Morgunblaðið - 07.12.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 31
KONA um borð í flugvél American
Airlines, sem fljúga átti frá Wash-
ington til Dallas, olli skyndiheim-
sókn 99 flugfarþega og fimm áhafn-
armeðlima til Nashville þegar
nauðlenda þurfti þar vegna maga-
vandræða hennar.
Atvikið varð á mánudag eftir að
farþegar tóku að kvarta undan
brunalykt um borð að því er Wash-
ington Post greinir frá. Allir farþeg-
arnir og áhöfn þurftu að fara frá
borði og undirgangast sprengjuleit á
flugvellinum í Nashville auk þess
sem allur farangur var rannsakaður.
Eftir að alríkislögreglumenn
(FBI) höfðu rannsakað vélina í þaula
viðurkenndi einn farþeganna að hafa
kveikt á eldspýtum í tilraun til að
fela eigin líkamslykt sem orsakaðist
af slæmum maga. Konan mun eiga
við ótilgreindan sjúkdóm að stríða.
Hún slapp við kæru vegna uppá-
tækisins en var hins vegar ekki
hleypt aftur um borð í vélina þegar
henni var flogið áfram til Dallas.
Vindgangur olli
nauðlendingu
Reuters
Neyðarstopp Vindgangur í háloft-
unum setti strik í reikninginn.
Hótel Laki, nýtt heilsu- oglífsstílshótel, verðuropnað um áramótin aðEfri-Vík, sem er staðsett
um fimm kílómetra suður af Kirkju-
bæjarklaustri. Þá er lokið byggingu
fyrsta áfanga af þremur sem rúmar
sextán herbergi, móttöku, bar,
sauna og heita potta en stefnt er að
því að innan þriggja ára verði risið
64 herbergja hótel.
Það eru hjónin Hörður Davíðsson
og Salome Ragnarsdóttir ásamt
dóttur og tengdasyni, Evu Harð-
ardóttur og Þorsteini Kristinssyni,
sem standa að framkvæmdunum og
koma til með að reka hótelið. Að
sögn Evu er hugmyndin sú að bjóða
fólki í hraða nútímans upp á slökun
og fræðslu frá sérfræðingum í hollu
mataræði og heilbrigði líkama og
sálar.
Tuttugu manna sérfræðiteymi
„Við fáum alls konar sérfræðinga
til liðs við okkur og sköpum þeim að-
stöðu fyrir námskeið og meðhöndl-
un. Margir þeirra fagna því að fá
tækifæri til að komast út úr erli
þéttbýlisins með það fólk sem það er
að vinna með svo truflun verði sem
minnst. Dagskráin hefst 4. janúar og
er gert ráð fyrir að þrír til fimm sér-
fræðingar af mismunandi heilsusvið-
um verði á staðnum hverju sinni en
alls telur sérfræðingahópurinn um
tuttugu manns,“ segir Eva. Áhersla
verður lögð á hollt mataræði, útivist,
hreyfingu, íhugun og slökun. Sett
verður upp dagskrá og eitt rekur
annað allan daginn svo að gestir geti
valið hvað hentar þeim best hverju
sinni. Á matseðli verður hægt að
velja á milli hollusturétta og hefð-
bundins matseðils og á hótelinu hafa
gestir aðgang að heitum pottum og
gufuböðum. Þar er einnig hvíld-
arherbergi og aðstaða fyrir nuddara
og snyrtistofu.
Herbergi, smáhýsi og bústaðir
Ferðaþjónusta hefur verið rekin
að Efri-Vík óslitið síðan árið 1975,
fyrst í smáum stíl, en síðan hafa, auk
herbergja í aðalbyggingu, bæst við
smáhýsi og sumarbústaðir. Boðið er
upp á morgunverð og kvöldverð og
grillstaður er á svæðinu í uppgerðri
hlöðu með gömlum búmunum til
sýnis. Níu holu golfvöllur er að Efri-
Vík og veiðivatn.
Hörður og Salome hafa búið í
Efri-Vík frá árinu 1968, en fyrir
fimm árum síðan komu Eva og Þor-
steinn til liðs við þau.
Haustið 2005 var byrjað á fram-
kvæmdum við nýja hótelið sem
teiknað var af Yrki hf. Við hönnun
hótelsins var einfaldleikinn, stíl-
hreint og bjart yfirbragð, haft að
leiðarljósi.
Byggingin verður klædd með
fjörusteinum á neðri hæð, bárujárni
að ofan og torf verður á þaki. „Þetta
er náttúruvænt hótel sem gefur fyr-
irheit um þá starfsemi sem hérna
mun fara fram,“ segir Eva.
Heilsuhótel Tuttugu manna heilsuteymi kemur til með að starfa við hótelið sem opnað verður um áramótin.
„Leggjum rækt
við hollan lífsstíl“
Nýtt heilsu- og lífsstíls-
hótel opnar að Klaustri
um áramótin þar sem
hugmyndin er að bjóða
upp á slökun og fræðslu
um holla lífshætti í hraða
nútímans. Jóhanna
Ingvarsdóttir heyrði í
hótelhöldurum.
TENGLAR
..............................................
www.hotellaki.is
Hótelhaldararnir Salome Ragnarsdóttir og Hörður Davíðsson og Eva
Harðardóttir og Þorsteinn Kristinsson.
Vika á Spáni
13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
15
83
1
1/
06
Við leggjum okkur fram.
Ertu að fara á skíði?
Bókaðu bílaleigubílinn strax á avis.is
Bílaleigubíll í Þýskalandi
Vika fyrir flokk I Opel Vectra station eða sambærilegan bíl á 333 evrur.
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, kaskó- og þjófatrygging,
flugvallargjald og skattar.
LEIÐSÖGUTÆKI TIL LEIGU
Leigðu GPS leiðsögutæki í bílinn,
fáðu kennslu á það hér heima og
taktu það með þér til útlanda.
Handhægt og mjög einfalt í
notkun.
Knarrarvogi 2 / Sími 591 4000 / avis.is
P
IP
A
R
S
ÍA
6
0
7
7
1