Morgunblaðið - 24.11.2006, Síða 46
|föstudagur|24. 11. 2006| mbl.is
staðurstund
Ingveldur Geirsdóttir fjallar um
bókakaffihús, þar sem hægt er
að skoða bækur og blöð í friði og
drekka rjúkandi kaffi. » 49
af listum
Keppt verður í rappi og rímum á
Rímnaflæði í félagsmiðstöðinni
Miðbergi í Efra-Breiðholti í
kvöld. » 50
fólk
Út eru komnar þrjár nýjar ís-
lenskar plötur sem taka höf-
undarverk annarra og gera
þeim skil upp á nýtt. » 51
tónlist
Dagur Kári Pétursson hefur
hlotið tvenn dönsk kvikmynda-
verðlaun á árinu. Hann vinnur
nú að nýrri mynd. » 51
kvikmyndir
Gísli Árnason gefur nýjum
geisladiski Möggu Stínu með
lögum Megasar fjórar stjörnur
af fimm mögulegum. » 53
plötudómur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Útskriftarárgangur leiklistardeildarListaháskóla Íslands frumsýnir íkvöld leikritið Blóðbrúðkaup eftirF.G. Lorca.
Blóðbrúðkaup er hin klassíska saga óleysan-
legra átaka ástríðna og hefða. Ung stúlka er
lofuð eigulegum pilti, en hjarta hennar til-
heyrir enn fyrrum unnusta sem er giftur ann-
arri konu. Á brúðkaupsdegi stúlkunnar hleyp-
ur hún á brott með unnustanum fyrrverandi út
í skóg. Brúðguminn og fjölskylda hans fylgja
fast á hæla parsins í leit að hefnd og dauðinn
virðist óumflýjanlegur.
Til að leikstýra þessu verki var fengin til
landsins danski leikstjórinn Kamilla Bach
Mortensen sem er aðeins 29 ára. „Ég lauk
námi í leikstjórnun seinasta sumar í Dan-
mörku. Ég þekki Egil Heiðar Anton Pálsson,
hann sá sýningar sem ég setti upp í Danmörku
og vildi að ég kæmi til Íslands og leikstýrði,“
segir Kamilla sem blaðamaður hitti baksviðs í
Borgarleikhúsinu eftir æfingu á Blóðbrúð-
kaupi. „Ég hef sett upp heilmikið af verkum í
Danmörku bæði með nemendum og atvinnu-
leikurum en Blóðbrúðkaup er mitt fyrsta verk-
efni sem atvinnuleikstjóri. Það er gott að vinna
með leiklistarnemum svona í fyrsta skipti utan
skólans. Með þeim er oft hægt að prófa aðra
hluti, þeir eru oft frjálsari en atvinnuleikarar
og frekar til í tilraunastarfsemi.“
Ljóðrænn raunveruleiki
Það kom ekki annað til greina hjá Kamillu
en að slá til þegar starfið á Íslandi bauðst. „Ég
hugsaði auðvitað; hvernig á ég að leikstýra
leikriti sem er á tungumáli sem ég kann ekki,
en það hefur ekki verið vandamál. Ég leikstýri
á ensku og ég skil leikritið þótt ég skilji ekki
orðin í textanum.“
Aðspurð hvernig leikrit Blóðbrúðkaup er
verður Kamilla hugsi. „Þetta er ljóðrænn
raunveruleiki, fallegur texti og einföld saga.
Það er þungt, hreint og beint og sterkt með
ævintýrablæ. Þetta er harmsaga um ástir og
hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur
grimmdarverk og fávisku ætt fram af ætt,
mann fram af manni jafnvel þó að allir viti að
það endi aðeins með blóðbaði,“ segir Kamilla
og bætir við að leikritið gerist í fortíðinni. „Það
gerist á fyrri helmingi tuttugustu aldarinnar.
Þótt við séum öll ung sem komum að verkinu
þá staðfærðum við það ekki og gerðum nú-
tímalegra. Við héldum í klassíkina og vorum
heiðarleg, ég vil enga tilgerð.“
Samstiga leikarar
„Þeir hjá Listaháskólanum vildu að ég setti
upp klassískt verk og ég valdi Blóðbrúðkaup
því þetta er einföld saga með flóknu formi. Ég
endurskrifaði handritið heilmikið um leið og
ég leikstýrði, mér fannst danska handritið að
leikritinu betra en það íslenska svo ég hef
breytt texta, atriðum og skrifað persónur út
auk þess að skrifa sögumenn inn. Við vorum
þannig séð að endurgera leikritið meðan við
æfðum það.“
Kamilla segir leikarahópinn mjög góðan og
samstiga og að Blóðbrúðkaup hafi verið gott
leikrit með tilliti til þess að allir hafi fengið góð
hlutverk. „Þau eru öguð og gera þetta af
ástríðu. En ég finn að þau eru ennþá nem-
endur sem eru að springa út í að vera alvöru
leikarar.“
Nokkur tónlist er í verkinu en um hana sá
Egill Guðmundsson nemi í tónlistardeild
Listaháskólans. „Það er heilmikið af tónlist og
söng í verkinu. Börkur Jónsson sá svo um leik-
mynd og búningahönnun og hann þykir mér
virkilega fær í sínu starfi.“
Kamilla kann vel við sig á Íslandi og væri til
í að koma aftur til að leikstýra en hún ætlar
fyrst að koma næsta sumar sem ferðamaður til
að skoða landið betur. Vert er að spyrja hana
að lokum hvort frumsýningarskjálfti sé byrj-
aður að gera vart við sig. „Ég er ekkert stress-
uð, vona bara að allt fari vel.“
Blóðbrúðkaup er frumsýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins í kvöld kl. 20, sýningar
standa til 10. desember.
Leikhús | Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands sýnir Blóðbrúðkaup í Borgarleikhúsinu
Óleysanleg átök ástríðna og hefða
Morgunblaðið/Ásdís
Hópurinn Leiklistarnemar Listaháskóla Íslands sem taka þátt í Blóðbrúðkaupi ásamt Kamillu Bach Mortensen leikstjóra sem er fyrir miðju.
Blóðbrúðkaup Harmsaga um ástir og hefndir. Verkið segir frá ungri stúlku sem er lofuð eigu-
legum pilti en hjarta hennar tilheyrir enn fyrrverandi unnusta sem er giftur annarri konu.
Höfundur: Frederico Garcia Lorca
Þýðing: Byggt á þýðingu Hannesar Sig-
fússonar
Leikstjóri: Kamilla Bach Mortensen
Leikarar: Anna Svava Knútsdóttir,
Bjarni Snæbjörnsson, Hallgrímur Ólafs-
son, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Magnús
Guðmundsson, Sara Marti Guðmunds-
dóttir, Sigrún Huld Skúladóttir, Tinna
Lind Gunnarsdóttir og Vignir Rafn Val-
þórsson.
Leikmynd og búningar: Börkur Jónsson
Ljós og tæknistjórn: Egill Ingibergsson
Tónlist: Egill Guðmundsson
Blóðbrúðkaup