Morgunblaðið - 17.11.2006, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Multidophilus-12
12 tegundir
lifandi mjólkursýrugerla
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýnir í
kvöld nýtt leikverk, Sambúðarverki,
en höfundar eru sex heimamenn.
Níu sýningar eru áætlaðar.
Verkið samanstendur af fimm ein-
þáttungum sem eiga það sameigin-
legt að gerast í raðhúsi og það á ein-
um og sama deginum. Áhorfendur fá
að kíkja inn í fjórar íbúðir og kynn-
ast lífi íbúanna; fólki af báðum kynj-
um, á öllum aldri og með mismun-
andi bakgrunn og áherslur í lífinu.
LD leitaði í vor til átta höfunda í
byggðarlaginu vegna skrifa á ein-
þáttungum fyrir félagið. Lagt var
upp með samræmda umgjörð eða
grind sem allir unnu eftir. Sex þess-
ara höfunda skiluðu svo fimm verk-
um til félagsins. Höfundarnir eru
Lovísa María Sigurgeirsdóttir,
Freyr Antonsson, Júlíus Júlíusson,
Ingibjörg Hjartardóttir, Arnar Sím-
onarson og Sólveig Rögnvaldsdóttir.
Leikendur eru 14 og margir koma
fram í fleiru en einu hlutverki, og eru
margir þeirra að þreyta frumraun
sína á sviðinu í Ungó.
Önnur sýning verður á morgun,
laugardag, og sú þriðja á sunnudag-
inn. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir,
Þórarinn Blöndal hannar leikmynd
og Pétur Skarphéðinsson lýsingu.
Sambúðarverkir frum-
sýndir á Dalvík í kvöld
AKUREYRI
FJÓRTANDA starfsár Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands er haf-
ið. Skólatónleikar skipa stóran sess
í dagskrá vetrarins og hófust þeir í
október. Á morgun, laugardag,
verða fyrstu tónleikarnir fyrir al-
menning á starfsárinu.
Á skólatónleikunum flytur hljóm-
sveitin verk eftir hollenskt tón-
skáld, Theo Loevendie, við ævintýr-
ið um Næturgalann eftir H.C.
Andersen. Næturgalinn verður ein-
mitt fluttur á fjölskyldutónleikum á
morgun kl. 14 í Samkomuhúsinu á
Akureyri og er aðgangur ókeypis.
Aðventuveisla verður haldin í
Íþróttahöllinni laugardaginn 9. des-
ember. Hljómsveitin og knatt-
spyrnudeild Þórs halda veisluna;
dagskráin hefst með tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands.
Með hljómsveitinni koma fram
Hulda Björk Garðarsdóttir, Ólafur
Kjartan Sigurðarson og Karlakór
Dalvíkur. Á efnisskrá tónleikanna
verður jóla- og aðventutónlist. Að
tónleikunum loknum verður boðið
upp á jólahlaðborð frá Bautanum.
Þriðjudaginn 6. febrúar heim-
sækir Sinfóníuhljómsveit Íslands
Akureyri og verður með tónleika í
íþróttahúsi Síðuskóla. Á efnis-
skránni er; Jón Leifs: Galdra-
Loftur, forleikur op. 10; Sergei
Rakmaninoff: Tilbrigði um stef eft-
ir Paganini; Dímítrí Sjostakovítsj:
Sinfónía nr. 5 í dmoll op. 47. Ein-
leikari: Lilya Zilberstein og stjórn-
andi Rumon Gamba.
Strengjasveitatónleikar verða
sunnudaginn 4. mars í Akureyr-
arkirkju. Tónleikarnir eru í sam-
vinnu við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri.
Fimmtudaginn 5. apríl, á skír-
dag, verða tónleikar í Glerárkirkju.
Á efnisskrá tónleikanna er konsert
fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Max
Bruch þar sem fiðluleikarinn Ari
Þór Vilhjálmsson verður í aðal-
hlutverki. Einnig verður flutt sin-
fónía no. 5 eftir Ludwig. van
Beethoven sem nefnd hefur verið
Örlagasinfónían.
Samstarf við Kirkjulistaviku Ak-
ureyrarkirkju, tónleikar sunnudag-
inn 6. maí. Á efnisskrá er Symph-
ony no. 1 fyrir orgel og hljómsveit
eftir F.A. Guilmant og Te Deum eft-
ir A. Dvorak.
Kórastefna við Mývatn, tón-
leikar sunnudaginn 10. júní í
íþróttahúsinu Reykjahlíð. Á efnis-
skrá tónleikanna er m.a. messa eft-
ir John Rutter.
Skólatónleikar skipa
stóran sess í vetur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinsæl Gríðarlegur fjöldi fylgdist með óperutónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands og valinkunna söngvara á Akureyrarvöku í sumar.
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands að hefja
fjórtánda starfsárið
Í HNOTSKURN
»Aðalstjórnandi Sinfón-íuhljómsveitar Norður-
lands er Guðmundur Óli
Gunnarsson.
»Næturgalinn verður flutt-ur í skólum frá Ólafsfirði
og austur á Raufarhöfn. Þar
eru sjö hljóðfæraleikarar,
sögumaður og stjórnandi.
FJÖGUR ungmenni voru handtekin
á Akureyri í gærmorgun eftir að þau
brutust inn í Glerárskóla í fyrrinótt,
unnu þar miklar skemmdir og stálu
búnaði fyrir um það bil eina milljón
króna.
Skemmdir í skólanum eru metnar
á nokkur hundruð þúsund krónur.
Stolið var fimm fartölvum, tveimur
skjávörpum og ýmsu öðru.
Að sögn Daníels Snorrasonar
rannsóknarlögreglumanns vöknuðu
fljótlega grunsemdir um hverjir
hefðu verið þarna að verki og í fram-
haldi þess voru tveir piltar og tvær
stúlkur, öll um tvítugt, handtekin
heima hjá einu þeirra strax í gær-
morgun. Þar fannst allt þýfið úr
skólanum. Aðspurður játti Daníel
því að viðkomandi ungmenni væru
góðkunningjar lögreglunnar.
Stálu tækjum
fyrir milljón
í Glerárskóla
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mosfellsbær | Krónan hefur opnað
nýja verslun í Mosfellsbæ og er hún
talsvert öðruvísi en aðrar Krónu-
verslanir. „Þetta er ný stefna, annar
heimur, og svona verða Krónuversl-
anirnar í framtíðinni,“ segir Kristinn
Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar.
Nýja verslunin er skammt frá
fyrri versluninni og mun stærri eða
um 2.000 fermetrar. Að sögn Krist-
ins eru venjulega um 2.500 til 3.000
vörunúmer í lágvöruverðsverslunum
en í þessari eru um 7.000 númer.
Þegar inn er komið blasir við stór
grænmetisdeild og í horni hennar er
brauðdeild þar sem ýmsar tegundir
af brauði eru bakaðar allan daginn. Í
versluninni er stórt frystipláss, mik-
ið úrval af lífrænum vörum og 20
metra langt kjötborð. Kjötið er unn-
ið og pakkað í kældu rými á staðnum
og segir Kristinn að vegna þessa sé
hægt að bjóða upp á lægra vöruverð.
„Ferskleikinn getur ekki verið
meiri,“ segir Kristinn, en auk fersks
kjöts er boðið upp á ferskt sjáv-
arfang.
Hægt er að kaupa heitan mat í há-
deginu og á kvöldin og salatbarinn
er opinn allan daginn. Vörur eru vel
og greinilega merktar, hillumerk-
ingar eru rafrænar og afgreiðslu-
fólkið setur vörurnar í poka fyrir
viðskiptavini, en pokarnir eru á sér-
stakri snúningsgrind.
Morgunblaððið/RAX
Nýjung Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, í ávaxtadeildinni þar sem vöruframboð er mun meira en áður. Til hægri er langa kjötborðið.
Annar heimur í Krónunni
Morgunblaðið/RAX
Rými Nýja verslun Krónunnar er um 2.000 fermetrar að stærð.
Í HNOTSKURN
» Fyrstu fjórar Krónuversl-anirnar voru opnaðar í des-
ember árið 2000 og síðan hafa
fleiri bæst jafnt og þétt við.
» Krónan er á 12 stöðum ognæsta verslun verður opnuð
á Akranesi í desember.
» Krónan hefur verið í Mos-fellsbæ síðan í mars 2003 og
er nýja verslunin eins og þær
eiga að vera í framtíðinni.
Reykjavík | Tekið var tillit til athuga-
semda og settir fyrirvarar við land-
notkun næst flugbrautunum og færslu
Hlíðarfótar og gangamunna Öskju-
hlíðarganga í tillögu að breytingu á að-
alskipulagi Reykjavíkur 2001–2024
varðandi landnotkun á austursvæði
Vatnsmýrar, sem borgarráð Reykja-
víkurborgar hefur samþykkt. Breyt-
ingartillagan er nú hjá Skipulags-
stofnun sem gerir tillögu til
umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu
hennar.
Samkvæmt breytingunni á alhliða
samgöngumiðstöð að rísa norðan Loft-
leiðasvæðisins. Á svæðinu er annars
aðallega gert ráð fyrir starfsemi sem
tengist flugvellinum auk almennrar
starfsemi sem samræmist landnotkun
á miðsvæðum. „Nýtingarhlutfall nýrr-
ar uppbyggingar skal taka almennt
mið af nýtingu á Loftleiðasvæðinu og
athafnasvæði Flugmálastjórnar,“ seg-
ir í breytingartillögunni.
Breytingin gerir ráð fyrir að ganga-
munni fyrirhugaðra Öskjuhlíðarganga
færist örlítið norðar. Stofnstíg sem
liggur undir Öskjuhlíð er hnikað að-
eins til vegna breyttrar legu ganga-
munna og er gert ráð fyrir göngubrú/
undirgöngum við Flugvallarveg. „Í
samræmi við deiliskipulag Hlíðar-
endasvæðis og göngubrú á nýrri
Hringbraut, er væntanlegum stofnstíg
norður af Flugvallarvegi hnikað til
vesturs þannig að hann liggi með Hlíð-
arfæti. Þessi færsla Hlíðarfótar og
gangamunna Öskuhlíðarganga er sett
fram með fyrirvara um niðurstöður
hugmyndasamkeppni um heildar-
skipulag Vatnsmýrar, niðurstöður út-
tekta samstarfsnefndar ríkis og borg-
ar um Reykjavíkurflugvöll og
endanlega ákvörðun um framtíð flug-
vallarstarfsemi í Vatnsmýri.“
Fyrirvarar
settir við
landnotkun