Morgunblaðið - 06.11.2006, Page 12
12 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Síðumúla 13
sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í
sölu og þjónustu á
vogum.
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Omega 3-6-9
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Fjölómettaðar
fitusýrur
NNFA QUALITY
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Ný skurðarbretti
Margar gerðir
Kr. 1.995
Klapparstig 44 • sími 562 3614
ÚR VERINU
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI
● ÁVÖXTUNARKRAFA íbúðabréfa
hækkaði umtalsvert í október eða
um 40-148 punkta. Stysti flokkur
íbúðabréfa
(HFF14) hækkaði
mest og var mikill
söluþrýstingur á
markaði að því er
segir í Hálffimm
fréttum greining-
ardeildar KB
banka. „Vaxta-
kúrfa íbúðabréfa
er nú mun brattari en hún var í byrj-
un mánaðarins sem þýðir m.ö.o. að
munur milli skammtíma- og lang-
tímavaxta hefur aukist. Rekja má
miklar sviftingar á markaðnum í
október til lægri verðbólguvæntinga
næstu tvo til þrjá ársfjórðunga –
ekki síst vegna fyrirhugaðra mat-
arskattslækkana ríkisstjórnarinnar í
mars á næsta ári.“ segir í Hálffimm-
fréttum.
Verðbólguálag til 3 og 5 ára lækk-
aði umtalsvert í október eða um 30
til 70 punkta og virðast fyrrnefndar
matarskattslækkanir því hafa dreg-
ið úr verðbólguvæntingum. Verð-
bólguálag til þriggja ára stóð í 3,05%
undir lok mánaðarins. Verðbólguálag
til 5 ára fór úr 2,92% í byrjun mán-
aðarins í 2,62% undir lokin.
Krafan hækkar
● HEILDARSKULDIR ríkissjóðs hafa
lækkað úr 46% af landsframleiðslu
árið 1997 niður í um 17% á þessu
ári samkvæmt því
sem segir í frétta-
bréfi Fjár-
málaráðuneyt-
isins. Segir þar
að hafa verði í
huga að tals-
verður hluti af
lánum sem tekin
eru af hálfu rík-
issjóðs sé ætl-
aður til endurlána til Lánasjóðs
námsmanna og fleiri aðila og aukast
því samtímis kröfur ríkissjóðs á þá
aðila. Þá eigi ríkissjóður útistand-
andi verulegar skammtímakröfur í
lok hvers árs, einkum vegna skatt-
tekna ársins sem innheimtar eru ár-
ið eftir. „Með því að draga slíkar lán-
veitingar og kröfur frá
heildarlántökunum fást hreinar lán-
tökur sem gefa betri mynd af eig-
inlegri skuldabyrði ríkissjóðs og
hvernig hún hefur þróast. Á þennan
mælikvarða var skuldabyrðin um
33% af landsframleiðslu árið 1997
en lækkar samkvæmt áætlun niður í
um 4% í lok þessa árs.“
Heildarskuldir lækka
● SEÐLABANKI
Íslands hefur, í
umboði fjár-
málaráðherra,
falið Barclays
Capital, Citigroup
and Dresdner
Kleinwort að
hefja undirbúning
að lántöku á evr-
umarkaði. And-
virði væntanlegrar lántöku verður
varið að fullu til styrkingar á gjald-
eyrisforða bankans, að því er segir
í fréttatilkynningu.
Segir í tilkynningunni að fjár-
málaráðherra og bankastjórn Seðla-
banka Íslands hafi undanfarna
mánuði átt viðræður um styrkingu á
gjaldeyrisforða bankans. Umsvif
innlendra fjármálastofnana hafi
aukist mikið undanfarin ár auk
þess sem erlendir fjárfestar séu
orðnir virkir í viðskiptum á inn-
lendum fjármálamörkuðum. Þetta
gefi tilefni til styrkingar á erlendri
stöðu bankans.
Styrkja forðann
Davíð Oddsson
Eftir Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur
Mæðgurnar Ester Ólafs-dóttir og Elva BjörkEinarsdóttir starfa báð-ar við fiskvinnslu í
Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum.
Fjögur ár eru síðan Godthaab hóf
starfsemi en fyrirtækið sérhæfir sig í
vinnslu á frystum afurðum auk þess
sem þar er harðfisk- og saltfisk-
vinnsla. Í sumar hefst framleiðsla á
reyktum fiski en hjá fyrirtækinu
vinna nú um sjötíu manns.
Ester og Elva gáfu sér tíma í spjall
um fiskvinnslustarfið þrátt fyrir
miklar annir en mikil vinna hefur
verið hjá Godthaab á árinu.
Byrjaði sem sumarvinna
„Ég byrjaði að vinna í humri í
Fiskiðjunni, hjá Stebba Run frænda
mínum, þegar ég var ellefu ára,“ seg-
ir Ester þegar hún er spurð hvenær
hún hafi byrjað að starfa við fisk-
vinnslu. „Ég var auðvitað í skóla á
veturna en vann alltaf í fiski á sumrin
fram að gosi. Við bjuggum uppi á
landi í nokkur ár og fluttum aftur til
Eyja 1978 og ég held ég hafi unnið
við fiskvinnslu síðan. Ég vann hjá
Hraðfrystistöðinni sem síðan var
sameinuð Ísfélaginu og hef unnið hjá
Godthaab sl. fjögur ár. Starfshlut-
fallið hefur verið mishátt eftir að-
stæðum hverju sinni,“ segir Ester.
Elva var líka ung þegar hún fór að
vinna á sumrin, var þrettán ára þeg-
ar hún byrjaði í humarvinnslu. „Ég
hef verið í fiski með hléum og hef
meðal annars starfað í sjoppu og við
önnur verslunarstörf. Um tíma var
ég dagmamma en ég leita alltaf í fisk-
inn aftur því mér líkar vinnan mjög
vel. Ég hef sem sagt hoppað út úr
þessu starfi en kem alltaf inn aftur.“
Félagsskapurinn góður
Elva sinnir ýmsum störfum innan
fyrirtækisins og flakkar svolítið á
milli. „Það á mjög vel við mig og
vinnan er þar af leiðandi fjölbreytt og
skemmtileg. Ég er á línunni, inni á
vélum, í pappanum, hakka og
pakka,“ segir Elva og brosir sínu
blíðasta.
„Ég er á línunni, nánar tiltekið í
„fatlaða stæðinu“, af því að ég er örv-
hent, og það eru bara tvö stæði á lín-
unni sem henta svoleiðis fólki,“ segir
Ester og hlær og bætir því að hún sé
því alltaf á sínum stað.
Þegar þær eru spurðar hver sé
helsti kosturinn við að vinna í fiski
nefna þær báðar vinnutímann. „Elva
vinnur fulla vinnu en ég er í hluta-
starfi. Ég vinn frá klukkan sjö á
morgnana til klukkan eitt á daginn
og passa svo barnabörnin þar til Elva
kemur heim,“ segir Ester og lítur á
dóttur sína en Elva á tvær dætur
sem eru fjögurra og sex ára. „Já, ég
vinn til þrjú á daginn og mér finnst
mikill kostur að vera búin svona
snemma,“ segir Elva.
„Félagsskapurinn skiptir líka
miklu máli því hann er mjög góður.
Mér finnst það kostur að geta spjall-
að við vinnufélagana á meðan maður
er að vinna. Sumir geta reyndar ekki
gert hvort tveggja í einu. Daði verk-
stjóri segir stundum: „Gerið eins og
Ester, ef hún gæti þetta ekki þá
myndi hún ekkert vinna.“ Það er
ekki hægt að taka því öðruvísi en að
ég tali svolítið mikið og það fari
ágætlega saman við vinnuna hjá
mér,“ segir Ester og bætir því við að
mórallinn á vinnustaðnum sé ein-
staklega góður.
„Reyndar hefur vinnufyr-
irkomulagið breyst. Nú vinnum við í
50 mínútur og fáum pásu í 10 mín-
útur. Þetta var tekið upp í fyrrasum-
ar og mér finnst þetta svolítið stress
og maður hittir ekki alla í einu,“ segir
Ester en Elva er ekki alveg sam-
mála. „Mér finnst þetta allt í lagi og
tíminn er fljótur að líða. Fyrir mína
parta finnst mér mikill kostur að
hafa þennan hreyfanleika í vinnunni,
ég gæti ekki verið á línunni alla daga.
Það er líka yfirleitt gott að fá frí ef á
þarf að halda,“ bætir Elva við.
Viðhorfið hefur breyst
Þegar þær mæðgur eru spurðar
hvort þeim finnist fiskvinnslustörf
nægilega metin í þjóðfélaginu segja
þær það ekki vera.
„Nei, almennt ekki,“ segir Ester.
„Sumir halda reyndar að það sé hægt
að koma og fá vinnu og hlaupa svo út
og suður þegar þeim hentar. Það var
kannski hægt þegar allt var fullt af
fiski og vandræði að fá fólk til að
vinna hann. Störfum í fiskvinnslu
hefur fækkað vegna mikilla tækni-
framfara og minna framboðs á hrá-
efni. Kröfurnar eru miklu meiri og
við fiskvinnslu starfar sérhæft fisk-
vinnslufólk sem býr yfir mikilli
reynslu. Hins vegar tala margir um
að þeir vinni „bara“ í fiski, þetta er
eins konar „bara húsmóðir“-dæmi.
Staðreyndin er sú að ef maður ber
ekki virðingu fyrir vinnu sinni og
vinnuframlagi gerir það enginn. Við
erum að framleiða vöru fyrir mark-
aði þar sem gerðar eru miklar kröfur
og öllu skiptir að vel takist til. Fisk-
vinnslufólk vinnur þar af leiðandi
mikilvæg störf.“
Elva tekur undir með Ester en tel-
ur að viðhorf til fiskvinnslufólks hafi
breyst síðustu ár. „Fólk er eiginlega
hætt að spyrja hvort ég vinni í fiski,
heldur spyr frekar í hvaða frystihúsi
ég starfi.“
Ester segir að það skipti miklu að
allur aðbúnaður í frystihúsum hafi
breyst mjög mikið. „Í gamla daga
þurfti maður að fara með nesti með
sér í vinnu en nú eru þessar fínu
kaffistofur með öllu tilheyrandi. All-
ur aðbúnaður er því mjög góður.“
Elva tekur undir það og segir
skipta miklu að fyrirtækin skaffi
hlífðarfatnað eins og sloppa, húfur,
svuntur og hanska. „Maður þarf ekki
að klæða sig í einhver drusluföt áður
en maður fer í vinnu á morgnana eins
og þetta var hér áður. Vinnan er
snyrtileg enda mikið lagt upp úr
hreinlæti í matvælaiðnaði.“
Launin mættu vera hærri
Því hefur oft verið haldið fram að
fiskvinnslufólk sé láglaunastétt, ætli
sú sé raunin?
„Launin eru ekkert spes en
ábyggilega ekkert verri en hjá versl-
unarfólki,“ segir Elva og Ester tekur
undir það. „Ég held þau séu ekkert
verri en gengur og gerist í verslun og
þjónustu en auðvitað vill maður alltaf
meira. Við erum með hópbónus en ég
vildi miklu frekar hafa einstak-
lingsbónus. Það eru alltof margir
„farþegar“ í hópbónus, það er alveg
staðreynd, og viðurkennt af verka-
lýðsfélögum og öllum.“
Þær neita báðar þegar þær eru
spurðar hvort þetta sé erfiðisvinna.
„Vinnan var auðvitað erfiðari þegar
unnið var á borðum og það þurfti að
vera að lyfta bökkum þannig að þetta
er léttara síðan flæðilínurnar komu,“
segir Ester og Elva tekur við: „Mér
fannst skemmtilegra þegar það voru
borð og það var verið að taka niður
pönnur og svona. Ég vil hafa læti í
kringum þetta,“ segir Elva sem vill
vera á hreyfingu og er illa við kyrr-
stöðu.
Allt fiskvinnslufólk á kost á að taka
fiskvinnslunámskeið en að mati Est-
erar má gera enn betur. „Það mætti
bæta menntun innan starfsgrein-
arinnar og það vantar fleiri nám-
skeið. Þetta er matvælaiðnaður og
það má gera fólki betri grein fyrir
markaðsmálum og hvert afurðirnar
fara. Fólk sem er að koma inn í þetta
starf þekkir ekki nógu vel hvernig
þetta virkar. Það vantar kynningu á
starfinu og öllu sem fylgir sjávar-
útvegi. Það vantar framhald eða við-
bót við það sem hefur verið í boði,
þ.e.a.s. nánari útlistum á framleiðslu-
og markaðsmálum,“ segir Elva.
Ljósmynd/Fréttir
Hlið við hlið Mæðgurnar Elva Björk Einarsdóttir (t.v.) og Ester Ólafsdóttir starfa saman í fiski hjá Godthaab í Nöf.
Verður að bera virð-
ingu fyrir starfinu sínu
Mæðgurnar Ester og Elva Björk starfa saman í fiskvinnslu
Í HNOTSKURN
»Mæðgunum Ester og ElvuBjörk líkar vel að vinna við
fiskvinnslu og þær segja fisk-
vinnslufólk vinna mikilvæg
störf.
»Fiskvinnslustarfið þótti erfiðara þegar unnið var á
borðum en er léttara síðan
flæðilínurnar komu til sög-
unnar.
ÞETTA HELST ...