Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hæg SA-læg
eða breytileg átt.
Skúrir eða
slydduél um land-
ið vestanvert, víða létt-
skýjað austan til. » 8
Heitast Kaldast
5°C -1°C
HJÓLHÝSI og sumarbústaður í
Norðfirði skemmdust þegar grjóti
rigndi yfir þau af völdum spreng-
inga á vegum verktaka í grjótnámi
þar skammt frá.
Lögreglan á Eskifirði hefur tekið
málið til rannsóknar og segir ljóst
að eitthvað hafi farið úrskeiðis við
sprengingarnar.
Tjónið átti sér stað á þriðjudag
en uppgötvaðist í gær þegar eig-
endur bústaðanna ætluðu að vitja
þeirra vegna óveðursins sem gekk
yfir landið í gær. Kom þá í ljós að
grjóti hafði rignt yfir eignirnar
með þeim afleiðingum að tvær rúð-
ur brotnuðu í hjólhýsinu og minni-
háttar skemmdir urðu á sumar-
bústaðnum að sögn lögreglunnar
sem kvað engan hafa verið í hættu
vegna atviksins.
Grjóti rigndi
yfir bústaði
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
TILBOÐ í þrjú verk sem Vegagerðin bauð út, og
voru opnuð sl. þriðjudag, benda eindregið til þess að
verkefnaskortur sé yfirvofandi hjá jarðvinnuverk-
tökum. Alls bárust 35 tilboð í verkin og voru nítján
þeirra undir kostnaðaráætlun.
Árni Jóhannsson, talsmaður verktaka hjá Sam-
tökum iðnaðarins, sagði ljóst að þessi hluti hagkerf-
isins hefði kólnað mikið. Þetta hefði verið vitað um
tíma og uppsagnir verið yfirvofandi hjá ýmsum
jarðvinnuverktökum. „Það mátti ekki dragast
miklu lengur að aflétta þessu útboðsbanni,“ sagði
Árni. Hann sagði tvennt gefa gleggsta mynd af
ástandinu í greininni. Annars vegar hvað lægstu
boð væru langt undir kostnaðaráætlun. Sú mæli-
stika væri ekki einhlít því kostnaðaráætlanir væru
ekki heilagar. Hin mælistikan, sem væri mjög af-
gerandi, væri útboðsþátttakan. „Þetta er afgerandi
merki um að lítið sé framundan hjá þessari gerð
verktakafyrirtækja,“ sagði Árni um mikla þátttöku
í fyrrgreindum útboðum Vegagerðarinnar. Nú er
sá árstími sem er hvað erfiðastur í þessari grein og
algengur skilatími á framkvæmdum.
Þrjú verk boðin út
Í frétt á vef samgönguráðuneytisins um útboðin
er vitnað í Jón Rögnvaldsson vegamálastjóra. Hann
segir niðurstöður útboðanna sýna að umsvif séu far-
in að minnka hjá verktökum. Því séu margir sem
bjóði og talsvert um tilboð undir áætlun Vegagerð-
arinnar.
Stærst verkefnanna þriggja er lagning nýs 7,7
km vegarkafla milli Ármótasels og Skjöldólfsstaða
á hringveginum á Austurlandi, auk heimreiða við
Skjöldólfsstaði og víðar. Tíu fyrirtæki buðu í verkið
og var lægsta tilboðið frá Héraðsverki 246,9 millj-
ónir króna, næstlægst bauð KNH ehf., 287,4 millj-
ónir, þá Árni Helgason ehf. 318,3 milljónir og Suð-
urverk hf. 341,5 milljónir. Kostnaðaráætlun var upp
á 360,9 milljónir. Sex tilboð yfir þeirri áætlun bár-
ust, það hæsta 547,8 milljónir.
Þá voru opnuð tilboð í 9,7 km kafla Uxahryggja-
vegar milli Sandkluftavatns og Kaldadalsvegar. Er
það malarvegur og á honum 20 m löng brú. Tólf af
nítján tilboðum voru undir kostnaðaráætlun sem
var 129 milljónir króna. Lægst bauð Borgarvirki
ehf., 78,9 milljónir, þá Nesey ehf., 91,7 milljónir,
KNH ehf. bauð 105,4 milljónir króna. Sjö tilboð
voru yfir kostnaðaráætlun, það hæsta 180 milljónir
króna.
Endurbygging og styrking Ferjubakkavegar
milli Krumshóla og Ferjubakka, alls 1,9 km, var
þriðja verkið og bárust sex tilboð í það. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á 16,9 milljónir og voru þrjú til-
boðanna undir henni. Lægst bauð Borgarvirki ehf.,
11,9 milljónir, þá Borgarverk ehf., 14,4 milljónir, og
Þróttur ehf. bauð 16,8 milljónir. Þrjú hærri tilboðin
voru á bilinu 20 til 26,8 milljónir króna.
Samdráttur í jarðvinnu
Niðurstöður nýlegra verkútboða Vegagerðarinnar eru taldar afgerandi merki
um kólnun í þeim geira hagkerfisins sem snýr að jarðvinnuverktökum
KJÖRSTJÓRN í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suðurkjördæmi ákvað í
gærkvöldi að fresta talningu atkvæða
þar sem ekki reyndist unnt að koma
kjörgögnum úr Vestmannaeyjum til
lands vegna veðurs. Talning hefst upp
úr hádegi í dag og má búast við fyrstu
tölum um sexleytið. Alls kusu 5.146 í
prófkjörinu.
Gunnar Svavarsson varð í 1. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi. Aðeins munaði 46
atkvæðum á honum og Þórunni
Sveinbjarnardóttur í efsta sætið. Þór-
unn hafnaði í 3. sætinu en Katrín Júl-
íusdóttir var kosin í 2. sætið.
Þingmennirnir Kristján L. Möller
og Einar Már Sigurðarson höfnuðu í
fyrsta og öðru sæti í póstkosningu
Samfylkingarinnar í Norðausturkjör-
dæmi en niðurstöður hennar voru
kynntar á Akureyri á laugardags-
kvöldið. Lára Stefánsdóttir varaþing-
maður lenti í þriðja sætinu. | 6 og 10
Frestuðu
talningu
vegna veðurs
HAFIST verður handa við að vinna
deiliskipulag fyrir þrjár virkjanir í
Þjórsá eftir áramót, en allar virkj-
anirnar hafa þegar staðist um-
hverfismat.
Framtíð virkjana í ánni veltur nú
á viðræðum Landsvirkjunar við
Alcan um orkukaup vegna mögu-
legrar stækkunar álversins í
Straumsvík, sem standa nú yfir.
Ekki verður sótt um virkj-
analeyfi fyrr en búið er að selja
orkuna sem frá virkjununum kem-
ur, en samanlagt er áætlað að um
255 MW geti komið frá Hvamms-
virkjun, Holtavirkjun og Urr-
iðafossvirkjun. Uppistöðulónin við
virkjanirnar verða samtals um 24
ferkílómetrar og munu bæði tún og
beitarlönd fara undir vatn verði
virkjanirnar að veruleika. | 18
Virkjanir í
biðstöðu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kemur lón? Urriðafoss í Þjórsá.
♦♦♦
♦♦♦
HUNDAR og eigendur þeirra spásseruðu niður
Laugaveginn í Reykjavík sl. laugardag. Hunda-
ræktarfélag Íslands stóð fyrir göngunni. Að
sögn lögreglu var þátttaka meiri en reiknað
hafði verið með og ljóst að fætur voru hlutfalls-
lega fleiri, miðað við fjölda þátttakenda, en dags
daglega á Laugavegi því þar eru hundar ekki
velkomnir aðra daga ársins.
Í göngunni mátti sjá hunda af mörgum gerð-
um, jafnt kjölturakka og vinnuhunda, hunda sem
aðstoða við löggæslu og hunda sem notaðir eru í
heimsóknaþjónustu Rauða krossins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölfætt á
Laugavegi
„MÉR fannst ég vera að segja frá
jólasveininum þegar ég reyndi að
sannfæra Þjóðverjana um að á end-
anum yrði sendur bíll til okkar. Það er
rosalega gott að vita það,“ sagði Logi
Ragnarsson ökumaður nýkominn til
byggða í gærkvöldi eftir rúmlega sól-
arhringsdvöl ásamt þremur Þjóðverj-
um, karli og tveimur konum, í bíl sem
festist á Kaldadal. Þau eru öll nálægt
þrítugu.
Þau höfðu verið í útsýnisferð um
Suðurland og ætluðu til Blönduóss.
Leiðin lá um Þingvelli þar sem þau
voru um kl. 15 í fyrradag og létu vita
af ferðum sínum. Ekki uppgötvaðist
fyrr en síðdegis í gær að þau höfðu
ekki skilað sér norður og þá var lög-
reglunni í Borgarnesi gert viðvart.
Hún ákvað þegar að hefja leit og fóru
björgunarsveitir úr Borgarfirði og
Grímsnesi til leitar.
Logi kvaðst hafa ákveðið að kanna
hvernig færðin væri um Kaldadal.
Þau voru á óbreyttum fjórhjóladrifn-
um Cherokee-jeppa.
Mjög hvasst en ekki kalt
„Við ætluðum allavega að fara í átt-
ina inn á Kaldadal og beygja svo niður
í byggð,“ sagði Logi. Færðin var
þokkaleg til að byrja með, en um leið
og færið versnaði ákvað hann að snúa
við. Þá festist bíllinn. „Okkur tókst að
festa okkur í fyrsta snjóskaflinum á
leiðinni. Það var klakakambur sem
lenti undir bílnum,“ sagði Logi.
Þau ákváðu að halda kyrru fyrir í
bílnum og hírðust þar meðan óveðrið
gekk yfir landið. „Það var mjög
hvasst en ekkert sérstaklega kalt.
Það var 9°C hiti mestallan tímann og
fór ekki að kólna fyrr en hvassviðrið
var gengið yfir. Hitinn var kominn í
-1°C þegar við vorum sótt. Við ræst-
um bílinn á klukkutíma fresti og hit-
uðum hann aðeins. Svo hjúfruðum við
okkur saman þess á milli,“ sagði Logi.
Með þessu móti spöruðu þau elds-
neytið og var hálfur tankur eftir þeg-
ar þau voru sótt. Þau voru með svolít-
ið nesti, aðallega sælgæti og banana,
nokkrar gosflöskur og appelsínusafa.
Þau treinuðu nestið og áttu nokkuð
eftir í gærkvöldi.
Það var svo um klukkan 19 í gær-
kvöldi og orðið aldimmt að bílljós
sáust nálgast úr tveimur áttum.
Hjálparsveitin Tintron úr Grímsnesi
fann bílinn kl. 18.59 í gær og áttu þá
björgunarsveitarmenn úr Borgarfirði
skammt eftir að bílnum. Tintron-
menn voru snöggir að kippa jeppan-
um úr skaflinum. Þeir fylgdu jeppan-
um svo að Þingvöllum og ferðalang-
arnir óku til Reykjavíkur, fegnir að
komast til byggða og – síðast en ekki
síst – heilir á húfi.
Hjúfruðu sig saman og biðu
Fjórir ferðalangar festu bíl sinn á Kaldadal og héldu þar kyrru fyrir í sólarhring