Morgunblaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Staksteinar 8 Viðhorf 32
Veður 8 Umræðan 32/35
Úr verinu 14 Minningar 36/43
Viðskipti 11/18 Leikhús 50
Erlent 19 Myndasögur 52
Menning 20/21, 46/52 Dagbók 53/57
Höfuðborgin 22 Bíó 54/57
Akureyri 22 Staður og stund 54
Austurland 23 Víkverji 56
Landið 23 Velvakandi 56
Daglegt líf 24/28 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Fjárfestingafélögin CVIL og
Bivideon, sem að stærstum hluta eru
í eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, hafa selt eignarhlut sinn í
tékkneska fjarskiptafyrirtækinu
CRa fyrir jafnvirði 120 milljarða
króna. Ætla má að söluhagnaður
Björólfs gæti numið um 56 millj-
örðum króna. » Forsíða
Ríflega 2.500 fólksbifreiðar í um-
ferðinni eru óvátryggðar, sam-
kvæmt upplýsingum frá Umferð-
arstofu, en alls eru óvátryggð
ökutæki í umferðinni 3.640 talsins.
Fleiri tjón hafa verið skráð af völd-
um óvátryggra ökutækja á þessu ári
en allt árið í fyrra. Yfirlögregluþjónn
í Reykjavík segir eftirgrennslan eft-
ir óvátryggðum ökutækjum tíma-
freka og oft árangurslitla. » 6
Tveir karlmenn á fertugsaldri
voru dæmdir í sjö ára fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til
innflutnings á 11,9 kg af afar sterku
amfetamíni til landsins. Mennirnir
komu til landsins með ferjuni Nor-
rænu í sumar og voru handteknir
eftir tollskoðun. » 4
Gert er ráð fyrir að ákvæði í sam-
keppnislögum um ábyrgð ein-
staklinga verði skýrð nánar sam-
kvæmt frumvarpi sem nefnd á
vegum iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra hefur skilað ráðherra. Frum-
varpið verður væntanlega lagt fyrir
ríkisstjórn fljótlega. » Miðopna
Erlent
Um 160 manns týndu lífi í Bagdad
í gær þegar fjórar bílsprengjur
sprungu í Sadr-borg, einu helsta
hverfi sjíta í borginni. Er um að
ræða mannskæðasta hryðjuverkið í
landinu frá því Bandaríkjamenn réð-
ust þar inn í mars 2003. Sjítar svör-
uðu strax fyrir sig með því að láta
sprengjum rigna yfir nálægt hverfi
súnníta og líklegt þykir, að þeir eigi
eftir að leita meiri hefnda. Nouri al-
Maliki, forsætisráðherra Íraks, kom
fram í sjónvarpi í gærkvöld og skor-
aði á landsmenn að standa saman á
þessum erfiðu tímum. » Forsíða
Viðskipti
Sparisjóðabanki Íslands, sem
hefur verið í eigu sparisjóðanna í 20
ár, hefur fengið nafnið Icebank og
stefnt er að skráningu í Kauphöll Ís-
lands árið 2008. » 15
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt nítján ára pilt, Arnar Val
Valsson, til fimm ára fangelsisvistar
fyrir tilraun til manndráps, þjófnað
og tilraun til nytjastuldar. Honum er
að auki gert að greiða fórnarlambi
sínu 1,7 milljónir kr. í skaðabætur og
1,6 milljónir kr. í sakarkostnað.
Ákærða var gefið að sök að hafa í
maí sl. stungið fórnarlamb sitt með
hnífi neðarlega í bakið hægra megin,
með þeim afleiðingum að það hlaut
lífshættulegan áverka en hnífurinn
gekk inn á milli hryggjartinda, inn í
mænugöng og skaðaði taugar. Af-
leiðingar hnífstungunnar til lengri
tíma eru m.a. skert geta til að
stunda kynlíf, minnkaður máttur og
skyntap í vinstri fæti. Miklar líkur
eru taldar á því að svo verði ævi-
langt.
Ákærði játaði sök en neitaði því
fyrir dómi að hafa ætlað að valda
fórnarlambi sínu líkamstjóni. Í nið-
urstöðu dómsins kemur hins vegar
fram að yfir allan vafa sé hafið að
beinn ásetningur hafi verið fyrir
hnífstungunni og hún til þess fallin
að binda enda á líf fórnarlambsins.
Héraðsdómur var fjölskipaður og
ásamt Sveini Sigurkarlssyni dóms-
formanni sátu í dóminum Guðmund-
ur L. Jóhannesson héraðsdómari og
Halldór Björnsson settur héraðs-
dómari.
Sigríður J. Friðjónsdóttir sak-
sóknari sótti málið af hálfu ákæru-
valdsins og Hilmar Baldursson hdl.
varði manninn.
Stakk fórnar-
lamb sitt í bakið
Nítján ára piltur dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir tilraun til manndráps
Í HNOTSKURN
» Fórnarlambið hlaut allt að15 cm langan skurð sem náði
niður í vöðvalög. Töluverðu afli
var því beitt við stunguna.
» Ef dregist hefði að komafórnarlambinu undir lækn-
ishendur er fullvíst að það hefði
látist af sárum sínum.
KARLMAÐUR var handtekinn á
Akureyrarflugvelli í gærmorgun
þegar hann hugðist fara með sex
mánaða son sinn í flugi þaðan til
Kaupmannahafnar. Foreldrar
barnsins eiga í forsjárdeilu skv. upp-
lýsingum blaðsins. Móðurinni hefur
verið úrskurðað forræði af Héraðs-
dómi á meðan málið er fyrir dómi en
maðurinn fékk að vera með syni sín-
um um stund fyrir nokkrum dögum.
Lögreglu barst á laugardag beiðni
frá barnaverndarnefnd vegna þess
að talið var að faðirinn hefði numið
barnið á brott. Í gærmorgun barst
lögreglu svo formleg beiðni um af-
skipti af málinu. Var faðirinn hand-
tekinn á flugvellinum sem fyrr segir.
Hugðist nema sex mán-
aða son sinn úr landi
„MÉR finnst fínt
að honum verði
veitt frelsi,“ sagði
Sigurbjörg
Sandra Péturs-
dóttir, 12 ára
Grundfirðingur,
sem í dag fær það
verkefni að sleppa
út í náttúruna haf-
erni sem hún
bjargaði úr háska
í sumar. Haförninn hafði lent í vand-
ræðum, var óflugfær og hrapaði ofan
í Kirkjufellslón. Sigurbjörg óð út í
lónið og dró örninn upp úr. Hún fékk
það verkefni að nefna örninn sem
hlaut nafnið Sigurörn.
Sigurerni var nýverið þyrmt þegar
ákvörðun var tekin um að farga 56
fuglum í Húsdýragarðinum en sýni
úr fjórum hænsnum reyndist jákvætt
vegna mótefna gegn vægum teg-
undum af fuglaflensu af H5-stofni.
Erninum verður sleppt eftir há-
degi ofan við grunnskóla Grund-
arfjarðar og á Sigurbjörg Sandra von
á að kennarar skólans gefi nem-
endum frí frá kennslustund til að
fylgjast með Sigurerni endurheimta
frelsi sitt.
Verður feg-
inn frelsinu
Sigurbjörg Sandra
Pétursdóttir
MIKLAR hækkanir hafa orðið á
áburði en á vef Landssambands kúa-
bænda er greint frá því að verðskrár
áburðarsala séu komnar út.
Þannig munu allar áburðarteg-
undir frá Yara hafa hækkað milli ára
um 17%. Sé litið lengra aftur í tím-
ann en til nóvember á síðasta ári
hafa einstakar áburðartegundir
hækkað um allt að 29% frá árinu
2004. Fyrir meðalbú þýðir þetta út-
gjaldaaukningu upp á 100 þúsund
krónur að lágmarki, segir á vef LK.
Miklar hækk-
anir á áburði
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir af-
mælisrit Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
♦♦♦
HÚSVERÐIRNIR í Austurbæjarskóla sýndu mikla fyr-
irhyggju er þeir létu hreinsa snjóinn af húsþakinu,
þannig að hann félli ekki niður á nemendur og aðra
vegfarendur á skólalóðinni. Í hlákunni getur fallandi
klaki verið stórhættulegur, ekki síst þegar hæðin er
mikil eins og í þessu tilviki í skólanum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fyrirhyggjan í öndvegi