Morgunblaðið - 06.11.2006, Side 4
4 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanaríeyja 29. nóvember í 3 vikur
á frábæru verði. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
29. nóvember
frá kr. 29.990
3 vikna ferð - síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna með 2 börn í
íbúð. Innifalið flug, gisting í 3 vikur og skattar.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó.
Innifalið flug, gisting í 3 vikur og skattar.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
LANDFESTAR sem héldu tveimur skipum við
bryggju í Hafnarfjarðarhöfn slitnuðu í veðri sem
gekk yfir höfuðborgarsvæðið í gærmorgun og
strönduðu þau á sandbakka skammt frá bryggj-
unni. Ekki er talið að tjón hafi orðið á skipunum.
Um var að ræða grænlenska togarann Ikkam-
iat og línubátinn Serene sem er í eigu Íslendinga.
Dráttarbátum tókst að losa línubátinn um tveim-
ur tímum eftir strandið en togarinn losnaði ekki
fyrr en fór að flæða að um kl. 15.
Skipin voru bundin saman og höfðu verið fest
við þriðja skipið sem lá við bryggju í Hafnarfjarð-
arhöfn. Ekki gekk að ná skipunum saman af
strandstaðnum og var því gripið til þess ráðs að
losa minna skipið frá Ikkamiat og náðist þá að
draga það af strandstað og að bryggjunni.
Landfestar orðnar lélegar?
Að sögn skipstjóra á skipi sem bundið var við
bryggju nærri skipunum tveimur voru reipin sem
héldu Ikkamiat orðin fremur léleg. Kristinn Aad-
negard yfirhafnsögumaður sagði skipið hafa legið
við bryggju í rúmlega tvö ár og þegar viðhaldi
væri ekki sinnt gæfu hlutir sig á endanum.
Tilkynnt var um óhappið um kl. 8.30 og voru þá
skipin þegar strönduð, samkvæmt lögreglunni í
Hafnarfirði. Tveir dráttarbátar frá Hafnarfjarð-
arhöfn, auk björgunarbáts og björgunarskipsins
Einars Sigurjónssonar frá Björgunarsveit Hafn-
arfjarðar, voru þegar kallaðir á vettvang. Björg-
unarmenn fóru um borð í skipin og dráttarbát-
arnir reyndu að draga og ýta skipunum á flot.
Tvö skip
slitnuðu frá
bryggju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flaut upp Grænlenski togarinn Ikkamiat sat fastur á strandstað þar til kl. 15 þegar fór að flæða að og hann flaut upp.
ÓVEÐRIÐ sem gekk yfir landið í
gær truflaði samgöngur umtals-
vert. Millilandaflug lá niðri fyrri-
part dags, svo til allt innanlandsflug
féll niður og öllum ferðum Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs var
aflýst. Seinkanir á millilandaflugi
gætu haft áhrif á flug í dag þar sem
vinna þarf upp seinkanir frá því í
gær.
Stormurinn gekk yfir Suðurnesin
snemma í gærmorgun, á versta
tíma sólarhringsins fyrir millilanda-
flugið, segir Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair. Fjór-
um vélum Icelandair sem voru að
koma frá Bandaríkjunum var vísað
til Glasgow í Skotlandi og vélar sem
fara áttu frá Keflavík biðu af sér
veðrið fram yfir hádegi.
Guðjón segir að af þeim um 500
farþegum sem enduðu í Glasgow
hafi stór hópur aðeins ætlað að
millilenda í Keflavík á leið til ann-
arra áfangastaða í Evrópu. Því hafi
verið tekin sú ákvörðun að safna
saman farþegum úr vélunum í fjóra
mismunandi hópa. Ein vél flutti svo
flesta þeirra sem ætluðu til Íslands
til Keflavíkur seinnipart dags í gær
en hinar flugu með farþega til Ósló-
ar, Stokkhólms og Amsterdam.
Þúsundir urðu fyrir töfum
Seinkanir á flugi Icelandair höfðu
áhrif á þúsundir farþega, bæði beið
mikill fjöldi í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og mikill fjöldi einnig á
áfangastöðum félagsins í Evrópu og
Bandaríkjunum. Þessi röskun gæti
haft áhrif á flug í dag en Guðjón
segir að ekki sé það samt víst. Verið
sé að reyna að koma áætlun á öllum
leiðum á. Þannig hafi einhverjir far-
þegar sem voru á leið frá Evrópu til
Bandaríkjanna verið fluttir með
öðrum flugfélögum til að liðka fyrir.
Guðjón segir það alltaf koma fyr-
ir af og til, e.t.v. einu sinni á ári eða
svo, að millilandaflugi sé frestað
vegna veðurs. Í gær var þó óvenju-
mikil seinkun á óvenjumörgum
flugleiðum meðan óveðrið gekk yfir
suðvesturhorn landsins.
Þúsundir farþega
biðu af sér veðrið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veðurofsi Í björgunarmiðstöðinni höfðu menn nákvæma yfirsýn yfir veð-
urofsann og hvernig úrkoman gekk norður og austur yfir landið í gærdag.
JÓN Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar (t.h.), stóð ásamt fleirum vaktina í
björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð frá því snemma í
gærmorgun. Þaðan var stýrt þeim gríðarlega fjölda
björgunarsveitarmanna sem fóru um höfuðborgar-
svæðið til að bjarga fjúkandi lausamunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðgerðum stýrt úr björgunarmiðstöð