Morgunblaðið - 16.09.2006, Síða 55

Morgunblaðið - 16.09.2006, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 55 menning STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 lítra - 158 hestöfl, fjórhjóladrif, hiti í speglum, hraðastillir (PLUS), hiti í sætum (PLUS), hiti í framrúðu (PLUS), sjálfvirk loftkæling (PLUS), kastarar í stuðara (PLUS), sóllúga (LUX), aðgerðastýri (LUX) og leðurinnrétting (LUX).www.subaru.is Forester2.590.000,- Forester PLUS2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,- Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 461-2960 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Fyrir þennan pening færðu sjálfskiptan jeppling sem stendur sig betur en aðrir þegar kemur að aksturseiginleikum, afli, öryggi og endingu. Hann er hvorki of stór né of lítill, situr vel á vegi en hefur samt meiri veghæð en aðrir jepplingar. Hann er á svipuðu verði og venjulegir fólksbílar en þrátt fyrir það er vélin í Forester 158 hestöfl sem er meiri kraftur en í flestum dýrari jepplingum. Umboðsmenn um land allt Subaru Forester hefur verið valinn besti jepp- lingurinn 3 ár í röð af tímaritinu Car and Driver. 2.590.000,- Subaru Forester er ódýrari en Toyota RAV4, Honda CR-V og allir hinir jepplingarnir. Samt stendur hann sig betur. * HAUSTLÍNAN ER KOMIN Það vakti athygli mína í vik-unni að sú mynd sem næst-flestir kvikmynda- húsagestir hér á landi gerðu sér ferð til að sjá var íslenska heimild- armyndin Þetta er ekkert mál. Ég var ekki hissa á því að fólk gerði sér ferð í bíó til að sjá þessa áhugaverðu mynd heldur er það því miður sjaldgæft að íslenskar myndir séu þær mest sóttu í kvik- myndahúsum landsins. Nið- urstaðan hlýtur að vera sér- staklega ánægjuleg fyrir aðstandendur myndarinnar þar sem nú stendur yfir kvik- myndahátíð, sem myndin var reyndar sýnd í tengslum við, og því framboð í bíóhúsum meira en venjulega.    Þetta er ekkert mál er heimild-armynd um Jón Pál Sigmars- son. Myndin hefur að geyma jafnt minningar samferðamannanna um manninn sjálfan, upptökur frá ferli hans sem og leikin atriði frá ævi og uppvexti Jóns Páls. Myndin hefur víða mælst vel fyr- ir og gaf Sæbjörn Valdimarsson, gagnrýnandi Morgunblaðsins, myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum og sagði myndina „heiðarlega, fróðlega og yfir höf- uð bráðskemmtilega“.    Auk þess sem myndin hefurfengið góða umsögn og við- fangsefnið spennandi gefur að- sóknin vísbendingar um að ís- lenska bíógesti langi að sjá innlent efni í meira mæli. Allavega er það von mín að sú sé raunin. Einhverra hluta vegna hefur aðsókn á margar íslenskar myndir verið helst til dræm án þess að ég þori að geta mér til um ástæður þess. Örlítið hærra miða- verð getur tæpast verið raunin þar sem ég á erfitt með að ímynda mér að kvikmyndaáhugafólk setji 200 króna mismun fyrir sig þegar áhugaverðar kvikmyndir eru ann- ars vegar.    Íslenskir kvikmyndagerðarmennhafa í auknum mæli sýnt að þeir séu vel samkeppnishæfir í al- þjóðlegu umhverfi. Bara í vikunni bárust fréttir af því að Little Trip to Heaven Baltasars Kormáks og Blóðbönd Árna Ólafs Ásgeirssonar hafi báðar verið tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norð- urlandaráðs auk þess sem Blóð- bönd er meðal þeirra 49 mynda sem Evrópska kvikmyndaaka- demían hefur valið í forval til Evr- ópsku kvikmyndaverðlaunanna, sem veitt verða síðar á árinu.    Önnur íslensk mynd verðurfrumsýnd um helgina. Það er hin mjög svo vel heppnaða Börn úr smiðju Ragnars Bragasonar og leikarahópsins sem kennir sig við Vesturport. Það er von mín að ís- lenskir bíógestir láti hana ekki fram hjá sér fara. Ekkert mál, margir fyrir Jón Pál »Einhverra hlutavegna hefur aðsókn á margar íslenskar myndir verið helst til dræm án þess að ég þori að geta mér til um ástæður þess. Vinsæll Þetta er ekkert mál, heimildamynd um Jón Pál Sigmarsson, var næst aðsóknarmesta kvikmyndin í íslenskum bíóhúsum síðustu vikuna. AF LISTUM Birta Björnsdóttir birta@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.