Morgunblaðið - 07.12.2006, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Pottþétt
jólagjöf
Laugavegi 40 - Sími 561 1690
RALPH LAUREN
Írska hljómsveitin U2 er í
16 sæti með nýjustu
safnplötu sína, 18 Sing-
les. Á plötunni eru 16 af
þekktustu lögum sveit-
arinnar frá upphafi, auk
þess sem þar má einnig
finna tvö ný lög, The Sa-
ints are Coming og Win-
dow in the Skies. Fyrr-
nefnda lagið hefur notið
nokkurra vinsælda að
undanförnu, en bandaríska rokksveitin Green
Day aðstoðar U2 við flutninginn. Af eldri lögum
má nefna lög sem í margra hugum eru fyrir
löngu klassísk, til dæmis One, Pride (In the
Name of Love) og With or Without You. Annars
er 18 Singles ein af fimm erlendum plötum á
meðal þeirra 30 efstu á Tónlistanum að þessu
sinni, en efstu 13 plötur listans eru íslenskar.
Dýrlingar koma!
Todmobile situr í 27.
sæti Tónlistans með
plötuna Ópus 6, en það
er fyrsta plata sveit-
arinnar með nýju efni í
áratug. Sem fyrr er sveit-
in skipuð þeim Andreu
Gylfadóttur, Eyþóri Arn-
alds og Þorvaldi Bjarna
Þorvaldssyni, en þau
héldu útgáfutónleika í
beinni útsendingu Sjón-
varpsins á föstudaginn var. Nýja platan var
meðal annars tekin upp í Barcelona en þar
leigði sveitin sér hús og var við upptökur í um
það bil þrjár vikur. „Það má segja að það
Todmobile-legasta við plötuna sé að á henni
kennir ýmissa grasa. Það eru margar ólíkar
stemningar á henni,“ sagði Þorvaldur í viðtali
við Morgunblaðið fyrir skömmu.
Ópus í Barcelona!
Þann 15. sept-
ember síðastliðinn
hélt Sálin hans
Jóns míns eft-
irminnilega tón-
leika ásamt Gosp-
elkór Reykjavíkur í
Laugardalshöll-
inni. Tónleikarnir
voru teknir upp og
situr nú Sálin &
Gospel í 4. sæti Tónlistans. Í dómi hér í Morg-
unblaðinu sagði Arnar Eggert Thoroddsen með-
al annars að platan sé verðug viðbót í safn Sál-
araðdáenda en einnig þeirra sem hugnast
tónlist flutt af krafti og ástríðu. Uppselt var á
tónleikana í september og hefur Sálin því boð-
að til annarra tónleika með Gospelkórnum en
þeir fara fram þann 30. desember.
Undir áhrifum!
Ný plata þeirra
Selmu og
Hönsu, Sögur af
konum, stekkur
beint í 18. sæti
Tónlistans.
Selma og Hansa
eru þær Selma
Björnsdóttir og
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir en
fyrir fjórum árum
síðan gáfu þær stöllur út plötuna Sögur af
sviðinu en sú plata innihélt fyrst og fremst
tónlist úr söngleikjum. Sögur af konum inni-
heldur hins vegar ný lög og texta sem eiga
það sammerkt að vera í öllum tilfellum eftir
konur. Meðal höfunda má nefna Védísi, Ingi-
björgu Þorbergs, Fabúlu, Heru, Röggu Gísla,
Andreu Gylfa, Önnu Halldórs, auk Selmu og
Hönsu.
Konusögur!
!" ## # #$%&#' ()'* #+,-&#.# / #'# #0 . &# #1 (&
#,!&# .2* &#-)#3#/ &#$#4/ 3&##!"#3#45(
)
*
6/
,7
,*#1" 3
0)#3#83 ( "#9
' #:#;#<" #=)
>#/"# "
92' #8*
=#3?
6/
, @@
3
0@@#3#4
A #$B 3
,
-#0.
C
D/(3(
0/#3#1
-BE4. E$)#A
8 '7#8#;# ' #A
+#3
F"2#1 3
G #+ /
,7
' #: 3
F #!/@
!3/3@
,.#0
F"2# '#H
I #.
#. #"*
F"#3#@.'
,*� "#3#
0)#3#83 (
> #3# *
>#/"# "#.##)
<"'*
$ #3J#1#/
0"# #
3
3 #3#)@'
> "K*#8 #<"'
=3
-#0.# #-
#0
0#3#2#-33
0* # # 3 /
13 ' ##2/
8"'# //
0/(
0* '
D#L2#M (
D(#.#4
-"'#3#@
5E=3 3
A( #
,# #N7# / #/'
F"2# '#3#
3 " #K#, #*
0
0
0
0
0
>-0
#"
ML#- O
0
0
,#- O
03 2/
0
4-+
,
C
0
0
3
0
03E,-8
P3
C
8/
0
03E,-8
0
0
3
3
HLJÓMSVEITIN amiina kom nýverið úr vel heppn-
uðu tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin en í
kvöld gefst íslenskum aðdáendum sveitarinnar tæki-
færi á að sjá hana á tónleikum í Tjarnarbíói.
„Við fórum fyrst til Evrópu og spiluðum í París,
Brussel, London og fórum svo til Madríd. Síðan fórum
við beint til Bandaríkjanna og spiluðum í New York
og Philadelphiu og flugum svo vestur til Seattle,“ seg-
ir Sólrún Sumarliðadóttir sem skipar sveitina ásamt
Eddu Rún Ólafsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfús-
dóttur og Hildi Ársælsdóttur. Sólrún segir ferðalagið
hafa verið mjög skemmtilegt. „Þetta er í fyrsta skipti
sem við förum einar því við erum búnar að vera svo
mikið með Sigur Rós. Þetta er fyrsti túrinn sem við
gerum alveg sjálfar og það var mjög gaman að sjá
sína eigin röð fyrir utan tónleikastaði,“ segir Sólrún
og bætir því við að á flestum stöðum hafi verið fullt
hús. Góðir dómar hafa birst um tónleika amiinu og
meðal annars sagði gagnrýnandi ew.com að amiina sé
loksins að stíga úr þeim skugga sem Sigur Rós hafi
óneitanlega varpað á þær. „Það er náttúrulega ekki
hægt að gera ráð fyrir því að við sleppum alveg við
þessa tengingu í bráð,“ segir Sólrún en leggur þó
áherslu á að þeim sé alls ekki illa við að vera oft
nefndar í sömu andrá og Sigur Rós. „Við höfum verið
að vinna með þeim og þetta var það sem við gerðum í
sjö ár. Þetta er verkefni sem okkur þykir mjög vænt
um.“
Breiðskífa væntanleg
Nýverið kom smáskífan Seoul út en tónleikarnir í
kvöld eru einskonar útgáfutónleikar skífunnar. „Þetta
er smáskífa númer tvö og er forsmekkur að stóru plöt-
unni sem kemur líklega út í febrúar,“ segir Sólrún.
„Þetta er eiginlega fyrsta lagið sem við gerðum, en það
fékk ekki að vera með á fyrstu skífunni. Við höfum ver-
ið að spila það mikið á tónleikum þannig að við
ákváðum að hafa það þarna,“ segir Sólrún, og bætir því
við að þessi smáskífa sé töluvert léttari en sú fyrsta.
Tónleikarnir í kvöld eru fyrstu eiginlegu tónleikar ami-
inu hér á landi en hingað til hefur sveitin einungis spil-
að á tónleikum í samfloti við aðrar sveitir. „Við höfum
aldrei haldið okkar eigin tónleika á Íslandi en erum
hins vegar búnar að spila á yfir 150 tónleikum erlendis
og því kominn tími til.“
Eins og áður segir kemur fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar líklega út í febrúar og segir Sólrún að þá muni
þær trúlega halda aðra tónleika. Í kjölfarið munu þær
svo halda í enn stærri tónleikaferð en þá sem þær eru
nýkomnar úr. „Það verður örugglega hátt í tveggja
mánaða túr, Bandaríkin, Evrópa, Japan, Ástralía, Nýja
Sjáland og bara allt heila klabbið,“ segir Sólrún að lok-
um.
Standa loksins á eigin fótum
Morgunblaðið/Sverrir
Sjálfstæðar „Þetta er í fyrsta skipti sem við förum einar því við erum búnar
að vera svo mikið með Sigur Rós,“ segir Sólrún um nýafstaðna tónleikaferð.
Tónlist | Strengjasveitin amiina heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói í kvöld
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Tónleikarnir í Tjarnarbíói hefjast klukkan 21.00 en hús-
ið verður opnað klukkan 20.30. Ólöf Arnalds sér um
upphitun. Forsala fer fram í 12 Tónum við Skólavörðu-
stíg og er miðaverð 1.000 krónur.