Morgunblaðið - 07.12.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 07.12.2006, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG verð að þakka forstjóra 365 sérstaklega fyrir grein hans hér í blaðinu í gær. Honum tókst miklu betur en mér sjálf- um að sýna fram á hversu hót- unin um að loka fréttastofu Stöðvar 2 – verði Ríkisútvarpið ekki látið rýmka til fyrir 365 á auglýsingamarkaði – er inni- haldslaus og marklaus. Ég hef verið að reyna að koma því á framfæri að ég vissi ekki betur en rekstur Stöðvar 2 gengi ágætlega – með fréttastofunni innanborðs – og það væri að hengja bakara fyrir smið að loka fréttastofunni vegna vanda 365 að öðru leyti. Ég fæ ekki betur séð en forstjórinn stað- festi þetta í grein sinni og fyrir það er ég þakklátur. Það er sem sé ekkert annað á bak við þessa hótun en viljinn til að hræða þingmenn og starfsmenn til fylgis við hagsmuni eigenda 365. Ég læt hjá líða að svara per- sónulegum svívirðingum for- stjórans í minn garð. Kýs að líta á þær sem birtingarmynd tímabundinnar vanstillingar og reynsluleysis og mun ekkert erfa þetta við hann. Páll Magnússon Takk Ari Höfundur er útvarpsstjóri. HJÁLPARSTARF kirkjunnar hefur í áratugi aðstoðað Íslendinga sem hafa ekki náð að framfleyta sér og sínum. Frá árinu 1992 hefur skjólstæðingum fjölg- að jafnt og þétt, fólki sem á ekki fyrir mat, lyfjum eða lækn- iskostnaði – getur ekki staðið straum af skólagöngu og tóm- stundum barna sinna. Undanfarin ár höfum við haldið til haga upplýsingum um að- stæður þessa fólks, með það í huga að hafa sem skýrasta mynd af vandanum og geta brugðist við með réttum lausnum. Þeg- ar rýnt er í þær, sést að hluti þeirra sem til okkar leita núna er þriðja kynslóð ein- staklinga sem vegna félagslegrar stöðu sinnar hefur þurft að- stoð hjálparstofnana. Enn fremur sést að flestir sem hingað leita hafa ekki lokið neinu framhaldsnámi, hafa annað hvort hætt eftir grunnskóla eða fallið úr framhaldsskóla eftir skamma dvöl. Menntun til að rjúfa vítahring Eitt helsta markmið Hjálp- arstarfs kirkjunnar er að aðstoða fólk til sjálfshjálpar. Með það að leiðarljósi höfum við brugðist við vanda fjölskyldna með litla mennt- un í láglaunastörfum. Einn þáttur í því er námsaðstoð við ungmenni á aldrinum 16–20 ára. Ástæða þess að Hjálparstarfið valdi þá leið fram yfir aðrar er sú að við álitum að á þann hátt gætum við hugsanlega rofið þann slæma félagslega víta- hring sem sum ungmenni lenda í og þannig komið í veg fyrir að þau verði háð félagsþjónustu og hjálp- arsamtökum. Námsaðstoðin hefur þróast hjá okkur smám saman. Hún hófst fyrir um þremur árum með styrk frá Velferðarsjóði barna á Íslandi. Við settum það strax í forgang að styðja efnalitlar fjöl- skyldur með því að greiða skóla- gjöld fyrir unglinga í framhalds- námi til 18 ára aldurs en reglur Velferðarsjóðsins miða við þann aldur. Fljótlega kom í ljós að sá stuðningur dugði ekki. Við sáum að brýnt var að styðja ungmennin allt til loka framhalds- náms eða þar til þau gætu hafið nám sem væri lánshæft. Um síð- ustu jól fengum við góðan stuðning í þetta verkefni frá Sorpu og frá einkaaðilum. Með þeim fjármunum gát- um við stofnað Fram- tíðarsjóð sem hefur það markmið að styðja ungmenni, 16–20 ára, til að ljúka námi. Vel farið yfir um- sóknir Við getum skilj- anlega ekki styrkt alla. Við metum hverja um- sókn, könnum að- stæður hvers og eins og göngum úr skugga um að fjölskyldan njóti ekki námsstuðnings frá opinberum aðilum. Ef umsókn er samþykkt, getur stuðningurinn verið marg- þættur, t.d. aðstoð með skólagjöld, bókakostnað eða jafnvel gleraugu ef nauðsyn krefur. Við deilum aldr- ei út peningum heldur greiðum eft- ir reikningum og ungmennin þurfa að sýna fram á að þau stundi skól- ann vel til að eiga möguleika á áframhaldandi stuðningi. Hjálp- arstarf kirkjunnar álítur að með því að hlusta á þá einstaklinga sem hingað leita, meta þarfir þeirra og bregðast við þeim á faglegan og vandaðan hátt, sé virkilega hægt að aðstoða þar sem þörfin er mest. Aðstoðin skiptir máli, ekki bara fyr- ir fyrir þá sem hana þiggja, heldur samfélagið allt. Hún mun örugglega skila sér aftur með mannvænlegra samfélagi. Aðstoð sem skiptir máli – hjálpað til sjálfshjálpar Vilborg Oddsdóttir skrifar um starfsemi hjálparstarfs kirkjunnar Vilborg Oddsdóttir » Aðstoðinskiptir máli, ekki bara fyrir fyrir þá sem hana þiggja, heldur sam- félagið allt. Höfundur er félagsráðgjafi og um- sjónarmaður innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. UMFERÐARÞUNGI um Suður- landsveg er meiri en svo að vegirnir fái við hann ráðið. Nær allir Íslend- ingar eru nú sammála um að tvö- falda beri Suðurlandsveg hið fyrsta. Því miður er staðreyndin sú að enn er tvöföldun ekki inni á vegaáætlun Alþingis. Þessu þarf að breyta nú þegar. Vanhugsaðar vegabætur hafa engu skilað nema því að tefja ákvörðun um tvöföldun frá Reykja- vík og að minnsta kosti að Selfossi eins fljótt og verða má. Þungaflutn- ingar hafa lagst upp á þjóðveginn sem þolir ekki umferðarþungann. Mikið er rætt um kostnað við tvö- földun, en þó er flestum ljóst að engin vegaframkvæmd er eins arð- bær fyrir þjóðina og sú að tryggja fjölförnustu þjóðvegina þannig að slys og tjón séu í lágmarki. Bana- slysin eru óbætanleg. Samstaða á Suðurlandi Undanfarna mánuði hefur náðst órofa samstaða sveitarstjórn- armanna í öllum flokkum um að tvöfalda beri Suðurlandsveg. Þing- menn úr stjórn og stjórnarandstöðu hafa nú tekið höndum saman og skorað á Alþingi og ríkisstjórn að setja þetta þjóðþrifamál í algeran forgang. Þá hafa átta þúsund manns skrifað undir áskorun sama efnis á vefnum www.sudurlandsveg- ur.is á aðeins þremur vikum. Þessi samstaða er engin tilviljun, heldur vegna þess að þetta mál er yfir flokkspólitískt dægurþras hafið. Hagsmunir allra Um Suðurlandsveg fara ekki bara Sunnlendingar, heldur allir landsmenn. Á Suðurlandi er mikil sumarhúsabyggð, auk þess sem yfir 200 þúsund ferðamenn fara veginn ár hvert. Á einum degi fara 11 þúsund manns um veginn, sem er að hluta til fjallvegur yfir Hellis- heiði. Enn frekari kröfur um öryggi þarf að gera til vegar sem er í senn fjölfar- inn, flutningaleið og fjallvegur. Hér dugar enginn stagbæting á slitinni flík. Hér þarf að byggja hraðbraut á borð við það besta sem gerist í Evrópu. Umferðin eykst ár frá ári og hefur nú aukist um 6% á síðustu 12 mánuðum ein- um. Sjóvá hefur boðist til að fjár- magna þessa framkvæmd og því ber að fagna. Tryggingafélagið sér sem er; að tvöföldun Suðurlands- vegar minnkar tjón svo um munar. Af hverju leggur Sjóvá áherslu á Suðurlandsveg? Af því að það er rétt forgangsröðun að tvöfalda veg- inn strax. Þetta hafa þeir reiknað út og þetta hefur fólkið fundið sjálft. Nú þarf Alþingi að bregðast rétt við og tryggja þetta þjóð- þrifaverk án tafar. Ekki er til betri minnisvarði um þá sem hafa látist en að tryggja tvöfaldan Suðurlands- veg. Oft var þörf, en nú er brýn nauðsyn. Nú er komið nóg Eyþór Arnalds og Hannes Kristmundsson fjalla um um- ferðarmál »Ekki er til betriminnisvarði um þá sem hafa látist en að tryggja tvöfaldan Suð- urlandsveg. Oft var þörf, en nú er brýn nauðsyn. Eyþór Arnalds Höfundar berjast fyrir tvöföldum Suðurlandsvegi. Hannes Kristmundsson AÐ undanförnu hefur mikið ver- ið fjallað um tvöföldun Suðurlands- vegarins – enda þarf ekki að fara mörgum orðum um þau skelfi- legu umferðarslys sem þar hafa átt sér stað í gegnum tíðina. Suðurlandsvegurinn er því ofarlega í hug- um margra þessa dag- ana, rétt eins og um- ræðan var áberandi um tvöföldun Reykja- nesbrautarinnar á sín- um tíma í kjölfar mik- illar slysaöldu á þeim vegi. Og víst er að all- ir eru sammála um nauðsyn þess að hér á landi sé boðið upp á þjóðvegi sem standast allar kröfur um öryggi. Það er því eðlilegt að spurt sé af hverju tvö- földun umferðarþyngstu þjóðveg- anna, þ.e. Suðurlandsvegar að Sel- fossi, Vesturlandsvegar að Borgarnesi og Reykjanesbraut- arinnar til enda, hafi ekki algjöran forgang í samgönguáætlun. Á und- anförnum árum hafa hundruðir slasast og látist í umferðarslysum á þessum þremur vegarköflum og virðist því miður ekkert lát vera á því. Líf og heilsa vegfarenda þessa lands, sem er öll þjóðin, á að vera hafið yfir alla hreppa- og lands- byggðarpólitík. Orðið „byggð- arsjónarmið“ á ekki rétt á sér í umræðunni um fjármuni til vega- gerðar þegar við upplifum hvert stórslysið á fætur öðru á umferð- arþyngstu þjóðvegunum. Það þarf ekki önnur rök en tölur yfir fjölda látinna og slasaðra til þess að varpa skæru ljósi á nauðsyn þess að hefjast nú þegar handa við tvö- földun Suðurlands- og Vesturlands- vegar þar sem um- ferðin er mest. Engin önnur rök eru sterk- ari. Reykjanesbrautin er skýrt dæmi um fækkun umferðarslysa en flestir vita að á tvöfalda kaflanum á brautinni hefur ekki orðið banaslys, né annað alvarlegt slys, þegar þessi orð eru skrifuð. Nú er svo komið að almenningur, venjulegt fjöl- skyldufólk, veigrar sér við að halda út á þessa „þjóðvegi“ af ótta við að lenda í alvarlegu umferðarslysi. Þegar fjármunum er úthlutað til vegamála, verður að taka tillit til öryggissjónarmiða umfram allt annað. Vissulega væri æskilegast, ef hægt væri, að gera öllum til hæfis í vegamálum, hvar á landi sem þeir búa. En þegar einungis er um áveðið fjármagn að ræða sem ætlað er til samgöngumála, hljótum við öll að eiga rétt á því að vegabætur, sem leiða ótvírætt til aukins umferðaröryggis, njóti al- gjörs forgangs umfram aðrar. Um- ferðarslysin fara ekki í manngrein- arálit og snerta alla jafnt, án tillits til aldurs, stöðu, kynferðis, þjóð- ernis eða pólitískra skoðana. Tvö- földun þjóðveganna út frá höf- uðborginni ætti því skilyrðislaust að hafa þverpólitískan forgang á Alþingi. Við höfum ekki efni á að bíða lengur því hvert mannslíf sem fórnað er á þjóðvegunum, er einu mannslífi of mikið. Þegar líf liggur við Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar um tvöföldun Suður- landsvegarins »… hljótum við öllað eiga rétt á því að vegabætur, sem leiða ótvírætt til auk- ins umferðaröryggis, njóti algjörs for- gangs umfram aðrar. Ragnheiður Davíðsdóttir Höfundur er forvarnafulltrúi hjá VÍS.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.