Morgunblaðið - 16.09.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Afmælistilboð laugardag og
sunnudag!
Minni samloka 500 kr.
Stærri samloka 700 kr
Risasamloka 1000 kr
Gos úr vél fylgir.
Helgarveisla 2 risar og 2 l gos 1800 kr.
Kúluís með tveimur kúlum 100 kr.
Salat með heitu kjöti og Kristall 550 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
lesbók
YFIR SÍÐUSTU FORVÖÐ
ÞAU ÞEKKTU EKKI LANDIÐ SEM ÞAU VÖLDU AÐ SÖKKVA OG
ÞAU ÞEKKTU EKKI ÁNA SEM ÞAU ÁKVÁÐU AÐ SKRÚFA FYRIR
Vinstri grænir eru frjálshyggjuflokkur ! Eða hvað er frjálshyggja? » 16
Tvennt einkennir helst nýjasta hefti
Tímarits Máls og menningar sem
kom út í vikunni, skáldskapur og rit-
dómar. Nóg er af hvoru tveggju. Í
heftinu er meðal annars nýr skáld-
skapur eftir Baldur Óskarsson,
Steinar Braga, Þórdísi Björns-
dóttur, Hauk Má Helgason og Heimi
Pálsson. Og svo eru ritdómar um
nokkrar þeirra skáldsagna og ævi-
sagna sem komu út um síðustu jól en
einnig ýtarleg úttekt Ástráðs Ey-
steinssonar prófessor á ljóðabókum
2005. Þetta efni minnir nokkuð á
tímaritið eins og það var lengst af á
síðustu öld.
En síðan eru einnig í þessu nýja
hefti greinar um menningarástand
eða menningarvettvanginn, eins og
það er kallað, til dæmis skrifar Jón-
as Sen um Sumartónleika í Skál-
holti.
Einnig er að finna pólitíska um-
ræðu í heftinu. Stefán Snævarr
heimspekingur skrifar grein með
fyrirsögninni „Miðjan harða og
hentistefnan mjúka“ en í undirfyr-
irsögn spyr hann hvort það geti ver-
ið „hugmyndafræði handa Samfylk-
ingunni (og kannski fleiri flokkum)“.
Og Gísli Sigurðsson íslenskufræð-
ingur birtir fyrri hluta greinar um
íslenska málpólitík.
Að síðustu verður svo að nefna
frásögn Sigurðar Pálssonar af því
þegar hann mætti Samuel Beckett á
götu í París árið 1968, grein með
mikinn táknrænan þunga og óvænt-
um endi. Vikið er að þessari grein í
Neðanmáli Lesbókar í dag.
Nýtt hefti
TMm
komið út
Skáldskapur, menning
og pólitík
T
anztheatre Wuppertal,
dansleikhús Pinu
Bausch, er komið
hingað til lands. Frítt
föruneyti 50 lista-
manna, þar af á þriðja
tug framúrskarandi dansara.
Hópurinn mun halda fjórar sýn-
ingar í Borgarleikhúsinu á verkinu
Água dagana 17., 18., 19., og 20. októ-
ber.
Pina Bausch er einn af jöfrum nú-
tíma danslistar og er heimsókn dans-
flokks hennar hingað til lands stór-
viðburður í íslensku menningarlífi.
List Pinu Bausch verður seint
flokkuð eftir hefðbundnum leiðum
eða krufin til fullnustu, en verk henn-
ar einkennast af því að notast við
fjölda listmiðla og sækja innblástur
úr ólíklegustu áttum.
Verkið Água er engin undantekn-
ing, en verkið er undir sterkum áhrif-
um frá brasilísku borginni São Paulo
og er sýningunni lýst sem seiðandi og
ögrandi, litríkri og íburðarmikilli. Er
sviðsmyndin svo umfangsmikil að
þótti fréttnæmt þegar byrjað var að
setja hana upp í Borgarleikhúsinu, en
þrjá gáma af stærstu gerð þurfti til að
flytja umgjörð verksins hingað til
lands.
„Þrátt fyrir að erlendir gestir
flykktust til að sjá sýningar hennar
þá voru viðbrögð íbúa Wuppertal allt
að því grimmdarleg, en fram á níunda
áratuginn var litið á Bausch sem eins-
konar framúrstefnulegan antikrist,“
segir Karen María Jónsdóttir fags-
tjóri við Listaháskóla Íslands meðal
annars í ítarlegri grein um Bausch.
Undra-
barnið ótta-
lausa frá
Wuppertal
Ljósmynd/Atsushi Iijima
Pina Bausch Í verki hennar Aqua gefa rúmba, samba og pálmatré tóninn.
H
vernig skrifar maður íslenska
bókmenntasögu? Til dæmis
þegar heil öld er undir, öld
sem flestir lesendanna muna?
Þrennt er í boði. Að skrifa
sögu bókmenntanna út frá
þróun þjóðfélagsins. Að skrifa sögu bókmennta-
fræðinnar, hvernig bækur hér hafa verið túlk-
aðar, lesnar og metnar. Eða, smíða eins konar
höfundatal sem myndar samfellda sögu. Nei,
annars, fjórði kosturinn er til; að vinna grunn-
rannsóknir á ákveðnum verkum, höfundum eða
tímabilum og endurskoða þannig það sem áður
hefur verið um þau skrifað. Þar með verður til ný
bókmenntasaga, okkar tíma túlkun – nýtt mat.
Þetta er sett hér fram á þessum einfölduðu
nótum til þess að árétta hvað það er í raun flókið
að skrifa bókmenntasögu lands. Allir þessir
kostir, og margir fleiri, koma til greina, ekki síst
samtímis. Fjórða og fimmta bindi Íslenskrar
bókmenntasögu eru komin út hjá Máli og menn-
ingu, í ritstjórn Guðmundar Andra Thorssonar
með köflum eftir tíu höfunda, sérfróða um hin
ýmsu svið bókmenntanna. Hér er lagt til atlögu
við allar bókmenntir 20. aldarinnar og litið í fjöl-
skrúðug horn þeirra. Bindin fylla tómarúm sem
orðið var hrópandi. Og nú leikur fólki forvitni á
að vita: hvaða leiðir voru farnar við ritunina og
hvað er yfir höfuð að gerast?
Fánabláu bindin
Öll fimm bindi Íslenskrar bókmenntasögu eru í
samræmdum, bláum búningi og passa í þar til
gerða safnöskju. „Stefnt var að bókmenntasögu
í aðgengilegu formi, sem væri um leið markvert,
fræðilegt innlegg. Henni er beint að öllum, hún
ætti að vera til á hverju heimili,“ segir ritstjór-
inn. Hátt í 1500 hundruð síður eru teknar undir
bókmenntir 20. aldar í IV. og V. bindi. Stíllinn er
oftast aðgengilegur og upplýsandi og virðist
ekki krefjast sérfræðimenntunar af lesanda.
Litaðir rammar brjóta textann upp, þar er m.a.
að finna brot úr viðtölum við höfunda, fréttir af
þjóðfélagsástandi, bókagagnrýni og aðrar við-
tökur. Bækurnar eru myndskreyttar í svart-
hvítu, myndir af bókakápum endurspegla tíð-
aranda og minnt er á tengsl skáldskapar við
myndlist. Raunar prýða málverk sjálfar káp-
urnar. Olíumálverk Georgs Guðna á kápu V.
bindis má kannski túlka á þann veg að (bók-
mennta)landslagið sem við erum stödd í núna sé
enn svo þokukennt að erfitt sé að henda á því
reiður – en um leið það heillandi að menn megi
til að reyna.
Hvernig á sagan að hljóma?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bókmenntasaga Á kápu V. bindis er þoku-
kennt landslag eftir Georg Guðna.
Laugardagur 16. 9. 2006
81. árg. laugardagur
16. 9. 2006
PALLAR OG POLLAR
HRESSIR HJÓLREIÐAGARPAR
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ HJÓLA Í POLLUM
„Hjóla á milli mömmu og pabba,“ segir Birgir Viðar » 3
Hjólreiðakappar Birgir Viðar og Stefán Karl hjóla og stökkva á stökkpöllum í Laugardal.
Strákurinn á myndinni hér að of-
anverðu ætlar út að hjóla en hann
vantar sitthvað til að vera öruggur
í umferðinni.
Áður en farið er út að hjóla þarf
að passa upp á að hjólið sé í lagi.
Ýmislegt annað verður líka að hafa
á hreinu. Hjálmur og olnbogapúðar
veita öryggi. Púðana er sérstaklega
gott að hafa þegar verið er að læra
að hjóla. Hjólalukt og glitaugu eru
nauðsynleg þegar hjólað er í
myrkri. Eins gott er að lásinn sé
líka með. Umfram allt þarf þó að
passa sig í umferðinni og fara eftir
umferðareglum.
Veistu hvað strákinn vantar?
Reyndu að finna þá hluti í barna-
blaðinu.
Öryggi
á hjóli
Allir sem kunna að hjóla vita hvað
það er gaman að fara út að hjóla.
Um leið og þú stígur upp á hjólið
ertu að fara í óvissuferð. Þú veist
ekki hvað bíður þín handan við
hornið. Kannski er besti vinur þinn
þar. Þú leggur af stað og finnur
lyktina af gróðrinum. Þú tekur vel
eftir umhverfinu. Þú stígur fastar á
pedalana og vindurinn feykir
hárinu þínu. Frelsistilfinning hellist
yfir þig. Þú getur farið hvert sem
er. Þér líður vel, hvernig sem þér
leið áður en þú lagðir af stað.
Smám saman skríður bros fram á
varir þínar og áður en þú veist af
ertu skælbrosandi á leið um fjöll og
firnindi. Með frelsið í fanginu þeys-
ir þú um holt og hæðir á hjólafákn-
um þínum.
Gaman
að hjóla
b n laugardagur 16. 9. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir
Landslið kvenna í körfu brýtur í blað í Keflavík>> 2
LOGI SPÁIR Í SPILIN
„FH-INGAR HLJÓTA AÐ LEGGJA ALLT KAPP Á AÐ
TRYGGJA SÉR TITILINN Á HEIMAVELLI“
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Ég er gríðarlega spennt enda hef
ég komið tvisvar í heimsókn í skól-
ann. Það var eitthvað sem heillaði
mig við staðinn, þjálfarateymið og
skólann,“ sagði Helena en skólalið-
ið heitir TCU og er í Texas. Skól-
inn er lítill á bandarískan mæli-
kvarða en þrátt fyrir það eru
nemendur 7.000. Þetta er því að-
eins stærra en maður á að venjast
úr Flensborgarskólanum.“
Hefur stefnt lengi
að því að komast út
Helena telur að hún hafi valið
rétt umhverfi en fleiri skólalið
vildu fá hana í sínar raðir. „Ég veit
að hverju ég geng í þessum skóla.
Liðið er gott og var í 25. sæti á
styrkleikalistanum í fyrra. Skólinn
er í NCAA deildinni eða efstu
deild og það verður spennandi að
sjá hvernig maður stendur sig í
samanburði við aðra leikmenn. Ég
hef stefnt að þessu lengi, að kom-
ast í háskólanám samhliða körfu-
boltanum, og núna er þetta allt
klappað og klárt. Tímabilið með
Haukum verður því það síðasta hjá
mér í bili og það verður bara gam-
an að verja titilinn.“
Kynnist örugglega
mörgu nýju
Helena telur að hún muni bæta
sig mikið sem leikmaður í Banda-
ríkjunum enda er samkeppnin
mikil. „Það verður eflaust margt
nýtt sem ég þarf að tileinka mér
sem leikmaður og ekki síst utan
vallar. Það tekur allt sinn tíma og
ég geri mér alveg grein fyrir því.
Þjálfarinn verður eflaust með eitt-
hvað meira af „línuhlaupum“ en ég
hef átt að venjast hér heima en
það er bara hluti af „pakkanum“
að kynnast einhverju nýju. Ég hef
reyndar hitt þjálfarann tvívegis og
rætt við leikmenn liðsins um að-
ferðir hans. Mér líst vel á það sem
ég sá og hef heyrt og hlakka mikið
til að takast á við þetta verkefni
sem stendur yfir í fjögur ár.“
Lengi vakið athygli
Helena er hávaxinn bakvörður
en það eru afar fáir leikmenn sem
eru jafnhávaxnir í þeirri stöðu. Á
undanförnum árum hefur hún vak-
ið mikla athygli með yngri lands-
liðum Íslands og í Evrópukeppn-
inni með Haukum.
Íslenskar knattspyrnukonur
hafa leikið með TCU skólaliðinu
og má þar nefna Báru Gunnars-
dóttur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á förum Helena Sverrisdóttir landsliðskona í körfuknattleik úr Haukum.
Helena fer
frá Haukum
Hefur tekið tilboði frá háskóla í
Texas og heldur utan næsta vor
HELENA Sverrisdóttir, landsliðs-
kona í körfuknattleik, mun leika
sitt síðasta tímabil í vetur með Ís-
landsmeistaraliði Hauka. Helena,
sem leikur sem leikstjórnandi,
lýkur stúdentsprófi frá Flens-
borgarskóla næsta vor og hefur
hún þegið boð frá bandarískum
háskóla um að leika með liði skól-
ans samhliða háskólanámi næstu
fjögur árin.
Íslenska kvenna-
landsliðið í
knattspyrnu fell-
ur niður um þrjú
sæti á nýjum
styrkleikalista
Alþjóða knatt-
spyrnu-
sambandsins
sem gefinn var
út í gær. Ísland
er í 21. sæti á
listanum en sem
fyrr eru heimsmeistarar Þýska-
lands í efsta sæti og Bandaríkin í
öðru sæti.
Íslenska liðið á eftir að leika
tvo leiki á þessu ári. 28. sept-
ember mætir liðið Portúgal á úti-
velli í lokaleik sínum í und-
ankeppni HM og þann 8. október
leikur íslenska liðið æfingaleik
gegn Bandaríkjunum ytra.
Ísland fellur
um þrjú sæti
Jörundur Áki
Sveinsson.
Willum Þór Þórsson þjálfari karla-
liðs Vals í knattspyrnu hefur
framlengt samning sinn við Hlíð-
arendaliðið um tvö ár. Willum átti
eitt ár eftir af samningi sínum við
Val en er nú bundinn Vals-
mönnum til næstu þriggja ára.
Willum tók við þjálfun Vals fyrir
síðasta tímabil og náði frábærum
árangri með liðið sem var þá ný-
liði í Landsbankadeildinni. Vals-
menn höfnuðu í öðru sæti í deild-
inni og urðu bikarmeistarar.
Valur missti marga leikmenn fyrir
yfirstandandi tímabil og þurfti
Willum að byggja upp svo til nýtt
lið. Eðlilega fóru Valsmenn hægt
af stað á tímabilinu vegna mikilla
mannabreytinga en hafa sótt í sig
veðrið jafnt og þétt og eru í 2.
sæti deildarinnar þegar tveimur
umferðum er ólokið.
Willum hjá
Val til 2009
Thomas Gravesen hefur leikið sinn síðasta
landsleik fyrir Danmörku. Þessi mikli jaxl til-
kynnti í gær að landsliðsferli sínum væri lokið
og hann ætlaði að beina öllum kröftum sínum
að Celtic sem hann gekk til liðs við frá Real
Madrid á dögunum. Gravesen lauk því keppni
fyrir danska landsliðið í leiknum gegn Íslend-
ingum á Laugardalsvelli fyrr í mánuðinum en
þar lagði hann upp síðara mark Dana í 2:0
sigri. Það var 66. landsleikur Gravesens sem
stendur á þrítugu og gekk á dögunum til liðs
við Celtic frá Real Madrid á Spáni.
,,Ég skil sáttur við landsliðið. Ég spilaði í úr-
slitakeppni HM og á EM og öðlaðist gríðarlega
með því að spila með landsliðinu. En nú finnst
mér tímabært þegar ég er kominn til Celtic að
hætta með landsliðinu. Ég er afar þakklátur
fyrir þann tíma sem ég átti með landsliðinu og
ég vil þakka Morten Olsen landsliðsþjálfara,
öllum samherjum mínum, stuðningsmönnum
landsliðsins og öllum þeim sem að liðinu
koma,“ sagði Gravesen þegar hann tilkynnti
um ákvörðun sína.
Hefur tekið þátt í þremur stórmótum
Gravesen lék sinn fyrsta landsleik fyrir Dani
gegn Tékkum í ágúst 1998. Hann var í liði
Dana sem lék í úrslitakeppni EM 2000 og 2004
og var með liðinu í úrslitakeppni HM í S-Kóreu
og Japan 2002.
,,Gravesens verður sárt saknað í leikjunum
sem við eigum eftir að spila í undankeppni EM
enda hefur hann verið gríðarlega mikilvægur
hlekkur í liði okkar,“ segir Morten Olsen lands-
liðsþjálfari Dana. ,,Ég hef vitað það í nokkurn
tíma að hann ætlaði að hætta. Ég reyndi að fá
hann til að skipta um skoðun en því miður gekk
það ekki. Ég ber hins vegar virðingu fyrir
ákvörðun hans og óska honum alls hins besta
hjá Celtic,“ sagði Olsen.
Gravesen lauk keppni á Íslandi
Hefur ákveðið að hætta að leika með danska landsliðinu og einbeita sér alfarið að félagsliði sínu
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Bréf 41
Veður 8 Minningar 42/46
Staksteinar 8 Skák 46
Viðskipti 16 Kirkjustarf 47/50
Erlent 18/19 Staðurstund 52/59
Menning 20/21 Leikhús 58
Akureyri 25 Myndasögur 60
Árborg 25 Dægradvöl 61
Suðurnes 26 Dagbók 62/63
Landið 26 Víkverji 64
Daglegt líf 24/33 Velvakandi 64
Forystugrein 34 Bíó 62/65
Umræðan 36/41 Ljósvakamiðlar 66
* * *
Innlent
Gert er ráð fyrir að blönduð skrif-
stofu-, þjónustu- og íbúðarbyggð rísi
á svæðinu við Köllunarklettsveg og
Héðinsgötu gangi eftir skipulagstil-
laga sem kynnt var á fundi hafn-
arstjórnar Faxaflóahafna í síðustu
viku. Reisa á sex tíu til fjórtán hæða
skrifstofu- og þjónustubyggingar og
fjögur 17 hæða íbúðarhús, sem gætu
rúmað 260 íbúðir. »6
Síðustu bakvakt við björg-
unarþyrlur varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli lauk í gærmorgun og geta
nú Íslendingar eða sjófarendur við
landið engrar aðstoðar vænst úr
þessari átt. Þyrlunum verður pakkað
saman og þær fluttar úr landi.
Landhelgisgæslan á að fá tvær nýjar
þyrlur afhentar 1. okt. nk. »miðopna
Erlent
Gífurleg reiði hefur brotist út í
múslímaheiminum vegna ræðu Bene-
dikts XVI. páfa á þriðjudag, þar sem
hann tengdi saman íslamstrú og of-
beldi. Óttast er að ræðan kunni að
leiða til mótmælaöldu líkrar þeirri
sem náði hámarki í upphafi þessa
árs í kjölfar birtingar danska dag-
blaðsins Jyllands-Posten á skop-
myndum af Múhameð spámanni fyrir
um ári. »1
Íraska innanríkisráðuneytið til-
kynnti í gær áætlun um að grafa um-
fangsmikla skurði umhverfis Bagdad,
í því skyni að takmarka umferð upp-
reisnarmanna um höfuðborgina.
Jafnframt verður tugum aðleiða að
Bagdad lokað og aðgengi að borginni
takmarkað við 28 akstursleiðir undir
ströngu eftirliti öryggisvarða. » 1
Viðskipti
Hagstofa Íslands gaf í gær út
Hagtíðindi þar sem segir að hag-
vöxtur á öðrum ársfjórðungi hafi ver-
ið 2,75% að raungildi frá sama tíma í
fyrra, og sé hagvöxtur það sem af er
árinu mun minni en í fyrra. Meg-
inástæðan er mikill samdráttur í
vexti einkaneyslu. Einkaneysla jókst
um 4,6% frá því í fyrra, en árið áður
jókst hún um 12,3%. Mjög hefur
dregið úr innflutningi ökutækja. Þá
hefur vöxtur fjármunamyndunar
dregist saman. » 16
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
Stjórn enska úr-
valsdeildarliðs-
ins Arsenal vísar
á bug öllum
fregnum um að
það eigi í eða
hafi átt í við-
ræðum við er-
lenda frjárfesta
um kaup þeirra á
félaginu. Nokkr-
ir enskir fjöl-
miðlar greindu
frá fregnum í
þessa veruna í
gærmorgun og að rússneskur auð-
jöfur hefði m.a. átt í viðræðum við
stjórn Arsenal um kaup á félaginu,
þar á meðal nýjum leikvelli Arsen-
al, Emirates Stadium, sem tekinn
var í notkun í sumar.
„Stjórn Arsenal vill taka það sér-
staklega fram að ekki hefur borist
tilboð í félagið né hefur stjórnin átt
í viðræðum um hugsanlega sölu fé-
lagsins. Allar vangaveltur í þessa
veruna er fullkomlega úr lausu lofti
gripnar,“ sagði í yfirlýsingu sem
stjórnin sá ástæðu til að senda frá
sér um hádegisbilið í gær.
Arsenal er
ekki til sölu
Jens Lehmann.
Portsmouth hefur enn ekki fengið á
sig mark í ensku úrvalsdeildinni og
takist liðinu að forða því að Charl-
ton skori í dag þegar liðin eigast við
á heimavelli Charlton á The Walley
mun Portsmouth hafa haldið marki
sínu hreinu í sjö og hálfa klukku-
stund. David James stendur á milli
stanganna hjá Portsmouth en þessi
litríki markvörður gekk í raðir
Portsmouth frá Manchester City.
Margir telja sig sjá handbragð
Tony Adams á varnarleik Portsmo-
uth en Adams, sem er aðstoð-
armaður Harrys Redknapps, var
um árabil kjölfestan í vörn Arsenal
og enska landsliðsins.
,,Ég veit að einhverjir þakka mér
fyrir þennan góða varnarleik sem
liðið hefur sýnt þar sem ég spilaði
með Arsenal í mörg ár og varn-
arleikurinn var oftar en ekki að-
alsmerki liðsins. Auðvitað gleðst ég
yfir því þegar liðið fær ekki á sig
mörk en ég vil ekki þakka mér það.
Í nútímafótbolta er það allt liðið
sem sinnir varnarleiknum og það
hefur tekist vel hjá okkur,“ segir
Adams.
Handbragð
Tony Adams
Reuters
Sigurreifir Louis Saha fagnar marki með Manchester United gegn Celtic í Meistaradeildinni í vikunni ásamt Wayne Rooney og Ole Gunnari Solskjær.
Þeir verða væntanlega allir í sviðsljósinu á morgun þegar United tekur á móti Arsenal á Old Trafford.
Tveir stórleikir eru á dagskrá ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á
morgun þegar „stóru liðin“ fjögur
mætast innbyrðis. Manchester Unit-
ed fær Arsenal í heimsókn og
Chelsea tekur á móti Liverpool.
Wayne Rooney fær tækifæri til að
láta ljós sitt skína en hann hefur, eins
og Paul Scholes, afplánað þriggja
leikja bann.
Alex Ferguson, stjóri United, hef-
ur tröllatrú á að Rooney komi sterkur
til leiks en hann þótti ekki ná sér á
strik í Evrópuleiknum gegn Celtic í
vikunni.
,,Hann verður betri í leiknum við
Arsenal. Rooney er eins og hver ann-
ar knattspyrnumaður í heiminum.
Hann þarf leiki til að komast í æf-
ingu,“ sagði Ferguson en Rooney tók
ekki bara út leikbann í úrvalsdeild-
inni heldur var hann líka í banni í
tveimur leikjum í undankeppni EM
með Englendingum fyrr í mánuðin-
um vegna brottrekstursins í leiknum
gegn Portúgal á HM í sumar.
,,Þetta verður hörkuleikur eins og
ávallt þegar þessi lið mætast. Það
verða fjölmargir frábærir fótbolta-
menn inni á vellinum svo þetta ætti
að geta orðið fínn leikur.“
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, segist gera sér grein
fyrir mikilvægi leiksins við Liverpool.
,,Tímabilið er rétt að byrja en stig-
in eru afar mikilvæg og þá sérstak-
lega fyrir liðin sem hafa tapað stig-
um. Ég vil ekki afskrifa Liverpool í
baráttunni ef það tapar fyrir okkur
en það verður erfitt fyrir Liverpool ef
það gerist, sem ég auðvitað vonast
eftir,“ segir Mourinho sem hefur
fagnað sigri í öllum fjórum deildar-
leikjunum á móti Liverpool.
Rooney verður öflugur
enski boltinn
Andrew Johnson er strax orðinn kóngur á Goodison » 4
MÆTAST STÁLIN STINN
„ÉG GET EKKI SAGT HVER KASTAÐI PITSUNNI, EN
HANN VAR HVORKI ENSKUR OG NÉ FRANSKUR“
laugardagur 16. 9. 2006
íþróttir mbl.is
AÐALMEÐFERÐ í máli lögreglu-
stjórans á Selfossi gegn tveim bif-
hjólamönnum fyrir meintan utan-
vegaakstur við Hagavatn í sumar fer
fram 9. nóvember við Héraðsdóm
Suðurlands. Í gær var farið í vett-
vangsferð þar sem dómari og sak-
flytjendur ásamt ákærðu sjálfum
skoðuðu umrædd svæði þar sem lög-
reglan á þyrlu Landhelgisgæslunnar
hafði afskipti af mönnunum.
Ákærðu neita sök í málinu og hafa
fengið sér verjendur til að flytja mál-
ið fyrir dómi.
Í þyrlueftirliti í júníbyrjun voru
níu torfærumenn á bifhjólum kærðir
fyrir utanvegaakstur við Hengilinn
og Hagavatn og hafa þegar tveir
þeirra hlotið sektardóma í héraði
upp á samtals 145 þúsund krónur
fyrir brot á 17. grein náttúruvernd-
arlaga.
Lögreglan er á því að þyrlueftirlit-
ið hafi haft mjög mikil áhrif á ut-
anvegaakstur í sumar og að slík hátt-
semi hafi snarminnkað þegar
samstarf við þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar hófst. Boðar lögreglan
áframhaldandi eftirlit úr lofti í sam-
starfi við Landhelgisgæsluna.
Réttað yfir
bifhjólamönnum
Teknir fyrir utanvegaakstur við
Hagavatn í þyrlueftirliti fyrr í sumar
Ljósmynd/Kristján Árnason
Á vettvangi Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar með lögregluna innanborðs .
MARGOFT lá við árekstrum á Vest-
urgötu eftir að umferð um hana var
breytt á fimmtudag en fyrir slembi-
lukku varð aðeins einn árekstur, að
sögn varðstjóra umferðardeildar lög-
reglunnar í Reykjavík. Ökumenn átt-
uðu sig sumir alls ekki á breyting-
unum fyrr en um seinan og þær
virðast hafa komið þeim algjörlega í
opna skjöldu. Auglýsing um breyt-
ingarnar birtist á einum stað – í
Stjórnartíðindum.
Til þess að leiðbeina ökumönnum
setti lögreglan í Reykjavík upp skilti
og í gærmorgun setti Reykjavík-
urborg einnig upp fleiri skilti. Rúnar
Sigþórsson, varðstjóri umferð-
ardeildar, segir að margir þeirra sem
hafi ekið um götuna áratugum saman
hafi átt í mestu vandræðum með að
átta sig á breytingunum. Hann telur
að það hefði þurft að kynna breyting-
arnar áður en þær gengu í gildi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg er ástæðan fyrir
breytingunum sú að íbúar við Vest-
urgötu og Ægisgötu óskuðu eftir
þeim. Til að styrkja þá ósk var safnað
undirskriftum meðal íbúa og söfn-
uðust 156 undirskriftir.
Morgunblaðið/ÞÖK
Einstefna veldur vanda
ELDUR kviknaði í þaki yngri
deildar Varmárskóla í Mosfellsbæ
um miðjan dag í gær og var
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
kallað út. Stórrýmingu þurfti að
framkvæma þar sem eldurinn kom
upp á kennslutíma en engan sakaði.
Að sögn varðstjóra hjá SHS var
mikill reykur í húsinu en lítill eldur
sem var bundinn við nokkur smá-
svæði á afmörkuðum hluta hússins.
Þurftu slökkviliðsmenn að rífa
klæðningar af húsinu til að upp-
ræta eldinn og var notuð sérhönn-
uð hitamyndavél slökkviliðsins til
verksins. Slökkviliðið var um tvær
og hálfa klukkustund á vettvangi
og tók reykræsting talsverðan
tíma.
Að sögn Viktors S. Guðlaugs-
sonar skólastjóra tókst að rýma
skólann á örfáum mínútum en
áætlanir um útgönguleiðir eru í
hverri kennslustofu og brunaæfing-
ar haldnar reglulega. Kemur atvik-
ið ekki til með að hafa áhrif á
áframhaldandi skólastarf og verður
hægt að byrja kennslu aftur á
mánudag.
Um 400 nemendur voru í húsinu
þegar eldurinn kom upp og telur
slökkviliðið að rýmingin hafi gengið
eins og best verður á kosið. Grunur
er um íkveikju og er lögreglan í
Reykjavík með málið í rannsókn.
Eldur í þaki skóla
Tókst að rýma 400 manna bygginguna á örfáum mínútum
Bruni Á vettvangi við Varmárskóla
HVERFISLÖGREGLUMENN í
Reykjavík upplýstu tvö skemmd-
arverk í vikunni þar sem ungmenni
komu við sögu. Í fyrra málinu höfðu
nokkrir piltar á framhaldsskólaaldri
kveikt í grindverki en könnuðust
ekki við verknaðinn þegar á þá var
gengið. Lögreglumennirnir sáu hins
vegar við þeim og þegar yfir lauk
höfðu piltarnir viðurkennt verkn-
aðinn og héldu síðan mjög skömm-
ustulegir heim á leið að sögn lög-
reglunnar.
Í seinna málinu komu við sögu
yngri drengir sem hentu grjóthnull-
ungum í grunnskóla. Einn steinninn
braut rúðu og hafnaði inni í skóla-
stofu. Myndir náðust af athæfinu en
erfitt var að þekkja piltana af upp-
tökunni. Hverfislögreglumaður
taldi að hægt væri að þekkja þá á
klæðnaðinum og spurðist því fyrir.
Svo fór að hann fann piltana en
þeir játuðu á sig sök. Fastlega er
búist við að þeim verði gert að
bæta tjónið.
Að sögn lögreglu er lykilatriði við
lausn svona mála að hverfislöggæsl-
an þekki til aðstæðna á hverjum
stað.
Játuðu
skemmdir