Morgunblaðið - 07.12.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 35
Verð nú 249.995.- stgr.
Verð nú 74.995.- stgr.Verð nú 49.995.- stgr.
Verð 279.900.- stgr.
Verð 239.900.- stgr. Verð nú 79.900.- stgr.
Verð nú 34.995.- stgr.
Verð 289.995- stgr.
Verð nú 219.995- stgr.
Verð áður 49.995.-
Styður upplausn allt að 1024 x 768. Sjálfvirk stöðvaleitun.
100 stöðva minni. Textavarp. Scart. RCA. S-vhs.Tengi fyrir
heyrnatól. Fjarstýring. 12 og 220 volt. Veggfesting fylgir.
32” LCD háskerpu sjónvarp. Upplausn 1366X768. Skerpa
800:1. Birta 500 cd/m2. Viðbragðstími 12ms. DVI tengi 2
scart tengi. S-video tengi. Nicam stereo. Mynd í mynd.
Mynd og textavarp. Veggfesting fylgir.
LG 26” LCD
sjónvarp –
LG26LC2D
1366 x 768. Birta
500cd / m2. Contrast
1200:1. Svartími 8ms.
HD Ready. XD
Engine. 3D Digital
Comb Filter. 2 x
scart. 1 x S-vhs. 1 x
Composite. 1 x Hdmi.
1 x Component. 1 x
PC inngangur(RGB).
Mynd í mynd, mynd
við mynd.
LG 37” LCD sjónvarp – LG37LC2D
1366 x 768. Birta 500cd / m2. Contrast 1600:1. Svartími 8ms. HD Ready. XD
Engine. Digital Progressive scan DCDi High Quality Picture. 3D Digital Comb
Filter. 2 x scart. 1 x S-vhs. 2 x Composite. 1 x Hdmi. 1 x Component. 1 x PC
inngangur(RGB). 2 Tuner, mynd í mynd, mynd við mynd, Double Window.
Verð 109.995.- stgr.
LG 20LC1R
20” LCD sjónvarp. Upplausn 640X480. Birta 550
cd/m2. Skerpa 500:1. Fjölkerfa. Allar aðgerðir á
skjá. Textavarp. Scart tengi,
ELFUNK LT-4210HD
42” Háskerpu Plasma sjónvarp. Upplausn 1024X768. Birta
1200:1 cd/m2. Skerpa 6000:1 HDMI tengi. PC ingangur. 2
scart tengi. S-video inngangur
LG 42” LCD sjónvarp – LG42LC2D
1366 x 768. Birta 500cd / m2. Contrast 1600:1. Svartími 8ms. HD Ready. XD
Engine. Digital Progressive scan DCDi High Quality Picture. 3D Digital Comb
Filter. 2 x scart. 1 x S-vhs. 2 x Composite. 1 x Hdmi. 1 x Component. 1 x PC
inngangur(RGB). 2 Tuner , mynd í mynd, mynd við mynd, Double Window.
LAVA 19” LCD sjónvarp með
innbyggðu útvarpi
Hægt að skipta um liti á ramma
(Rauður, hvítur, silfur). Svartur
rammi fylgir. Skerpa: 800:1.
1280:768. Birta: 450 cd/m2. 2 x
scart. S-vhs. VGA. Compsite.
Heyrnatólatengi.
Elfunk 15” LCD sjónvarp – AGLT1508
Elfunk 32” LCD sjónvarp
– AGLT3220HD
Verð nú 69.995.- stgr.
Verð nú 139.995.- stgr.
Hö
nn
un
:d
es
ig
n.
is
Verð áður 89.995.-
Verð áður 149.995.-
Verð áður 89.900.-
Verð áður 249.995.-
Verð áður 59.995.-
Lava 42” Plasma sjónvarp ( PDP-4248D)
2 x scart, 2 x Component, Composite, DVI-D, Digital Audio
út, S-Video. Skerpa: 10.000:1. Birta 1500cd cm2. HDCP
samhæft. DVB móttakari Lava Crystal Image EnginePIP
( Mynd í mynd).
Verð áður: 34.995.-
Verð nú 29.995.- stgr.
Elfunk 28” sjónvarp – AG2840
2 x Scart. RCA. S-vhs. Útgangur fyrir heyrnatól. Fjarstýring. Íslenskt
textavarp. B: 74,5 cm - H: 47 cm - D: 48 cm
“28
42´
Plasma 42´
Plasma
42´
26´
37´
20´
LAVA 17"– LA17DV
LCD sjónvarp með DVD spilara
Spilar DVD, DIVX, CD, CD, MP3. 12 og 220 volt. Fjarstýring.
DAEWOO DLP-20D3N
20” LCD sjónvarp. Upplausn 640X480. Birta 500
cd/m2. Skerpa 800:1. Fjölkerfa. Allar aðgerðir á
skjá. Textavarp. Scart tengi.
Á ALÞINGI hefur verið lagt fram
stjórnarfrumvarp til lækkunar mat-
vöruverðs. Nú er skattlagning á
fæðu ýmist 14 eða 24,5 prósent, en
með frumvarpinu mun skattur af
öllum matvælum lækka í sjö pró-
sent. Auk þessa er lagt til að vöru-
gjald af matvælum, öðrum en sykri
og sætindum, falli niður að fullu.
Óhætt er að fagna heilshugar
lækkun matarverðs. Auðvelt er að
færa rök fyrir þessari verðlækkun
matvæla en nauðsynlegt er þó að
huga vel að öllum þáttum málsins.
Verðlækkunin getur verið bæði flók-
in og orkað tvímælis ef ekki er farið
að með gát.
Eitt af því sem vekur athygli í
frumvarpinu er áætluð lækkun
gjalda á gosdrykki. Þó að sykur og
sætindi séu undanskilin verðlækk-
uninni gildir það ekki um gosdrykki.
Niðurstaðan verður sú að gos-
drykkir eru meðal þeirra vöruteg-
unda sem koma til með að lækka
einna mest í verði þegar saman er
talið vörugjaldið og skattalækkunin,
enda er skattur á gosdrykki nú 24,5
prósent. En af hverju hringja við-
vörunarbjöllur þegar þessar hug-
myndir eru skoðaðar?
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um offituvanda Íslendinga. Ofþyngd
þeirra er staðreynd eins og marg-
sinnis hefur komið fram í fjöl-
miðlum. Nú er svo komið að meira
en helmingur fullorðinna Íslendinga
er yfir kjörþyngd. Þróunin meðal
barna hefur valdið sérstökum
áhyggjum, enda er þekkt að of þung
börn eiga það mjög á hættu að glíma
við þann vanda alla ævi. Í þessu
samhengi hefur margoft verið bent
á að sykraðir gosdrykkir og aðrir
sykraðir svaladrykkir eru einn af
áhrifavöldum þessarar öfugþróunar.
Að meðaltali koma um 40 prósent af
orku 15 ára barna úr gosdrykkjum
og skyldum drykkjum. Þetta eru
staðreyndir sem mikilvægt er að
hafa í huga þegar frumvarpið verður
afgreitt.
Nú má spyrja: Hvaða áhrif hafa
verðbreytingar á neyslu matvæla?
Almenn verðlækkun fæðu hefur lítil
áhrif á heildarneyslu matvæla þar
sem um nauðsynjar er að ræða.
Hins vegar er verðnæmni ákveðinna
matvörutegunda töluverð, s.s. gos-
drykkja. Í erlendum rannsóknarnið-
urstöðum hefur komið fram að verð-
næmni gosdrykkja er mest innan
þeirra þjóðfélagshópa sem almennt
er erfitt að ná til með heilsuhvetj-
andi skilaboð. Börn og unglingar
eru mjög næm fyrir slíkum breyt-
ingum og hefur þetta hvað mest
áhrif á neyslu þeirra af öllum þjóð-
félagshópum. Breytingar eins og
þær sem eru hér í burðarliðnum
gætu því haft veruleg áhrif. Að auki
ber að geta þess að næmni þeirra
sem neyta mikils magns gosdrykkja
er einnig töluverð. Þeir hópar sem
drekka sykraða gosdrykki í hófi
breyta hins vegar hegðun sinni
minna við verðbreytingar vörunnar.
Stjórnvöld verða því að gera sér
skýra grein fyrir að hér er um að
ræða neysluhvetjandi áhrif á börn
og unglinga og þá sem neyta nú þeg-
ar mikils magns gosdrykkja. Það
væri að æra óstöðugan að ætla að
vísa í rannsóknarniðurstöður þessu
til stuðnings en hér verður látið
nægja að benda á vísindastörf
norska sérfræðingsins Geirs W.
Gustavsen.
Það er þekkt að hagfræðingar
telja oftast málum best fyrir komið
með frjálsum viðskiptum. Þó vinna
hagfræðingar með hugtak sem nefn-
ist á fagmáli markaðsbrestir og
margir í þeirra röðum telja að þessir
brestir gefi tilefni til inngripa
stjórnvalda. Ein tegund markaðs-
bresta verður þegar viðskiptaaðilar
á ákveðnum markaði bera ekki sjálf-
ir allan kostnaðinn af framleiðslu og
neyslu viðkomandi vöru. Dæmi um
þetta er mengandi verksmiðja. Þar
sem mengunin fellur á aðra en við-
skiptaaðila verksmiðjunnar hefur
hún ekki áhrif á það magn sem er
framleitt, eins og annar kostnaður
sem fellur á viðskiptavini eða fram-
leiðendur. Niðurstaðan verður sú að
meira er framleitt og neytt af við-
komandi vöru en hagfræðingum
reiknast til að hámarki hagsæld við-
komandi samfélags.
Svipað er uppi á
teningnum varðandi
vandamálið sem er
viðfangsefni þessarar
greinar. Ofþyngd og
offita leiðir sem kunn-
ugt er til heilsubrests
og eykur líkur á fjöl-
mörgum sjúkdómum.
Þó að heilsubrestur og
sjúkdómar valdi ein-
staklingum sem fyrir
þeim verða miklum
erfiðleikum fellur
kostnaðurinn að vissu marki á hinn
almenna skattborgara. Hagfræð-
ingar benda stundum á
að ein leið til þess að
framleiðendur og neyt-
endur taki þennan
kostnað til greina sé að
leggja hann á við-
skiptaaðilana í formi
skatts. Með öðrum orð-
um, þá virðist það
skjóta skökku við að
áformað sé að lækka
skatt á gosdrykki. Þeg-
ar allt kemur til alls
virðist þessi aðgerð
ganga í berhögg við
markmið íslenskra og erlendra yf-
irvalda um heilsu og heilbrigði
þegnanna. Aðrir hafa áður fært fyrir
því rök að skattprósenta á matvöru
eigi að vera lægri en almenn
skattprósenta í landinu, en vert er
að spyrja: Gilda þau rök sem notuð
hafa verið til lækkunar á matvælum
einnig varðandi verðlækkun á gosi
og sætindum? Ef fólki hrýs hugur
við neyslustýringu, er þá ekki nauð-
synlegt að spyrja einnig hvort rétt
sé að lækka verð á gosdrykkjum
umfram ýmsar aðrar vörur í land-
inu?
Velferðarmál?
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
skrifar um verðlækkun á
gosdrykkjum
» Stjórnvöld verða því að gera sér skýra
grein fyrir að hér er
um að ræða neyslu-
hvetjandi áhrif á
börn og unglinga …
Tinna Laufey
Höfundur er doktor í heilsuhagfræði
og sérfræðingur á Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands.