Morgunblaðið - 22.05.2006, Side 9

Morgunblaðið - 22.05.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Kvartbuxur og stuttbuxur Mánudagur 22. maí Tortillas &/chillipottur Þriðjudagur 23. maí Aloo-Saag spínatpottur & buff Miðvikudagur 24. maí Próteinbollur m/cashewhnetusósu Fimmtudagur 25. maí Karrý korma m/nanbrauði Föstudagur 26. maí Ítalskur pottur m/pastasalati Helgin 27. - 28. maí Fyllt paprika m/brokkólísalati Valhöll · Háaleitisbraut 1, 3. hæð · 105 Reykjavík · Símar 515 1735 og 898 1720 · Fax 515 1739 · oskar@xd.is Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitar- stjórnarkosninganna 27. maí fer fram hjá sýslumönnum um allt land. Í Reykjavík er kosið í anddyri Laugardalshallarinnar alla daga kl. 10 - 22. Erlendis er kosið í sendiráðum Íslands og hjá mörgum ræðismönnum. Einnig er kosið á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum skv. sérstökum auglýsingum þar um. Munið að hafa skilríki meðferðis. Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins veitir allar upplýsingar og aðstoð við kosningu utan kjörfundar. Sjálfstæðisfólk, látið vita um stuðnings- menn sem ekki verða heima á kjördag, t.d. námsfólk erlendis. UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 12-17 Skómarkaðurinn Skúlagötu 61 (Stálhúsgögn) sími 693 0996 SKÓMARKAÐUR Skúlagötu 61 Ekki missa af síðustu dögum markaðarins Ótrúleg verðlækkun! Aðeins 3 verð : 1000, 2000 og 3000 kr. Einnig er fullt af skóm á 500 kr. Mikið úrval Breytt útgáfa íslenskra vegabréfa Dóms- og kirkjumálaráðuneytið Á morgun, 23. maí, verða breytingar á íslenskum vegabréfum, umsóknum og afhendingu þeirra. Engin gild vegabréf falla úr gildi þótt farið verði að framleiða nýja gerð vegabréfa. Frekari upplýsingar má finna á www.vegabref.is Afgreiðsla vegabréfa í Reykjavík verður framvegis hjá Lögreglunni í Reykjavík, Borgartúni 7b, en ekki hjá Útlendingastofnun. Sýslumenn utan Reykjavíkur og Lögreglan í Reykjavík taka við umsóknum um vegabréf. Umsækjendur eru ekki bundir af því að skila umsókn í sama umdæmi og lögheimili þeirra er. Myndataka fyrir vegabréfaumsókn telst til öryggisatriða nýju vegabréfanna og fer hún því fram á sama á stað og á sama tíma og sótt er um og fylgir því ekki aukakostnaður. Koma má með eigin myndir á rafrænu formi. Verð vegabréfa helst óbreytt. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands hefur látið reisa risastórt skilti á horni Sæmundargötu og Hring- brautar í Reykjavík. Á skiltinu stendur stórum stöfum: „Hér viljum við byggja stúdentagarða“. Að mati Stúdentaráðs er nauðsyn- legt að byggja fleiri stúdentagarða en við Háskólann. Í Háskóla Íslands eru um 9.500 stúdentar. Fjöldi þeirra hefur tvöfaldast síðastliðinn áratug, en framboð stúdentaíbúða hefur ekki aukist í samræmi við það. Um 600 stúdentar eru á biðlista eftir úthlutun á hverju hausti. Fé- lagsstofnun stúdenta getur boðið um 8% stúdenta við HÍ húsnæði, en Stúdentaráð vill að þetta hlutfall verði 15%, eins og í nágrannalönd- unum. Í tilkynningu frá Stúdentaráði segir: „Því spyrja stúdentar þá flokka sem eru í framboði í borg- arstjórnarkosningunum í Reykjavík hvaða lausnir þeir hafa á húsnæð- isvanda stúdenta og hverja eiga stúdentar að kjósa?“ Telja brýnt að byggja íbúðir fyrir stúdenta FLUGFÉLAGIÐ Icelandair hefur opnað nýjar sjálfsafgreiðslustöðvar við innritun í Leifsstöð. Stöðvarnar eru sex talsins og eru staðsettar í innritunarsalnum. Með þeim gefst farþegum félags- ins kostur á að innrita sig og far- angur sinn sjálfir og velja sér sæti. Tilgangurinn er að auka þjón- ustu og stytta biðtíma farþega eftir innritun að sögn Jóns Karls Ólafs- sonar, forstjóra Icelandair. Allir farþegar Icelandair geta notað sjálfsafgreiðslustöðvarnar, en reynslan erlendis frá sýnir að það eru gjarnan þeir sem fljúga oft sem nýta sér þær mest. Tölvubún- aður gerir farþegum innritunina mjög auðvelda, hvort sem notaðir eru hefðbundnir farseðlar eða raf- rænir miðar. Þá er nóg að gefa upp bókunar- númer, eða renna í gegn greiðslu- kortinu sem greitt var með. Síðan birtist mynd af sætaskipan við- komandi flugvélar og farþegar smella á það sæti sem þeir kjósa. Innritunin tekur um það bil 30–40 sekúndur. Hugbúnaðurinn í sjálfsaf- greiðslustöðvunum er þróaður í samvinnu við tölvufyrirtækið CSC, sem hefur meðal annars unnið með SAS að sambærilegum verkefnum. Tækin sjálf eru í eigu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Ljósmynd/Víkurfréttir Það tekur um 30–40 sekúndur að innrita sig í sjálfsafgreiðslu Icelandair. Jón Karl Ólafsson forstjóri vígir hér nýjungina. Geta innritað sig sjálfir í flugið ELDUR kom upp í gróðri í Grasa- garðinum í Reykjavík í gær. Tölu- verðar skemmdir urðu á gróðrinum en varðstjóri Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins segir þó hafa farið betur en á horfðist. Það hefði getað farið mjög illa. Nokkuð hefur verið um sinuelda á höfuðborgarsvæðinu í þurrkinum undanfarna daga. Gróður er víða mjög þurr og jafnvel þótt hann sé víða farinn að taka vel við sér er enn mikil sina í grasi. Eldur í Grasa- garðinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.