Morgunblaðið - 21.12.2006, Qupperneq 46
|fimmtudagur|21. 12. 2006| mbl.is
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
HOLLENSKI plötusnúðurinn
Sander Kleinenberg kemur til Ís-
lands í febrúar næstkomandi. Sand-
er er einn fremsti plötusnúður í
heimi, en hann var m.a kosinn besti
evrópski plötusnúðurinn 2006 af The
Winter Music Conference og Justin
Timberlake og Janet Jackson báðu
hann sérstaklega um að gera fyrir
sig endurhljóðblandanir til útgáfu.
„Ég hef komið einu sinni áður til
Íslands til að spila, ég held að það
hafi verið árið 2001. Ég fór í smáferð
um landið og ég man að það var
skrítið því það var sumar og bjart
allan sólarhringinn,“ segir Sander
sem blaðamaður hringdi í til Hol-
lands þar sem hann býr.
„Ég tek um einn mánuð í frí á ári
en annars er ég á stöðugum ferða-
lögum um heiminn til að spila.
Stundum verð ég þreyttur á þessari
vinnu en aðallega vegna ferðalag-
anna, ég verð sjaldan þreyttur á að
spila. Ég var að koma frá Suður-
Ameríku þar sem mér finnst mjög
gaman að spila en þar kann fólk að
skemmta sér.“
Skiptir ekki máli að vera bestur
Aðspurður hvað honum finnist um
að vera talinn besti plötusnúður í
Evrópu segir Sander það skipta sig
litlu máli.
„Þetta skiptir mig ekki miklu máli
svo ég sé hreinskilinn. Tónlist er list-
form og það er ekkert hægt að vera
bestur eða í fyrsta sæti í tónlist að
mínu mati. Það er fínt að vera þekkt-
ur því þá hefur maður áhrif og
ábyrgð sem ég vona að ég beri á
heilbrigðan hátt og ég er ánægður
með það en þetta að vera bestur
skiptir mig ekki máli. Hjá mér snýst
allt um morgundaginn, ég vil vera
ferskur og því vinn ég frá degi til
dags í að halda tónlist minni áhuga-
verði,“ segir Sander sem er víðsýnn
þegar tónlist er annars vegar.
„Ég spila margar tegundir af
danstónlist og blanda saman ólíkum
stílum. Með tónlistinni nota ég svo
myndbönd sem ég varpa upp í takt
við hana.“
Sanders segist sjálfur hlusta á alls
konar tónlist.
„Ég hef verið að hlusta mikið á
djass að undanförnu en auðvitað
hlusta ég mest á raftónlist.“
Sló í gegn með My Lexicon
En hvað telur hann góða dans-
tónlist?
„Það er tónlist sem kemur frá
hjartanu og snertir sálina á góðan
hátt. Það er tónlist sem er unnin af
ástríðu en ekki í auglýsingaskyni.“
Aðeins fimmtán ára var Sanders,
sem er fæddur 1971, kominn í vinnu
sem plötusnúður á bar sem var rétt
hjá heimili hans í Hollandi og því
hefur hann verið ansi lengi í faginu.
„Svo lengi sem ég nýt mín, er heil-
brigður og held fólki á dansgólfinu
held ég áfram en ég ætla ekki að
verða afi við þetta.“
Það var árið 2000 sem heims-
byggðin fór virkilega að gefa Sander
gaum en þá sendi hann frá sér dans-
lagið „My Lexicon“ sem sló í gegn
og var spilað af nær öllum plötu-
snúðum innan dansgeirans um heim
allan. Síðan þá hefur hann átt hvern
danssmellinn á fætur öðrum eins og
„The fruit“ og „This is Miami“ sem
var eitt vinsælasta lag ársins 2006.
Sander fór fyrst að halda sín eigin
kvöld árið 2006, eru þau nú útbreidd
um heim allan og ganga undir nafn-
inu „This Is“. Sander rekur líka sitt
eigið útgáfufyrirtæki, Little Mount-
ain Recordings, þar sem hann gefur
aðallega út sína eigin raftónlist og
tónlist eftir vini auk þess sem hann
hjálpar ungum plötusnúðum að
koma sér áfram.
Góð danstónlist kemur frá hjartanu
Dj Sander Kleinenberg segist ætla að vinna sem plötusnúður á meðan hann heldur fólki á dansgólfinu.
Plötusnúðurinn
Sander Kleinen-
berg spilar á
Broadway í febrúar
Sanders spilar 9. febrúar á Broad-
way. Forsala er nú þegar hafin í
Gallabuxnabúðinni í Kringlunni.
Miðinn kostar 2.000 kr. í forsölu
en verður á 3.000 kr. við dyr.
Ásamt Sander Kleinenberg koma
fram Exos og Dj Eyvi en húsið
verður opnað kl. 23.00 og er opið
til 5.30.
STEINGRÍMUR Guðmundsson,
ásláttarleikari með meiru, er maður
upptekinn um þessar mundir og tek-
ur þátt í fjölda platna og er með enn
fleiri í farvatninu. Ein þeirra er plata
„heimstónlistarsveitarinnar“ Bar-
dukha sem er nýútkomin og kallast
The Concept of Balzamer Music.
Með Steingrími í sveitinni eru Ást-
valdur Traustason (harmonikka),
Birgir Bragason (kontrabassi) og
Hjörleifur Valsson (fiðla, söngur).
Sjálfur spilar hann á Darboukhu og
tabla. Blaðamaður hitti á Steingrím
og Hjörleif á kaffihúsinu Tíu drop-
um snemmmorguns í vikunni og fór
með þeim yfir þessi mál.
Bardukha varð til í kjölfar gifting-
arveislu sem fram fór árið 2003.
Steingrímur var þá að hitta Hjörleif
í fyrsta skipti og segja má að tónlist-
arlegur ástarblossi hafi kviknað.
Steingrímur sá strax að þetta var
maður sem hann langaði að spila
með. Þeir, ásamt fleirum, djömmuðu
svo saman í brúðkaupinu og kjarni
Bardukhu varð til. Tónlistina sem
sveitin spilar má m.a. rekja til Balk-
anlanda, en Hjörleifur bjó í Prag í
þrjú ár. Bardukhu-mönnum er þó
ekkert heilagt og blanda þeir áhrif-
um frá Asíu, Afríku og Arab-
íulöndum inn í Balkanstemmuna, og
sjálfir kalla þeir tónlist sína balza-
mer-tónlist. „Þetta er fyrst og
fremst okkar tónlist,“ útskýrir Hjör-
leifur. „Við erum ekki hrein-
stefnumenn og blöndum saman því
sem okkur þykir henta og erum að
þróa ákveðinn stíl, ákveðinn hljóm.“
Það þurfti smáskipulagningu við
að koma efni Bardukhu á plast. Á
tónleikum teygist oft á lögunum og
fyrir upptökur þurfti að tína út þá
parta sem væru plötuhæfir. Stein-
grímur segir að þeir séu í raun með
tvær efnisskrár í gangi á tónleikum;
ein þeirra ögn (en ekki mikið) virðu-
legri fyrir tónleika en svo önnur,
mun losaralegri, fyrir partí. Und-
arleg tökulög eru farin að læðast þar
inn og henti Hjörleifur því á loft við
Steingrím yfir kaffispjallinu að þeir
þyrftu að fara að taka lagið „I’m
Gonna Be (500 Miles)“ með Proclai-
mers.
„Við rúlluðum þessu svo inn á ein-
um degi,“ segir Steingrímur, og er
að tala um plötugerðina. „Öll lögin
eru ein heil taka. Það var mikilvægt
að ná kraftinum sem er á tónleikum
og Eyþór Gunnarsson stóð sig vel
sem upptökumaður.“
Vonir standa til þess að fara í tón-
leikaferð um Ísland og áætlað er að
heimsækja staði utan alfaraleiðar og
er Grímsey efst á óskalistanum.
Ferðalag um Evrópu er líka mögu-
legt og svo fer í hönd samstarf með
Kammerkór Hafnarfjarðar í mars.
„Svo vona ég bara að sem flestir
gangi til móts við okkur,“ segir
Steingrímur að lokum. „Það er ekk-
ert að óttast. Þetta er bara skemmti-
legt.“
„Það er ekkert að óttast“
Bardukha Þeim er„ekkert heilagt og blanda þeir áhrifum frá Asíu, Afríku
og Arabíulöndum inn í Balkanstemmuna“.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
myspace.com/bardukha
staðurstund
Bandaríska alríkislögreglan
hefur afhent síðustu leyniskjöl-
in sem hún hafði undir höndum
um John Lennon. » 51
tónlist
Gríski harmleikurinn Bakkynjur
eftir Evripídes verður frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu annan í
jólum. » 48
leiklist
Fjölmargir landsþekktir tónlist-
armenn koma fram á tónleikum
Náttúruvaktarinnar í Hall-
grímskirkju í kvöld. » 53
tónleikar
Jennifer Aniston er svo reið við
Angelinu Jolie að hún þarf að
fara í jóga til að róa sig, og þar á
hún til að gráta. » 55
fólk
Jónas Sen segir að fjölskyldan
hafi sigrað á tónleikum Kamm-
ersveitar Reykjavíkur í Ás-
kirkju. » 55
dómur