Morgunblaðið - 21.12.2006, Síða 27
jólaráðin
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 27
Oft eru góð ráð dýr þegar mikið liggur við og allt er komið í steik íeldhúsinu. Slys og óhöpp henda nefnilega oft þegar mikið liggurvið og þá er gott að hafa holl ráð í handraðanum. Daglegt líf leitaðitil Þuríðar Helgu Jónasdóttur hjá Leiðbeiningastöð heimilanna
og fékk hjá henni ráð gegn óhöppum, sem upp kunna að koma um hátíð-
arnar.
Komi blettur í dúkinn er stundum nóg að nudda smá uppþvottalegi á
blettinn, láta standa í fjóra til sex klukkutíma og skola síðan.
Heita sósu má útbúa daginn fyrir veisluna. Mikilvægt er að kæla hana
hratt niður og geyma við 0–4°C. Síðan er hún hituð upp undir suðu og
haldið heitri við rúmlega 60°C.
Ef sósan eða súpan er of sölt má setja hráa kartöflu út í. Hún dregur í sig
saltið. Ekki gleyma að fjarlægja kartöfluna áður en sósan er borin fram.
Þegar súkkulaði er brætt yfir vatnsbaði þarf að gæta þess að hvorki vatn
né gufa komist í súkkulaðið því þá getur það farið í kekki. Ef það gerist
má prófa að setja teskeið af bragðlítilli olíu út í og hræra þar til sléttist.
Bollamál eru algeng í útlenskum uppskriftum. Eitt breskt bollamál sam-
svarar um 2,75 desilítrum en 1 amerískt bollamál er 2,4 desilítrar.
Ef kakan er föst í forminu eftir bakstur er gott að láta formið standa á
röku viskastykki eða dagblaði þar til kakan losnar.
Ef blöndunartækin á baðherberginu eru orðin grá af kísil er gott að hella
5% borðediki yfir tækin og láta standa í klukkutíma. Síðan eru þau
hreinsuð með grófu hliðinni á pottasvampi og gömlum tannbursta.
Bletti á spónlögðum flötum og viðarhúsgögnum má stundum fjarlægja
með fínni stálull og bera síðan olíu á. Gætið þess að nudda í sömu átt og
æðarnar í viðnum liggja.
Kertavax, sem fer í dúkinn er hægt að fjarlægja með hárblásara. Ef um
mikið vax er að ræða getur verið gott að setja dúkinn í frystinn og mylja
það mesta úr fyrst.
Tilvalið er að útbúa kökur og eftirrétti fyrirfram og frysta. Einnig er
snjallt að frysta afganga af jólamatnum. Það sem ekki er ráðlegt að frysta
eru gúrkur, tómatar, soðin egg, majones og salatblöð.
Leiðbeiningastöð heimilanna er alhliða neytendafræðsla, sem rekin er af
Kvenfélagasambandi Íslands. Opið er frá kl. 9.00 til 12.30 mánudaga til
fimmtudaga og frá kl.14.00 til 18.00 föstudaga. Í síma 908-2882 er hægt að fá
upplýsingar um matreiðslu, bakstur, þrif og hvað eina sem varðar rekstur
heimilanna. Einnig er þar fylgst með evrópskum gæðakönnunum á heim-
ilistækjum og hægt er að fá ráðleggingar við kaup á þeim. Leiðbein-
ingastöðin hefur verið starfrækt í rúm 40 ár og hefur fjöldi fólks fengið góð
ráð þar í gegnum tíðina. Nú þegar líður að jólum koma sjálfsagt upp ýmsar
spurningar við baksturinn eða veisluundirbúninginn og er þá handhægt að
hringja í Leiðbeiningastöðina.
Hárblásari á
kertavaxið og kart-
afla í of salta sósuna
Síðumúla 3, sími 553 7355. Næg bílastæði
Opið kl. 10-21, þorláksmessu kl. 11-23, aðfangadag kl. 10-13.
Gjöfin hennar
• Undirföt
• Náttföt
• Náttkjólar
• Sloppar
• Gjafakort