Morgunblaðið - 06.11.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 47
Leikarinn Robert De Niro ograpparinn 50 Cent eru í samn-
ingaviðræðum um að leika saman í
myndinni New Orleans sem er
löggumynd þar sem bakgrunnurinn
er fellibylurinn Katrín sem gekk yfir
New Orleans í Bandaríkjunum í
fyrra.
De Niro á að leika gamalreyndan
lögreglumann sem missti félaga sinn
í afleiðingum flóðanna. 50 Cent á að
leika nýjan félaga De Niro í lögg-
unni sem mun hjálpa honum að
fletta ofan af spillingu innan lögregl-
unnar.
Myndin, sem átti upphaflega að
taka upp í Los Angeles, verður tekin
upp í Louisiana í febrúar á næsta
ári.
New Orleans er byggð á handriti
eftir Eugene Hess og fjármögnuð af
Millennium Films. Leikstjóri verður
Tim Hunter sem er þekktastur fyrir
myndina River’s Edge og að hafa
leikstýrt sjónvarpsþáttunum
Deadwood, Homicide og Twin
Peaks.
Fólk folk@mbl.is Það er óhætt að segja aðsöngkonan Shakira hafi„átt“ sjöundu suðuramerísku(latin) Grammy-verðlaunahá-
tíðina sem var haldin í New
York nýlega.
Shakira fór heim með fern
verðlaun; fyrir plötu ársins og
bestu plötu poppsöngkonu fyr-
ir Fijacion Oral Vol. 1 og besta
lagið og bestu upptöku ársins
fyrir „La Tortura“ sem hún
syngur ásamt Alejandro Sanz.
Reggíhljómsveitin Calle 13
frá Puerto Rico vann til
þrennra verðlauna, m.a. sem
bestu nýliðarnir, og argent-
ínska rokkstjarnan Gustavo
Cerati fékk verðlaun fyrir
besta rokklagið og bestu rokk-
plötuna.
Meðal þeirra sem komu
fram á hátíðinni voru Ricky
Martin, Andrea Bocelli og
Shakira.
Fyrirsætan Kate Moss hrepptititilinn ,,fyrirsæta ársins“ á
breskri verðlaunahátíð tískugeirans
í gær, British Fashion Awards.
Fyrir um ári komst upp um eitur-
lyfjaneyslu Moss. Voru birtar af
henni myndir við slíka iðju og þykir
því mörgum að hún sé ekki vel að
titlinum komin.
Í kjölfar eiturlyfjahneykslisins
varð Moss af fjölda samninga við
tísku- og snyrtivörufyrirtæki en hún
virðist nú vinsælli en nokkru sinni.