Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 40
40 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
KONAN SEM ÉG FÓR ÚT AÐ BORÐA
MEÐ REYNDI AÐ LÁTA HANDTAKA MIG
FYRIR AÐ VERA LEIÐINLEGUR...
OG ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ EKKI
EINU SINNI ÓLÖGLEGT!
TAKTU EFTIR ÞVÍ AÐ ÞÚ ERT
EKKI EINU SINNI AÐ REYNA AÐ
HALDA FRAM SAKLEYSI ÞÍNU
LANGAR ÞIG AÐ HEYRA
SVOLÍTIÐ SÆTT SEM AÐ
SYSTIR MÍN GERÐI Í GÆR?
JÁ...
ENDILEGA
ÞETTA VAR
ÞANNIG AÐ
HÚN VAR...
SJÖ... ÁTTA...
NÍU... TÍU...
HÉR KEM ÉG!!
ALLT Í LAGI!
KOMDU MEÐ
BLÖÐIN!
ÞÚ ERT
ALLTAF AÐ
VINNA!
AF HVERJU
GETURÐU EKKI
VERIÐ MEIRA MEÐ
FJÖSYLDUNNI?
ÞAÐ ER
GÓÐ
HUGMYND
NÆST ÞEGAR ÉG KEM HEIM, ÞÁ
SKULUM VIÐ ÖLL BORÐA SAMAN
KVITTAÐU
HÉRNA
TAKK!
HVAÐ ER
ÞETTA?
EKKERT
SÉRSTAKT,
KVITTAÐU
BARA Á
ÞETTA
GRÍMUR,
ÉG SKRIFA
EKKI UNDIR
NEITT SEM
ÉG ER EKKI
BÚIN AÐ
LESA
SLEPPUM
ÞESSU
ÞÁ BARA!
KOMDU
MEÐ
ÞETTA!
ÞETTA ER
EINKUNNABÓKIN
ÞÍN ÚR
HUNDASKÓLANUM!
OG ÞÚ HEFUR
FENGIÐ Ó ALLS
STAÐAR!
NEI EKKI
ALLS STAÐAR.
ÞAÐ ER S
HÉRNA Í
SLEFA!
PÆLDU Í ÞVÍ AÐ Á SAMA TÍMA
Á MORGUN ÞÁ VERÐUM VIÐ Í
MÚSA-
VERÖLD!
ÉG VEIT
EKKI LALLI
VERÐUR EKKI SKRÍTIÐ AÐ
FARA Í FRÍ Á STAÐ ÞAR SEM
EKKERT ER RAUNVERULEGT?
ÞETTA ER SAMT FREKAR
FLOTTUR STAÐUR. ÞETTA
VERÐUR BARA GAMAN
MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ
HVAÐ VIÐ ERUM AÐ
BORGA ÞÁ ER ÞAÐ
LÍKA EINS GOTT
HÉRNA TÖKUM
VIÐ UPP
SLAGSMÁLIIN
SÍÐAN ELTI ÉG NASHYRNINGINN,
BJARGA FÖNGUNUM HANS OG SET
HANN BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
GET ÉG FENGIÐ
AÐ TALA VIÐ
NASHYRNINGINN?
ER LÖGGAN BÚIN AÐ
KOMA UPP UM MIG?
Endurmenntun Háskóla Ís-lands og Hjartaverndstanda fyrir málstofu umSameindamyndgreiningu
næstkomandi föstudag.
Vilmundur Guðnason er einn af
skipuleggjendum málstofunnar:
„Við höfum fengið hingað til lands
Mark von Bucheim sem er einn af
fremstu myndgreiningarsérfræð-
ingum Evrópu í dag og leiðir þróun
sameindamyndgreiningar í Hol-
land,“ segir Vilmundur. „Hann mun
veita okkur innsýn inn í hvar sam-
eindamyndgreining er stödd i dag,
og hvers er að vænta í framtíðinni.“
Að loknu erindi Marks von Buc-
heim verða pallborðsumræður þar
sem þátt taka, auk Vilmundar, Guð-
mundur Þorgeirsson hjartalæknir
og prófessor, Helgi Sigurðsson
krabbameinslæknir og prófessor,
Ólafur Kjartansson röntgenlæknir
og Sigurður Sigurðsson yfirgeisla-
fræðingur Hjartaverndar.
„Sameindamyndgreining byggir á
þeirri aðferð að merkja sameindir í
líkamanum s.s. með geislamerkingu.
Þetta merki er numið með þar til
gerðum nemum og þannig hægt að
staðsetja þær sameindir sem leitað
er að,“ útskýrir Vilmundur. „Sam-
eindamyndgreining hefur mun meiri
greiningarhæfni en hefðbundin
myndgreining með segulómun eða
tölvusneiðmyndum því sameinda-
myndgreining er ekki háð því að
hægt sé að finna sjáanlegar breyt-
ingar á þeim líffærum sem skoðuð
eru. Segulómun og tölvusneiðmynd-
ir nýtast ekki ein sér nema sjúk-
dómar séu töluvert langt gengnir,
og er þá hættan sú að sjúkdómurinn
sé of langt genginn til að meðferð
skili árangri.“
Vilmundur segir sameindamynd-
greiningu bjóða upp á miklar fram-
farir og spennandi möguleika í
framtíðinni: „Sameindamyndgrein-
ing gerir kleift að greina sjúkdóma
mjög snemma. Sem dæmi má nefna
að sameindamyndgreining getur
orðið mjög öflugt tæki til að stað-
setja og kanna útbreiðslu krabba-
meins í einstaklingum. Hægt er að
finna meinvörp með aukinni ná-
kvæmni áður en aðgerð fer fram og
hægt að fylgjast vel með hvernig
sjúkdómar bregðast við lyfja-
meðferð.“
Vilmundur nefnir einnig mögu-
leika í meðferð og fyrirbyggingu
hjarta- og æðasjúkdóma: „Einn
helsti vandinn við meðferð hjarta-
og æðasjúkdóma í dag er að erfitt er
að greina með venjulegum blóðmæl-
ingum hvaða einstaklingar eru í
mestri hættu. Sameindamyndgrein-
ing getur hjálpað okkur að skilja
betur þá þætti sem valdið geta
hjarta- og æðasjúkdómum og greina
t.d. samsetningu skemmda í æða-
veggjum með tilliti til hættu á
kransæðastíflu.“
Málstofa föstudagsins verður
haldin í húsakynnum Endurmennt-
unarstofnunar frá kl. 13 til 16. Mál-
stofan fer fram á ensku og er opin
öllum sem áhuga hafa á myndgrein-
ingu. Finna má nánari upplýsingar á
slóðinni www.endurmenntun.is
Læknavísindi | Málstofa um stöðu og framtíð
sameindamyndgreiningar á föstudag kl. 13
Möguleikar
myndgreiningar
Vilmundur
Guðnason fædd-
ist í Reykjavík
1954. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum
við Hamrahlíð
1979, læknaprófi
frá Háskóla Ís-
lands 1985 og
doktorsprófi í erfðafræði frá Lund-
únaháskóla 1995. Vilmundur starf-
aði sem vísindamaður við Univers-
ity College í Lundúnum frá 1995 til
2003 og dósent við Háskóla Íslands
frá 1997. Hann hafði umsjón með
stofnun erfðafræðirannsóknarstofu
Hjartaverndar 1995 og tók við
starfi forstöðulæknis rannsókn-
arstöðvarinnar 1999. Vilmundur er
gestavísindamaður í faraldsfræði
við Cambridgeháskóla. Vilmundur
er kvæntur Guðrúnu Nielsen mynd-
höggvara og eiga þau þrjá syni.
Leikarinn Russel Crowe, sem ját-aði að hafa gerst sekur um of-
beldi í Bandaríkjunum í fyrra, held-
ur því fram að ekki hefði verið gert
jafnmikið úr umræddu atviki í
heimalandi sínu, Ástralíu.
Crowe, sem er 42ja ára gamall,
segist sjá eftir því að hafa kastað
síma í hótelstarfsmann í júní í fyrra.
Í viðtali við bandarísku CBS-
sjónvarpsstöðina segir leikarinn að
bandaríska réttarkerfið bjóði upp á
misnotkun.
„Á mínum heimaslóðum hefði
jafneinfaldur ágreiningur og þetta
var verið afgreiddur með handa-
bandi og afsökunarbeiðni,“ sagði
hann.
Crowe var handtekinn eftir að
hann missti stjórn á skapi sínu á hót-
elherbergi á Mer-
cer-hótelinu í
New York er
hann átti í vand-
ræðum með að
hringja í eig-
inkonu sína sem
var stödd í Ástr-
alíu.
„Já, fjanda-
kornið! Ég er svo sannarlega með
skap,“ sagði leikarinn.
„Þú veist hvað gerist ef þú er ekki
með svoleiðis. Einn daginn ertu að
ganga úti á götu og þú bara tapar
þér,“ bætti hann við.
Crowe baðst afsökunar á atvikinu
á sínum tíma og í viðtali við þátta-
stjórnandann David Lettermen við-
urkenndi hann að það væri fátt sem
hann skammaðist sín meira fyrir en
símakastið.
Þá náði hann að komast að sam-
komulagi við hótelstarfsmanninn
sem kærði Crowe vegna atviksins.
Fólk folk@mbl.is
PALESTÍNSK dragdrottning kemur fram á
sýningu á skemmtistað fyrir samkynhneigða
karlmenn í Jerúsalem á laugardagskvöldið.
Áætlað er að halda „Gay pride“-hátíð í Jerú-
salem næstkomandi föstudag en sú áætlun
hefur vakið mjög mikla reiði hjá strangtrúuð-
um gyðingum sem búa í borginni. Nýlega áttu
sér stað ofbeldisfull mótmæli gegn hátíðinni
þar sem þrír lögreglumenn slösuðust og tutt-
ugu strangtrúaðir gyðingar voru handteknir
fyrir að kasta steinum og kveikja elda um
borgina.
„Gay pride“-hátíð í Jerúsalem
Reuters