Morgunblaðið - 06.11.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 13
www.openhand.is
Með OpenHand hefur þú fullan að-
gang að tölvupósti og getur auk
þess skoðað og uppfært önnur skjöl
með farsímanum þínum. Ekki þarf
sérframleitt tæki, heldur virkar
OpenHand á snjallsímum helstu
framleiðenda.
Fáðu nánari upplýsingar um Open-
Hand á www.openhand.is.
„Ég þarf ekki lengur að taka ferðatölvuna
með mér, hef allt í símanum; tölvu-
póstinn, dagbókina, tengiliði og fleira.“
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á
Íslandi
„Lausnin er einföld, eitt tæki fyrir allar
þarfir.“
Hafsteinn Ingibergsson, Danól
ÖRUGGARA • ÓDÝRARA • SVEIGJANLEGRA
TÖLVUPÓSTUR
DAGBÓK OG FLEIRA
Í FARSÍMANN ÞINN
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
60
56
5
Skrifstofan þín á ferðinni
Farmflytjendur, tollmiðlarar og aðrir
geymsluhafar fyrir ótollafgreiddar vörur
Endurnýja þarf umsóknir um starfsleyfi fyrir vörugeymslur
Í kjölfar nýrra tollalaga nr. 88/2005 þurfa þeir sem starfrækja vörugeymslur fyrir ótollafgreiddar
vörur samkvæmt leyfi frá því fyrir gildistöku laganna hinn 1. janúar 2006 að sækja að nýju um
starfsleyfi í samræmi við nýju lögin, sbr. ákvæði til bráðabirgða í þeim. Starfsleyfi frá því fyrir
gildistöku laganna falla úr gildi 1. janúar 2007. Þetta gildir um þá sem starfrækja vörugeymslur
skipa- og flugfélaga, almennar tollvörugeymslur, tollfrjálsar forðageymslur skipa- og flugfélaga,
tollfrjálsar verslanir og frísvæði.
Leyfi verður einungis veitt lögaðilum. Leyfi til að starfrækja afgreiðslugeymslur er takmarkað við
skipa- og flugfélög sem stunda vöruflutninga milli Íslands og annarra landa og þá sem stunda
tollmiðlun, sbr. XI. kafla tollalaga.
Þeir sem veita starfsleyfi
Umsóknum um starfsleyfi fyrir afgreiðslugeymslur skipa- og flugfélaga og tollmiðlara, sbr. 88. gr.
tollalaga, skal beina til tollstjórans í Reykjavík, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, en umsóknum um
starfsleyfi fyrir tollvörugeymslur, sbr. 91. gr., tollfrjálsar forðageymslur, sbr. 96. gr., tollfrjálsar
verslanir, sbr. 101. gr., og frísvæði, sbr. 105. gr., skal beina til fjármálaráðherra, Arnarhvoli við
Lindargötu, 150 Reykjavík.
Umsókn, atriði sem þar skal greina og fylgigögn
1. Umsókn á að vera skrifleg, þar sem fram komi:
a. nöfn, kennitölur og lögheimili umsækjanda, stjórnarmanna og daglegs stjórnanda;
b. upplýsingar um þá starfsemi sem sótt er um leyfi fyrir og
c. yfirlýsing umsækjanda um að fullnægt sé eða verði þeim skilyrðum sem viðkomandi
starfsemi eru sett.
2. Fylgigögn með umsókn:
a. Greinargerð með ítarlegri lýsingu á fyrirhugaðri starfsemi og starfsskipulagi, tilhögun
bókhalds, tölvubúnaði vegna birgðabókhalds, vörslu gagna, innra eftirlit og aðstöðu til
tolleftirlits. Vegna umsókna um leyfi til reksturs tollvörugeymslu, tollfrjálsrar forðageymslu
eða frísvæðis þurfa og að koma fram nauðsynlegar upplýsingar um umfang fyrirhugaðrar
starfsemi svo unnt sé að meta fjárhæð tryggingar sem setja þurfi vegna aðflutningsgjalda
sem fyrirtækið kann að verða ábyrgt fyrir vegna starfseminnar.
Sérstök athygli er vakin á 6. tl. 91. gr. tollalaga en það skilyrði er fyrir veitingu starfsleyfis
að leyfishafi geymslusvæðis (afgreiðslugeymslu, tollvörugeymslu, tollfrjálsrar
forðageymslu, tollfrjálsrar verslunar og frísvæðis) láti tollstjóra í té án endurgjalds
fullnægjandi aðstöðu á geymslusvæðum til tolleftirlits og rannsóknar á vörum. M.a. er átt
við að geymsluhafa ber að láta í té afmarkað húsrými á geymslusvæðum með nauðsynlegum
húsgögnum og tölvutengingum til tolleftirlits og rannsóknar á vöru.
b. Teikningar af mannvirkjum og lóð, ef við á, sem ætluð eru til starfseminnar.
c. Búsforræðisvottorð og sakavottorð stjórnarmanna og daglegs stjórnanda.
Að öðru leyti er vísað í skilyrði 91. gr. tollalaga sem og önnur viðeigandi ákvæði í XIII. kafla
tollalaga.
Kóði fyrir geymslur
Við úthlutun starfsleyfis mun tollstjórinn í Reykjavík gefa hverri samþykktri geymslu kóða.
Þennan kóða skal tilgreina með hverri farmsendingu við skil á farmskrá til tollstjóra. Nánari
fyrirmæli um innihald rafrænna skeyta verða send farmflytjendum og öðrum leyfishöfum. Kóðinn
gefur til kynna raunverulegan vörslustað vöru og jafnframt vörsluábyrgð sbr. 75. til og með 83. gr.
tollalaga. Farmsendingar sem ekki tilgreina samþykktan kóða geta ekki fengið tollafgreiðslu frá og
með gildistöku þessara fyrirmæla.
Annað
Frekari upplýsingar veita Hörður Davíð Harðarson, aðaldeildarstóri, tölvupóstfang
hordur.hardarson@tollur.is, vegna umsóknar um leyfi til starfrækslu afgreiðslugeymslu, en tekju-
og lagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins vegna umsókna um starfrækslu tollvörugeymslu,
tollfrjálsrar forðageymslu, tollfrjálsrar verslunar og frísvæðis.
TVÆR bandarískar mennta-
skólastúlkur, þær Holly Jacobson and
Tessa Churchill, kunna að hafa fund-
ið leið til að draga úr orkuvandræð-
um heimsins, en þær kynntu í gær í
MIT-háskólanum uppgötvun sína á
þörungategund sem hægt er að
rækta til vinnslu lífræns eldsneytis.
Fjallað er um stúlkurnar tvær í
dagblaðinu Portland Press Herald,
en þær kunna að hafa fundið aðferð
til að framleiða meira magn lífræns
eldsneytis úr minna magni af lífrænu
hráefni en hingað til hefur tekist.
Sjö milljónir í verðlaun
Jacobson og Churchill hófu fyrir
tveimur árum að rannsaka nátt-
úrulegar fitusýrur í mismunandi þör-
ungategundum, en nýlega fundu þær
þörungategund sem framleiðir meiri
fitu á hverja matareiningu sem þör-
ungurinn innbyrðir en aðrar teg-
undir gera.
Eins og áður segir kynntu þær
rannsóknir sínar fyrir hópi prófess-
ora og fræðimanna við MIT, sem
munu bera verkefnið saman við þrjú
önnur verkefni ungmenna í árlegri
keppni sem haldin er í samstarfi við
Siemens-fyrirtækið.
Verkefni MIT og Siemens er ætlað
að vekja athygli á áhugaverðum vís-
indaverkefnum ungs fólks og til að fá
að vera með þarf unga fólkið að
skrifa vísindagrein um rannsóknir
sínar og senda forvalsnefnd.
Í fyrstu verðlaun er námsstyrkur í
háskóla að andvirði um sjö milljóna
íslenskra króna.
Orkuvandinn leystur?
Reuters
Olía Olíunotkun jarðarbúa eykst með hverju ári, en vonast er til að lífrænt
eldsneyti geti að einhverju leyti komið í staðinn fyrir venjulega olíu.
EF stefna Seðlabankans verður
áfram aðhaldssöm og stýrivextir
verða óbreyttir (14%) langt fram á
næsta ár mun það hafa neikvæð
áhrif á hlutabréfaverð hér á landi.
Þetta segir í Morgunkorni Grein-
ingar Glitnis.
„Annars vegar hefur hátt vaxta-
stig þau áhrif að það dregur úr fjár-
festingum fyrirtækja og útlánum
banka og fjármagnskostnaður
eykst. Hins vegar gerir hátt vaxta-
stig fjármögnun hlutabréfa dýrari
og peningamarkaður sem ávöxtun-
arkostur verður erfiðari fyrir hluta-
bréfamarkaðinn að keppa við,“ seg-
ir í Morgunkorninu.
Spá 20% ávöxtun
Greining Glitnis segir að þrátt
fyrir háa stýrivexti spái deildin
góðri ávöxtun á íslenskum hluta-
bréfamarkaði í ár, eða 20% á árinu.
Það samsvarar um 5% hækkun frá
núverandi stöðu fram til áramóta.
Hvað varðar vaxtaákvörðun
Seðlabankans í síðustu viku segir
greiningardeild Glitnis að óvissan í
stjórn peningamála sé mikil. Stórir
áhrifaþættir líkt og gengi krónunn-
ar eru á mikilli hreyfingu sem getur
á skömmum tíma gjörbreytt verð-
bólguhorfum og -þróun.
Því geti verið afar slungið og oft á
tíðum nær ómögulegt að segja til
um með einhverri vissu hvort
ákvörðun Seðlabankans um stýri-
vexti á hverjum tíma muni reynast
rétt þegar upp er staðið. „Af hverju
slær bankinn því á frest að hækka
vexti þegar greining hans bendir
sterklega til þess að það sé þörf á
vaxtahækkun? Er það vegna þeirr-
ar óvissu sem í greiningu hans
felst? Eða er það vegna þeirrar
miklu andstöðu sem nú er við frek-
ari vaxtahækkun? Er það kannski
hvort tveggja?“
Neikvæð áhrif vaxta
STRAUMUR-Burðarás fjárfesting-
arbanki hefur keypt ríflega 10%
hlut í sænska upplýsingatæknifyr-
irtækinu Pricer, en fyrir helgi var
tilkynnt um kaup bankans á um 45
milljónum B-hluta í sænska fyr-
irtækinu.
Næststærsti hluthafinn
Á Straumur nú 10,27% hlut í Pricer
og fer með 10,18% atkvæða á aðal-
fundi, og er næststærsti hluthafinn
í Pricer á eftir Salvatore Grimaldi,
sem fer með 11,1% atkvæða á aðal-
fundi. Samkvæmt frétt Affärs-
världen er markaðsvirði eign-
arhlutar Straums 89 milljónir
sænskra króna,
eða rúmar 840
milljónir ís-
lenskra króna.
Sonur stofn-
anda Pricer,
Fredrik Daniels-
son, er hluthafi í
Novator, fjár-
festingarfélags í
eigu Björgólfs
Thors Björgólfs-
sonar, stjórnarformanns Straums.
Fyrir átti Straumur-Burðarás
fjárfestingarbanki eignarhluti í
sænsku fyrirtækjunum Betsson,
Scribona, SEB og Saab.
Kaupir í Pricer
Björgólfur Thor
Björgólfsson