Morgunblaðið - 16.09.2006, Page 24
|laugardagur|16. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Hún bragðar ekki á sykri
en töfrar engu að
síður fram meist-
ararétti. » 28
matur
John Rocha kann að vera hálf-
gerður hippi sjálfur en hann kann
samt að hanna hátískufatnað
sem fellur vel í kramið. » 32
tíska
Það er margt sem getur leynst í
venjulegri kventösku og því
kemur sér vel að í ár eiga þær
að vera stórar og miklar. » 32
töskur
Í KR-akademíunni spila allir
með; stjórnin, þjálfararnir
og knattspyrnumenn-
irnir ungu. » 26
daglegt
Það er notalegt um að litast í
aðstöðu starfsmanna á nátt-
úruleikskólanum Hvarfi, því þar
á fólki að líða vel. » 30
hönnun
Ég hef verið að sanka að mér notuðumbókum og svo verða auðvitað á boð-stólum allar nýjar íslenskar bækursem hafa komið út undanfarin ár,“
segir Ösp Viggósdóttir bókasafnsfræðingur
sem hyggst opna netbókaverslunina Harald
íkorna í byrjun október.
„Hugmyndin hefur blundað í mér í töluverð-
an tíma og undanfarin tvö ár hef ég unnið að
undirbúningi verslunarinnar. Ég er komin
með gott safn af notuðum bókum sem ég set í
gagnagrunn og svo býð ég auðvitað nýjar bæk-
ur líka.“
Gott fyrir bókaorma
– En hvar geymir þú allar þessar bækur
sem þú ætlar að bjóða á netinu?
„Þú ættir að sjá heimilið mitt. Þar geymi ég
bækurnar eins og stendur og þú getur rétt
ímyndað þér að þar er gott fyrir bókaorma að
vera.“
Ösp segir að notuðu bækurnar berist til sín
eftir ýmsum leiðum og sumir vilji einfaldlega
losna við bækur og gefi henni þær.
„Þetta eru bækur um allt milli himins og
jarðar, vasabrotsbækur, skáldskapur, fræðirit,
kennslubækur, ljóð og svo mætti áfram telja.
Ég er meira að segja með litabækur og teikni-
myndasögur.“
Ösp er bókasafnsfræðingur og segir það
nýtast sér vel í að flokka bækurnar í gagna-
grunn. En hún er líka rithöfundur og fyrsta
bókin hennar kom út fyrir síðustu jól, Hjarta-
hreinir ævidagar úlfs. Þegar hún er spurð að
því hvers konar bækur eigi helst upp á pall-
borðið hjá henni sjálfri segist hún vera alæta á
bækur þó hún viðurkenni fúslega að góð saka-
málasaga sé líklega það sem veiti henni mesta
ánægju.
Klængur sniðugi
En hvernig datt henni í hug að nefna búðina
sína Harald íkorna?
„Upphaflega var ég að hugsa um að nefna
hana Klæng sniðuga en sá í hendi mér að eng-
inn myndi taka mark á búð með því nafni. Har-
aldur íkorni var næsta val en báðir þessir kar-
akterar koma fyrir í jóladagatali sjónvarpsins
og hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér.“
Ösp vinnur þessa dagana ötul að opnun búð-
arinnar en segir að þangað til sé bókaglöðu
fólki boðið að heimsækja slóð verslunarinnar,
www.haraldur.is og hita upp með nýjum
áhugaverðum bókum sem boðnar eru með 20%
afslætti. Þar eru einnig þúsund eintök af not-
uðum bókum á sérstökum tilboðskjörum.
Þúsundir bóka
hjá Haraldi íkorna
Bækur Viðskiptavinir geta tekið forskot á
sæluna og kíkt á netverslunina.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
sd
ís
Bókaormur Ösp
Viggósdóttir ætlar að
selja bæði notaðar og
nýjar bækur á netinu.
Netbókaverslunin Haraldur íkorni verður
formlega opnuð þriðjudaginn 3. október á
www.haraldur.is.
HVER árstíð hefur sín sérkenni. Þegar húmar að á haustin
kveikjum við á ljósunum eftir bjart sumarið og látum þau loga
á myrkum vetri. Kertaljós hefur allt aðra náttúru en raflýsing,
það veitir annars konar birtu og yl. Þar sem ljós logar í rökkri
er hægt að útiloka myrkrið og einbeita sér að ljósinu, horfa í
bjartan logann, slaka á í amstri dagsins skamma stund og leiða
hugann að því sem hverjum finnst skipta máli. Slíkar ljós-
mínútur eru lífsgæði sem allir geta veitt sér.
Órafmagnaðar
ljósmínútur
Blómlegt kertapottur, 699 kr. Debenhams.
Morgunblaðið/Golli
Fjólublátt Kertastjakar 200 kr. Tiger.
Kaffiilmur Ílangur bakki, 675 kr. Byggt og búið, kerti 188
kr. Sostrene Grenes.