Morgunblaðið - 16.09.2006, Page 52
HINGAÐ til lands er kominn jap-
anski leikhópurinn Theatre du
Sygne. Hópurinn mun frumsýna
Snegla tamin (e. Taming of the
Schrew) eftir William Shakespeare
á Stóra sviði Þjóðleikhússins í dag,
laugardag, kl. 20.
Theatre du Sygne hefur sýnt
verk Shakespeares víða um heim og
hefur hópurinn áður sett upp m.a.
Kaupmanninn í Feneyjum, Makbeð
og Óþelló.
Ísland er fyrsti áfangastaður
hópsins í leikför um Evrópu þar
sem Snegla tamin verður flutt.
Heimsókn leikhópsins hingað til
lands er í tilefni þess að liðin eru 50
ár frá því Japan og Ísland tóku upp
stjórnmálasamband.
Leiksýningin er flutt á japönsku
með enskum skýringartextum.
Leikstjóri er Hisao Takase en leik-
mynd er eftir Izumi Matsuoka og
tónlist eftir Shihoko Miyaki.
Leikarar eru Shiro Arai, Hiro-
kazu Hayashi, Yohei Matsukado,
Atsuko Ogawa, Gouki Ogawa,
Motonobu Hoshino, Kazuro Yano,
Seiko Tano, Mitsutaka Tachikawa,
Ken Hojo, Yasuhiro Wakita og Iz-
umi Matsuoka.
Einn af fyrstu gamanleikjum
Shakespeares
Snegla tamin er eitt af fyrstu
verkum Shakespeares. Talið er lík-
legt að verkið, sem er gamanleikur,
hafi verið skrifað árið 1594.
Snegla sú sem um ræðir heitir
Katherina og er eldri dóttir Bapt-
ista Minola, kaupmanns frá Padua.
Hún er svo hviklynd mjög að það
Japanskur Shakespeare í Þjóðleikhúsinu
virðist engum manni hent að hafa á
henni hemil. Bianca, systir hennar,
er hins vegar andstæða Katherinu
hvað geðslag varðar og þykir hún
mikill kvenkostur sem ófáir að-
alsmenn ganga á eftir með grasið í
skónum.
Faðir þeirra systra hefur
hins vegar svarið þess eið að
gifta ekki Biöncu fyrr en
Katherina er gengin
út. Tveir af aðdáend-
um yngri systurinnar
taka því höndum sam-
an og véla um að koma
Biöncu í hnapphelduna hið
snarasta. Sagan fer svo að flækj-
ast þegar tveir ferðlangar koma í
bæinn.
|laugardagur|16. 9. 2006| mbl.is
Staðurstund
Þýsku myndlistarmennirnir
Baumgartel og Kobe sýna í
Safni fígúratíf verk sem sækja í
þýska málverkshefð. » 54
Kammermúsíkklúbburinn fagn-
ar í ár hálfrar aldar afmæli sínu.
Dagskrá afmælisárins hefst á
morgun. » 54
Ljósmyndakeppni mbl.is og
Hans Petersen hefur staðið yfir
í allt sumar. Í vikunni voru úr-
slitin kunngerð. » 56
ljósmyndir
Ríkarður Ö. Pálsson brá sér á
sinfóníutónleika. Hann segir
hvern einasta mann hafa skilað
sínu ýtrasta. » 56
dómur
Birta Björnsdóttir veltir fyrir
sér íslenskri kvikmyndagerð og
dræmri aðsókn að hérlendri
framleiðslu. » 55
af listum
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
B
ry
nj
ar
G
au
ti
Í
sýningarskrá sem fylgir sýningu Hall-
steins Sigurðssonar í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar, Hjól – Plógur – Væng-
ir, kemst listfræðingurinn Jón Proppé
svo að orði að verk listamannsins séu
„nokkuð sér á parti í jurtagarði íslenskrar högg-
myndalistar þar sem þó er allfjölbreytt flóra“.
Sjálfur vill Hallsteinn lítið gera út af orðum Jóns
um sérstöðu sína enda hógværðin uppmáluð þeg-
ar talið berst að listsköpun hans. Það er viðeig-
andi að nota sama lýsingarorð um létt og tær
listaverkin.
Verk sín vinnur Hallsteinn í málm, oftast járn en
stundum ál. Formbyggingin er naum og segir Jón
Proppé að það láti nærri að flokka þau til eins konar
minimalisma fyrir vikið. Verkin eru þrívíð – „hugsuð
frá öllum hliðum,“ með orðum Hallsteins. Öfugt við
landslagsmálara sem leitar sér að mótívum til að vinna
með segist hann sífellt vera á höttunum eftir viðfangsefnum
í ljósi forms þeirra, eitthvað sem höfði til sín út frá hinni þrí-
víðu hugsun. Það er því við hæfi að segja að hann stundi form-
stúdíur.
DNA, vængir og plógur
„Ég sá t.d. mynd í blaði af DNA-hringstiga. Ég fór eitthvað að gera út frá
því og það endaði með fjórum myndum sem eru hér á sýningunni,“ segir
Hallsteinn um viðfangsefni sín. „Svo sá ég teikningu eftir Leonardo da Vinci
af væng. Ég fór að skoða hvort ég gæti ekki gert vængi og úr urðu sjö verk.“
Hann tekur þó fram að ekki sé um stælingu á teikningu Da Vincis að ræða
heldur sé nær að tala um að hann notfæri sér viðfangsefnið hverju sinni.
„Svo sá ég eldgamlan, ryðgaðan, skakkan og skældan plóg uppi við Elliðaár-
vatnsbæinn. Hann varð kveikjan að tveimur myndum,“ bætir Hallsteinn við.
Spurður út í vinnuferlið segist hann byrja á að gera skissur að verkum
sínum í vír og að í raun eyði hann sífellt meiri tíma í þá vinnu í seinni tíð. „Þá
veit ég meira hvað ég er að gera og vil fá út úr vinnunni. Það er í raun minni-
hlutinn sem ég geri svo á endanum stærri.“
Sýningin opnar klukkan 15 í dag.
Hógværar
formstúdíur
»Hallsteinn Sig-urðsson vinnur
verk sín í málm, oftast
járn en stundum ál.
Verkin eru þrívíð, eða
eins og listamaðurinn
segir sjálfur: „hugsuð
frá öllum hliðum.“
myndlist tónlist