Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 15
Peking. AFP. | Kína og Afríka und-
irrituðu nýjan viðskiptasamning í
gær að verðmæti 1,9 milljarða doll-
ara, um 129,5 milljarða króna.
Samningurinn var undirritaður á
seinni degi fjölmennustu viðskipta-
og fjárfestingaráðstefnu sem haldin
hefur verið í Kína en hana sóttu leið-
togar í Kína og 48 leiðtogar Afríku-
ríkja. Á ráðstefnunni var samið um
samstarf byggt á jafnræði og gagn-
kvæmu trausti eins og það var orðað
í sameiginlegri yfirlýsingu.
Álverksmiðja í Egyptalandi
Á meðal ákvarðana er bygging ál-
verksmiðju í Egyptalandi og er
kostnaður áætlaður um 938 milljónir
dollarar, um 64 milljarðar kr. Kín-
versk fyrirtæki ætla að fara í vega-
bætur í Nígeríu fyrir um 300 millj-
ónir dollara, um 20,4 milljarða kr.,
leggja 200 milljónir dollara í kopar-
verkefni í Zambíu og 60 milljónir
dollara í vefnaðarframleiðslu í Súd-
an. Auk þess verður farið í verkefni
víðar eins og t.d. í Suður-Afríku,
Kenýu og Ghana.
Á fundinum voru ríkari þjóðir
heims hvattar til að styðja fátækustu
Afríkuþjóðirnar meira en raun ber
vitni.
Nýr við-
skiptasamn-
ingur Kína
og Afríku
París. AFP. | Víða var rafmagnslaust í
Evrópu á laugardag vegna skyndi-
legrar aukinnar rafmagnsnotkunar í
Þýskalandi í kjölfar kuldakasts og
litlu munaði að álfan yrði nær öll
myrkvuð.
Svæði í Frakklandi, Portúgal,
Austurríki, Belgíu, Hollandi og Kró-
atíu og á Ítalíu og Spáni voru í svarta
myrkri í um klukkustund. Rafmagn
fór til dæmis af í París og nágrenni
og meira en fimm milljónir manna
voru án rafmagns í Frakklandi eða
nær tíundi hluti íbúa landsins.
Köln í Þýskalandi varð fyrst til að
verða rafmagnslaus. Meira en 100
lestir með fleiri en 1.000 farþega
stöðvuðust vítt og breitt um landið.
Við rafmagnsleysið í Þýskalandi fór
rafmagn sjálfkrafa frá Frakklandi til
Þýskalands og það skapaði raf-
magnsleysi annars staðar í álfunni.
Romano Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði að þörf væri á samevr-
ópsku stjórnvaldi til að sjá um dreif-
ingu rafmagns í Evrópu. Allar þjóðir
væru öðrum háðar í þessu sambandi
og ekki væri hægt að veita hjálpar-
hönd nema með sameiginlegri
stjórn.
Mikil aukning hefur verið á raf-
magnsnotkun í Evrópu en ekki hafa
verið gerðar næganlegar endurbæt-
ur á rafmagnskerfinu og dreifing-
unni. Fyrir vikið hefur álagið oft ver-
ið of mikið, einkum í köldu og heitu
veðri. Mesta spennufallið á nýliðnum
árum var í september 2003 þegar
nær öll Ítalía og Genf í Sviss voru án
rafmagns í nær 20 klukkustundir.
Milljónir manna án
rafmagns í Evrópu
Lagos. AFP. | Virginia Etiaba tók við
stöðu fylkisstjóra í Anambra í Níg-
eríu fyrir helgi og er hún fyrsta kon-
an til að verða fylkisstjóri í landinu.
Fyrir um sjö mánuðum var Chris
Ngige, fylkisstjóri, látinn víkja og
tók Peter Obi við af honum. Hann
var síðan sakaður um fjármálamis-
ferli og þvingaður til að láta af emb-
ætti. Etiaba var aðstoðarkona hans
og vildi í fyrstu ekki taka við af yf-
irmanni sínum en lét síðan undan
þrýstingi.
Obi sætti sig ekki við ákæruna og
sagði hana glæpsamlega og ólög-
lega. Eftir að Etiaba tók við emb-
ættinu sagði hann við fréttamenn að
hann liti svo á að hann væri enn
fylkisstjóri og hún aðstoðarfylkis-
stjóri.
Loks kona
fylkisstjóri
í Nígeríu
Washington. AFP. | Samkvæmt skoð-
anakönnunum verða demókratar
sigurvegarar í þingkosningunum í
Bandaríkjunum á morgun. Spáð er
að þeir nái meirihluta í fulltrúadeild-
inni og jafnvel einnig í öldungadeild-
inni.
Repúblikanar hafa haft meirihluta
í 435 manna fulltrúadeildinni í 12 ár.
Kosið verður um öll sætin sem og 33
sæti í öldungadeildinni. Demókratar
þurfa að bæta við sig 15 sætum í
fyrrnefndu deildinni og sex sætum í
þeirri síðarnefndu til að ná meiri-
hluta á báðum stöðum. Repúblikanar
eru með 231 sæti í fulltrúadeildinni
og demókratar 201. Einn óháður sit-
ur í deildinni og tvö sæti eru laus.
Repúblikanar eru með 55 sæti í öld-
ungadeildinni, demókratar 44 og
óháðir eitt sæti. Í kosningunum
verður kosið um 18 sæti sem demó-
kratar eru með og 15 sæti repúblik-
ana. Þá verða kosnir 36 ríkisstjórar
og eiga demókratar 14 sæti að verja
en repúblikanar 22 stöður.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, á eftir tvö ár í embætti og
nái demókratar meirihluta í fulltrúa-
deildinni gera þeir honum lífið erfitt.
Samkvæmt könnun sem banda-
ríska tímaritið Newsweek birti á
laugardag eru 32% kjósenda með
hugann við stríðið í Írak, 19% leggja
áherslu á efnahagsmálin og 12%
setja aðgerðir gegn hryðjuverkum í
efsta sæti. Heilbrigðismál eru í
fyrsta sæti hjá 11% kjósenda.
Spennandi kosningar
Reuters
Frambjóðandi Claire McCaskill, frambjóðandi demókrata til öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings, í St. Louis í Missouri.
Kosið í Bandaríkj-
unum á morgun