Morgunblaðið - 07.12.2006, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 49
FRÉTTIR
ÚTSALA - ÚTSALA
30-70% afsláttur
Dæmi um verð: Áður Nú
Tunika með áprentun 5.500 1.650
Flauelsjakki 6.500 3.250
Tweed Blazer jakki 7.900 2.390
Buxur 5.800 2.900
Allar peysur með 50% afslætti
Mikið úrval af nýjum fallegum fatnaði á
lækkuðu verði
Eldri fatnaður á 990 kr.
Opnunartími fyrir jól
Virka daga frá kl. 10.00 -18.00
Laugardaga frá kl. 10.00-16.00
www.friendtex.is
Síðumúla 13
108 Reykjavík
Sími 568 2870
Opið frá 10–18
NÝLEGA var afhentur ágóði af
söfnun í tengslum við átak í október
gegn brjóstakrabbameini undir
merkjum bleiku slaufunnar. Í mörg-
um löndum hefur októbermánuður
ár hvert verið helgaður árvekni um
brjóstakrabbamein.
Íslendingar tóku nú í sjöunda
sinn þátt í þessu átaki á þann hátt
að á þrjátíu útsölustöðum Estée
Lauder-snyrtivara var dreift bleik-
um slaufum, tákni átaksins, og tekið
við frjálsum framlögum í sérmerkta
söfnunarbauka. Ágóðanum, 1.400
þúsund krónum, verður varið til
fræðslu og forvarna um gildi
brjóstaskoðunar og brjóstakrabba-
meinsleitar. Verkefnin verða valin
af Krabbameinsfélaginu og Sam-
hjálp kvenna.
Árveknisátakið fólst í því að vekja
athygli á þessum sjúkdómi, sem tí-
unda hver kona á Íslandi greinist
með einhvern tíma á lífsleiðinni,
fræða um hann og hvetja konur til
að nýta sér boð Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins um röntgen-
myndatöku. Konurnar hafa brugðist
vel við því að óvenjugóð aðsókn hef-
ur verið síðustu vikurnar.
Í frétt frá Krabbameinsfélaginu
segir að félagið meti mikils þennan
stuðning við baráttuna gegn
brjóstakrabbameini og vilji þakka
öllum sem lögðu lið við októberátak-
ið.
Góður árangur af
sölu bleiku slaufunnar
Árveknisátak Þrír fulltrúar frá Artica, umboðsaðila Estée Lauder, þær
Sirrý Björnsdóttir, markaðsstjóri fyrir Mac og Origins, Kristín Rögnvalds-
dóttir, markaðsstjóri fyrir Clinique, og Eva Garðarsdóttir Kristmanns,
markaðsstjóri fyrir Estée Lauder, afhentu Sigurði Björnssyni, formanni
Krabbameinsfélags Íslands, og Valgerði Jóhannesdóttur, fjármálastjóra
félagsins, söfnunarféð, alls 1.400 þúsund krónur.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja-
víkur býður öllum að koma í Heið-
mörk og sækja sér jólatré. Skóg-
urinn er allur opinn en þar vex
stafafura sem er barrheldið og fal-
legt tré sem ilmar vel. Fólk velur
sér sitt eigið tré sem passar í stof-
una og er sama verð á trjánum,
óháð stærð. Kveiktur verður eldur
og sköpuð stemning. Síðari
helgina mæta jólasveinar á svæðið
og bjóða öllum upp á kakó og
smákökur.
Jólaskógurinn er opinn helgina
9. og 10. desember en þá er tekið
á móti fólki við Hjallabraut en
helgina 16. og 17. desember verð-
ur tekið á móti fólki í Hjalladal.
Opið er meðan dagsbirtu gætir
eða 11–15.30.
Nánari upplýsingar og kort má
finna á www.heidmork.is undir Á
döfinni.
Jólaskógur í
Heiðmörk
VERKFRÆÐISTOFNUN HÍ hefur sett á fót
Vettvang orku- og stóriðjurannsókna (VOR) með
það að markmiði að styrkja almenna og sérhæfða
þekkingu á sviði orkuvinnslu og orkufrekra fram-
leiðsluferla á Íslandi, í samstarfi við fyrirtæki og
stofnanir.
Verkefni VOR er tvíþætt. Annars vegar verður
sérstök námslína helguð efninu í grunnnámi verk-
fræðideildar HÍ og hins vegar verður boðið upp á
rannsóknartengt framhaldsnám í nánu samstarfi
við fyrirtæki og stofnanir á orkusviði.
Í tilefni af stofnun VOR var efnt til ökutækja-
keppninnar, VISTVÆN ORKUNÝTING 2006,
miðvikudaginn 22. nóvember. Markmið keppn-
innar var að vekja athygli á mengun ökutækja og
því að jarðolía sem eldsneyti er takmörkuð auð-
lind.
Eftirfarandi ökutæki tóku þátt í keppninni:
Skoda Octavia, beinskiptur díselbíll sem komst
hringinn í kringum landið á einum tank. Toyota
Prius, sjálfskiptur tvinnbíll sem er hvort tveggja í
senn, bensín- og rafmagnsbíll. Volkswagen Tour-
an Trendline EcoFuel, beinskiptur bíll með tví-
brennihreyfil sem notar bæði metangas og bensín.
Toyota Aygo, beinskiptur eyðslugrannur smábíll
sem er með bensínhreyfil. Peugeot, rafmagnsbíll
sem gengur fyrir rafhlöðum. Toyota Landcruiser,
sjálfskiptur díseljeppi með hefðbundnu olíuverki.
Mitsubishi Pajero, sjálfskiptur bensínjeppi sem er
með tölvustýrða innspýtingu. Í för var einnig
vetnisstrætisvagn frá Benz. En þar sem hann er
margfalt þyngri en hinar bifreiðarnar þótti hann
ekki samanburðarhæfur.
Lagt var af stað frá stöð Esso að Bíldshöfða,
sem lagði til orku á öll ökutækin, og var þeim ekið
fyrirfram ákveðna leið innan höfuðborgarsvæð-
isins. Leiðin lá um þungar umferðargötur, hverf-
isgötur og lengri leiðir en lauk síðan á Essostöð-
inni við Bíldshöfða þar sem gerðar voru
nauðsynlegar mælingar. Gerðar voru mælingar á
orkunotkun og eldsneytiskostnaður reiknaður út.
Ökutækin voru mengunarmæld hjá Frumherja.
Öll ökutækin voru við vinnsluhita áður en akstur
hófst.
Sigurvegarar keppninnar voru þrír bílar. Í
fyrsta sæti var rafmagnsbíllinn frá Peugeot sem
bæði mengaði minnst og komst hringinn á 92 kr,
en þetta er ökutæki sem hefur takmarkaða
drægni og þarf langan tíma í hleðslu. Af hefð-
bundnum ökutækjum voru það Volkswagen Tour-
an Trendline EcoFuel metan bíll, sem notar ís-
lenskt eldsneyti og mengaði minnst og Toyota
Prius tvinnbíll sem komst hringinn á lægsta elds-
neytiskostnaði.
Þetta er í fyrsta skiptið sem keppnin er haldin
en stefnt er að því að hafa hana árlega. Hér er
ekki um að ræða heildarúttekt á vistvænum öku-
tækjum í heiminum heldur það að meta ákveðin
ökutæki sem til eru á skrá hér á landi, segir í
fréttatilkynningu.
Þrír bílar efstir í vistvænni ökutækjakeppni
Morgunblaðið/G.Rúnar
Leiðin Halldór Pálsson fer yfir akstursleiðina með þátttakendum í keppni ökutækja um vistvæna orku.
Á UNDANFÖRNUM vikum hafa Félagi eldri borgara í
Reykjavík borist fyrirspurnir frá félagsmönnum þess
efnis hvort félagið hyggist standa fyrir framboði vegna
komandi þingkosninga í vor, segir í frétt frá félaginu.
Stjórn Félags eldri borgara tók þetta mál fyrir á
fundi sínum 5. desember þar sem eftirfarandi ákvörðun
var samþykkt samhljóða:
,,Félag eldri borgara í Reykjavík getur ekki staðið að
framboði samkvæmt lögum félagsins, en í þeim stendur
í 1. kafla, lið 1.2: ,,Félagið er skipulagslega óháð stjórn-
málaflokkum og hlutlaust í afstöðu til trúmála.“
Innan félagsins er fólk úr öllum stjórnmálaflokkum
og framboð til Alþingis myndi ganga á svig við fram-
angreinda lagagrein en að sjálfsögðu tekur félagið af-
stöðu til þess hvernig ríkisvaldið sinnir hagsmunum
eldri borgara hverju sinni.“
Almennur félagsfundur um þessi mál verður haldinn
í Stangarhyl 4 fimmtudaginn 14. desember kl. 18.
Félag eldri borgara fer ekki í þingframboð