli í gær til að mótmæla virkjunarframkvæmdunum á Austurlandi og hafði uppi margvísleg mótmælaspjöld.  Virkjum | Miðopna Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Forseti Íslands leggur blýhólk með lýsingu virkj- unarinnar, mótmælum virkjunarandstæðinga og orkuverkefnum skólabarna í vegg stöðvarhússins. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur og Svavar Knút Kristinsson ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. www.xf.is www.f-listinn.is SILVÍA Nótt stal senunni í Aþenu í gær þegar íslenski Evróvisjón- hópurinn hélt þar sína fyrstu æfingu. Mikil eftirvænting hefur ríkt vegna þeirrar umræðu sem verið hefur um blótsyrði í enskum texta lagsins. Silvía lét sér fátt um finnast og notaði orðið, og bætti um betur með því að sýna áhorfendum fingurinn, við afar mis- jöfn viðbrögð áhorfenda. Á blaða- mannafundi í kjölfarið var blaðamanni hent út úr fundarsalnum fyrir að horfa í augun á Silvíu, en fundurinn þótti í meira lagi sérstakur. Í aðalfréttatíma gríska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var löng frétt um Silvíu og í viðtali við fulltrúa keppninnar var sagt frá blaða- mannafundinum og þeirri spurningu velt upp hvort ummæli hennar um aðra keppendur yrðu til þess að hún yrði rekin úr keppninni. Þykir Grikkjum uppátæki Silvíu ýmist furðuleg eða fyndin. Fréttin var endurtekin í frétta- yfirlitum síðar um kvöldið. | 81Morgunblaðið/Eggert Silvía Nótt fær blendnar viðtökur Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson og Bergþóru Jónsdóttur ÁKVÖRÐUN bæjarstjórnar Ölfuss um að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku á fjallsbrún Þóru- staðanámu í Ingólfsfjalli markar tímamót, að sögn Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Landvernd- ar. Hann segir að þar sé gengið gegn fyrsta áliti Skipulagsstofnunar sem gert er eftir að breytingar á lögum um mat á umhverfisáhrifum gengu í gildi 11. maí í fyrra. Bergur segir að álit Skipulagsstofnunar hafi verið afar vel rökstutt og stjórn Landverndar hafi tekið undir niðurstöðu stofnunarinnar í apríl þegar álitið var gefið út. Ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss valdi Landvernd áhyggjum en við blasi nei- kvæð og óafturkræf sjónræn áhrif vegna efnistök- unnar. Tímamótaákvörðun að ganga gegn álitinu  Tímamótaákvörðun | 6 ÍSLAND gæti orðið fyrir- mynd annarra þjóða heims í verndun loftslags ef yfirvöld settu sér það markmið að hér eigi sér ekki stað meiri losun gróðurhúsalofttegunda af manna völdum en unnt er að mæta með bindingu koltvísýr- ings í gróðri og jarðvegi. Þetta segir Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, en hann var meðal fyrirlesara á morgunverð- arfundi sem Landgræðsla rík- isins, Landbúnaðarháskóli Ís- lands og Skógrækt ríkisins stóðu fyrir í gær undir yf- irskriftinni: „Verndun lofts- lags. Getur Ísland orðið hlut- laust í losun gróðurhúsalofttegunda?“ Að sögn Huga Ólafssonar, skrifstofustjóra í umhverf- isráðuneytinu, er hugmyndin um kolefnishlutlaust Ísland ekki óhugsandi útópía. Bendir hann máli sínu til stuðnings á að Íslendingar hafi mikla möguleika á að draga úr los- un jafnframt því að auka kol- efnisbindingu, en þess ber að geta að binding kolefnis úr andrúmsloftinu í gróðri og jarðvegi er stór þáttur í gild- andi stefnumörkun Íslands í loftlagsmálum frá árinu 2002. Morgunblaðið/Árni Sæberg Er ekki óhugsandi útópía  Kolefnahlutlaust | 14 ÓVENJU góður humarafli fékkst norður af Eldey þegar rannsókn- arskipið Dröfn fór þar um en skip- ið er nú í leiðangri til þess að rannsaka stöðu humarstofnsins. Hrafnkell Eiríksson leiðangurs- stjóri segir hinn góða afla norður af Eldey hafa verið óvænta ánægju. „Þar hefur verið svolítið af stórum humri, en nýliðun síð- ustu árin mjög lítil eða nánast engin,“ segir Hrafnkell. Ástandið sé líkt og við Vestmannaeyjar í fyrra. | 8 Mjög góð humarveiði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.