Morgunblaðið - 22.05.2006, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þetta verður allt í lagi, mr. Reitan, það er bara hún og skjáta litla sem þykjast þurfa grímur.
Ég hef verið að veltafyrir mér undan-farið …“ Á þess-
um orðum hefst bréf sem
Mahmood Ahmadi-Nejad,
forseti Írans, sendi
George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna nýverið. Í
framhaldinu spyr Ah-
madi-Nejad hvernig Bush
geti litið á sig sem fylgis-
mann Jesú Krists, barist
fyrir mannréttindum og
lagst gegn hryðjuverkum
og þróun gereyðingar-
vopna en á sama tíma ráð-
ist inn í önnur lönd og lagt
líf fólks í rúst.
Bréf Ahmadi-Nejads markar
tímamót í sögu samskipta Írans
og Bandaríkjanna en ríkin tvö
hafa ekki átt bein samskipti frá
því að ráðist var inn í sendiráð
Bandaríkjanna í Teherean, höfuð-
borg Írans, árið 1980 og banda-
rískum starfsmönnum haldið þar í
gíslingu. Gíslatakan stóð í 444
daga og varð til þess að Bandarík-
in rufu efnahags-, stjórnmála- og
menningartengsl við Íran sem
fram að íslömsku byltingunni
1979 höfðu verið góð.
Mikil andstaða við Bandaríkin
einkenndi íslömsku byltinguna í
Íran. Margir mundu árið 1953
þegar leyniþjónusta Bandaríkj-
anna, CIA, í samvinnu við leyni-
þjónustu Breta, fékk almenning
til að steypa lýðræðislega kjörn-
um forsætisráðherra landsins,
m.a. með því að múta fjölmiðlum
til að birta um hann óhróður og
borga fólki fyrir að beita ofbeldi í
hans nafni. Aðrir voru langþreytt-
ir á nánu samstarfi keisarans við
Bandaríkjastjórn og nútímavæð-
ingu að ofan.
Fjölmiðlar ala á óöryggi
Í bréfinu, sem er u.þ.b. sjö síð-
ur, víkur Ahmadi-Nejad lítillega
að þeirri gremju sem Íranar bera í
garð Bandaríkjamanna. Gíslatök-
una segir hann hafa verið vegna
þess að Bandaríkjamenn breyttu
sendiráði sínu í höfuðstöðvar and-
stöðu við íslamska lýðveldið.
Yfirlýsingar Ahmadi-Nejads
um Ísrael hafa vakið athygli og í
bréfinu segir hann: „Í gegnum
söguna hefur fjöldi landa verið
hernuminn en ég held að það að
stofna nýtt land með nýju fólki sé
algjört einsdæmi.“ Hann gengur
ekki út frá því sem vísu að Helför-
in hafi raunverulega átt sér stað
en sé það rétt, spyr hann, hvernig
í ósköpunum það eigi að réttlæta
að stofna Ísraelsríki í Mið-Aust-
urlöndum. Það hafi kostað fjölda
fólks lífið og hrakið enn fleiri á
flótta.
Ahmadi-Nejad gagnrýnir
fangabúðirnar við Guantanamó-
flóa á Kúbu þar sem föngum er
haldið án dóms og laga og vísar
einnig í nýjar upplýsingar um
pyntingafangelsi í Evrópu. Hann
segist ómögulega skilja hvernig
þessar aðgerðir samræmist hug-
myndum um frelsi og lýðræði sem
og boðskap Jesú Krists um fyr-
irgefningu og kærleika.
Ahmadi-Nejad segir atburðina
11. september 2001 þegar flugvél-
um var flogið á Tvíburaturnana í
New York hafa verið hræðilega.
Síðan þá hafi verið alið á ótta og
óöryggi hjá bandarísku þjóðinni
og fjölmiðlar hafi leikið þar stórt
hlutverk. „Sumir telja að fjöl-
miðlafárið hafi rutt veginn – og
verið réttlæting – fyrir árásinni á
Afganistan,“ segir hann í bréfinu.
Ahmadi-Nejad segir að það sama
hafi verið uppi á borðinu varðandi
innrásina í Írak. Fjölmiðlar hafi
endurtekið stöðugt að gereyðing-
arvopn væri að finna í landinu svo
almenningur var að lokum farinn
að trúa því.
Sagan dæmir leiðtogana
Ahmadi-Nejad spyr Bush hvers
vegna hann eyði milljörðum
Bandaríkjadala í stríð gegn Írak á
sama tíma og ákveðnir hópar fólks
í Bandaríkjunum búi við fátækt.
„Þeir sem fara með völd í heim-
inum gera það aðeins í ákveðinn
tíma og stjórna ekki að eilífu en
verk þeirra eru skráð á spjöld sög-
unnar,“ skrifar Ahmadi-Nejad og
spyr hvernig sagan muni dæma
verk leiðtoga nútímans. „Tókst
okkur að færa fólkinu frið, öryggi
og hagsæld eða óöryggi og at-
vinnuleysi? Reyndum við að skapa
réttlæti eða studdum við bara
ákveðna hagsmunahópa og þving-
uðum marga til að lifa í fátækt um
leið og við gerðum fáa ríka og
valdamikla?“
Ahmadi-Nejad gagnrýnir þá
miklu peninga sem er eytt í hern-
aðarútgjöld og spyr hvernig heim-
urinn væri ef fjármagnið væri
frekar nýtt í fjárfestingar og að-
stoð við fátæk lönd, menntun og
heilsugæslu, friðaruppbyggingu
og útrýmingu atvinnuleysis svo
fátt eitt sé nefnt. Hann vísar mikið
í trúna og spyr hvort trúin á einn
guð, virðingu, réttlæti og dóms-
dag sé ekki lausn vandamála
heimsins. „Sagan kennir okkur að
grimmar og kúgandi ríkisstjórnir
lifa ekki af. Guð hefur falið mann-
inum stjórn á eigin örlögum,“ seg-
ir Ahmadi-Nejad og spáir því að
breytingar séu í nánd þar sem fólk
sé orðið langþreytt á stríði og óör-
yggi. Hann mun þó líklega bíða
lengi eftir svari því bandarískum
stjórnvöldum þótti ekki mikið til
bréfsins koma.
Bréfið má nálgast í heild sinni á
http://www.president.ir/eng/.
Fréttaskýring | Margra síðna bréf frá
Íransforseta til forseta Bandaríkjanna
Hvað stóð
í bréfinu?
Íran og Bandaríkin hafa ekki haft form-
leg samskipti frá gíslatökunni árið 1980
Ahamdi-Nejad fer um víðan völl.
Skrifar Bush um frjálslyndi
og vestrænt lýðræði
Frjálslyndi og vestrænu lýð-
ræði hefur mistekist að ná til
hins mannlega. Þetta segir
Mahmood Ahmadi-Nejad, Írans-
forseti, í bréfi sínu til Georges W.
Bush, Bandaríkjaforseta. „Fólk í
mörgum löndum heims finnur til
reiði vegna ógnarinnar sem
steðjar að menningu þess og fjöl-
skyldulífi,“ segir Ahmadi-Nejad
og bætir við að fólk sé skelft yfir
dvínandi umhyggju og samúð í
heiminum.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Ásta Þorleifsdóttir,
jarðfræðingur
4 sæti
„ Aukin þátttaka
íbúa í stjórn
borgarinnar.“
NÝTT miðbæjartorg við Hamra-
borg í Kópavogi var vígt við hátíð-
lega athöfn á laugardag. Torgið
tengir Hamraborgina saman við
menningarstofnanir sem eru hinum
megin við Gjána. Á myndinni er
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri að
opna torgið formlega með því að af-
hjúpa skjöld þar sem m.a. er getið
um nokkra helstu atburði í sögu
Kópavogs. Sigurbjörn Einarsson
biskup blessaði torgið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt miðbæjartorg í Kópavogi vígt
ÓVENJUMIKILL erill var
hjá lögreglu á höfuðborgar-
svæðinu á laugardagskvöld og
þurfti lögreglan að skipta sér
af drykkjulátum í fólki fram
eftir allri nóttu og var ekki
kominn friður á fyrr en kl. sjö
í gærmorgun. Ein líkamsárás
var kærð til lögreglunnar og
er hún í rannsókn. Þá voru
átta ökumenn stöðvaðir fyrir
ölvun við akstur og þar af
hafði einn þeirra keyrt á ljósa-
staur og umferðarmerki sem
hann festi bíl sinn á. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Kópavogi var sérlega
mikið um hávaðatilkynningar
vegna samkvæma.
Mikið
um fyllirí
og læti