Morgunblaðið - 21.12.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 55
40.000
MANNS!
450 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
- Verslaðu miða á netinu
Eragon kl. 6, 8.20 og 10.40 B.i. 10 ára
Casino Royale kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 6
Hátíð í bæ / Deck the Halls kl. 5.50
Mýrin With english subtitles/M. enskum texta kl. 8 og 10.10
Borat kl. 8 og 10
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Aðeins
500 kr.
Frábær fjölskyldu- og gamanmynd
sem kemur öllum í gott jólaskap
eeee
S.V. MBL.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COMKVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
80.000
gestir!
Now with english
subtitles in Regnboginn
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið!
Stórkostleg
ævintýramynd
byggð á magnaðri
metsölubók
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 10
Sýnd kl. 6 ÍSL. TAL
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 9
Sýnd kl. 8 og 10.15 Strangl. B.I. 16Sími - 551 9000
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá
kl. 9. Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Út-
skurðarnámskeið kl. 13. Myndlist kl.
13. Videostund, ýmsar myndir og
þættir kl. 13.30. Allir velkomnir.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 9.30–
10.55 boccia.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
fótaaðgerð, myndlist, bókband, blöð-
in liggja frammi.
Bólstaðarhlíð 43 | Helgistund með
sr. Hans Markúsi á morgun kl. 10. Fé-
lagar úr Gerðubergskórnum leiða
sönginn við undirleik Svanhvítar Hall-
grímsdóttur. Allir velkomnir.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Kíkið við, gluggið í Moggann og
hin blöðin og fáið ykkur rjúkandi kaffi
hjá Erlu og Rósu. Jólahlaðborð kl. 17
föstudag 15. des. Uppl. 588–5533.
Handverksstofa Dalbrautar 21–27 er
opin frá kl. 8 til 16 virka daga. Allir
velkomnir.
Félagsheimilið Gjábakki | Félags-
heimilið Gjábakki er opið milli kl. 9–17.
Allir velkomnir, heitt á könnunni.
Rammavefnaður kl. 9.15. Munið að
panta sem fyrst í skötuveisluna kl.
11.45 á Þorláksmessu.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Handavinnuhorn í Garðabergi eftir
hádegi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Handavinnuhorn í Garðabergi eftir
hádegi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13.45
koma börn frá leikskólanum Suður-
borg og syngja jólalög o.fl. Kl. 14 jóla-
helgistund í samstarfi við Fella- og
Hólakirkju, m.a upplestur, fjölbreytt
tónlist og Gerðubergskórinn leiðir al-
mennan söng undir stjórn Kára Frið-
rikssonar, umsjón Ragnhildur Ás-
geirsdóttir, djákni og sr. Svavar
Stefánsson.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, postulínsmálun. Kl. 10
boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl. 12 hádegis-
matur. Kl. 12 útskurður. Kl. 14 félags-
vist. Kl. 15 kaffi. Kl. 9 hárgreiðsla sími
894–6856.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt á Keilisvelli kl. 10. Leikfimi kl.
11.20. Glerbræðsla kl. 13. Bingó kl.
13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11.
Böðun fyrir hádegi. Félagsvist kl.
13.30, góðir vinningar og kaffi og
meðlæti í hléi. Fótaaðgerðir 588–
2320. Hársnyrting 517–3005/ 849–
8029.
Hæðargarður 31 | Það eru allir vel-
komnir í félagsstarfið. Endilega kom-
ið við, kíkið í blöðin og fáið ykkur
kaffisopa! Tilvalið að bjóða allri fjöl-
skyldunni í síðdegiskaffi við stóra
jólatréð okkar. Fastir liðir eins og
venjulega og auk þess alltaf eitthvað
nýtt á hverjum degi! Maður er manns
gaman! Uppl. 568–3132.
Hæðargarður 31 | Hjördís Geirs og
Siffi í dag. Dansað í kringum jólatréð
með leikskólabörnum frá Jörva. Allir
velkomnir eins og venjulega.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og léttar æfingar kl. 10.30
Handavinnustofur kl. 13. Postulíns-
málun kl. 13. Boccia kl. 13.30. Kaffi-
veitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1, | Kl. 10 boccia, kl.
10.30 ganga, kl. 9 smíði, kl. 9–12 leir,
kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upp-
lestur, kl. 13–16 leir.
Norðurbrún 1, | Kl. 10 boccia, kl.
10.30 ganga, kl. 9 smíði, kl. 9–12 leir,
kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upp-
lestur, kl. 13–16 leir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14 aðstoð v/
böðun. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl.
9–10 boccia. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl.
10.15–11.45 spænska. Kl. 11.45–12.45
hádegisverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl.
13–16 kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla.
Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, bókband kl. 9, morgunstund kl.
9.30, boccia kl. 10, hárgreiðslu og
fótaaðgerðarstofur opna allan dag-
inn, handavinnustofan opin kl. 9–
16.30, glerskurður kl. 13, frjáls spil kl.
13–16.30. Félagsmiðstöðin er opin
fyrir alla og alla aldurshópa. Uppl. um
starfið í síma 411 9450.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund
og samvera. Kl. 13 opinn salur. Kl. 14
bingó (annan hvern fimmtudag).
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður á eftir.
Bústaðakirkja | Foreldramorgunn
alla fimmtudaga kl. 10–12. Uppbyggi-
leg samvera með fræðslu og hress-
ingu. Nánari dagsskrá á kirkja.is. Um-
sjón Berglind og Lisbeth Borg.
Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í
Vídalínskirkju kl. 21. Gott er að ljúka
deginum og undirbúa nóttina í kyrrð
kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur
sínar og gleði. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmis konar fyrir-
lestrar. Alltaf kaffi á könnunni, djús og
brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn 10–
12 ára í Víkurskóla kl. 17–18.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðar-
stund í hádegi. Léttur málsverður á
eftir. Kl. 15 Helgistund í félagsaðstöð-
unni að Dalbraut 18–20. Sr. Bjarni tal-
ar. Kl. 20 Gospelkvöld að Hátúni 10, 9.
hæð. Guðrún K. Þórsdóttir djákni og
Þorvaldur Halldórsson söngvari slá
taktinn og margir fleiri stíga á stokk.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til
Kanarí 10. eða 17. janúar. Njóttu
lífsins á þessum vinsæla áfangastað
við góðan aðbúnað í 1 eða 2 vikur.
Bjóðum örfáar íbúðir á þessum vin-
sæla gististað á frábæru verði. Allar
íbúðir eru með 1 svefnherbergi.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kanarí
10. eða 17. janúar
Sértilboð á Roque Nublo
frá kr. 34.990
Örfáar íbúðir í boði
Verð kr. 34.990
M.v. 2 fullorðna og tvö börn í íbúð á Roque
Nublo í viku. Netverð á mann.
Aukavika kr. 12.000.
Verð kr. 44.990
M.v. 2 í íbúð á Roque Nublo í viku.
Netverð á mann.
Aukavika kr. 12.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
ÁRLEGIR jólatónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur voru haldnir í
Áskirkju um helgina. Efnisskráin
var hefðbundin, allt konsertar frá
barokktímabilinu. En ekki eins hefð-
bundið var að heil fjölskylda sá um
einleikinn. Þetta voru þeir Jóhann,
Martial og Matthías Birgir Nar-
deau, ásamt Guðrúnu Birgisdóttur.
Reið Jóhann á vaðið í þriðja konsert
Hertels.
Því miður voru engar upplýsingar
um einleikarana í fremur fátæklegri
tónleikaskránni, en auðséð var að
Jóhann er ungur að árum. Hvort
hann er enn í námi veit ég þó ekkert
um, en greinilegt var að hann er
gríðarlega efnilegur trompetleikari.
Leikur hans var yfirleitt tær og
glæsilegur, og var það ekki fyrr en
undir lokin að honum fataðist aðeins
flugið, sem má sjálfsagt rekja til
skorts á reynslu af tónleikahaldi.
Faðir Jóhanns, Martial, sem er
flautuleikari, er mun þekktari í tón-
leikalífinu, og lék hann hér konsert
op. 17 nr. 3 eftir Naudot. Túlkun
hans var full af sannfæringarkrafti,
auk þess sem tæknileg atriði voru á
hreinu, fyrir utan örlitla ónákvæmni
í samleik hans og Kammersveitar-
innar á stöku stað.
Eiginkona Martials er Guðrún
sem fyrr var nefnd, og spilar hún
einnig á flautu. Þau tvö léku einleik í
næsta atriði dagskrárinnar, sem var
konsert í C dúr eftir Vivaldi. Hann
kom prýðilega út, hljómurinn í hljóð-
færunum tveimur blandaðist saman
á skemmtilegan hátt og var sam-
spilið við Kammersveitina yfirleitt
til fyrirmyndar.
Konsert í d moll eftir Bach var
líka áhrifamikill í vandaðri túlkun
Matthíasar Birgis, sem er óbóleikari
og bróðir Jóhanns. Matthías hafði
fullt vald á hljóðfæri sínu og var
túlkun hans í senn formföst og til-
finningaþrungin.
Í síðasta atriði tónleikanna kom
önnur fjölskylda við sögu, en það
voru systurnar Rut (fiðla), Unnur
María (fiðla) og Inga Rós (selló) Ing-
ólfsdætur, og fluttu þær, ásamt
Kammersveitinni, Jólakonsert
Corellis. Hann var einstaklega safa-
ríkur í meðförum systranna, þrung-
inn dramatískum andstæðum sem
mynduðu sterka heild. Kammer-
sveitin spilaði líka vel sem endra-
nær. Óneitanlega var það frábær
endir á glæstri dagskrá.
Fjölskyldan sigraði
TÓNLIST
Áskirkja
Konsertar eftir Hertel, Naudot, Vivaldi,
Bach og Corelli. Kammersveit Reykjavík-
ur lék ásamt einleikurum. Sunnudagur
17. desember.
Jólatónleikar
Jónas Sen
Leikkonan Jennifer Aniston fer íjóga til að takast á við mis-
heppnuð ástarsambönd, og fregnir
herma að það sé henni mikill léttir
að gráta í jógatímunum. Hún mun
vera ákaflega reið Angelinu Jolie
fyrir að segja frá því hvernig sam-
band Angelinu við Brad Pitt, fyrr-
verandi eiginmann Jennifer, hófst.
Fyrr í þessum mánuði var svo
staðfest að Jennifer væri hætt með
Vince Vaughn.
Caroline Schaefer, aðstoðarrit-
stjóri US Weekly, segir að þetta
upplýsingaflóð hafi komið Jennifer
algjörlega úr jafnvægi, en henni hafi
fundist gott að fara í jóga til að slaka
á.
„Hún æfir næstum daglega. Hún
grætur í tímum. Þetta hefur verið
henni mikill léttir.“
Angelina sagði frá því í síðustu
viku að hún hefði fallið fyrir Brad á
meðan hann var enn kvæntur Jenni-
fer.
Fólk folk@mbl.is