Morgunblaðið - 06.11.2006, Qupperneq 42
42 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Borat kl. 4, 6, 8, 10 og 12 B.i. 12 ára
Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
The Devil Wears Prada kl. 8 og 10.20
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
eeeee
EMPIRE
eeeee
V.J.V. - Topp5.is
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
eeeee
„Eitt orð: Frábær“
-Heat
eeee
Empire
Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.
eee
LIB, Topp5.is „...epískt meistaraverk!“ - Salon.com
„Tveir þumlar upp!“
- Ebert & Roeper
eeeee
THE MIRROR
T.V. - Kvikmyndir.com
ÓDA
UÐL
EG
MIÐNÆ
TUR
SÝN
ING
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
HÚSIÐ ER Á LÍFI OG ÞAU ÞURFA
AÐ BJARGA HVERFINU
Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Katrín Sigurðardóttir mynd-listarmaður heldur fyrirlestur
um verk sín í Listaháskóla Íslands,
Laugarnesi, í dag, mánudaginn 6.
nóvember kl. 12.30.
Katrín hefur sýnt víðs vegar um
Bandaríkin og hefur nafn hennar
nú þegar verið skráð í alþjóðleg
uppflettirit um fremstu listakonur
samtímans.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Sýning á verkum málarans oglærimeistarans Sigurðar Sig-
urðarsonar stendur til 12. nóvem-
ber. Hér er um að ræða nokkur
myndverk sem spanna svo til allan
feril listamannsins. Óhætt er að
halda því fram að sýning á þessum
myndverkum úr dánarbúi Sigurðar
og Önnu konu hans sé fágætur við-
burður í íslenskri listasögu.
Í dag, mánudaginn 6. nóv-ember, er kvikmyndakvöld í
safnaðarheimili Kristskirkju á
Hávallagötu 16.
Sýningin hefst kl. 20. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Að þessu sinni verður sýnd sí-
gilda myndin „The Seventh Seal“
– „Sjöunda innsiglið“ (1957, 96
mín.) eftir Ingmar Bergman.
Eftir áratugalanga baráttu í
krossferðum kemur riddari
nokkur heim þar sem svarti
dauði heldur öllum í helj-
argreipum. Dauðinn sjálfur birt-
ist honum og gefur í skyn að tími hans sé allur. Riddarinn býður dauðanum
sjálfum upp á örlagaríka skák um líf sitt.
Myndin er sýnd á sænsku með enskum texta.
Tónlist
Iðnó | Jeff Buckley – Tribute-tónleikar 17.
nóv. kl. 20. Jeff Buckley var strax orðinn
einn áhrifamesti tónlistarmaður 20. ald-
arinnar þegar hann lést skyndilega 30 ára
gamall. Hann á fjölmarga aðdáendur. Fimm
af þessum aðdáendum hafa tekið sig sam-
an og skipulagt eina kvöldstund til að
heiðra minningu hans. Midi.is!
Kjarvalsstaðir | Píanónemendur Tónlistar-
skólans í Reykjavík halda tónleika á Kjar-
valstöðum þriðjudaginn 7. nóv. kl. 20. Allir
velkomnir.
Myndlist
Art-Iceland.com | María Jónsóttir sýnir í
Art-Iceland.com á Skólavörðustíg 1a frá
30. okt. til 6. nóv. Sveitarómantíkin á hug
hennar allan. Hún sýnir klippimyndir af
hestum, hundum, geitum og kindum. Einn-
ig málaða steina með dýramyndum. María
hefur haldið 10 sýningar víða um land. Allir
velkomnir.
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Arna útskrifaðist úr
Myndlistardeild LHÍ vorið 2006 og starfar
nú við myndlistina ásamt því sem hún er í
framhaldsnámi. Opið mán.–þri. kl. 10–18 og
lau. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir
með sýninguna „Puntustykki“. Verkið sem
Hanna Hlíf sýnir er um stöðu og sögu
kvenna fyrr og nú. Sýningin stendur til 1.
desember.
Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak-
sal til 12. nóvember.
Gallerí Stigur | „Vinátta“, myndlistarsýn-
ing Elsu Nielsen, stendur nú yfir í Gallerí
Stig við Skólavörðustig 22 í Reykjavík.
Sýningin stendur yfir til 17. nóvember og er
opin kl. 13–18 virka daga og kl. 11–16 laugar-
daga.
Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum
Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavíkur-
borgar. Ljósmyndirnar sýna mannlíf í
Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í daglegu
amstri. Lítil augnablik í lífi fólks á götum og
opinberum stöðum borgarinnar. Opin virka
daga kl. 11–17 og um helgar kl. 13–16.
Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur
safnað saman. Skemmtileg blanda af
gömlum munum og nýstárlegum en saman
mynda þeir heild sem gefur góða mynd af
minjagripaúrvali í Afríku. Opið virka daga
kl. 11–17 og um helgar kl. 13–16. www.gerdu-
berg.is.
Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson)
opnar sýningu á olíumálverkum og teikn-
ingum í neðri sölum Hafnarborgar laugar-
daginn 4. nóvember kl. 14.30. Baski sýnir
olíumálverk og teikningar sem tengjast Kili
og sögu Reynistaðamanna sem þar urðu
úti 1780.
Sýning Valgerðar á nýjum verkum í Aðalsal
hefur verið framlengd til mánudagsins 6.
nóvember. Sýningu hennar í neðri sölum
Hafnarborgar er lokið.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir er með
myndlistarsýningu á Kaffi Sólon. Sýningin
stendur til 24. nóv. Unnur Ýrr er með BA-
gráðu í grafískri hönnun og hefur einnig
stundað myndlistarnám í mörg ár. Í dag
starfar hún sem grafískur hönnuður.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum
Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur
bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu.
Sýning Snorra stendur til 12. janúar 2007.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf
opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís-
lensku listalífi og haslaði hún sér völl í ein-
um erfiðasta geira grafíklistarinnar, trérist-
unni. Opið alla virka daga nema mánudaga
kl. 12–17.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft-
ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í
dag. Á annað hundrað verk eftir 56 lista-
menn eru á sýningunni. Sjá nánar á www.-
listasafn.is. Sýningin stendur til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – þrjár
sýningar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar í Lista-
safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist
Sog. Viðfangsefni listamannsins er
straumvatn og sýnir hann þarna ný mál-
verk unnin með olíu á striga og rýmisverk.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Til 31.
desember.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni.
Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð á hin-
um alþjóðlega myndlistarvettvangi. Sýn-
ingin hefur farið víða um heim, m.a. til New
York og Lundúna.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan eru
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasalur Mosfellsbæjar | Grasakonan
Gréta Berg fjallar um tengsl hjúkrunar,
geðræktar og lista. Til 11. nóvember. Heil-
brigði og dramatík sálarlífsins leika um
myndirnar.
Boðið er upp á slökun á laugardögum.
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti
2, er opinn virka daga kl. 12–19 og laugar-
daga kl. 12–15 og er í Bókasafni Mosfells-
bæjar.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Þar sem var verið að vinna í salnum
var ekki hægt að setja upp allar myndirnar.
Nú verður það hægt. Árni sýnir olíu-
málverk, 70x100. Opið kl. 9–17 alla daga
nema laugardaga, en þá er opið kl. 12–16.
Allir velkomnir. www.arnibjorn.com.
Næsti bar | Bjarni Helgason hefur opnað
sýninguna Undir meðvitund og þar sýnir
hann tíu akrýlmálverk ásamt skissum og
útprenti tengdu þema sýningarinnar. Sýn-
ingin er opin á afgreiðslutíma Næsta bars
og stendur til 11. nóvember.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
Williams Thomas Thompsons stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. William er vel
þekktur listamaður í Bandaríkjunum. Sýn-
inguna kallar hann Sýnir og stendur hún til
6. nóvember. Saltfisksetrið er opið alla
daga frá kl. 11–18.
Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp-
boðs. 42 verk eftir 36 listamenn. Verkin
eru af öllum stærðum og gerðum. Sjá
www.skaftfell.is.
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda
hefðbundins veggjakrots. Sem málverk
takmarkast verkið af eðli Gallerísins Vegg-
Verks. Þannig á þetta verk, og þau sem á
eftir munu koma, styttri líftíma en hefð-
bundin málverk, því listamennirnir munu
allir nota sama rýmið. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef-
ur tekist að bera kennsl á.
Sýndar eru myndir af óþekktum stöðum,
húsum og fólki og gestir beðnir um að bera
kennsl myndefnið og gefa upplýsingar um
það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tek-
ið á móti hópum eftir samkomulagi.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borgar-
skjalasafni stendur nú yfir sýning á skjöl-
um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs-
sonar. Skjölin sem tengjast öll fjölskyldu
Hjörleifs eru flest frá um 1900 og eru mörg
þeirra glæsileg að útliti. Sýningin er opin
öllum frá 10–16, alla virka daga.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af
20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er
sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu
kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur
sett saman með sóknarnefnd og Listvina-
félagi Hallgrímskirkju. Minnst er einstakra
þátta úr byggingarsögunni og fórnfýsi fylg-
ismanna til að gera kirkjuna að veruleika.
Til. 30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
gamla presthúsinu. Opið eftir samkomu-
lagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja-
vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands – háskólabóka-
safn | Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni
frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað-
ur, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir
bera vott um. Sýningin spannar æviferil
Jónasar í máli og myndum. Sjá nánar á
heimasíðu safnsins, www.landsbokasafn.is.
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist –
sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Unnið í
samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið
laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember
kl. 14–16. Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá
öndverðu og Akureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is.
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp-
haf símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit-
símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns
Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið
og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka
daga kl. 13–16. www.tekmus.is.
Veiðisafnið, Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, íslensk og erlend skotvopn o.fl.
Opið alla daga kl. 11–18.
Sjá nánar á www.hunting.is.
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend-
ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam-
vinnu rithöfundar og myndlistarmanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku-
hönnun og Fyrirheitna landið. Veitinga-
stofa með hádegisverðar- og kaffimatseðli
er í húsinu, einnig safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handverk listfengra
kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggir
á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl-
og búningafræðings. Myndefni útsaumsins
er m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld
fyrri alda; þarna er stílfært jurta- og dýra-
skraut o.fl.
Leiklist
Kringlusafn | Fimmtudaginn 9. nóv. kl. 20
verður fjallað um leikverkið Amadeus eftir
Peter Shaffer í Borgarbókasafninu í Kringl-
unni. Hilmir Snær Guðnason, leikari í sýn-
ingunni, leikstjórinn Stefán Baldursson og
Þórunn Þorgrímsdóttir leikmyndahöfundur
ræða um vinnu leikhópsins. Verið velkomin
í bókasafnið.
Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er
hún hjartnæm fjölskyldusápa? Er hún
dramatísk og kraftmikil hestasýning? Er
hún hárbeitt ádeila? Er hún sterkar konur í
fyrsta klassa? Eða hraustir menn með
stinna rassa? Þjóðarsálin er allt þetta og
svo miklu meira. Miðasölusími 694 8900,
midasala@einleikhusid.is.
staðurstund
Myndlist
Smiðjan –
listhús - sýning
Fyrirlestur
Fyrirlestur í
Listaháskóla
Kvikmyndir
„Sjöunda innsiglið“ – kvikmynd
Bergmans í Landakoti