Morgunblaðið - 16.09.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 250. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
EFTIRSÓTT
HELENA SVERRISDÓTTIR HÆTTIR MEÐ
HAUKUM Í VOR OG HELDUR TIL TEXAS
„GEGGJAГ
FIMM BINDA
BÓKMENNTASAGA ER
FRAMTAK >> LESBÓK
GÍFURLEG reiði hefur brotist út í
múslímaheiminum vegna ræðu
Benedikts XVI. páfa á þriðjudag,
þar sem hann tengdi saman ísl-
amstrú og ofbeldi. Óttast er að
ræðan kunni að leiða til mótmæla-
öldu líkrar þeirri sem náði hámarki
í upphafi þessa árs í kjölfar birt-
ingar danska dagblaðsins Jyllands-
Posten á skopmyndum af Múham-
eð spámanni fyrir um ári.
Þannig lýsti Mohammed Mahdi
Akef, leiðtogi Bræðralags músl-
íma, helsta flokks stjórnarand-
stæðinga í Egyptalandi, því yfir að
ummælin „sýndu ekki fram á rétt-
an skilning á íslam“. Abdel Mo-
neim Abul Futuh, flokksbróðir
Akefs, tók í sama streng og sagðist
eiga von á „öfgafullum viðbrögð-
um“ við ummælunum. Jafnframt
sagði Futuh þau „meira móðgandi
fyrir íslam en skopmyndirnar
vegna þess að þau hefðu komið frá
leiðtoga milljóna manna en ekki
blaðamanni“.
Ræddi um heilagt stríð
Má rekja þessa reiði fyrst og
fremst til tilvitnunar páfa í Manuel
II. Paleologus, keisara austróm-
verska ríkisins á 14. öld, um að eina
framlag Múhameðs til sögunnar
væri „illir hlutir og ómennskir“.
Lét páfi þessi orð falla í ræðu við
Regensburg-háskóla í Þýskalandi
á þriðjudag, þar sem hann gerði
heilagt stríð íslamskra öfgamanna
að umtalsefni. Talsmaður Vatík-
ansins sagði í yfirlýsingu í gær að
páfi hefði ekki ætlað sér að móðga
múslíma.
Reuters
Reiði Pakistanskir múslímar hrópa slagorð í mótmælaskyni við ummæli páfa, sem þeir segja vera níð um íslam.
Fordæma ræðu páfa
Hefur kallað á
hörð viðbrögð
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
18 | Mikil reiði
Boða skurði
umhverfis
Bagdad
Bagdad. AFP. | Íraska innanríkisráðuneytið
tilkynnti í gær áætlun um að grafa um-
fangsmikla skurði umhverfis Bagdad, í því
skyni að takmarka umferð uppreisnar-
manna um höfuðborgina. Jafnframt verður
tugum aðleiða að Bagdad lokað og aðgengi
að borginni takmarkað við 28 akstursleiðir
undir ströngu eftirliti öryggisvarða.
„Við munum umkringja borgina með
skurðum,“ sagði Abdel Karim Khalaf, her-
foringi og talsmaður innanríkisráðuneytis-
ins, í gær.
Tilkynningin kemur í kjölfar mikillar of-
beldisöldu í borginni, en á annað hundrað
manns hafa fallið í árásum vígamanna á síð-
ustu þremur dögum. Mörk Bagdads eru um
80 km löng og er talið að nokkra mánuði
muni taka að grafa skurðina.
GERT er ráð fyrir að blönduð skrifstofu-,
þjónustu- og íbúðarbyggð rísi á svæðinu
við Köllunarklettsveg og Héðinsgötu gangi
eftir skipulagstillaga sem kynnt var á
fundi hafnarstjórnar Faxaflóahafna í síð-
ustu viku. Svæðið sem um ræðir er alls
62.000 m2 að stærð. Samkvæmt skipulags-
tillögunni sem kynnt var í síðustu viku á
að reisa á svæðinu sex tíu til fjórtán hæða
skrifstofu- og þjónustubyggingar og fjögur
17 hæða íbúðarhús, sem gætu rúmað 260
íbúðir.
Í dag eru þarna lagerbyggingar af ýms-
um formum og gerðum sem er misjafnlega
vel við haldið og segir í tillögunni að svæð-
ið sé til verulegra lýta fyrir aðliggjandi
byggð. Markmiðið sé að skapa heildstætt
svæði með „skrifstofu-, þjónustu- og íbúð-
arbyggingum með glæsilegu yfirbragði af
háum gæðaflokki, sem nýta til fullnustu
þau gæði sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Þar vegur mest einstakt útsýni til norðurs,
vesturs og austurs,“ segir í tillögunni. Þá
sé svæðið nálægt Laugarnesinu og mið-
borginni, auk þess sem tenging sé við Sæ-
braut. Í tillögunni segir að með því að
blanda saman íbúðum og atvinnuhúsnæði
náist fram það sem sé eftirsóknarverðast í
öllum borgum, en bæjarhlutinn verður lif-
andi allan sólarhringinn alla daga. Þar
kemur jafnframt fram að lega bygging-
anna hafi í för með sér að skerðing útsýnis
frá íbúðarhúsum sunnan Kleppsvegar
verði eins lítil og hægt er. | 6
Blönduð byggð rísi við Köllunarklettsveg
Tillaga um sex 10 til 14 hæða skrifstofu- og
þjónustubyggingar og fjögur 17 hæða íbúðarhús
Ljósmynd/GP Arkitektar
17 hæða íbúðahús Samkvæmt tillögunni á að reisa fjögur slík hús í nýja hverfinu.
„Gæti orðið vatn á myllu öfgamanna“
MAGNÚS Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum
Mið-Austurlanda, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi
að múslímar gætu túlkað ummæli páfa á þriðjudag sem enn
eina atlöguna að trú þeirra og því sem þeim þykir vera heilagt.
„Mér finnast ummæli páfa mjög óheppileg, einkum ef tíma-
setning þeirra er höfð í huga. Þau eiga óhjákvæmilega eftir að
vekja deilur og verða umdeild. Þótt svo páfi hafi ef til vill ekki
meint orð sín á þann hátt sem þau hafa verið túlkuð álíta marg-
ir múslímar hann andlegan leiðtoga kristinna manna.
Þetta kann því að staðfesta í hugum margra íslamstrúarmanna, að Vest-
urlandabúar séu ekki að leita sátta, heldur séu þeir þvert á móti í vígahug.
Föstudagurinn í dag [í gær] var helgidagur múslíma og þetta hefur án efa
verið helsta umræðuefnið í samkomuhúsum múslíma.“
Magnús, sem vildi taka fram að hann hefði enn ekki lesið ræðu páfa, úti-
lokar ekki að öfgamenn muni færa sér ummælin í nyt.
„Þetta mál kemur upp í aðdraganda Ramadan-mánaðar, þegar samheldni
múslíma er mikil. Þá er andrúmsloftið öðruvísi en í öðrum mánuðum ársins.
Það er því hætt við því, að þetta geti orðið vatn á myllu öfgamanna. Páfi hefði
átt að huga betur að því hvernig hann kom boðskap sínum á framfæri.“
Í HNOTSKURN
»Tilvitnunin í orðManuel II. keisara
var sótt í rit líbanska
fræðimannsins Theo-
dore Khoury.
»Keisarinn er sagð-ur hafa látið þessi
orð falla er Konst-
antínópel var undir
umsátri í lok 14. ald-
ar.
»Benedikt XVI. páfivar eitt sinn fræði-
maður við Regens-
burg-háskólann þar
sem ræðan var haldin.
Kaupmannahöfn. AFP. | Sumir
kalla hana ofmetnasta við-
komustað ferðamanna í
heiminum, aðrir segja
hana ómissandi fyrir sjálfs-
mynd Dana. Eitt er þó víst:
eitt þekktasta einkenni
Danmerkur, styttan af litlu
hafmeyjunni, hefur eignast
litla systur. Sá munur er þó
á að framúrstefnulegt útlit litlu systur er
frábrugðið klassískum útlínum þeirrar
eldri, en þær standa skammt frá hvor ann-
ari við Löngulínu.
„Þetta er ekki eftirlíking, heldur systir
sem lítur allt öðruvísi út en er engu síður
aðlaðandi og mun vonandi laða að marga
ferðamenn,“ sagði myndhöggvarinn Bjørn
Nørregaard um hugarfóstur sitt sem var
afhjúpað í gær. Nýja hafmeyjan er öðruvísi
en styttan af hinni frægu sögupersónu
Hans Christians Andersens á fleiri vegu því
ólíkt eldri systur sinni er hún ekki í seiling-
arfjarlægð ákafra ferðamanna.
Hafmeyjan
eignast „systur“
♦♦♦