Morgunblaðið - 24.11.2006, Side 24

Morgunblaðið - 24.11.2006, Side 24
STÖÐUGT fleirum Norðmönnum finnst í lagi að verða af jólagjöf renni andvirði hennar í staðinn til hjálparsamtaka. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir Rauða krossinn í Noregi. Að því er fram kemur á vefsíðu Dagsavisen vilja 73 prósent Norðmanna gjarnan afsala sér jólagjöfum í stað peningagjafar sem rynni til hjálparsamtaka. Þetta gætu verið jákvæðar fréttir fyrir þá sem eru uppiskroppa með hugmyndir fyrir jólagjafir eða hafa kaupæði jólanna á hornum sér. „Gjöf til hjálpar- samtaka gæti verið pottþéttasta jólagjöfin,“ segir að- alritari norska Rauða krossins, Trygve G. Nordby. „Það á sérstaklega við um gjafir til konunnar, kær- ustunnar eða systur þinnar,“ bætir hann við. Þar gæti hann hitt naglann á höfuðið því fleiri konur en karlar voru hrifnir af hugmyndinni um góðverk í jólagjöf. 77 prósent þeirra vildu gjarnan ávísun stílaða á hjálparsamtök í gjöf á aðfangadag. Í tengslum við könnunina opnaði norski Rauði krossinn vefsvæðið www.julegavermedmening.no þar sem hægt er að kaupa jólagjafir með hugsjón, eins og súpu til handa fátækum börnum í Rússlandi. Í staðinn fær gefandinn sent þakkarkort sem hægt er að merkja vinum eða ættingjum og senda í pósti eða leggja undir jólatréð. Vilja góðverk í jólagjöf Morgunblaðið/RAX |föstudagur|24. 11. 2006| mbl.is daglegtlíf Æ fleiri konur sjást nú skarta handprjónuðum og oft ísaum- uðum handstúkum sem eru hafðar um úlnliðina. » 26 tíska Steingrímur Sigurgeirsson gagnrýnir veitingahúsið Deco sem er til húsa í Austurstræt- inu. » 29 sushi Margir eru farnir að huga að jólabakstri og hér eru tvær góð- ar uppskriftir að hnetukökum og súkkulaðibitaköku. » 29 kökur Það er ýmislegt um að vera um helgina, tónleikar, jólamarkaður og búið er að opna jólaþorpið í Hafnarfirði. » 26 helgin Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir gefur lesendum uppskrift að nautalund, kartöflugratíni og heimalöguðum ís. » 28 matur ÁThorsplaninu í Hafn-arfirði standa nú tuttugulítil jólahús og jólatrésem umlykja húsin bíða þess að öðlast nýtt líf. 800 leik- skólabörn mæta í dag til að skreyta trén en Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun, 25. nóv- ember, kl. 12 og þar með eru tendruð ljósin í fjórða sinn í þorp- inu. Arna Kristín Einarsdóttir er verkefnastjóri Skrifstofu menning- ar- og ferðamála í Hafnarfirði sem stendur að Jólaþorpinu og hefur ýmsum hnöppum að hneppa þessa dagana. Fyrir utan skipulagningu verkefnisins er Arna á lokasprett- inum við að klára meistararitgerð. „Ef allt gengur að óskum útskrifast ég með meistarapróf í mennta- og menningarstjórnun frá Við- skiptaháskólanum á Bifröst nk. febrúar,“ tjáir Arna blaðamanni og sér fram á ritgerðarsmíð um helgina. Hún er auk þess flautu- leikari hjá hljómsveit Íslensku óperunnar og vinnur einnig sjálf- stætt. „Ég spila þar af leiðandi á mörgum tónleikum og það er alltaf mikið að gera á aðventunni. Mjög gaman er að spila í Langholts- kirkju en aðventutónleikar kórsins eru orðnir hluti af jólunum hjá mér, þá koma jólin. Tónleikarnir eru allt að fernir talsins og alltaf fullt út úr dyrum. Og þó að ég sé að spila nýtur maður hverrar stundar. Mér finnst mjög yndislegt að fara á kórtónleika og sinfón- íutónleika.“ Þakkar fyrir hverja stund með fjölskyldu sinni Það er sem sagt „alveg brjálað“ að gera hjá Örnu og þegar þannig stendur á langar hana helst að geta átt góða stund með fjölskyldu sinni. „Þá nýtur maður og þakkar fyrir hverja stund sem maður á með fjöl- skyldunni. Maður þarf sérstaklega á samverunni að halda í skamm- deginu. Það hvílir hins vegar mest á mér að ljúka ritgerðinni en að sjálfsögðu ver ég tíma einnig í Jóla- þorpinu um helgina. Ég byrja laug- ardagsmorguninn á því að kenna frábærum nemendum mínum á flautu í Tónlistarskóla Reykjavíkur en þar næst bruna ég til Hafn- arfjarðar til að stýra Jólaþorpinu. Ég ætla þrátt fyrir allt að gefa mér tíma til að elda góðan mat á laugardagskvöldinu en kvöldmat- urinn er hálfgerð helgistund á mínu heimili. Við slökkvum á útvarpi og sjónvarpi, spjöllum saman og förum yfir daginn. Oft eru þetta einu stundirnar sem allir hittast og við njótum þess. Eftir þessa löngu törn ætlum við svo að stinga af á jólunum og leita til heitari landa. Við förum í lang- þráð frí til Kanaríeyja en þetta verður í fyrsta skipti sem yngsti fjölskyldumeðlimurinn fer til út- landa og við erum öll mjög spennt,“ segir Arna og er flogin á vit æv- intýraþorpsins. » Mælt með | 26 Morgunblaðið/Golli Heima Arna Kristín Einarsdóttir, flautuleikari og verkefnastjóri Jólaþorpsins, ásamt litla manninum á heimilinu, Hilmari Starra, 2 ára. Arna er önnum kafin þessa dagana en nýtur hverrar stundar sem hún á með fjölskyldunni. Kvöldmaturinn hálfgerð helgistund Morgunblaðið/Ómar Af gleði Blik var í augum barna í Jólaþorpinu í Hafnarfirði í fyrra. Njótið samveru með fjölskyldunni í skammdeginu. Heimsækið Jólaþorpið í Hafnarfirði, farið t.d. á jólaball með Gunna og Felix á sunnudaginn. Takið góðan tíma í að elda mat, kveikið á kertum og sötrið smá hvítvín. Farið að sjá nýjustu James Bond-myndina. Daniel Craig er frábær leikari. Sækið ljúfa tónleika. Fáið ykkur góðan tebolla sem er, eins og Englendingar segja, svar við öllu. Arna mælir með

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.