Morgunblaðið - 21.12.2006, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
FLUGUMFERÐ til og frá Keflavík
mun ekki falla niður þótt flug-
umferðarstjórar sem nú starfa hjá
Flugmálastjórn Íslands ráði sig
ekki til starfa hjá Flugstoðum fyrir
áramót, þótt búast megi við ein-
hverjum seinkunum. Deilan er þó
vatn á myllu kanadískra og breskra
fyrirtækja sem sjá um smærri flug-
stjórnarsvæði á Atlantshafi og
ásælast íslenska flugstjórn-
arsvæðið.
Í dag eru starfræktir tveir hópar
flugumferðarstjóra hér á landi.
Annar hópurinn telur um 30 manns
sem starfa fyrir Flugmálastjórn á
Keflavíkurflugvelli og stýra m.a.
komum og brottförum frá Keflavík-
urflugvelli. Í hinum hópnum eru
tæplega 90 manns sem hafa verið
starfandi hjá Flugmálastjórn Ís-
lands, en sú starfsemi færist til
Flugstoða eftir áramót. Sá hópur
stýrir flugumferð um íslenska flug-
stjórnarsvæðið. Aðeins tæplega 30
hafa þegið starf hjá Flugstoðum.
Staða flugumferðarstjóra hjá
Flugmálastjórn á Keflavík-
urflugvelli verður óbreytt eftir ára-
mót og starfsemi þeirra því óbreytt.
Starfsemin heyrir undir utanrík-
isráðuneytið vegna tengsla við
varnarliðið en mun færast undir
samgönguráðuneytið.
Erfiðlega hefur gengið að ráða
flugumferðarstjóra til starfa hjá
Flugstoðum, en Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri segir að þrátt fyrir
það verði hægt að halda uppi þjón-
ustu á hinu gríðarstóra íslenska
flugstjórnarsvæði.
Hann segir að þjónusta muni þó
skerðast, t.d. verði erfiðara fyrir
flugvélar að fá heimild til að hækka
eða lækka flug til þess að ná hag-
kvæmni í eldsneytisnotkun, vélar
þurfi að fljúga meira eftir fyrirfram
skilgreindum leiðum, og bil milli
véla geti aukist. Af þessu geti leitt
seinkanir á flugumferð til og frá Ís-
landi, sem og milli Evrópu og Norð-
ur-Ameríku sem fer í gegnum ís-
lenska flugstjórnarsvæðið.
Íslensku flugfélögin eiga auðvitað
mikilla hagsmuna að gæta, og segir
Matthías Imsland, framkvæmda-
tjóri Iceland Express, að áhrifin
gætu orðið gríðarlega slæm. Þegar
hefur verið stofnaður starfshópur
innan fyrirtækisins sem undirbúa á
aðgerðir, en Matthías vildi ekki
segja í hverju þær gætu falist að
svo komnu máli.
Aukinn áhugi erlendis
Það ástand sem þegar hefur
skapast þar sem flugumferðastjórar
vilja ekki ráða sig til starfa hjá
Flugstoðum hefur þegar gefið byr í
seglin innan flugumferðarstjórnar
Kanada og Breta, sem hafa hug á
því að skipta íslenska flugstjórn-
arsvæðinu á milli sín, en þau hafa
öflugan stuðning IATA, alþjóða-
samtaka flugfélaga. Slíkt gerist þó
ekki á einni nóttu heldur gæti ferlið
tekið 5–6 ár.
Þetta segir Gunnar Finnsson,
fyrrverandi varaframkvæmdastjóri
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í
Montreal í Kanada, en hann var
starfsmaður stofnunarinnar í yfir
þrjá áratugi,
lengst af sem
sviðsstjóri
rekstrar flugvalla
og flugleiðsögu.
Hann er í dag
stjórnarmaður í
Flugstoðum, en
ræddi við Morg-
unblaðið sem ein-
staklingur með
reynslu úr heimi
flugstjórnarmála, ekki sem stjórn-
armaður.
„Það liggur fyrir að ef flug-
umferðarstjórar koma ekki til
starfa hjá Flugstoðum þá verður, ef
halda á uppi sama þjónustustigi og
verið hefur, veiting þeirrar þjón-
ustu að færast annað,“ segir Gunn-
ar. Hann segir þann feril raunar
þegar kominn í gang, menn frá
Flugmálastjórn Íslands hafi þegar
farið utan, til Skotlands og Noregs,
til samræmisviðræðna við flug-
umferðarstjórnir á svæðum sem
liggja að íslenska svæðinu.
Hann segir að það sem veki
áhyggjur sé sú þróun sem átt hafi
sér stað á síðustu 15–20 árum með
tækniframförum á sviði samskipta
og staðsetningarkerfa flugvéla.
Flugumferðarstjórnarsvæðum fari
smátt og smátt fækkandi þegar
svæði sameinist. Í raun sé tæknin
komin á það stig að hægt væri að
stjórna allri flugumferð í heiminum
frá einni miðstöð, en það sé einfald-
lega ekki pólitískur vilji til þess.
Gunnar segir að komi til þjón-
ustuskerðingar sé fyrst um sinn sá
möguleiki að aðrar flugstjórn-
armiðstöðvar taki tímabundið að
sér stjórnun á íslenska svæðinu á
meðan vandamál sé til staðar hér á
landi. Ef hins vegar eigi að fella ís-
lenska svæðið undir önnur flug-
umferðarsvæði þurfi lengri og
flóknari feril.
Þegar sé þó kominn þrýstingur á
að það verði gert og svæðinu skipt
niður á Kanada og Bretland. Í fyrra
voru til að mynda lögð fram gögn
sem sýna áttu fram á sparnað sem
fólginn væri í slíku.
„Ísland hefur notið velvildar hjá
Alþjóðaflugmálastofnuninni, og það
skiptir miklu máli vegna þess að
það er sú stofnun sem ákveður
hverjir fari með flugleiðsögu á út-
höfunum,“ segir Gunnar.
Gæti tekið 5–6 ár
Ef gera á alvöru úr því að skipta
íslenska flugstjórnarsvæðinu milli
Kanada og Bretlands þyrfti að
leggja fram formlega tillögu þar að
lútandi hjá Alþjóðaflugmálastofn-
uninni. Sú tillaga færi svo fyrir
tækni- og efnahagsráð stofnunar-
innar til að kanna fýsileika tillög-
unnar. Að lokum fer tillagan fyrir
fastaráð Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar, og ef ráðið er breytingunni
samþykkt verður hún að veruleika.
„Þetta er ferli sem tekur tals-
verðan tíma, áhyggjur mínar bein-
ast ekki að því að íslenska flug-
stjórnarsvæðið muni leggjast niður
á morgun eða þess vegna á næsta
ári, heldur er ég að horfa fimm til
sex ár fram í tímann. Það sem kem-
ur á óvart í þessari deilu sem komin
er upp hér á landi er að flug-
umferðarstjórum virðist ekki vera
þetta ljóst,“ segir Gunnar.
Hann segir það e.t.v. ekki skipta
öllu fyrir eldri flugumferðarstjóra
sem verði komnir á eftirlaun þegar
þetta gæti orðið, en yngri flug-
umferðarstjórar ættu með réttu að
hafa af þessu áhyggjur.
„Ég hef mikið álit á starfsgæðum
og hæfileikum þess fólks sem vinn-
ur við flugumferðarstjórn hér á
landi, þetta er mjög gott fólk. Þess
vegna kemur mér á óvart að mönn-
um skuli ekki vera ljóst að þeir eru
að einhverju leyti að grafa sína gröf
með þessu,“ segir Gunnar.
Verði tafir á flugumferð á ís-
lenska svæðinu í lengri tíma er afar
líklegt að tillaga um að skipta ís-
lenska flugstjórnarsvæðinu upp á
milli Kanada og Bretlands verði
lögð fram hjá Alþjóðaflugmálastofn-
uninni. Eftir miklu er að slægjast
fyrir þau einkareknu fyrirtæki sem
sinna flugumferð frá Skotlandi og
Gander í Kanada, enda hægt að
auka tekjur talsvert fyrir fremur
lítinn tilkostnað með því að taka yf-
ir íslenska flugstjórnarsvæðið.
„Við erum í raun í ákveðinni
varnarstöðu sem við ættum að
breyta í sókn,“ segir Gunnar. Ef
haldið sé rétt á spilunum væri hægt
að færa fyrir því rök að sinna ætti
allri flugumferðarstjórn á Norður–
Atlantshafi frá Íslandi og fella niður
stjórn Kanada og Bretlands á þeim
hlutum Norður-Atlantshafsins sem
eru undir þeirra stjórn í dag.
Tvískipting flugumferðar-
stjórnar minnkar vanda
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Búist við töfum Tafir gætu orðið á flugumferð til og frá Íslandi eftir áramót náist ekki
sátt í deilu flugumferðarstjóra við Flugstoðir sem staðið hefur undanfarna mánuði.
Í HNOTSKURN
»Í dag eru tveir aðilar semsjá um að stjórna flug-
umferð við Íslands; Flug-
málastjórn Íslands og Flug-
málastjórn Keflavíkur-
flugvelli. Eftir áramót taka
Flugstoðir við hlutverki Flug-
málastjórnar Íslands.
»Vegna þessarar tvískipt-ingar fellur flug til og frá
landinu ekki niður þótt Flug-
stoðum gangi erfiðlega að
ráða flugumferðarstjóra til
starfa.
»Þó gætu orðið tafir á flugitil og frá landinu og kostn-
aður flugfélaga gæti aukist
vegna skerðingar á þjónustu á
flugstjórnarsvæðinu.
Gunnar Finnsson
Fréttaskýring | Áhrif
þess ef flugumferð-
arstjórar og Flugstoðir
ná ekki samkomulagi
gætu orðið margvísleg.
Tafir gætu orðið á flug-
umferð og aðrir gætu
ásælst íslenska flug-
stjórnarsvæðið.
ÞEIR tæplega 60 flugumferð-
arstjórar sem ekki hafa skrifað
undir samning við Flugstoðir ohf.
lögðu í fyrrakvöld fram tillögu að
samkomulagi við Ólaf Sveinsson,
stjórnarformann Flugstoða, að
sögn Lofts Jóhannssonar, formanns
Félags flugumferðarstjóra. Spurð-
ur um hvort flugumferðarstjórar
hafi dregið úr kröfum sínum segir
Loftur að það hafi þeir gert frá því
viðræður í málinu hófust en það
gildi þó ekki um lífeyrismálin. „Það
hefur aldrei verið útfært hver staða
lífeyrismálanna er, hver er skerð-
ingin og hvernig má bæta hana,“
segir Loftur. Þetta komi hins vegar
fram í þeim gögnum sem afhent
voru stjórnarformanni Flugstoða í
gær. Hafi flugumferðarstjórar
fengið tryggingastærðfræðing til
þess að reikna þetta út fyrir sig.
Í Morgunblaðinu í gær lagði Þor-
geir Pálsson, flugmálastjóri og
verðandi forstjóri Flugstoða ohf.,
áherslu á að engar samninga-
viðræður stæðu yfir við flug-
umferðarstjóra, enda væru samn-
ingar ekki lausir fyrr en eftir rúmt
ár. Loftur segir að þessi ummæli
hans megi til sanns vegar færa
enda séu flugumferðarstjórar
hvorki í samningaviðræðum við
Þorgeir Pálsson né Flugmálastjórn
Íslands. „Við erum í samninga-
viðræðum við Flugstoðir og Þor-
geir Pálsson er ekki starfsmaður
Flugstoða, ekki ennþá allavega,“
segir Loftur.
Með 740 þúsund á mánuði
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, sagði í fyrradag að flug-
umferðarstjórar væru með „al-
gjörlega óforsvaranlegar“ kröfur
um laun. Samkvæmt upplýsingum
hans í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld voru meðallaun þeirra í
desember um 740 þúsund krónur.
„Við setjum aldrei fram óforsvar-
anlegar kröfur. Ef þær væru ófor-
svaranlegar myndum við ekki setja
þær fram,“ segir Loftur Jóhanns-
son um kröfur flugumferðarstjóra.
Tillaga að samkomulagi
Morgunblaðinu barst í gær eft-
irfarandi yfirlýsing frá Ólafi
Sveinssyni, formanni Flugstoða,
fyrir hönd fyrirtækisins:
„Vegna viðbragða stjórnar Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra
í kjölfar stofnunar Flugstoða ohf.
þykir stjórn fyrirtækisins rétt að
eftirfarandi atriði komi fram:
Samkvæmt aðilaskiptalögum
þarf ekki að gera nýjan kjara-
samning þótt starfsemin flytjist
frá Flugmálastjórn yfir til Flug-
stoða. Skýrt var tekið fram, þeg-
ar störf hjá Flugmálastjórn voru
lögð niður, að um starfslok hjá
stofnuninni væri að ræða. Við-
komandi var samhliða boðið
samskonar starf hjá Flugstoðum.
Tekið var fram að launakjör yrðu
áfram samkvæmt gildandi kjara-
samningum. Það var því ekki um
uppsögn kjarasamninga að ræða.
Sömu kjör
Öllum væntanlegum starfs-
mönnum Flugstoða eru boðin
sömu kjör hjá hinu nýstofnaða
fyrirtæki og þeir höfðu áður. Um
er að ræða 230 starfsmenn frá
sautján stéttarfélögum. Sextán
þessara stéttarfélaga hafa án at-
hugasemda gengið til samstarfs
við Flugstoðir enda halda starfs-
menn þeirra sömu kjörum og áð-
ur, eins og kveðið er á í að-
ilaskiptalögum. Eingöngu hefur
hluti flugumferðarstjóra gert at-
hugasemdir við þau kjör sem
Flugstoðir bjóða þeim en þriðj-
ungur flugumferðarstjóra hefur
þegar ráðið sig til starfa hjá
Flugstoðum. Alls hafa um 150
manns ráðið sig til starfa hjá
Flugstoðum.
Lífeyrismál
Að sögn formanns Félags Ís-
lenskra flugumferðarstjóra (FÍF)
eru lífeyrismál helsta ástæða þess
að hann ræður flugumferð-
arstjórum frá því að undirrita
ráðningarsamning við Flugstoðir.
Þessu heldur formaðurinn fram
þrátt fyrir að Flugstoðir hafi
ítrekað bent á að engar breyt-
ingar yrðu á launakjörum starfs-
manna. Flugstoðir hafa lýst því
yfir að fyrirtækið tryggi lífeyr-
issjóðsrétt starfsmanna sinna.
Þetta hefur verið áréttað skrif-
lega, t.d. í upplýsingabréfi til
starfsmanna Flugmálastjórnar
frá 29. nóvember sl. og sérstakri
yfirlýsingu um viðurkenningu á
réttarstöðu starfsmanna Flug-
stoða sem send var út þann sama
dag. Hinn 18. desember sl. lögðu
Flugstoðir fram drög að sam-
komulagi sem áréttar að flug-
umferðarstjórar halda áunnum
lífeyrisréttindum sínum. Formað-
ur FÍF hafnaði því að skrifa und-
ir þau en lagði fram nýjar kröfur.
Tillit tekið til flugumferð-
arstjóra
Formaður FÍF hefur sagt í fjöl-
miðlum að Flugstoðir hafi hafnað
öllum óskum flugumferðarstjóra.
Þetta er ekki sannleikanum sam-
kvæmt, því tillit hefur verið tekið
til margra óska flugumferð-
arstjóra og þeim tryggð ýtrustu
réttindi sem allir starfsmenn
Flugstoða munu njóta. Í þessum
efnum hafa Flugstoðir gengið
lengra en lög kveða á um og sýnt
verulegan vilja til þess að koma
til móts við vilja flugumferð-
arstjóra, sem formaður FÍF hefur
ítrekað hunsað.
Flugumferðarstjórar vilja
launahækkun
Þrátt fyrir að allir starfsmenn
Flugmálastjórnar, aðrir en hluti
flugumferðarstjóra, gangi til liðs
við Flugstoðir á sömu kjörum og
þeir áður höfðu sér formaður FÍF
ástæðu til þess að nýta þessa
breytingu flugumferðarstjórum
til framdráttar og krefst nýs
kjarasamnings og launahækkunar
sem nemur 18–25% hjá stórum
hluta flugumferðarstjóra.
Flugstoðir geta ekki gert flug-
umferðarstjórum hærra undir
höfði en öðrum starfsmönnum og
harma viðbrögð stjórnar FÍF sem
að óbreyttu geta valdið ein-
hverjum töfum á flugumferð og
geta bitnað á flugumferð-
arstjórum sjálfum þegar til lengri
tíma er litið.
Fyrir hönd stjórnar Flugstoða,
Ólafur Sveinsson formaður.“
Ekki um uppsögn
kjarasamninga að ræða