Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 21
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 21 Í samstarfi við rannsóknasjóði frá 13 Evrópuríkjum er stefnt að því að fjármagna íslenska þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum sem unnin eru í samstarfi fyrirtækja og rannsóknastofnana. Tekið verður við umsóknum óháð rannsóknasviði. Hvert verkefni skal unnið af a.m.k. tveimur fyrirtækjum, hvoru frá sínu landinu, og einni rannsóknastofnun frá öðru landanna tveggja. Upplýsingar um frekari þátttökuskilyrði og leiðbeiningar fyrir umsækjendur er að finna í handbók fyrir umsækjendur á vefslóðinni www.rannis.is/sjodir/taeknithrounarsjodur/ Stefnt er að því að styrkja íslenska þátttöku í 1-2 verkefnum í tvö ár úr Tækniþróunarsjóði en hámarksstyrkveiting eru 10 milljónir á ári. Frestur til að senda inn umsóknir er 15. febrúar 2007 Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Brynjar Björnsson, sérfræðingur á alþjóðasviði, í síma 515 5800 eða á tölvupóstfanginu thorsteinn@rannis.is http://europa.eu.int/eracareers Evrópska rannsóknastarfatorgið • Aðstoðar háskóla, stofnanir og fyrirtæki við ráðningu erlends rannsóknafólks • Aðstoðar rannsóknafólk í leit að áhugaverðum störfum • Auðveldar vistaskipti rannsókna- og vísindafólks í Evrópu EUROPEAN COMMISSION Community research Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • Bréfsími 552 9814 • www.rannis.is Rannsóknamiðstöð, RANNÍS, auglýsir eftir umsóknum til fjölþjóðlegra rannsóknaverkefna H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Ámeðan flugeldar og tívolí-bombur lýsa upp litríkt him-inhvolfið og fólk fagnar nýju ári engjast mörg gæludýr sundur og saman af hræðslu enda eru dæmi um að dýr hafi tryllst og dáið úr hræðslu. Daglegt líf leitaði til Dýralæknastofu Dagfinns við Skólavörðustíg þar sem Anna Jóhannesdóttir dýralæknir varð fyrir svörum þegar spurt var hvernig best væri að vernda hunda, ketti og hesta gegn ljósagangi og sprengigný áramótanna. Hundar leita í öryggið Á gamlársdag, gamlárskvöld, ný- ársdagskvöld og þrettándanum er æskilegt að halda hundum inni við. Gott er að útbúa fyrir þá aðstöðu eða skjól í einhverju rými sem þeir þekkja og finna til öryggistilfinn- ingar. Hafið hjá þeim dót sem þeir þekkja. Gott er að útbúa fyrir þá skjól undir einhverju traustu, t.d. borði þar sem þeir geta haft dýnuna sína eða teppið sitt. Gætið þess að það sé ekkert í rýminu sem hund- urinn getur slasað sig á og skemmt. Ef þú átt búr þar sem hundurinn er reglulega er gott að hafa hann í því. Gott er að draga fyrir glugga á gaml- árskvöld og hafa opið fyrir útvarp þannig að hvellir og ljósagangur að utan hafi minni áhrif. Sumir hundar leita í fangið á eigendum sínum og þá er mikilvægt að ekki sé ýtt undir hræðsluna hjá hundinum með því að veita honum mikla athygli eða vor- kenna honum. Það er allt í lagi að leyfa hundinum að vera hjá eigand- anum en eigandinn þarf líka að passa að sýna með sínu látbragði að sprengingarnar séu eðlilegar og ekk- ert þurfi að óttast. Einungis í mjög slæmum tilfellum er ástæða til að gefa hundinum ró- andi lyf. Ef eigandi telur að hund- urinn þurfi róandi lyf þarf að leita tímanlega til dýralæknis og ráðfæra sig við hann. Einnig er til á markaðinum svo- kölluð hunda-ferómón sem er lykt- arefni unnið úr litlum kirtlum. Þau eru við spenana á tíkum og veita hvolpum öryggistilfinningu. Rann- sóknir hafa sýnt að ferómón virkar á fullorðna hunda líka og hefur þaraf- leiðandi mjög róandi áhrif á flesta hunda. Nú mæla mjög margir dýralæknar með því að þetta sé reynt áður en far- ið er að gefa róandi lyf því ferómónið er algjörlega hættulaust og án auka- verkana. Það fæst í úðakló og næst bestur árangur ef úðaklóin er sett upp um það bil tveimur vikum fyrir áramót. Hræðsla við flugelda getur aukist með árunum, en það er vel hægt að venja hunda við hljóðið af flugeldum, til dæmis með því að spila hljóð- upptöku af sprengingum og hækka styrkinn smám saman. Þetta verður þó að athuga tímanlega, ekki seinna en í október. Til eru á markaðinum góðir geisladiskar með leiðbeininga- handbókum fyrir þá sem hefðu áhuga á svona meðferð. Sumir hundar leita í fang eigand- ans þegar þeir verða hræddir en aðr- ir vilja vera einir. Ef hundurinn leitar sjálfur skjóls er best að leyfa honum að vera í friði og ekki reyna að draga hann fram. Ef hundurinn virðist ekki mjög hræddur má fara með hann út fyrir, en bara í taumi, þar sem hann getur orðið hræddur og hlaupið frá eigandanum. Útvarpstónlist fyrir kettina Á gamlársdag, gamlárskvöld, ný- ársdagskvöld og þrettándanum er æskilegt að halda köttum inni við. Gott er að útbúa fyrir þá aðstöðu, skjól í einhverju rými sem þeir þekkja og finna til öryggistilfinn- ingar. Kettir sækja gjarnan í dimm skot, til dæmis undir rúm eða inn í skápa. Það er mikilvægt að passa að kötturinn sé inni allan daginn á gaml- ársdag þar sem margir virðast byrja að sprengja strax eftir morgunmat- inn. Gott er að draga fyrir glugga í herberginu þar sem kötturinn er og hafa opið fyrir útvarp þannig að hvellir og ljósagangur að utan hafi minni áhrif. Ekki er ráðlegt að gefa köttum róandi lyf um áramót, nema í undantekningartilfellum. Til að fá ró- andi lyf fyrir köttinn þarf að leita tímanlega til dýralæknis. Til er katta-ferómón sem unnið er úr lyktarkirtlum sem eru við veiði- hárin á köttunum en þessi lyktarefni hafa róandi áhrif á köttinn og gefa til kynna vinsamlega stemningu. Ráð- legt er að setja upp katta-ferómón tveimur vikum fyrir áramótin sjálf. Eftirlit þarf með hrossum Best er að hafa hestana sem mest inni í hesthúsum á gamlársdag og á þrettándanum, ekki lausa úti í gerð- um og alls ekki eftirlitslausa. Gott er að líta eftir hrossunum eftir miðnætti þegar mesti atgangurinn er yfirstað- inn. Gott er að byrgja rúður í hest- húsum á gamlárskvöld og hafa opið fyrir útvarp þannig að hvellir og ljósagangur að utan hafi minni áhrif. Hestamenn eru hvattir til að hafa sérstakan vara á þegar farið er í út- reiðatúra á þessum árstíma. Þeir, sem eiga ekki hesta eða gæludýr, átta sig margir ekki á því að hvellir og ljós geta fælt skepnur. Bændum og þeim, sem eiga hross eða stóð í ná- grenni við þéttbýli eða sumarhús, er bent á að gera ráðstafanir og smala hrossum heim eða hafa eftirlit með þeim á meðan mestu lætin ganga yf- ir. Morgunblaðið/Jim Smart Öryggistilfinning Á gamlársdag, gamlárskvöld, nýarsdagskvöld og eins á þrettándanum er æskilegt að halda köttum inni við. Dýrin þarfnast öryggis um áramót Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.