Morgunblaðið - 07.12.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 19
ERLENT
jólapakkinn!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/D
A
S
35
13
8
11
/0
6
Aðrir möguleikar á aðalvinningum í desember:
14. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
21. des. er 3 millj. eða 6 millj. á tvöfaldan
29. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
Það er því til mikils að vinna
fyrir aðeins þúsund krónur.
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
Kauptu miða í DAS, á þúsund kall, fyrir 7. des.
Þú gætir unnið harðasta jólapakkann í ár.
Hummer H3
+ 5 milljónir
í skottinu
ef þú átt
tvöfaldan
miða!
Harðasti
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
RÚSSAR ættu að efna til eigin
rannsóknar á dauða njósnarans
fyrrverandi, Alexanders Lítv-
ínenkos, í London fyrir skömmu,
sagði aðstoðardómsmálaráðherra
Rússlands í gær. Ráðherrann, Vla-
dímír Kolesníkov, benti í viðtali við
blaðið Kommersant á að Lítvínenko
hefði haft bæði rússneskan og
breskan ríkisborgararétt og „okkar
eigin öryggisstofnanir ættu ekki að
hundsa það sem gerst hefur“.
„Við ættum að taka ákvörðum um
vinnureglur og framkvæma okkar
eigin, margþætta og hlutlæga rann-
sókn … og starfa með öryggisstofn-
unum í öðrum löndum, þ.á m. Bret-
landi,“ sagði Kolesníkov.
Breskir rannsóknarmenn frá lög-
reglunni eru nú í Moskvu og reyna
að finna þar vísbendingar í Lítv-
ínenko-málinu. Óljóst er hve sam-
vinnufús rússnesk stjórnvöld verða,
þannig hefur ríkissaksóknarinn,
Júrí Tsjajka, sagt að ekki komi til
mála að grunaðir Rússar verði
framseldir til að réttað verði yfir
þeim í Bretlandi. Deilur hafa verið
árum saman milli stjórnvalda í
Moskvu og London vegna þeirrar
ákvörðunar hinna síðarnefndu að
framselja ekki auðkýfinginn Borís
Berezovskí til Rússlands þar sem
hann er sakaður um fjársvik. Einn-
ig neita Bretar að framselja einn af
leiðtogum uppreisnar Tétséna, Ak-
hmed Zakajev.
Mál Lítvínenkos hefur ekki orðið
til að bæta samskipti Rússa við
Breta en þess má geta að leiðtogar
bæði Þjóðverja og Frakka hvetja
einnig Rússa ákaft til að leggja öll
spil á borðið og eiga fullt samstarf
við bresku lögreglumennina.
Pútín vildi að Bretar
þögguðu niður í Lítvínenko
Lítvínenko var harður gagnrýn-
andi Vladímírs Pútíns Rússlands-
forseta og stjórnar hans og fullyrti í
skriflegri yfirlýsingu, skömmu fyrir
dauða sinn, að forsetinn hefði látið
leyniþjónustumenn sína eitra fyrir
sér. Segir breska blaðið The
Sunday Times að Pútín hafi tjáð
Bretum reiði sína yfir því að Lítv-
ínenko skyldi leyft að tjá sig með
þessum hætti síðustu dagana sem
hann lifði. Segir Margaret Beckett
utanríkisráðherra að Rússar virðist
hafa misskilið málið: njósnarinn hafi
ekki verið í varðhaldi heldur undir
eftirliti á sjúkrahúsinu. Þess vegna
hafi ekki verið lagalega kleift að
hefta tjáningarfrelsi hans.
Lítvínenko hafði meðal annars
aflað gagna um morðið á blaðakon-
unni Önnu Polítkofskaju sem hafði
stundað rannsóknir á Tétsníustr-
íðinu. Einnig sagðist Lítvínenko
hafa undir höndum upplýsingar sem
hann taldi sýna að leyniþjón-
ustumenn hefðu skipulagt sprengju-
tilræði í rússneskum íbúð-
arblokkum árið 1999. Hundruð
óbreyttra borgara létu lífið en
hermdarverkamönnum Tétséna var
kennt um og árásirnar m.a. notaðar
sem átylla til að hefja á ný hernað
gegn Tétsníu. Munu Pútín og menn
hans hafa talið að sigursælt stríð
myndi styrkja stöðu hans meðal al-
mennings en hann var þá orðinn
forsætisráðherra Rússlands og
stefndi á forsetastólinn.
Nefna má að auki að á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC, er sagt að
Lítvínenko hafi á sínum tíma gefið í
skyn að rússneska leyniþjónustan,
FSB, sem er arftaki KGB, sovésku
leynilögreglunnar, hafi beinlínis
þjálfað næstæðsta mann al-Qaeda
hryðjuverkasamtakanna, Egyptann
Ayman al-Zawahiri, í Dagestan í
sunnanverðu Rússlandi á árunum
fyrir árásirnar á Bandaríkin 2001.
Dularfullur háskólanemi á
launaskrá – en nafn fjarlægt
Norska blaðið Aftenposten rann-
sakaði feril rússneskrar konu sem í
viðtali við breska blaðið Observer
sagði að hún hefði verið vinur Lítv-
ínenkos og hann hefði sagt sér að
hann hygðist nota viðkvæmar upp-
lýsingar sem hann hefði komist yfir
til að kúga fé út úr ráðamönnum í
Kreml.
Aftenposten uppgötvaði að um-
rædd kona, Júlía Svetlítsnaja, sem
sagðist vera nemandi við háskóla í
London, var enn á launaskrá sem
yfirmaður almannatengsla hjá rúss-
nesku fjárfestingarfyrirtæki. Nafn
hennar var fjarlægt af netsíðu fyr-
irtækisins eftir að blaðamenn Aft-
enposten höfðu hringt í forstjóra
þess sem mikið fát virtist koma á
þegar hann var spurður um málið.
Rússar leggi
öll spil á borðið
Vladímír
Pútín
Alexander
Lítvínenko
JOSEPH Kabila sver embættiseið
forseta Kongó við athöfn í forseta-
höllinni í Kinshasa, höfuðborg
landsins. Kabila er fyrsti lýðræð-
islega kjörni forseti Kongó og von-
ast er til að valdataka hans marki
tímamót í sögu landsins. Áætlað er
að um þrjár milljónir manna hafi
dáið í Kongó af völdum stríðsins
þar á árunum 1998–2003, farsótta
og hungursneyðar.
Kabila er 35 ára og yngsti þjóð-
höfðingi Afríku. Hann var fyrst
gerður að forseta árið 2001 eftir að
faðir hans, Laurent Kabila, var ráð-
inn af dögum.AP
Kabila sver
forsetaeið